Morgunblaðið - 13.09.2010, Page 32
Meistari Laura Fridfinnson er af ís-
lenskum ættum í Manitoba.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íshokkístúlkan Laura Fridfinnson,
sem er af íslenskum ættum frá „ís-
lenska“ bænum Árborg í Manitoba í
Kanada, er Bandaríkjameistari með
liði Minnesota-háskóla í Duluth og
hittir ásamt liðsfélögum sínum Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseta í
Hvíta húsinu í dag. „Ég er mjög
spennt,“ sagði hún við kanadísku
sjónvarpsstöðina CBC um helgina.
„Allt liðið er mjög spennt og það er
mjög sérstakt að fá tækifæri til þess
að hitta hann, að fá tækifæri til þess
að fara í Hvíta húsið.“
Lykilmaður
Sú hefð hefur komist á að for-
seti Bandaríkjanna býður Banda-
ríkjameisturum í háskólakeppni í
íþróttum í Hvíta húsið á hverju
hausti. Laura er ekki ókunnug slíku
boði, því hún var líka meistari með
liði sínu skólaárið 2007-08, og í kjöl-
farið var liðinu boðið að hitta George
W. Bush, þáverandi Bandaríkja-
forseta. „Það var mjög spennandi og
það verður frábært að hitta annan
forseta,“ sagði sóknarmaðurinn
knái, sem er 22 ára.
Laura er lykilmaður í liði sínu.
Hún var næststigahæst (mörk og
stoðsendingar) á liðnu keppn-
istímabili eins og fyrir tveimur árum
og hefur leikið með yngri landsliðum
Kanada. Foreldrar hennar eru Bri-
an og Heather Fridfinnson og Joel,
bróðir hennar, stundaði íslenskunám
fyrir erlenda stúdenta við Háskóla
Íslands undanfarin tvö ár.
Frá Árborg í Hvíta húsið
Laura Fridfinnson í boði Bandaríkjaforseta öðru sinni
MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 256. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. KR-ingar lögðu Eyjamenn 4:2
2. Fundu barn í ruslakörfu
3. „Röng niðurstaða“
4. Brjálaðist við morgunverðarborð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Það var Sofia Coppola sem tók gull-
björninn heim af kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum sem lauk nú á laugardag-
inn. Mynd hennar, Somewhere, er að
hluta til sjálfsævisöguleg en Sofia er
dóttir Francis Ford Coppola. »28
Reuters
Coppola fangaði
gullbjörninn
Í lærðri grein hjá
mektarblaðinu Gu-
ardian er spáð og
spekúlerað um það
hver muni fylla í
gat það sem Stieg
Larsson og Henn-
ing Mankell skilja
nú eftir sig. Sögur
Larsson eru að verða Hollywood-fæði
og mikill áhugi virðist vera fyrir
meiru. Höfundar eins og Jo Nesbö,
Camilla Ceder og Arnaldur Indr-
iðason eru því nefndir í þessu tilliti.
Tekur Erlendur
við af Wallander?
Tvær af bókum Kleópötru Krist-
bjargar koma út í Bandaríkjunum í
haust undir titlunum Copy Cat World
og Drops of Dew. Það er Author-
House sem gefur út. Tals-
maður fyrirtækisins,
Anthony W. Schrock,
segir að Kleópatra
hafi heillað starfsmenn
fyrirtækisins upp
úr skónum og
hann hafi mikla
trú á bók-
unum.
Kleópatra gefur
út í Ameríku
Á þriðjudag N 13-18 m/s og talsverð rigning norðanlands, en skýjað og þurrt að mestu
sunnanlands. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast syðst.
Á miðvikudag N 8-15 m/s og rigning einkum norðaustan- og austanlands, en skýjað
sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-8 m/s og víða skúrir, einkum suðvestan til, en þurrt
að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 8 til 15 stig.
VEÐUR
Gríðarleg barátta er um Ís-
landsmeistaratitilinn í
Pepsi-deild karla í knatt-
spyrnu. Þegar þrjár umferð-
ir eru eftir er Breiðablik í
efsta sæti með 37 stig eftir
1:0-sigur gegn Fylki. ÍBV
kemur þar næst með 36
stig en liðið tapaði, 4:2,
gegn KR í gær. FH og KR
eiga einnig möguleika á að
landa titlinum en liðin eru
með 35 og 34 stig. »2-5
Breiðablik tyllti
sér á toppinn
Bandaríkjamenn fögnuðu sigri á
heimsmeistaramóti karlaliða í
körfuknattleik eftir 83:64 sigur
gegn Tyrkjum sem voru á heima-
velli. Þetta er fjórði heimsmeist-
aratitill Bandaríkjanna en 14 ár eru
frá því að Bandaríkin unnu HM síð-
ast. »1
Fjórtán ára bið Banda-
ríkjamanna á enda
Það á ekki af handboltamanninum
Einari Hólmgeirssyni, leikmanni
þýska liðsins Ahlen-Hamm, að ganga.
Hann er kominn á sjúkralistann eina
ferðina enn en Einar gekkst undir að-
gerð á hné um helgina og verður frá
æfingum og keppni næstu þrjá mán-
uðina. „Ég held að þetta sé mesta
áfallið af öllum sem ég hef lent í á
ferlinum,“ sagði Einar í gær. »1
„Ég held að þetta sé
mesta áfallið af öllum“
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
„Þetta hefur verið alveg stórkostlegt ævintýri,“
segir Baltasar Kormákur um tökur á nýjustu
mynd sinni, Djúpinu, sem nú standa yfir. „Við
höfum verið úti á sjó að sökkva bátum og í sjó-
sundi í margar vikur, þannig að menn eru orðnir
ansi framlágir, en þetta er allt að hafast,“ segir
hann. Nú síðast fóru fram tökur í stórum vatns-
tanki, þar sem tilraunir eru gerðar á hitaþoli.
Myndin er byggð á sjóslysi sem varð undan Vest-
mannaeyjum árið 1984, þegar Hellisey VE 503
sökk. Ólafur Darri Ólafsson fer með hlutverk
eina skipverjans sem komst lífs af, eftir fræki-
legt sex kílómetra sund í ísköldum sjónum um
miðja nótt. Fjórir félagar hans létu lífið.
Baltasar segir það ekki sérstakt kappsmál að
klára myndina fyrir jól, lögð sé áhersla á að
vanda til verksins. Hann reiknar með því að
myndin verði frumsýnd snemma á næsta ári.
„Sökkva bátum og í sjósundi í margar vikur“
Morgunblaðið/Ómar
Einbeittur Ólafur Darri Ólafsson sést hér við tökur á Djúpinu, nýrri kvikmynd Baltasars Kormáks, sem frumsýnd verður á næsta ári. Hann fer með hlut-
verk skipverja sem kemst lífs af á sundi eftir sjóslys undan Vestmannaeyjum. Hér býr hann sig undir hitaþolsmælingar ásamt stæltum sérsveitarmönnum.