Morgunblaðið - 06.10.2010, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Sudoku
Frumstig
9 6 4 5
3 8 2
3 8
2 5 4 7
4
3 9 2 8
4 2 7 6
7 8 3 4 5
1 4 7
4 2 6
5
4 8 5 1
6 7 3
5 8 2
1 7 4
8 4 5
3 1
8 9 6
5 3 1
4 8 3
2 7 1
7 9
4
8 7 6
4 9 7 8
6 2 3
2 9 7 4 1 8 5 3 6
5 1 8 3 2 6 7 9 4
4 3 6 7 9 5 8 2 1
3 8 9 2 6 7 4 1 5
7 2 4 9 5 1 6 8 3
6 5 1 8 4 3 9 7 2
8 7 5 6 3 2 1 4 9
9 6 3 1 7 4 2 5 8
1 4 2 5 8 9 3 6 7
1 8 4 5 2 9 3 6 7
3 7 5 6 8 4 1 2 9
9 6 2 7 3 1 4 5 8
7 2 3 8 4 5 6 9 1
6 1 9 3 7 2 8 4 5
4 5 8 1 9 6 7 3 2
5 4 7 9 6 8 2 1 3
8 9 6 2 1 3 5 7 4
2 3 1 4 5 7 9 8 6
8 7 1 4 6 3 5 9 2
2 6 4 9 7 5 3 8 1
5 3 9 2 1 8 6 4 7
3 9 2 1 5 4 8 7 6
1 8 6 7 2 9 4 3 5
4 5 7 8 3 6 1 2 9
9 4 5 6 8 7 2 1 3
7 1 3 5 4 2 9 6 8
6 2 8 3 9 1 7 5 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 6. október,
279. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik
en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr-
ir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Í hvert skipti, sem Víkverji reynirað hella úr stórri fernu af G-
mjólk í kaffið sitt, veltir hann fyrir
sér hvort Mjólkursamsalan hafi
komið fyrir falinni myndavél ein-
hvers staðar í seilingarfjarlægð.
Stútarnir á þessum ágætu fernum
eru nefnilega þannig hannaðir að
ógerningur er að hella úr fernunum
án þess að sulla út um allt. Víkverji
er ekki einn um að lenda í þessum
hremmingum. Hann verður vitni að
því daglega að fólk reytir hár sitt yf-
ir þessum stútum. Fólk reynir að
vanda sig, hellir einbeitt á svip, sem
segir að í þetta skipti muni þetta
takast, en allt kemur fyrir ekki. Um
allt land er fólk að sulla G-mjólk út
um stút, sem er á rangri hillu. Vík-
verji hefur líka tekið eftir því að einu
gildir hver á í hlut, stútarnir gera
ekki greinarmun á klunnum og hin-
um laghentu eða subbum og snyrti-
pinnum, allir fá sömu útreið.
x x x
Víkverji hefur alltaf haldið að viðhönnun á umbúðum sem þess-
um væri lögð áhersla á alls kyns próf
og tilraunir þannig að ljóst væri að
þær virkuðu eins og til væri ætlast
og hægt væri að koma í veg fyrir
hönnunarslys. Hann sér fyrir sér
menn í hvítum sloppum mæla
útstreymishorn og fallgeira
geymsluþolinnar mjólkurinnar af
vísindalegri nákvæmni, skrá hjá sér
hvern dropa, sem fer til spillis,
hvern dropa, sem ratar rétta leið, og
reikna síðan út nýtingarhlutfallið.
Við slík próf hefði átt að vera aug-
ljóst að umræddur stútur þjónar
ekki tilgangi sínum. Þess vegna hef-
ur hvarflað að Víkverja að Mjólkur-
samsalan sé að hrekkja viðskiptavini
sína. Í það minnsta mun stúturinn
seint fá hönnunarverðlaun.
x x x
Víkverji átti síst af öllu von á þvíað hann gæti notað heilan dálk í
að tuða um vanhæfan stút á mjólkur-
fernu og hálfskammast sín reyndar
fyrir að hafa slíkt smáatriði á horn-
um sér í því ófremdarástandi, sem
nú ríkir í samfélaginu, en hann gat
bara ekki orða bundist.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 stríðsfánar, 8 ang-
ist, 9 hryggð, 10 ótta, 11
hagnaður, 13 tómum, 15
skemmtunar, 18 kölski, 21
frístund, 22 kagga, 23
marra, 24 tekur höndum.
Lóðrétt | 2 heimild, 3 af-
komandi, 4 skattur, 5 skyn-
færið, 6 hrósa, 7 örg, 12
reyfi, 14 dveljast, 15 gera
við, 16 líffæri, 17 þjófnað, 18
búa til, 19 hnappa, 20 askar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sprek, 4 búkur, 7 jöfur, 8 náðin, 9 lúi, 11 lund, 13 hnoð,
14 ýlfur, 15 flár, 17 ókát, 20 err, 22 leiti, 23 ístra, 24 níska, 25 af-
ana.
Lóðrétt: 1 skjól, 2 rófan, 3 karl, 4 bani, 5 kiðin, 6 ránið, 10 úlfur,
12 dýr, 13 hró, 15 fólin, 16 álits, 18 kytra, 19 trana, 20 eira, 21
rífa.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. e4 d6 4. d4 Bg7 5.
f3 0-0 6. Rge2 Rbd7 7. Bg5 h6 8. Be3 c5
9. Dd2 Kh7 10. Hd1 cxd4 11. Rxd4 Rc5
12. Be2 Bd7 13. b3 Hc8 14. 0-0 Dc7 15.
b4 Re6 16. Rdb5 Bxb5 17. Rxb5 Dd8
18. Rxa7 Ha8 19. Rb5 Ha4 20. Hc1 Dd7
21. Bd1 Haa8 22. Bb3 Hfc8 23. Hfd1
De8 24. a4 Bf8 25. a5 Bg7 26. Rc3 Rd8
27. Ba4 Dh8 28. Bb5 h5 29. Ra4 Hc7 30.
Rb6 Hb8 31. Hc2 Rc6 32. Rd5 Hd7
Staðan kom upp í opna flokki Ól-
ympíuskákmótsins sem er nýlokið í
Khanty-Mansiysk í Síberíu í Rúss-
landi. Hjörvar Steinn Grétarsson
(2.398) hafði hvítt gegn Joslin Bazil frá
Haíti. 33. e5! Rxe5 34. Bxd7 Rexd7 35.
Bd4 e5 36. Bb2 Bf8 37. De2 Rxd5 38.
cxd5 Df6 39. f4! og hvítur innbyrti
vinninginn skömmu síðar.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sagnvörn.
Norður
♠ÁKG42
♥KD95
♦D5
♣D4
Vestur Austur
♠86 ♠7
♥G87 ♥Á104
♦ÁKG102 ♦98643
♣K107 ♣9852
Suður
♠D10953
♥632
♦7
♣ÁG63
Suður spilar 4♠.
Sumar stöður í vörn virðist ómögu-
legt að leysa af öryggi. Skoðum vanda
vesturs. Hann opnar á 1♦, norður do-
blar, austur segir 2♦, suður 2♠, sem
norður hækkar í 4♠. Tígulásinn út.
Við athugun sést að vestur verður að
skipta strax yfir í hjarta og sækja þar
fjórða slaginn. Hann tapar tíma með
því að spila ♦K: Sagnhafi trompar ♦K,
tekur trompin og spilar litlu laufi að
♣Dx. Drepi vestur myndast tvo nið-
urköst á ♣ÁG fyrir hjörtun í borði.
Verkefni varnarinnar er illt við-
ureignar, því ef suður á ♥Áx og tvo
hunda í tígli verður að taka tígulslag-
inn í hvelli. Sagnir gætu þó leyst vand-
ann. Hvernig þá? Jú, með því að skil-
greina hækkun austurs í 2♦ sem
fjórlit, en láta stökk í 3♦ sýna fimmlit.
Viti vestur af tíguleinspili í suður er
vörnin einföld.
6. október 1957
Hafsteinn Sveinsson hljóp
maraþonhlaup, 42,2 kíló-
metra, fyrstur Íslendinga, á 3
klst. og 1 mín. Hlaupið var frá
Kömbum til Reykjavíkur.
6. október 1961
Hátíðarsamkoma vegna hálfr-
ar aldar afmælis Háskóla Ís-
lands var haldin í Háskólabíói,
stærsta samkomuhúsi lands-
ins, sem var vígt við það tæki-
færi. Davíð Stefánsson frum-
flutti Háskólaljóð og flutt var
tónverk eftir Pál Ísólfsson.
„Höfum loks eignast fullkom-
inn hljómleikasal,“ sagði
Morgunblaðið daginn eftir.
6. október 1980
Jarðstöðin Skyggnir í Mos-
fellsbæ var tekin í notkun. Þar
með komst á fjarskipta-
samband við önnur lönd um
gervihnött og sjálfvirk síma-
afgreiðsla til útlanda.
6. október 2008
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra flutti ávarp til þjóð-
arinnar um stöðu fjár-
málakerfisins og nauðsyn
aðgerða. Um kvöldið sam-
þykkti Alþingi ný lög um fjár-
málamarkaði. Daginn eftir
stóð á forsíðu Morgunblaðsins:
„Neyðarlög á Íslandi. Skuldir
bankanna eru þjóðinni of-
viða.“
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Kolfinna Baldvinsdóttir, sagnfræðingur og meist-
ari í alþjóðalögum, er fertug í dag. Hún segist ekki
vera mikið fyrir að halda upp á afmæli sitt, hafi
síðast gert það með stæl fyrir 20 árum og hafi ekki
mikinn áhuga á að endurtaka þann leik enda hafi
þá verið hótað að hringja á lögregluna vegna
hljómsveitar sem hafi komið í heimsókn og spilað
alla nóttina. „Ég velti því mikið fyrir mér hvað ég
eigi að gera í tilefni dagsins og hvað ég vildi helst
vilja gera mér til skemmtunar,“ segir hún. „Ég
hefði helst vilja safna saman ákveðnu fólki til þess
að ræða ákveðið málefni, halda málþing. En ég er
sennilega orðin of sein til þess að hóa fólki saman.“
Annars hefur Kolfinna nóg að gera. Hún er að gera heimildarmynd
um Eystrasaltsríkin og kynningarverkefni um Evrópusambandið auk
þess sem hún vinnur að öðru verkefni á Ítalíu með ítölskum sam-
starfsmönnum. „Þetta er erfiður dagur og ég hef svo sem ekki fengið
skemmtilegar afmælisgjafir að undanförnu. Kreppan hófst 6. október
fyrir tveimur árum og setning Alþingis nú gefur ekki góðan tón með
nýju fjárlagafrumvarpi og þvílíkum niðurskurði. Ætli ég fari ekki
bara í Bláa lónið.“ steinthor@mbl.is
Kolfinna Baldvinsdóttir er fertug í dag
Málþing eða Bláa lónið
Flóðogfjara
6. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.56 3,9 11.07 0,3 17.10 4,2 23.29 0,2 7.52 18.41
Ísafjörður 0.52 0,1 6.57 2,1 13.08 0,1 19.06 2,3 8.00 18.42
Siglufjörður 2.56 0,1 9.17 1,3 15.11 0,2 21.30 1,4 7.43 18.25
Djúpivogur 1.59 2,1 8.10 0,4 14.25 2,3 20.31 0,5 7.22 18.10
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
samþykkir að skila tilteknu verkefni innan
ákveðins tímaramma.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hafðu augun hjá þér þegar þú kynnir
samstarfsmönnum þínum verk þitt því svip-
brigði segja oft meira en mörg orð. Ekki ræða
málin þegar niðurstaða er fengin.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Blandaðu hæfileikum þínum saman
við hæfileika annarra, ekki síst þeirra sem þú
átt ekkert sameiginlegt með en vekja áhuga
þinn. Einhver sendir þér ástarbréf.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert ekki alveg viss um hversu mik-
inn rausnarskap þú átt að sýna og hversu
langt þú átt að ganga.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það þarf stundum ekki löng kynni til
þess að verða fyrir áhrifum frá öðrum. Þú
verður að gjalti í návist vissrar manneskju.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarft virkilega á fríi að halda eftir
hasarinn sem á undan er genginn. Þú sérð
fyrir endann á viðgerðum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Varastu að dreifa kröftum þínum um of,
því þá áttu á hættu að koma litlu sem engu í
verk. Ræddu vandamálin við vini þína. Með
lagni og léttri lund hefst þetta allt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú vinnur að endurbótum á fast-
eign þinni á næstunni og veltir því jafnframt
fyrir þér hvernig þú eigir að fara að því að
auka tekjur þínar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Næstu vikurnar munu sennilega
verða þér hagstæðar í starfi og einkalífi.
Segðu öðrum, hvað þér finnst um þá og láttu
þá um að hafa áhyggjurnar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Í stað þess að hika, skaltu taka
ákvarðanir og standa við þær. Sanngirni í því
sem öðru skilar mestum árangri og tryggir
andrúmsloftið á vinnustaðnum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Samkeppnin laðar ávallt fram þína
bestu eiginleika og það er eins og þú vaknir
af dvala. Haltu þig við heilsuprógrammið, líka
þegar aðrir reyna að freista þín.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú verður kynnt/ur fyrir persónu sem
getur lagt þér lið með ýmsum hætti. Byrjaðu
á því að hrósa börnunum – ekki nöldra.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is