Morgunblaðið - 20.09.2010, Side 31
31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
NÝTT Í BÍÓ!
Baltasar Kormákur kynnir nýja íslenska
gamanmynd eftir Grím Hákonarson.
Er í lagi að selja
álfastein úr landi?
SÍMI 564 0000
L
L
16
16
12
L
L
L
12
16
SÍMI 462 3500
L
16
12
L
SUMARLANDIÐ kl. 8-10
RESIDENTEVIL:AFTERLIFE3D kl. 8-10
THEOTHERGUYS kl. 6
AULINN ÉG 3D kl. 6
SÍMI 530 1919
L
16
12
L
L
16
SUMARLANDIÐ kl. 6-8.30-10.30
RESIDENTEVIL:AFTERLIFE3D kl. 8.30-10.30
THEOTHERGUYS kl. 5.30-8-10.30
THEFUTUREOFHOPE kl. 6
AULINNÉG 3D kl. 6.15
THEEXPENDABLES kl. 8-10.20
SUMARLANDIÐ kl. 3.30-6-8-10
SUMARLANDIÐLÚXUS kl. 4-6
RESIDENTEVIL: AFTERLIFE3D kl. 5.50-8-10.10
RESIDENT EVIL: AFTERLIFE3DLÚX kl. 10.40
THEOTHER GUYS kl. 5.30-8-10.30
DESPICABLEME3D kl. 3.40-8
AULINN ÉG 3D kl. 3.40-5.50
AULINN ÉG 2D kl. 3.40
SCOTTPILGRIM VS THEWORLD kl. 10.10
SALT kl. 10.15
.com/smarabio
Sýnd kl. 8 og 10 (3D) - enskt tal
Sýnd kl. 6 (3D) - íslenskt tal
ÍSLENSKT TAL
Á heildina litið er Aulinn
ég 3D einstaklega vel
heppnuð teiknimynd sem
hentar ekki einungis
börnum, heldur öllum
aldurshópum.
H.H. - MBL
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:15
Sýnd kl. 6, 8 og 10
STEVE CARELL
„Mikið er nú gaman að geta
loks hlegið innilega í bíó“
-H.S.S., MBL
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Smellna íslenska gaman-myndin Sumarlandið varfrumsýnd fyrir helgi. Þettaer fyrsta mynd leikstjórans
og handritshöfundarins Gríms Há-
konarsonar í fullri lengd en áður
hefur hann gert það gott með stutt-
myndum á borð við Bræðrabyltu
(2007) og Slavek the Shit (2005).
Það er enginn viðvaningsbragur á
myndinni enda valinn maður í
hverju rúmi. Sjónræn umgjörð, leik-
ur og eftirvinnsla giftast með ágæt-
um og áhorfendur geta ekki annað
en hrifist með. Kvikmyndataka Ara
Kristinssonar er sérstaklega
heillandi þar sem sjónarhorn og
hreyfing myndavélar hreinlega
sauma áhorfendur inn í framvind-
una og tónlist eftir þá Sigurð Guð-
mundsson og Guðmund Kristin
Jónsson úr Hjálmum dillar ungum
sem öldnum.
Handritið er heildstætt, burðugt
og flæðið gott. Sagan segir af
kjarnafjölskyldu í Kópavogi sem
stundar eigin rekstur. Húsfreyjan
Lára (Ólafía Hrönn) er í nánu sam-
bandi við álfa og framliðna og held-
ur fjölsótta miðilsfundi í stofunni
heima en fjölskyldufaðirinn Óskar
(Kjartan Guðjónsson) er uppteknari
af veraldlegu braski og hefur komið
á fót hálftilgerðarlegu draugasetri í
kjallara heimilisins. Reksturinn
gengur vægast sagt brösulega og
skuldirnar íþyngja Óskari sem í ör-
væntingu sinni grípur til þess ráðs
að selja ríkum útlendingum vold-
ugan álfastein úr bakgarðinum fyrir
vænan aur. Hagur fjölskyldunnar
vænkast ekki hót við þetta heldur
virðist nú hvíla á henni bölvun sem
ætlar allt um koll að keyra.
Frásögnin ætti einnig að geta
höfðað til yngri kynslóðarinnar þar
sem börn Óskars og Láru koma
mikið við sögu. Hinn barnungi Flóki
(Nökkvi Helgason) virðist vera
næmur eins og mamma hans og
þarf að læra á tveggja heima sýn
sína á meðan Ásdís (Hallfríður Þóra
Tryggvadóttir) fetar einstigið frá
bernsku til fullorðinsára. Hún er
efahyggin og veraldlega þenkjandi
eins og pabbi hennar en tilhugalíf
hennar við ungan anarkista (Snorra
Engilbertsson) er alveg kostulegt
og auðgar frásögnina talsvert. Það
er því eins og hlutskipti foreldranna
gangi í arf til næstu kynslóðar og
sagan af glapræðum virðist geta
endurtekið sig.
Leikurinn er sannfærandi, per-
sónurnar verða ljóslifandi og fjöl-
skylduspennan mögnuð. Gaman er
að sjá nýja og efnilega leikara ryðja
sér til rúms og frammistaðan vekur
eftirvæntingu um það sem koma
skal frá þeim er fram líða stundir.
Hinir gamalreyndu standa sig einn-
ig með prýði en það er sérlega
hressandi að sjá Ólafíu Hrönn í
dramatísku hlutverki í stað hins
trúðslega sem svo gjarnan loðir við
feril hennar.
Barátta fjölskyldunnar er brosleg
en hún verður sem betur fer aldrei
farsakennd. Með víkkuðu sjónar-
horni myndarinnar endurómar hún
auðþekkjanlega baráttu íslensks
samfélags í heild en það auðveldar
áhorfendum að samsama sig raun-
um persóna. Myndin er eiginlega
samtímalegur, þjóðfélagslegur spé-
spegill. Framfaratrú, efnishyggju
og gróðavon góðærisborgara er teflt
gegn þögguðum kynngikrafti nátt-
úru, fornum menningararfi og nær-
andi andhyggju einstaka eftirlegu-
kindar sem eltir ekki hjörðina
blindandi í velmegunarkapp-
hlaupinu. Skopið hittir í mark á
bljúgan og mannlegan hátt og
myndin er fyrir vikið afar hugljúf.
Samfélagssýnin speglar fremur en
að gagnrýna og boðskapurinn ristir
því ekki djúpt. Það sem lifir áfram
með áhorfendum eftir að heim er
komið er líklega aðallega minning
um góða kitlandi fyndna afþreyingu,
litríkt hrífandi sjónarspil og dillandi
tónlist.
Broslegt velmegunarkapphlaup
Sumarlandið bbbbn
Sýnd í Smárabíói, Háskólabíói, Laug-
arsásbíói og Borgarbíói
Leikstjórn og handrit: Grímur Há-
konarson. Meðhöfundur handrits: Ólaf-
ur Egill Egilsson. Aðalhlutverk: Kjartan
Guðjónsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, Nökkvi
Helgason og Snorri Engilbertsson. Kvik-
myndataka: Ari Kristinsson. Leikmynd:
Linda Stefánsdóttir. Tónlist: Sigurður
Guðmundsson og Guðmundur Kristinn
Jónsson. 85 mín. Ísland, 2010.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYND
Sumarlandið Fjallar um heldur sérstaka fjölskyldu í Kópavogi sem fer illa út úr því að selja grjót úr bakgarðinum.Leikarinn Ryan Reynolds er þekkt-
ur fyrir stæltan og flottan líkama
enda hefur hann þurft að leggja
ýmislegt á sig fyrir ofurhetju-
hlutverk í til dæmis X-Men-
forsögunni Wolverine og Green
Lantern sem er væntanleg í kvik-
myndahús næsta sumar. „Þú færð
að borða það sem þú vilt einn dag í
viku en hina sex borðar þú viðar-
flögur,“ sagði leikarinn um heilsu-
kúrana.
Við tökur á nýjustu mynd sinni,
Buried, fékk hann þó algjört frí frá
próteinkúrum og vaxtarrækt þar
sem persónan sem hann leikur í
myndinni er föst í kassa nánast all-
an tímann.
Myndin fjallar um bandarískan
verktaka sem verður fyrir árás í
Írak og vaknar í kassa sem hefur
verið grafinn í jörð. Tökur á mynd-
inni tóku 17 daga og Reynolds
eyddi hverjum einasta liggjandi í
boxinu.
Buried verður frumsýnd í októ-
ber vestanhafs.
Ryan Reynolds Leikarinn ungi er
óneitanlega nokkuð flottur.
Lék í kassa í
17 daga