Morgunblaðið - 13.09.2010, Blaðsíða 24
24 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
„Ætli þessi ljóð séu ekki
tilraun mín til að sjá
heiminn í eins skemmti-
legu ljósi og ég get,“ seg-
ir Sverrir Norland um
nýútkomna ljóðabók sína
Með mínum grænu aug-
um sem Nykur gefur út.
Bókin var BA-verkefni
Sverris í ritlistarnámi við
Háskóla Íslands undir
handleiðslu Sigurðar Pálssonar ljóðskálds. Bókin
er jafnframt fyrsta útgefna bók ritlistarnema við
Háskólann.
„Mér finnst erfitt að lýsa ljóðunum mínum, text-
inn talar fyrir sig og þau fjalla um allt milli himins
og jarðar. Ljóðin eru bæði rímuð og stuðluð og
þarna eru myndasöguljóð, sem ég hef áhuga á að
gera meira af, og líka stuttar sögur,“ segir Sverrir
sem auk þess að hafa lokið BA-námi í ritlist er með
BA-gráðu í lögfræði, en viðurkennir reyndar fús-
lega að ritstörfin hugnist honum betur.
Ljóðlist er meitluð hugsun
Um íslenska nútímaljóðagerð segir Sverrir:
„Það er margt gott í íslenskri ljóðlist en í hugum
almennings er ímynd hennar ekki nógu góð, hún
er talin tilgerðarleg og uppstríluð og sagt er að
hún sé ekki um neitt, bara stælar. Ljóðlist má
vissulega vera djúp og á að hræra við fólki, en hún
má líka vera skemmtileg. Í mínum huga er ljóðlist
meitluð hugsun sett í skýran og skemmtilegan
búning, sem allir geta haft gaman af. Þess vegna
skil ég ekki af hverju fólk er ekki sílesandi ljóð alla
daga. Eitt ljóð í bókinni minni heitir Aukin ljóða-
lestur í Reykjavík. Í því ljóði leggst öll vinna niður
í borginni vegna þess að allir loka sig af og sökkva
sér niður í ljóðalestur. Þegar allir eru búnir að lesa
breytist heimurinn aðeins til hins betra. Hug-
myndin er fyndin vegna þess hversu fjar-
stæðukennd hún er, þó satt best að segja finnist
mér stundum enn fáránlegra að þetta skuli ekki
gerast reglulega.“
Í bókinni er einnig að finna þýðingar á ljóðum
eftir Robert Bolaño, Richard Brautigan, Charles
Bukowski, Wislöwu Szymborska, Allen Ginsberg,
Paul Éluard, Langston Hughes og Carl Sandburg.
„Mér finnst gaman að þýða,“ segir Sverrir, „á litlu
málsvæði eins og okkar finnst mér að skáld eigi að
víkka út bókmenntirnar. Svo er náttúrlega synd
og skömm hvað það kemur út lítið af almennileg-
um þýðingum og mikið af reyfaraþýðingum.“
Til London í meistaranám
Með mínum grænum augum er önnur ljóðabók
Sverris. Hann hefur áður gefið út ljóðabókina
Suss! Andagyðjan sefur og hljómplötuna Sverrir
Norland. Hann mun innan skamms halda til Lond-
on í meistaranám í ritlist og segist ætla nýta þann
tíma vel til skrifta.
Ljóðabók hans fæst í helstu bókabúðum höf-
uðborgarsvæðisins en einnig má panta hana á
snorland@gmail.com eða nykurforlag.@gmail.
com.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sverrir Norland „Í mínum huga er ljóðlist meitluð hugsun sett í skýran og skemmtilegan búning, sem allir geta haft gaman af. Þess vegna skil ég ekki af
hverju fólk er ekki sílesandi ljóð alla daga.“ Sverrir var að gefa út bókina Með mínum grænu augum, fyrstu útgefna bók ritlistarnema við Háskólann.
Tilraun til að skoða heim-
inn í skemmtilegu ljósi
Ljóðabók eftir Sverri Norland Bókin var BA-verkefni hans í ritlistarnámi
„Erlingur minn, hvað ertu nú að
gera?“ Svo er nefnd sýning á
verkum Erlings Jónssonar mynd-
höggvara sem frú Vigdís Finn-
bogadóttir opnar í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar næstkomandi
fimmtudagskvöld og er opin laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17 út
nóvembermánuð. Sunnudaginn 19.
september klukkan 15 mun Er-
lingur veita leiðsögn um sýn-
inguna í safninu. Erlingur Jónsson
var vinur Sigurjóns og aðstoð-
armaður hans um áraraðir, en hef-
ur síðastliðna þrjá áratugi búið í
Noregi. Með þessari hversdags-
legu setningu, sem Erlingur valdi
sem heiti á sýninguna, er lýst ein-
stöku sambandi og vináttu milli
þessara tveggja listamanna. Eng-
um hefur verið betur treyst til að
endurgera eða stækka verk Sig-
urjóns og í viðtali sem Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur á við Er-
ling og birt er í sýningarskrá er
fjallað um þennan þátt í ævistarfi
Erlings.
Erlingur Jónsson er fæddur 30.
mars 1930 í Móakoti á Vatnsleysu-
strönd. Hann lauk kennaraprófi í
mynd- og handmennt frá Kenn-
araskóla Íslands 1953 og starfaði
við ýmsa skóla í Reykjavík og á
Suðurnesjum næstu áratugi. Á
áttunda áratugnum var hann nem-
andi og aðstoðarmaður Sigurjóns
Ólafssonar en fór svo í framhalds-
nám til Noregs árið 1976.
Erlingur
minn …
Erlingur Jónsson
sýnir í Sigurjónssafni
Listamaður Erlingur Jónsson við
verk sitt Stjörnuþokusmiður.
Þessa tónleika hafði
hann ákveðið að
hefja líkt og feril sinn, með
látlausu „búski“27
»
Franski kvik-
myndaleikstjór-
inn Claude Cha-
brol er látinn,
áttræður að aldri.
Chabrol var í
hópi leikstjóra
sem áttu þátt í
frönsku nýbylgj-
unni í kvik-
myndagerð á
sjötta áratugn-
um.
Í þessum hópi voru Jean-Luc
Godard, Francois Tuffaut, Éric Roh-
mer og Jaques Rivette.
Árið 1958 gerði Chabrol kvik-
myndina Le Beau Serge sem er talin
ein af fyrstu myndunum sem flokk-
ast undir frönsku nýbylgjuna.
Chabrol leikstýrði meira en 50
kvikmyndum á ferli sínum. Síðasta
myndin, Bellamy, með Gerard Dep-
ardieu í aðalhlutverki var frumsýnd í
fyrra.
Claude
Chabrol
látinn
Far í friði Claude
Chabrol.
í rúm þrjú ár
hef ég safnað saman bréfum, sem
bankarnir senda mér næstum daglega, án þess
að opna þau
ég ætla að kanna
hversu lengi ég kemst upp með þetta, áður en
þeir senda einhvern að
tuska mig til
þá verð ég viðbúinn: ég er búinn
að raða reikningunum upp
í virki
„gagnárás“
Trúbadorarnir og söngvaskáldin Uni og Jón
Tryggvi spila í Galleríi Dungu við Reykja-
víkurhöfn miðvikudagskvöldið 15 september
kl. 20.
Gallerí Dunga er nýtt gallerí á Geirsgöt-
unni í Reykjavík. Þar verður langur mið-
vikudagur hinn 15. september og verður op-
ið til kl 22. Uni og Jón Tryggvi munu taka
lagið en einnig mun Uni, eða Unnur Arndís-
ardóttir eins og hún heitir réttu nafni, spá í
Tarot-spil og rúnir fyrir gesti og gangandi.
Uni og Jón Tryggvi gáfu bæði út sínar
fyrstu sólóplötur í fyrra. Og munu þau leika
lög af þeim, en einnig verða plöturnar til
sölu á staðnum.
Þetta verður notalegt og skemmtilegt
haustkvöld við Reykjavíkurhöfnina. Um að
gera að láta sjá sig, njóta fallegrar tónlistar
og listar, og fá spá inn í veturinn.
Uni og Jón Tryggvi spila í Galleríi Dungu
Músíkalskt par Trúbadorarnir og söngvaskáldin Jón Tryggvi og Uni taka lagið á löngum miðvikudegi.
www.uni.is
www.jontryggvi.is