Morgunblaðið - 25.11.2010, Síða 11

Morgunblaðið - 25.11.2010, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 Ég er bóndi og hef tekið virkan þátt í íslensku þjóðlífi um árabil. Ég býð mig fram til stjórnlagaþings vegna þess að ég tel mig hafa öðlast reynslu og þekkingu sem getur komið sér vel. Þingið þarf að endurspegla þjóðina hvað varðar aldur, menntun og búsetu. Taktu þátt í kosningunum. Atkvæði þitt skiptir máli! Nokkur áhersluatriði: l Persónukjör til Alþingis verði byggt á kjördæmum. l Þjóðaratkvæðagreiðslur um stærri mál. l Skýra þarf hlutverk og stöðu forseta lýðveldisins. l Setja þarf ákvæði um meðferð utanríkismála og framsal ríkisvalds til alþjóðastofnana. l Skýr ákvæði um eignarhald og nýtingarrétt náttúruauðlinda. l Sett verði ákvæði um umhverfisvernd í stjórnarskrána. l Ný stjórnarskrá verður að stuðla að sanngjörnu og öfgalausu þjóðfélagi. Framboð til stjórnlagaþings 4085 Sími 892 2258 halldorsson@internet.is Ágæti kjósandi Tómatar og ólífur eru það sem ein- kennir matarhefðir við Miðjarð- arhafið og Provence í Frakklandi er þar engin undantekning. Tomates á la Provençal eru jafneinfaldir og þeir eru góðir. Það sem þarf er: Tómatar Brauðrasp, heimatilbúið. Ristið brauðsneiðar í ofni og maukið í mat- vinnsluvél Steinselja, flatlaufa, söxuð Hvítlaukur, fínt saxaður Ólífuolía Skerið tómatana í tvennt og hreinsið innan úr þeim með skeið. Blandið saman brauðmylsnu, sax- aðri steinselju og hvítlauk. Hlutföllin geta verið breytileg en ágætt er að miða við nokkurn veginn jafnt hlutfall á milli steinselju og brauðmylsnu og svo hvítlauk eftir smekk. Setjið tómatana í fat og fyllið með brauðmylsnublöndunni. Hellið ólífu- olíu yfir og setjið inn í 200° heitan ofn. Bakið í um 15 mínútur. Provence-tómatar eru góðir sem meðlæti með margskonar kjöti, ekki síst lambakjöti. Steingrímur Sigurgeirsson Uppskriftin Tomates á la Provençal Fleiri uppskriftir má finna á Matur og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/ matur og á www.vinotek.is. Bónus Gildir 25.-28. nóv. verð nú áður mælie. verð Fjalla úrbeinað hangilæri ............ 1.998 2.798 1.998 kr. kg KF reyktur grísabógur ................. 479 598 479 kr. kg KF léttreyktur lambahryggur ........ 1.498 1.798 1.498 kr. kg Myllu heimilisbrauð, 385 g ......... 129 159 340 kr. kg OS jólasmjör, 500 g................... 215 265 430 kr. kg ÍN ungnautahakk ....................... 1.259 1.398 1.259 kr. kg ÍN ungnhamb., 4 stk. m/br. ........ 595 698 149 kr. stk. Ferskt pítsudeig, 400 g .............. 259 298 650 kr. kg KS skinkuálegg, 125 g ............... 98 129 780 kr. kg ES batterí, 9 volt, 2 stk............... 98 298 49 kr. stk. Fjarðarkaup Gildir 25.-27. nóv. verð nú áður mælie. verð Svínakótilettur úr kjötborði.......... 998 1.458 998 kr. kg Nautafile úr kjötborði ................. 2.498 3.198 2.498 kr. kg Hamborg., 2x115 g m/brauði ..... 358 438 358 kr. pk. Grillaður kjúklingur..................... 880 1.080 880 kr. stk. Fk kindabjúgu ........................... 425 549 425 kr. kg FK reykt folaldakjöt .................... 598 798 598 kr. kg FK súkkulaðiís ........................... 398 498 199 kr. ltr Ali lasagna, frosið, 900 g ........... 998 1.221 998 kr. pk. Hagkaup Gildir 25.-28. nóv. verð nú áður mælie. verð Ísfugl kalkúnabringur ................. 2.236 3.194 2.236 kr. kg Ísfugl ferskur kalkúnn ................. 1.348 1.498 1.348 kr. kg Íslandslamb lambalæri ferskt ..... 1.379 2.098 1.379 kr. kg SS grand orange lambafile ......... 3.126 4.168 3.126 kr. kg Íslandsgrís kótilettur................... 979 1.398 979 kr. kg Íslandsgrís hnakkasneiðar .......... 979 1.398 979 kr. kg Nestlé Quality Street, 2 kg .......... 2.799 2.799 2.799 kr. stk. Myllu kanillengja ....................... 339 604 339 kr. stk. Myllu fjallabrauð........................ 249 530 249 kr. stk. Myllu sjónvarpskaka................... 399 599 399 kr. stk. Kostur Gildir 25.-28. nóv. verð nú áður mælie. verð Kostur ferskt lambalæri ókr. ........ 1.078 1.198 1.078 kr. kg Goði Pork Roast ofnsteik ............ 1.494 2.298 1.494 kr. kg Goði Gourmet kryddað file .......... 2.849 3.798 2.849 kr. kg Bautabúrs grísakótilettur ............ 1.038 1.298 1.038 kr. kg Vínber græn .............................. 229 395 229 kr. kg Nóa kropp, 150 g ...................... 189 259 189 kr. stk. Husets kaffi, 400 g .................... 279 359 279 kr. pk. Doritos, 165 g........................... 198 265 198 kr. pk. Krónan Gildir 25.-28. nóv. verð nú áður mælie. verð Folaldasnitsel............................ 1.598 1.998 1.598 kr. kg Folaldagúllas ............................ 1.598 1.798 1.598 kr. kg Folaldapiparsteik....................... 1.998 2.898 1.998 kr. kg Folaldafile................................. 1.998 2.959 1.998 kr. kg Folaldalundir............................. 2.999 3.389 2.999 kr. kg Folaldahakk .............................. 299 598 299 kr. kg Breiðholtsb. bláfjallabrauð ......... 199 247 199 kr. stk. Breiðholtsb. pálmabrauð............ 199 247 199 kr. stk. Gunnars mangó-karrísósa .......... 249 298 249 kr. stk. C-11 þvottaduft, 2 kg................. 998 1.169 998 kr. pk. Nóatún Gildir 25.-28. nóv. verð nú áður mælie. verð Nóatúns grísahamborgarhr. ........ 1.598 1.998 1.598 kr. kg Ungnautahakk........................... 1.198 1.498 1.198 kr. kg Lambaprime ............................. 2.249 2.998 2.249 kr. kg Grísalundir ................................ 1.598 1.998 1.598 kr. kg Lambalæri heiðmerkurkryddað.... 1.198 1.498 1.198 kr. kg Gourmet saltfiskshnakkastykki.... 1.598 1.998 1.598 kr. kg Plokkfiskur ................................ 998 1.359 998 kr. kg Tandoori kjúklingur heill.............. 799 898 799 kr. kg Pastella ravioli m. osti, 250 g ..... 398 589 398 kr. pk. Pastella tagliolini, 250 g............. 198 298 198 kr. pk. Þín verslun Gildir 25.-28. nóv. verð nú áður mælie. verð Nautahakk úr kjötborði............... 1.098 1.498 1.098 kr. kg Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.798 2.498 1.798 kr. kg Kálfasnitsel úr kjötborði.............. 1.898 2.398 1.898 kr. kg Toppur blár, 2 ltr ........................ 199 289 100 kr. ltr MS jólajógúrt, 165 g .................. 125 139 758 kr. kg Findus vínarbrauð 400 g ............ 589 729 1.473 kr. kg Capri Sonne Apple, 330 ml ........ 189 229 573 kr. ltr Chicago Town ostaflatb., 13 cm .. 669 845 669 kr. stk. Merrild Senseo Dark R. púðakaffi 459 529 3.672 kr. kg Milka karamellusúkkulaði, 100 g 215 279 2.150 kr. kg Helgartilboðin Atli Vigfússon laxam@simnet.is Tilgangurinn með því að hittaster að borða kótelettur í raspiþrisvar sinnum á ári en þetta er þjóðlegur matur sem mætti vera meira á borðum veitinga húsa.“ Þetta segir Egill Hjartarson, vegagerð- armaður í Reykjahverfi, sem nýlega stofnaði, ásamt félögum sínum, Kóte- lettufélag Íslands en hann er mat- gæðingur og vill halda í gamlar hefð- ir í matarhaldi. „Ég nota uppskrift ömmu minn- ar sem bjó í Víðikeri í Bárðardal, en þaðan er ég ættaður. Um er að ræða sérvaldar kótelettur sem eru keyptar í kjötvinnslunni Viðbót á Húsavík og tek ég þær úr frosti fjórum dögum áður en ég elda þær fyrir félagana,“ segir Egill, en hann sér alfarið um eldamennskuna á matarkvöldunum. Kóteletturnar eru hafðar í ís- skápnum en eru barðar a.m.k. tvisv- ar sinnum með sérstöku lagi eins og amma hans gerði. Þá er þeim velt upp úr eggjum og raspi, brúnaðar á pönnu, síðan settar í ofnskúffu og hit- aðar í gegn í ofninum. Á meðan þær eru í ofnskúffunni eru þær teknar út og penslaðar með sérsöltuðu smjöri, hver fyrir sig, á báðum hliðum. Þetta er gert oftar en einu sinni eftir smekk, en Egill tekur vanalega langan tíma í að elda og penslar kóteletturnar allt að fjórum sinnum. Hann er ævinlega með grænar baunir, smjörsteiktar kartöflur, rauðkál og rauðrófur með kótelett- unum, en segir rabarbarasultuna al- veg ómissandi. Þá hefur hann brætt smjör með í sósukönnu ef einhverjir vilja. Á eftir er hann svo með kokteil- ávexti úr dós og þeyttan rjóma eins og sums staðar tíðkaðist að hafa í sunnudagsmat þegar voru gestir á bæjum. Matarmenning og hefðir skipta miklu máli Kótelettufélagarnir eru sex talsins en þeir segja að hugsanlegt sé að fjölga félögum þegar fram í sækir. Meiningin sé að fara í eitt ferðalag á ári, borða kótelettur á einu veitingahúsi og gefa því ein- kunn fyrir utan þau þrjú kvöld sem þeir hittast til þess að borða lamba- kótelettur eins og tíðkaðist í Bárð- ardal. Þeir segja að gamlar upp- skriftir hafi mikið gildi í dag og þetta sé ákveðið mótvægi við pítsu- menningu þjóðarinnar. „Ég elda alltaf mikið þegar við hittumst,“ segir Egill og hefur u.þ.b. tíu kótelettur á mann. „Við tökum langan tíma í að borða en þó að eitt- hvað verði eftir þá fá menn bara kóteletturnar með sér heim því þær eru herramannsmatur kaldar enda voru þær mikið notaðar þannig sem nesti á gangnadögum,“ segir Egill og er ánægður með félagsskapinn. Kótelettur í raspi eins og hjá ömmu Hópurinn Félagarnir í sérsaumuðum svuntum. F.v. Egill Hjartarson, Helgi Þór Kárason, Birgir Þór Þórðarson, Tryggvi Óskarsson, Þráinn Gunnarsson og Jón Helgi Jóhannson. Matreiðslan Egill með kóteletturnar í ofnskúffunni. Girnilegar Kótelettur eins og þær voru eldaðar í Víðikeri. Kótelettur í raspi » Kótelettur í raspi voru mjög algengur sunnudags- matur á heimilum á seinni hluta síðustu aldar. » Það tekur langan tíma að undirbúa veislu með kótelett- um og þess vegna eru þær ekki algengur matur á veitinga- húsum. Kótelettufélag Íslands var stofnað nýlega í Þingeyj- arsýslu. Félagsmenn hitt- ast þrisvar á ári og borða kótelettur í raspi. Morgunblaðið/Atli Vigfússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.