Morgunblaðið - 20.09.2010, Side 10

Morgunblaðið - 20.09.2010, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 Þrýstnar fyrirsætur gengu sýningarpalla í Lincoln Center síðastliðinn miðvikudag á vegum tískuvikunnar í New York. Þar klæddust þær meðal annars flíkum sem vöktu athygli á föngulegum líkamslínum þeirra í stað þess að fela þær. Sýndu stærðir 12-16 Sýningin var sú fyrsta sinnar teg- undar á tískuvikunni, en svokallaðar „plus size“-fyrirsætur hafa ekki sést þar áður á sýningarpöllum. Það var vef- síðan OneStopPlus.com sem stóð fyrir sýningunni „Belle Epoque“ og var til- gangurinn að veita ungum stelpum og konum af öllum stærðum innblástur. Fjöldi föngulegra stjarna mætti á svæðið og má þar meðal annars nefna Nikki Blonsky, KayCee Stroh og Gabo- urey Sidibe. Fyrirsæturnar sýndu fjöl- breyttan klæðnað í stærð 12-16 en hönnuðirnir sóttu að þessu sinni inn- blástur til tímabilsins 1890-1914. Þar mátti líta glæsilega kjóla, blúss- ur, leðurjakka, þröngar gallabuxur, stuttbuxur og aðrar flíkur sem oft er erfitt að finna í stórum stærðum. Vilja klæðast hátísku Flíkur fatahönnuðarins Zahirs Babv- anis vöktu athygli en hann lagði áherslu á að hanna flíkur fyrir alla ald- urshópa. Babvani sagðist hafa sótt inn- blástur til ofangreinds tímabils, sem lauk þegar fyrri heimsstyrjöldin hófst, þar sem það hafi einkennst af mikilli jákvæðni. Það hafi svo náð að smita út frá sér á sýningunni sjálfri. „Ég er alveg bara loksins,“ sagði High School Musical- leikkonan KayCee Stroh um þessa ný- stárlegu sýningu. „Fatahönnuðir hanna mjög falleg föt, en hver á eiginlega að klæðast þeim?“ Að sögn Stephanie Sobel, forstjóra seljenda „stærri“ klæðnaðar, er sýn- ingin í takt við nútímaþjóðfélag enda klæðast 62% bandarískra kvenna stærðum 12 og upp úr. „Þær eru orðnar leiðar á að neyðast til að klæðast flík- um sem hannaðar eru fyrir stæðir 0 og 2. Þær eru einnig þreyttar á að tísku- heimurinn líti niður á þær.“ Óskarsverðlaunahafinn Gabourey Si- dibe, sem er vel í holdum, sagðist vera ánægð með gang mála. „Þetta er mjög stórt skref í átt að viðurkenningu samfélagsins gagnvart fólki í stæri kant- inum.“ Tíska Lögulegar fyrirsætur áberandi Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hef spilað á harmonikku íþessi sextíu ár sem liðineru frá því ég kom fyrstfram opinberlega á ferm- ingardaginn minn. Þá fékk ég að spila á balli í tvo tíma, en ég þurfti nátt- úrulega að vera kominn heim klukk- an tíu vegna ungs aldurs,“ segir Örv- ar Kristjánsson harmonikkuleikari og hlær að minningunni. „Ég var ekki nema sex ára þeg- ar ég fór fyrst að fikta við harm- onikku bróður míns sem átti tvær slíkar. Ég stalst í aðra harmonikkuna á meðan hann fór að vinna, en við átt- um heima í sveitinni, í Volaseli í Lóni í Hornafirði. Hann seldi bæði hljóð- færin þegar ég var sjö eða átta ára og þá fannst mér heldur tómlegt. En þegar ég flutti á Höfn um tíu ára ald- ur, þá var ég svo heppinn að nágranni minn Karl Sigurðsson átti harm- onikku sem hann leyfði mér að grípa í. Fyrstu harmonikkuna sem ég eign- aðist gaf mér Egill Jónsson seinna alþingismaður, en það var lítil harm- onikka sem hann átti undir rúmi og ég man að það vantaði á hana skel- plöturnar og tvær nótur. En ég náði tökum á spilamennskunni með henni. Fyrsta harmonikkan mín í fullri stærð var sú sem ég fékk í ferming- argjöf og ég hef átt þær margar síð- an.“ Spilaði stanslaust á Akureyri Örvar er lærður bifvélavirki og segist hafa haldið sér uppi með spila- mennsku þegar hann var að læra. „Þá spilaði ég á hinum ýmsu Með nikkuna í fanginu í sextíu ár Hinn landsþekkti harmonikkuleikari Örvar Kristjánsson er hvergi nærri hættur að spila þó hann sé kominn á áttræðisaldur. Hann spilar sex kvöld vikunnar í sex mánuði á Kanaríeyjum yfir vetrartímann. Og á döfinni er diskur í tilefni af sextíu ára spilaafmæli hans. Hann valdi sjálfur lögin sem hann spilar þar, eins og hann hefur ævinlega gert. Morgunblaðið/Ernir Flottur Örvar Kristjánsson er sannkallaður harmonikkutöffari. Næst þegar maður heilsar þér með handabandi á íþróttaleik skaltu gæta að þér, það eru góðar líkur á því að hann hafi ekki þvegið á sér hendurnar eftir síðustu klósettferð. Samkvæmt bandarískri rannsókn, sem var kynnt á mánudaginn, þvo aðeins um tveir þriðju hlutar karl- manna sér um hendurnar eftir að hafa notað klósettin á íþrótta- leikvanginum Turner Field í Atlanta í Bandaríkjunum. Bæði var athugað með handþvott með spurningum í gegnum síma og með útsendurum sem fylgdust með á almenningssalernum. Tuttugu prósent af þeim sem not- uðu klósettin á Pennsylvania- íþróttaleikvanginum og á Grand Central Terminal í New York þvoðu ekki hendurnar eftir klósettferð. Kvenmenn voru skynsamari en karlmenn þegar kom að handþvott- inum, 98% af konum á Turner Field þvoðu hendurnar almennilega áður en þær yfirgáfu salernið. 85% af konum og körlum sem notuðu al- menningssalerni í Atlanta, Chicago, New York og San Francisco þvoðu hendurnar en samkvæmt símakönn- un sögðust 96% af fólki alltaf þvo sér um hendurnar eftir salernisferð á almenningsklósett. Prósentan féll niður í 89% þegar kom að því að þvo sér eftir salernisferð í heimahúsi. Þeir sem notuðu almenningssal- erni í Chicago og San Francisco þvoðu hendurnar oftast, 89% full- orðinna þvoðu hendurnar áður en þau yfirgáfu salernið. Tölurnar eru þær hæstu síðan rannsóknin hófst árið 1996. Er talið að svínaflensan hafi gert fólki betur grein fyrir mikilvægi handþvottar. Að handþvottaprósentan sé svona lág á íþróttaleikvöngum getur skýrst af því að fólk er að flýta sér aftur á völlinn til að missa ekki af leiknum. Könnunin núna sýndi að fleiri eru farnir að þvo sér um hendurnar á Turner Field en þegar könnunin var gerð síðast, árið 2007. Heilsa Morgunblaðið/Ásdís Handþvottur Það er vissara að þvo sér um hendurnar eftir salernisferð. Handþvottur á almenningssalernum Páll Einarsson prófessor í jarðeðlisfræði fjallar um aðferðir til að fylgjast með virkni eldfjalla og segja fyrir um hegðun þeirra. Af hverju er stundum hægt að spá og stundum ekki? ...hvar gýs næst? Eldfjöll... 20. september kl. 20:00 - 21:30 Súfistanum, Máli og menningu er í kvöld VÍSINDAKAFFIÐ Fyrsta Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is www.rannis.is/visindavaka Allir velkomnir. Láttu sjá þig! H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.