Morgunblaðið - 20.09.2010, Qupperneq 14
14 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
● Sparnaður ehf. hefur sett upp reikni-
vél á vefslóðinni sparnaður.is, til að
reikna út áhrif dóms Hæstaréttar á
gengistryggð bíla- og fasteignalán.
Lánin eru reiknuð út miðað við fjóra
kosti: Ef gengistryggð lán væru lögleg,
ef samningsvextir hefðu verið látnir
standa allan lánstímann, ef vöxtum
hefði verið breytt í verðtryggða vexti
Seðlabanka og að síðustu miðað við
breytilega óverðtryggða vexti Seðla-
banka.
Reiknivél Sparnaðar er hugsuð sem
framlag til upplýstrar umræðu um nið-
urstöðu Hæstaréttar á gengistryggð
lán til einstaklinga, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu.
Reiknivél á vefnum
● Viðskiptaráð Ís-
lands og Samtök
atvinnulífsins efna
til opins morg-
unverðarfundar
um skattamál fyr-
irtækja á Hótel
Nordica á fimmtu-
daginn. Í tilkynn-
ingu um fundinn
segir: „Margt
bendir til þess að
þær breytingar
sem hafa verið innleiddar á skattkerfinu
hérlendis undanfarin misseri séu farnar
að hafa neikvæð áhrif á atvinnulífið.
Fundinum er ætlað að vera innlegg í þá
umræðu sem þarf að eiga sér stað um
skattkerfið til að tryggja að samkeppn-
isstaða landsins veikist ekki enn frekar.
Þar verður m.a. farið yfir þær brotalam-
ir sem eru á núverandi skattalöggjöf og
hvaða breytingar þarf að ráðast í.“
Samtök atvinnu-
lífsins Nýtt hús í
notkun.
Opinn fundur um
skattamál á fimmtudag
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Séu skuldir þeirra sem fá greiðsluað-
lögun tryggðar með veði í eign þriðja
aðila, en látnar niður falla, stendur
veðréttur kröfuhafans óhaggaður. Í
síðustu viku felldi Hæstiréttur úr
gildi ákvörðun Sýslumannsins í
Reykjavík um að afmá veðbönd af
fasteign tengdaföður einstaklings
sem fékk fellda niður skuld gagnvart
SPRON.
Einstaklingur sem fékk sam-
þykktan nauðsamning til greiðsluað-
lögunar í október 2009, fékk felldar
niður eftirstöðvar veðskuldabréfs
sem tekið var hjá SPRON árið 2004.
Lánið var tryggt með veði í fasteign
tengdaföður lántakandans, en
skuldabréfið var gefið út til að endur-
fjármagna eldri skuldir. Greitt var af
skuldabréfinu skilvíslega fram í apríl
2009. Upphaflegur höfuðstóll lánsins
var tæplega 5,8 milljónir króna, en
gjaldfallinn höfuðstóll þess nemur nú
tæpum sjö milljónum króna, að því
er kom fram í málsatvikalýsingu.
Eftir að skuldarinn hafði fengið sam-
þykkti dómstóla til nauðasamnings-
umleitana samkvæmt lögum um
greiðsluaðlögun, óskuðu eigendur
fasteignarinnar sem um ræðir að
veðböndin yrðu afmáð. Á það féllst
sýslumaður. Héraðsdómur Reykja-
víkur staðfesti þá ákvörðun sýslu-
manns, sem Hæstiréttur ógilti.
Nýtur verndar eignaréttar
Í dómi Hæstaréttar segir að veð-
réttur kröfuhafa njóti verndar eigna-
réttarákvæðis stjórnarskrárinnar.
Vísaði dómurinn í ákvæði gjald-
þrotalaga um að nauðasamningur
haggaði ekki rétti lánardrottins
skuldarans til að ganga að tryggingu
sem þriðji maður kann að hafa sett
fyrir efndum skuldbindingar til
fullnustu á henni allri eða til að
krefja ábyrgðarmann um fulla
greiðslu.
Í lögum um greiðsluaðlögum var
ekki hróflað við því ákvæði. Jafn-
framt segir í athugasemdum með
frumvarpi til laganna, að greiðsluað-
lögun skuli ekki frekar en nauða-
samningur samkvæmt öðrum
ákvæðum hagga rétti lánardrottna
til að ganga að veðum sem sett hafa
verið fyrir efndum skuldbindingar.
Hægt að ganga að veðum
þrátt fyrir greiðsluaðlögun
Þó að eftirstöðvar skuldar falli niður, verndar eignarétturinn veðbönd kröfuhafa
Greiðsluaðlögun Lánardrottnar geta gengið að veðum að baki skuldum
sem einstaklingar fá felldar niður vegna greiðsluaðlögunar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Greiðsluaðlögun
» Þó svo að skuldir þeirra sem
fá greiðsluaðlögun séu felldar
niður getur lánardrottinn
áfram gengið að veðum sem
kunna að hafa verið sett til
tryggingar á greiðslu
skuldanna.
» Einstaklingur sem tók 5,8
milljóna skuldabréfalán hjá
SPRON með veði í fasteign
tengdaföður síns fékk eftir-
stöðvar skuldarinnar felldar
niður.
» Bankinn getur eftir sem áð-
ur gengið að veðinu til að fá
fullnustu kröfu sinnar.
Kínverjar þurfa
að auka einka-
neyslu innan-
lands og þrýst-
ingur þess efnis
að júaninu verði
leyft að styrkjast
frekar mun
aukast. Þetta er
mat Li Daokui,
eins af helstu
efnahags-
ráðgjöfum kínverska seðlabankans.
„Þrýstingur á aukna styrkingu
júansins er rétt að byrja og mun
aukast enn frekar,“ sagði Li hópi
fulltrúa atvinnulífsins á fundi í gær.
Júanið styrktist um 0,68% í vik-
unni sem leið. Gjaldmiðillinn hefur
nú styrkst um 1,5% frá því í júní,
þegar viðskipti með gjaldmiðilinn
voru gerð frjálsari en áður. Af-
leiðumarkaðurinn bendir jafnframt
til þess að vænst sé annarrar eins
styrkingar til viðbótar á næstu 12
mánuðum.
Þurfa að
auka neyslu
Júan Styrkist.
Þrýstingur á að
kínverski gjaldmið-
illinn styrkist
Álagsprófum grískra banka hefur
verið frestað, að sögn Financial Tim-
es til að gefa þeim andrúm áður en
stjórnvöld í Aþenu kanna hvort vel-
gengnin í útboðinu í síðustu viku átti
rétt á sér, með því að afla fjár á fjár-
magnsmörkuðum.
Hin svokallaða „troika“ – Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn, Evrópuráðið og
Evrópubankinn – hefur samið við
gríska seðlabankann um að fresta
prófum á eiginfjárstöðu grískra
banka um einn mánuð. Prófið mun
því fara fram í lok októbermánaðar.
Þessi frestur þýðir að níu mánaða
uppgjör bankanna mun liggja fyrir,
og einnig útkoman úr 1,7 milljarða
evra skuldabréfaútgáfu seðlabanka
Grikklands, sem á að ljúka í október.
ivarpall@mbl.is
Álagspróf-
um frestað
–– Meira fyrir lesendur
MEÐAL EFNIS:
Fjölskyldubílar.
Atvinnubílar.
Pallbílar.
Jeppar.
Nýjustu græjur í bíla.
Leiðsögutæki .
Varahlutir.
Dekk.
Vinnufatnaður.
Námskeið.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um fjölskyldubíla,
atvinnubíla, jeppa, pallbíla o.fl.
föstudaginn 1.október 2010
Blaðið er góður kostur fyrir þá sem
vilja vekja athygi á vörum sínum og
þjónustu.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 27. september.
BÍLABLAÐ
sérblað
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Heimir Bergmann
heimir@mbl.is
Sími: 569-1145