Morgunblaðið - 20.09.2010, Qupperneq 11
Reuters
Í þá gömlu góðu Örvar með hljómsveit sinni fyrir rúmum tuttugu árum, árið 1989.
stöðum í Reykjavík og kynntist mörg-
um af mínum bestu vinum í gegnum
þá spilamennsku. Ég bjó á Akureyri í
rúman áratug og þá spilaði ég stans-
laust, bæði í minni eigin hljómsveit og
með öðrum.“
Örvar var og er jafnvel enn
harmonikkuleikari Íslands númer eitt
í hugum margra.
„Ég held það hafi komið til af því
að ég spilaði svolítið öðruvísi músík en
þeir harmonikkuleikarar sem þá voru
að gefa út plötur. Þeir voru meira með
einleik en ég var með hljómsveit og ég
var með lög sem höfðuðu meira til al-
mennings. Þegar fyrsta platan mín
var gefin út hjá Tónaútgáfunni á Ak-
ureyri árið 1971 þá hitti hún í mark, af
því það vantaði þessa músík. Þetta
voru lög sem margir eru að keppast
við að spila í dag, eins og Fram í heið-
anna ró og Komdu inn í kofann minn.
Þetta voru alþýðulög sem ég hafði
fundið að fólk kunni vel við og það
söng með þegar ég var að spila á
dansleikjum. Ég hlustaði eftir hvað
fólk vildi og valdi þau lög á plöturnar
mínar. Ég hef alfarið fengið að velja
þá músík sem ég hef gefið út og fyrir
það er ég þakklátur.“
Börnin erfðu tónlistargáfuna
Tónlistin er augljóslega í blóði
Örvars því mörg af börnum hans
starfa við tónlist. Grétar sonur hans
er hljómborðsleikari og hefur spilað
og sungið með Stjórninni, Þórhildur
dóttir hans er söngkona og tvo syni á
hann sem heita Karl og báðir hafa
starfað við tónlist. Sonur hans Atli er
píanóleikari og hámenntaður í tónlist.
Hann hefur haslað sér völl sem höf-
undur kvikmyndatónlistar í Los Ang-
eles og Örvar segir stoltur frá því að
Atli sé byrjaður að spila á harm-
onikku. „Ég hvatti hann fyrir fjórtán
árum til að læra á harmonikku svo
þetta myndi ekki hverfa úr fjölskyld-
unni með mér og nú hefur það loks
orðið að raunveruleika. Hann er
meira að segja farinn að nota harm-
onikkuna í kvikmyndatónlistinni.“
Mikið heimshornaflakk
Örvar segir að spákona á Hverf-
isgötunni hafi spáð fyrir honum þeg-
ar hann var ungur maður og hún hafi
sagt að hann ætti eftir að ferðast
mikið.
„Og það hefur heldur betur
komið fram, því ég hef ferðast víða
um heiminn sem ég hefði ekki annars
gert nema af því að ég kann að spila á
harmonikku. Ég hef spilað á þorra-
blótum Íslendinga í mörgun löndum
og ég hef farið á þrjú harmonikkumót
í Færeyjum, svo fátt eitt sé nefnt. Og
nú er ég á leiðinni út til Kanaríeyja,
þar sem ég hef búið á veturna und-
anfarin sautján ár.
Ég spila á harmonikkuna á
Klörubar og það gerir mér kleift að
vera þarna í góða veðrinu allan vet-
urinn.“
Kröfuharðir hlustendur
„Fyrstu tíu árin spilaði ég hjá
Klöru en svo hvíldum við okkur hvort
á öðru og ég spilaði í rúm fjögur ár á
norskum bar sem heitir Tröllastofan.
En svo fór ég aftur til Klöru og hef
verið þar síðan. Ég spila borðmúsík
frá klukkan hálf átta til tíu og spila
svo fyrir dansi eftir það til miðnættis.
Ég spila sex kvöld í viku í sex mánuði
yfir vetrartímann. Eftir að hrunið
reið yfir hefur íslenskum gestum
fækkað á Klörubar og nú er þar mik-
ið af Finnum, Norðmönnun, Svíum
og Dönum og þeir gera miklar kröf-
ur, sem er bara gott fyrir mig, enda
eru þetta miklar harmonikkuþjóðir,“
segir Örvar og bætir við að lögin á
nýja diskinum séu í raun mörg þeirra
sem hann spilar á Kanarí.
„Þetta eru mjög þekkt alþjóðleg
gömul lög, en þarna eru líka tvö ís-
lensk lög. Þetta er svona stríðsára-
tónlist, falleg lög og þægileg.“.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
Viltu detta í barndóminn á ný og efla
tískuvitið í leiðinni? Á vefsíðunni
looklet.com má finna eins konar
dúkkulísuleik fyrir fullorðna.
Hægt er að velja á milli 28 kven-
kyns fyrirsætna sem eru allar mjög
ólíkar í útliti. Til að klæða þær upp
eru flíkur og fylgihlutir hreinlega
dregnir inn á myndina sjálfa. Útkom-
an er ansi raunveruleg.
„Dótakassi“ síðunnar virðist enda-
laus en í honum má finna jakka, boli,
buxur, kjóla, undirföt, hatta, trefla,
skó og svo mætti lengi telja. Þar má
meira að segja finna skrýtna auka-
hluti, til að mynda húðflúr.
Á síðunni er svo hægt að finna
upplýsingar um alla þá hluti sem þar
eru. Hvar þeir fást og oftar en ekki er
bein tenging inn á síðu seljandans.
Svo er það rúsínan í pylsuend-
anum. Þegar „dúkkulísan“ er full-
klædd má dútla við að breyta útliti
bakgrunnsins til að fullkomna mynd-
ina.
Að þessu loknu er hægt að senda
herlegheitin í keppni sem haldin er
reglulega. Sigurvegarinn hlýtur svo
glæsilegan fatnað í vinning. Þær sem
eru óþornar við að para saman flíkur
geta litið á þær samsetningar sem
hafa slegið í gegn á síðustu dögum.
Vefsíðan www.looklet.com
Töff Það er hægt að klæða fyrirsæt-
urnar upp á marga vegu.
Dúkkulísuleikur fyrir fullorðna
Það er fátt betra en að hreyfa sig úti í náttúrunni, sérstaklega þegar hausta tek-
ur og sólarljósið og hitastigið verða dýrmætari með hverjum deginum sem líður.
Hvernig væri að hefja vikuna á góðri fjallgöngu og taka jafnvel myndavélina
með til þess að fanga alla þá litadýrð sem þessum árstíma fylgir. Nágrannafjöll
höfuðborgarsvæðisins eru mörg og því tilvalið fyrir höfuðborgarbúa að skjótast
eftir vinnu og nýta sólarljósið.
Þá væri sniðugt að ganga til liðs við Ferðafélag Íslands sem stendur fyrir Esju-
göngum tvisvar í viku.
Endilega …
… farið á fjöll
Morgunblaðið/Eyþór
Útivist Fjallganga er góð hreyfing og fjallaloftið hressir bæði sál og likama.
fljótlegt og gott
ÓDÝRT
OG GOTT
kr.
kg699
Núðlur með kjúkling