Morgunblaðið - 13.09.2010, Side 25
Menning 25FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Horn á Höfði – HHHHH Gaman!!!! EB.Fb
Gauragangur (Stóra svið)
Fös 17/9 kl. 20:00 5.k Lau 2/10 kl. 20:00 8.k Fim 21/10 kl. 20:00 11.k
Lau 18/9 kl. 20:00 6.K Sun 10/10 kl. 20:00 9.k Fös 29/10 kl. 20:00
Sun 26/9 kl. 20:00 7.k Fim 14/10 kl. 20:00 10.k
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fim 16/9 kl. 20:00 3.k Fös 24/9 kl. 20:00 5.k Fim 30/9 kl. 20:00 6.k
Sun 19/9 kl. 20:00 4.k Lau 25/9 kl. 20:00 aukas Fös 1/10 kl. 20:00 7.k
Einnig sýnt á Akureyri í nóvember
Enron (Stóra svið)
Mið 22/9 kl. 20:00 Fors Lau 25/9 kl. 20:00 3.k Lau 9/10 kl. 20:00 6.K
Fim 23/9 kl. 20:00 Frums Fim 30/9 kl. 20:00 4.k Fös 15/10 kl. 20:00 7.K
Fös 24/9 kl. 20:00 2.k Fös 1/10 kl. 20:00 5.k
Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Fös 8/10 kl. 20:00 Fors Þri 19/10 kl. 20:00 aukas Lau 30/10 kl. 19:00 9.k
Lau 9/10 kl. 20:00 Frums Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Lau 30/10 kl. 22:00 aukas
Þri 12/10 kl. 20:00 aukas Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Sun 31/10 kl. 20:00 10.k
Fös 15/10 kl. 20:00 2.k Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Mið 3/11 kl. 20:00 11.k
Lau 16/10 kl. 19:00 3.k Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Lau 6/11 kl. 19:00 12.k
Lau 16/10 kl. 22:00 aukas Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Lau 6/11 kl. 22:00 aukas
Sun 17/10 kl. 20:00 4.k Fim 28/10 kl. 20:00 8.k Sun 7/11 kl. 20:00 13.k
Leikgerð verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 18/9 kl. 14:00 1.k Sun 26/9 kl. 14:00 4.k Sun 17/10 kl. 14:00 7.k
Sun 19/9 kl. 14:00 2.k Sun 3/10 kl. 14:00 5.k
Lau 25/9 kl. 14:00 3.k Sun 10/10 kl. 14:00 6.k
Gríman: Barnasýning ársins 2010!
Orð skulu standa (Litla svið)
Þri 21/9 kl. 20:00 Þri 5/10 kl. 20:00
Þri 28/9 kl. 20:00 Þri 12/10 kl. 20:00
Vinsæll útvarpsþáttur - nú á sviði. Sala hafin
Villidýr / Pólitík eftir Ricky Gervais (Litla svið)
Fös 17/9 kl. 20:00 1.k Fim 23/9 kl. 20:00 3.k
Síðasta vetrarvertíð SÍ í Há-skólabíói hófst á föstudag.Það var koluppselt, og hús-fyllirinn lofaði góðu um
sætanýtingu helmingi stærri Hörpu-
salarins að ári – þrátt fyrir kreppu-
raus svartsýnustu radda.
Fari meginhappdrættið fram úr
vonum – þ.e.a.s. hljómburðurinn – er
líka ástæðulaust að hafa áhyggjur.
Innlendir sem erlendir listamenn
munu keppast um að koma þar fram,
og forvitni allra aukast. Jafnvel
þeirra er mest fóru á mis í froðuvæð-
ingu fyrri áratuga. Kannski síðustu
forvöð, áður en pönkið flytur inn á
Grund!
Í dag er oft talað um að „sjá“ tón-
leika. Það leyndi sér heldur ekki að
aðalsegull kvöldins var óskabarn
landsins á hvítum nótum og svört-
um, Víkingur Heiðar Ólafsson, er
tók slaghörpuna meistaratökum
jafnt í fyrri sem seinni hálfleik.
Kannski ráðstöfun við almennum
fólksflótta í hléi líkt og gerzt hefur
áður. Enda olli virtúósinn engum
vonbrigðum frekar en fyrri daginn,
með ýmist íhugulum syngjandi leik
eða hamfaraþungum áslætti í
Dauðadansi Liszts fyrir hlé og dans-
andi glettni í Rapsódíu Rakhman-
inoffs um stef eftir Paganini. Var
gaman að heyra og sjá fjölda dæma
um æ þroskaðri mótun og lunknari
húmor í víðfeðmri túlkun hans sem
ætti að fara eð eiga fullt erindi við
hið stormbeljandi útland. Viðtök-
urnar voru eftir því eða vel yfir 7 á
Richter, en Víkingur náði salnum
niður aftur með ljóðrænni aukalag-
sútleggingu sinni á Í dag skein sól.
Fyrsta atriði kvöldsins var Ís-
landsfrumflutningur á Rúmenskum
konserti Györgys Ligetis frá 1951.
Vakti athygli hvað hljómsveitin var í
flennifínu formi strax frá fyrsta
takti. Snerpan var rosaleg og spila-
gleðin skvettist upp um alla veggi í
smellandi samtaka úttekt á bal-
könsku Rómaeðli. Frábært fjölhliða
skemmtiverk með snert af Bartók
sem vel hefði mátt berast hingað
fyrr.
Hinn dyntótt kankvísi Mefistó-
vals Liszts nr. 1 næst á eftir kom í
mínum eyrum fyrir sem gam-
antóndrama við Chaplin-mynd –
jafnvel þótt dómadagsstefið Dies
Irae væri uppistaðan út í gegn.
Hljómsveitin lék myrkrahöfðingj-
ann í sjakkett af viðeigandi púkótt-
um þokka, og tefldi fram öllu sínu
litaskarti í lokaatriðinu, Eldfuglss-
vítu Stravinskíjs frá 1910. Volkov
hafði þar sem fyrr öll tögl og hagld-
ir; hvetjandi en skýr. Kom ekki á
óvart ef hann þykir meðal sterkustu
kandídata að fyrsta fastastjórnanda
Sísíar í framtíðarhöllinni.
Óskabarn „Það leyndi sér heldur
ekki að aðalsegull kvöldins var
óskabarn landsins á hvítum nótum
og svörtum, Víkingur Heiðar Ólafs-
son, er tók slaghörpuna meist-
aratökum jafnt í fyrri sem seinni
hálfleik.“
Dansað og dillað
við dauðann
Háskólabíó
Sinfóníutónleikarbbbbm
Verk eftir Ligeti, Liszt, Rakhmaninoff og
Stravinskíj. Víkingur Heiðar Ólafsson
píanó; Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Stjórnandi: Ilan Volkov. Föstudaginn 10.
september kl. 19.30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Söngvaskáldið Hörður Torfason
hélt sína 34. hausttónleika síðasta
fimmtudag í stóra sal Borgarleik-
hússins. Þar sem 40 ár voru þá liðin
síðan að fyrsta hljómplata Harðar
kom út á vegum SG hljómplatna
flutti hann þá plötu í heild sinni á
tónleikunum auk annarra laga.
Honum til aðstoðar voru Kristjana
Stefánsdóttir söngkona, Matthías
Stefánsson gítarleikari, fiðluleikari
og mandólínleikari, Hjörtur How-
ser hljómborðsleikari og Róbert
Þórhallsson bassaleikari.
Berfættur! Söngvaskáldið Hörður Torfason lét eins og hann væri
heima hjá sér. Kristjana Stefánsdóttir er í baksýn.
Koma svo! Áhorfendur voru virkjaðir.
Alltaf að Hörður Torfason er listamaður
fram í fingurgóma.
Með hausti
kemur
Hörður
Morgunblaðið/Ómar
Innlifun Hörður Torfa-
son gefur sig allan.