Morgunblaðið - 20.09.2010, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
M
bl
11
83
38
5
Frábært úrval
af undirfötum
Skálastærðir A-G
Audelle,
Charnos,
Lejaby,
Lepel,
Panache,
Elexir
Hæðasmára 4
- Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 - www.selena.is
Næg bílastæði
Full búð af nýjum vörum
30% afsláttur
af völdum línum
HAUST 2010
Glæsilegur
kvenfatnaður
á góðu verði
Vorum einnig að taka
upp töskur og belti
Nýtt kortatímabil
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
51
31
9
09
/1
0
Voltaren gel
15% verðlækkun
Gildir út september 2010
100 g 3.249 kr. Verð nú 2.762 kr.
50 g 1.998 kr. Verð nú 1.698 kr.
Ólympíumótið í skák hefst í
Khanty Mansiysk í Síberíu í Rúss-
landi á þriðjudaginn 21. september
og umferðirnar eru 11, tefldar á 13
dögum. Ísland sendir eins og
venjulega lið bæði í opinn flokk og
kvennaflokk. Í karlalandsliðinu eru
í þessari röð Hannes Hlífar Stef-
ánsson, Héðinn Steingrímsson og
bræðurnir Bragi og Björn Þor-
finnssynir, varamaður er Hjörvar
Steinn Grétarsson. Liðsstjóri er
Helgi Ólafsson.
Borgin er í um 3.000 km fjar-
lægð frá Moskvu og því mikið
ferðalag í vændum. Í kvennaflokki
keppa Lenka Ptácníková, Hallgerð-
ur Helga Þorsteinsdóttir, Sigur-
laug R. Friðþjófsdóttir og Tinna
Kristín Finnbogadóttir, varamaður
er Jóhanna Björg Jóhannsdóttir.
Liðsstjóri kvennaliðsins er Davíð
Ólafsson.
Fararstjóri liðanna er Gunnar
Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands, sem jafnframt verður
fulltrúi á fundi FIDE, Alþjóða-
skáksambandsins, í Khanty Man-
siysk.
Gunnar segir að í karlaflokki
muni sennilega keppa nærri 160 lið
og vonir standi til að íslenska liðið,
sem er númer 54 á styrkleikalista
landsliða, standi sig betur en síð-
ast. Þá varð Ísland í 64. sæti. „Það
var slakasti árangur í sögunni og
menn ætla að gera miklu betur
núna, setja markið hærra,“ segir
Gunnar. Hann segir þó erfiðara en
áður að komast hátt. Bæði Sov-
étríkin og Júgóslavía eru horfin og
í stað þeirra komin um 20 ný ríki
sem flest eru með öfluga skákhefð.
Einnig hafi orðið skákbylting í
Kína, Indlandi og Tyrklandi.
Hann er spurður um forsetaslag-
inn í FIDE, milli Anatólí Karpovs,
fyrrverandi heimsmeistara og
Kirsan Íljúmzhínovs, núverandi
forseta rússneska sjálfstjórnarlýð-
veldisins Kalmýkíu. Kosið verður
milli þeirra í Khanty Mansiysk.
„Það er dúndurspenna í lofti, við
styðjum Karpov eins og flest lýð-
ræðisríki. En Íljúmínsov er talinn
líklegri þótt Karpov sé alls ekki
búinn að gefast upp.“ Íljúmzhínov
er talinn mjög spilltur og er ólík-
indatól sem meðal annars segist
ræða við geimverur á svölunum hjá
sér. Gunnar segir það verða slæmt
fyrir trúverðugleika FIDE ef hann
haldi embættinu.
kjon@mbl.is
Vilja hefna harma á Ólympíuskákmóti
Morgunblaðið/Eggert
Teflt Íslensku ólympíuliðin hituðu upp í Kringlunni fyrir helgi, þar fór fram
boðsmót í tilefni mótsins sem hefst á morgun í Khanty Mansiysk í Síberíu.
Þau mistök urðu við vinnslu
fréttar á forsíðu Morgunblaðsinss
18. september að Hiroaki Takatsu,
framkvæmdastjóri verkfræði- og
þróunardeildar japanska rafhlöðu-
fyrirtækisins Tepco, var sagður
aðstoðarforstjóri Mitsubishi
Heavy Industries. Hið réttar er að
Ichiro Fukue er aðstoðarforstjóri
Mitsubishi Heavy Industries eins
og fram kemur á blaðsíðu 20 í
blaðinu. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
Röng staða