Morgunblaðið - 20.09.2010, Side 25
DAGBÓK 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
1 4 6
2 8 6
5 8
1 3 9 8
9 4 1 3 5
3 9 4
6 5 3
3 9 6 2 1
4
5 9 8
3 1
4 5 7
7 8 4
5 3 1
8 4 3
1 4
8 6 1 5
7 5 9 6
1
8 5 7 3
4 3 1
1 5 6
4
8 9
9 4 1 8 2
2 5 6
9 7
4 1 6 7 9 8 2 5 3
8 5 7 1 2 3 9 4 6
9 3 2 4 5 6 8 1 7
7 9 1 8 4 2 3 6 5
6 2 4 9 3 5 7 8 1
3 8 5 6 7 1 4 9 2
2 6 3 5 8 4 1 7 9
5 4 9 3 1 7 6 2 8
1 7 8 2 6 9 5 3 4
7 8 9 5 1 2 6 3 4
1 2 3 6 8 4 9 5 7
4 5 6 9 3 7 1 8 2
2 3 4 8 5 9 7 1 6
6 9 1 2 7 3 5 4 8
8 7 5 4 6 1 3 2 9
3 4 7 1 2 6 8 9 5
5 1 2 7 9 8 4 6 3
9 6 8 3 4 5 2 7 1
7 1 8 2 6 9 5 3 4
6 4 2 5 3 1 9 8 7
5 3 9 4 7 8 1 6 2
4 9 7 8 1 3 6 2 5
2 6 1 7 5 4 3 9 8
3 8 5 9 2 6 7 4 1
9 5 4 3 8 7 2 1 6
8 2 6 1 9 5 4 7 3
1 7 3 6 4 2 8 5 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 20. september,
263. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra
yður illt, ef þér kappkostið það sem
gott er? (1Pt. 3, 13.)
Það má margt segja um Íslend-inga eins og varla þarf að hafa
mörg orð um. Þetta er auðvitað alveg
stórfurðulegur þjóðflokkur svo ekki
sé meira sagt. Eitt er það að eins
upplýstir og Íslendingar telja sig nú
einatt vera eru þeir óskaplega upp-
teknir af sjálfum sér. Um þetta hefur
auðvitað oft verið fjallað á hinum og
þessum vettvangi og af hinu og þessu
tilefni og hefur Víkverji klárlega átt
sinn þátt í slíkri umfjöllun.
x x x
Þannig er það svo að þegar alltgengur vel, eða það er að
minnsta kosti almennt talið að allt
gangi vel, þá eru Íslendingar fremst-
ir í heiminum á öllum sviðum. Þá er
allt á Íslandi langbest og enginn
kemst með tærnar eða puttana í
neinu þangað sem landsmenn kom-
ast með sína líkamsparta. Þetta er
vitaskuld ekkert nýtt. Þetta vita auð-
vitað allir.
x x x
En það er önnur hlið á þessu málieins og flestum öðrum. Það eru
iðulega tvær hliðar á hverjum pen-
ingi. Það er nefnilega svo að þegar
hlutirnir ganga ekki nógu vel eða
jafnvel alveg hörmulega illa þá er allt
talið verst á Íslandi. Allt ómögulegt í
alla staði. Hvergi í heiminum meiri
spilling, hvergi í heiminum vonlaus-
ari stjórnmálamenn, hvergi í heim-
inum verra þetta og hvergi í heim-
inum verra hitt. Víkverji leyfir sér að
fullyrða að svona einfaldur sé nú
heimurinn ekki, ekki einu sinni á Ís-
landi.
x x x
Líklegra er nú að mati Víkverja aðhið rétta í þessum efnum sé að
finna einhvers staðar þarna á milli
eins og í svo mörgu öðru. Íslendingar
eru framarlega í heiminum í mörgu
og vafalítið fremstir eða a.m.k. á
meðal þeirra fremstu á ýmsum svið-
um líka. Á Íslandi er einnig margt
sem mætti svo sannarlega betur fara
og vafalítið ýmislegt slíka sem er al-
gerlega óviðunandi. Það er stutt öfg-
anna á milli segir máltækið og það á
svo sannarlega við í þessum efnum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dyr, 8 endurgjald,
9 svara, 10 óhljóð, 11
ástundunarsamur, 13 gremj-
ast, 15 danskrar eyju, 18
dræsa, 21 auð, 22 óreglu, 23
skattur, 24 óvandvirka.
Lóðrétt | 2 sparsemi, 3 húð-
in, 4 snaga, 5 önuglyndi, 6
mestur hluti, 7 biða, 12
eyktamark, 14 svifdýrs, 15
sjávardýr, 16 árnar, 17
klunnaleg, 18 jurt, 19 gróða-
brall, 20 einkenni.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hrafn, 4 bogin, 7 fælin, 8 lalli, 9 dul, 11 rétt, 13 anda, 14
ísnál, 15 fork, 17 týnd, 20 smá, 22 kolan, 23 laufi, 24 norpa, 25
trana.
Lóðrétt: 1 hæfir, 2 atlot, 3 nánd, 4 ball, 5 golan, 6 neita, 10 unn-
um, 12 tík, 13 alt, 15 fíkin, 16 rílar, 18 ýsuna, 19 deiga, 20 snúa,
21 álft.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 b5 5.
Bb3 Ra5 6. O-O d6 7. He1 Rf6 8. d4 Rd7
9. dxe5 Rxb3 10. Bg5 f6 11. exf6 gxf6
Staðan kom upp á franska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Belfort í Frakklandi. Romain Edouard
(2620) hafði hvítt gegn Vladislav Tkac-
hiev (2639). 12. e5! dxe5 13. Rxe5!
Rxe5 14. Hxe5+ Be7 15. Dh5+ Kd7 16.
Bxf6! Rxa1 17. Bxe7 Dxe7 18. Hxe7+
Kxe7 19. Dc5+ Kf7 20. Dxc7+ og svart-
ur gafst upp. Romain Edouard þessi
varð efstur á mótinu ásamt Laurent
Fressinet (2697) með 8 vinninga af 11
mögulegum. Í einvígi um hvor myndi
hreppa franska titilinn varð sá síð-
arnefndi hlutskarpari og varð því
franskur meistari í opnum flokki en
konan hans, Almira Skripchenko
(2458), varð franskur meistari í kvenna-
flokki.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Flannery og fleira.
Norður
♠ÁKD943
♥753
♦Á864
♣--
Vestur Austur
♠5 ♠G1086
♥108 ♥KD962
♦107532 ♦KD9
♣87643 ♣2
Suður
♠72
♥ÁG4
♦G
♣ÁKDG1094
Suður spilar 7G.
Einhvern tíma á sjötta áratug síðustu
aldar fékk Bandaríkjamaður að nafni
William Flannery ágæta hugmynd. Hún
fólst í því að opna á 2♦ með fimmlit í
hjarta og fjórlit í spaða. Síðan hefur
Flannery-sagnvenjan sést á kerf-
iskortum spilara út um allan heim, hvort
sem grunnurinn er Standard eða sterkt
lauf.
Austur var lærisveinn Flannery og
kvaddi sér hljóðs með 2♦. Hann sagði
ekki meira þann daginn og seint um
kvöldið kom vestur út með ♥10 gegn sjö
gröndum.
Útspilið er „slítandi“, en í ljósi opnunar
austurs í upphafi getur sagnhafi í raun
lagt upp og gert kröfu í þrettán slagi með
stigvaxandi þríþröng. Hann tekur laufin í
botn og losar sig meðal annars við ♦Á úr
borði! Rauðu gosarnir heima eru hótandi
og austur ræður ekki neitt við neitt.
20. september 1900
Ofsaveður olli slysum og tjóni
á skipum og húsum. Meira en
þrjátíu manns fórust, þar af
drukknuðu átján menn á Arn-
arfirði. Kirkjurnar á Urðum
og Upsum í Svarfaðardal fuku
og brotnuðu í spón.
20. september 1963
Borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkti að leyfa kvöldsölu
gegnum lúgu í söluturnum til
kl. 22 og borgarráði var veitt
heimild til að leyfa að hafa
lúgurnar opnar til kl. 23.30.
Afgreiðslutími var gefinn
frjáls rúmum aldarfjórðungi
síðar.
20. september 1985
Listahátíð kvenna, í tilefni
loka kvennaáratugarins, var
sett í Reykjavík. Hún stóð í
mánuð.
20. september 1995
Ný brú yfir Jökulsá á Dal var
formlega tekin í notkun. Hún
er 125 metra löng og er hærra
yfir vatnsborði en nokkur önn-
ur brú, um 40 metra. Eldri brú
var frá 1931.
20. september 2007
Um fjörutíu kílógrömm af
sterkum fíkniefnum fundust í
seglskútu sem var að koma til
Fáskrúðsfjarðar. Lögreglan
og Landhelgisgæslan höfðu
fylgst með ferðalagi skút-
unnar en aðgerðin var nefnd
Pólstjarnan. „Stærsta smygl-
mál Íslandssögunnar,“ sagði
Vísir. Sex menn voru dæmdir
fyrir smyglið, einn þeirra
hlaut níu og hálfs árs dóm.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Það var um miðjan sjötta áratuginn sem Jóhann
Gunnarsson skýrsluvélafræðingur komst fyrst í
tæri við tölvur. Lífsförunautur hans, Erna Þor-
kelsdóttir, hóf störf hjá Ríkisskattstjóra eftir að
þau gengu í það heilaga árið 1956. Þar vann hún
við að gata spjöld í tölvur og kviknaði áhuginn hjá
Jóhanni um leið og hann leit undrið augum. Hann
hóf störf hjá IBM á Íslandi skömmu síðar.
Jóhann og Erna eiga fjögur börn, átta barna-
börn og eitt barnabarnabarn.
Aðspurður hvað standi upp úr á lífsleiðinni
svarar Jóhann því til að barnalánið og góð heilsa
þeirra hjóna komi fyrst upp í hugann.
„Það stendur upp úr að maður hefur átt farsælt hjónaband og á
eina 13 afkomendur sem eru allir efnilegir og myndarlegir,“ svarar
Jóhann stoltur. Spurður hvort hann hafi snemma stefnt að því að
eignast stóra fjölskyldu svarar Jóhann því til glaðbeittur að hann hafi
viljað vera eins og Steinn Bollason í ævintýrinu, en sá ágæti maður
átti hvorki meira né minna en 100 börn. „Mér finnst gaman af börnum
og hef ánægju af því að hafa þau í kringum mig. Hún Edda getur stað-
fest það að minn maður var Steinn Bollason,“ segir Jóhann og hlær.
Jóhann Gunnarsson er 75 ára í dag
Alltaf unnið við tölvur
Hlutavelta
Birna Sól, Ólöf
Líf og Nína Huld
héldu tombólu í
Mosfellsbæ og
söfnuðu 5.990 kr.
sem þær færðu
Rauða kross-
inum.
Flóðogfjara
20. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.49 3,3 10.57 1,0 17.07 3,6 23.20 0,8 7.06 19.38
Ísafjörður 0.53 0,5 6.51 1,7 12.58 0,6 19.03 2,0 7.09 19.44
Siglufjörður 2.56 0,4 9.18 1,1 14.57 0,5 21.10 1,3 6.52 19.27
Djúpivogur 1.51 1,8 8.00 0,6 14.23 1,9 20.25 0,7 6.35 19.08
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Dagurinn í dag er frábær fyrir hrútinn
og einkennist af gáska, gleði og rómantík.
Heimurinn er dásamlegur staður.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt þú get-
ir ekki keypt það sem hugurinn girnist. Þú
færð sífellt betri hugmyndir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú kýst að lifa í sátt og samlyndi við
aðra vegna vinsælda sem af því hljótast. En
þú átt eftir að sjá einhverjum mistakast í dag
og getur ekki stillt þig um að hjálpa.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Skrifaðu niður allt sem þú þarft að
gera og raðaðu svo verkefnunum eftir mik-
ilvægi þeirra. Best er að gefa sér tíma til þess
að semja áætlun sem eitthvert hald er í.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú átt erfitt með að tjá raunverulegar
tilfinningar þínar í dag og það ergir þig. Ekki
tala niður til þeirra heldur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Líttu í eigin barm í stað þess að reyna
að skella skuldinni á aðra. Viðskiptavinur
gæti beðið þig að leysa vandamál.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nýlega varðstu fyrir vonbrigðum þegar
viss áætlun varð ekki að veruleika. Velgengni
í viðskiptum hefur einnig góð áhrif.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert ekki alveg með báða fæt-
ur á jörðinni þessa dagana. Gættu þess að
fara ekki yfir strikið og varastu að biðja um
hluti sem þú telur ólíklegt að þú munir fá.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þetta er ekki hentugur dagur til
að ganga frá skiptingu eigna eða ábyrgðar.
Kannski er það ekki hægt en þær geta hins
vegar af sér viðunandi lausn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að stinga við fótum og
standa fast á þínu máli þótt að þér sé sótt úr
öllum áttum. Komdu hugmyndum þínum á
framfæri núna, á meðan þeir sem ráða eru
opnir fyrir þeim.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér er ekki eðlislægt að taka
nokkra áhættu svo þú skalt láta það eiga sig.
Við verðum bara a beygja okkur fyrir stað-
reyndunum og vona að allt fari vel.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Vinnan sem bíður þín er ólík öllu sem
þú hefur áður gert. Bókin er alltaf góður vin-
ur, en líka finna margan fróðleikinn á netinu.
Stjörnuspá