Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 28

Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 ✝ Sigurður ViðarÓskarsson fædd- ist á Ísafirði 25. nóv- ember 1960. Hann lést á heimili sínu 16. nóvember 2010. Foreldrar hans voru Óskar Hinrik Ás- geirsson og Lilý Erla Adamsdóttir. Systkini Sigurðar voru þau Adam Ás- geir, Elías Örn, Hörður og Bryndís ásamt hálfsysturinni Bellu Aðalheiði Vestfjörð. Sigurður kvæntist 25. ágúst 1998 Ulrike Sillus hjúkrunarfræð- ingi frá Þýskalandi. Sigurður fluttist barnungur frá Ísafirði með foreldrum sínum til Akureyrar og bjó þar alla tíð. Hann útskrifaðist sem gagnfræð- ingur frá Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar 1977 og hélt síðan áfram skólagöngu sinni að Hvanneyri í Borgarfirði þaðan sem hann út- skrifaðist sem búfræðingur árið 1979. Sigurður vann við fjölbreytt störf á starfsævi sinni, um árabil vann hann hjá Útgerðarfélagi Ak- ureyringa, síðar hjá Íslenskum skinnaiðn- aði og hjá Sláturhúsi KEA og einnig hjá Slippstöðinni á Ak- ureyri. Sigurður lauk námi sem leið- sögumaður árið 2006 og vann síðustu ár hjá Sérleyfisbílum Akureyrar við leið- sögn erlendra ferðamanna. Sam- hliða vinnu sinni sinnti Sigurður ætíð af krafti áhugamáli sínu en hestamennskan átti hug hans all- an og undi Sigurður hvergi hag sínum betur en við það að sinna þeim hugðarefnum sínum við ræktun, tamningar og þjálfun ís- lenska hestsins. Útför Sigurðar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 25. nóv- ember 2010, og hefst athöfnin kl. 13.30. Ég kynntist Sigga, þegar mamma fékk pláss fyrir okkur systurnar og sig í félagshesthúsi Léttis árið 1995. Siggi var þar titl- aður umsjónarmaður en fyrir okk- ur krakkana var hann svo miklu, miklu meira. Hann var alltaf boð- inn og búinn til að hjálpa okkur með allt sem tengdist hesta- mennskunni. Hann hvatti okkur til að keppa í félagskeppnum, var alltaf til í að fara með okkur í út- reiðatúra og svo langa reiðtúra um helgar. Hann leyfði okkur að prufa hestana sína, svona til að við fengjum að kynnast mismunandi „karakterum“ og meira að segja leyfði hann mér að fara á bak á graðhestinum sínum, sem mér sem 14 ára táningi þótti svakalegur heiður. Þó svo að við fjölskyldan flyttumst tveimur árum seinna til Reykjavíkur hittum við Sigga allt- af reglulega í kringum hesta- mennskuna. Það var alltaf jafn gaman að hitta hann. Hann var alltaf glaður, innilega einlægur, góður og áhugasamur. Siggi minn, þín verður sárt saknað en jafnframt alltaf minnst með gleði í hjarta. Innilegar sam- úðarkveðjur til Ulrike þinnar. Þín vinkona, Katla. Þegar fluttum heim til Akureyr- ar frá Svíþjóð fyrir nokkrum árum og létum loksins drauminn rætast að eignast okkar eigin hesta í stað þess að ríða á sænskum reiðskóla- hestum í viku hverri, þá vantaði okkur tilfinnanlega húsaskjól og fóður fyrir gripina. Góð ráð máttu líka alveg fylgja í kaupbæti enda vorum við að stíga okkar fyrstu skref í íslenskri hestamenningu. Þeir sem spurðir voru reyndust allir vera á einu máli: „Talið við hann Sigurð, hann hjálpar ykkur örugglega.“ Við munum vel eftir okkar fyrstu fundum, enda vissum við strax að þarna var sannur íslensk- ur hestamaður á ferð. Þú sast á baki leirljóss gradda, sem greini- lega vildi fara sínar eigin leiðir, þannig að samtalið varð ekki ýkja langt, en engu að síður var allt saman bara einhvern veginn klappað og klárt á skammri stundu og þannig var það ávallt upp frá því á milli okkar. Við vissum að við vorum komin í öruggt skjól með hestana okkar og fremur takmarkaða hestakunn- áttu. Þú lést ekki þitt eftir liggja að hjálpa okkur og leiðbeina og greinilega væsti ekki um hrossin hjá þér. Það var líka alltaf heil- mikil umferð af fólki í húsinu sem leitaði til þín eftir ráðum og góðu spjalli. Kæri vin, við söknum þín en í hugskoti okkar sjáum við þig, ríð- andi með flaksandi skeggið á glæstum fák á þeim víðfeðmu og fögru lendum þar sem við endum öll einhvern daginn, og reynum að bera okkur vel þrátt fyrir sorgina, líkt og þú varst vanur að gera. Við vottum Ulrike og fjölskyldu samúð okkar. Jón Reynir Sigurðsson og Irma Ósk Jónsdóttir. Árið er 1993 og staðurinn er hesthúsahverfið á Akureyri. Eftir nokkra leit að réttu húsi og réttum manni, birtist alskeggjaður náungi sem brosir til okkar út að eyrum um leið og hann tekur í tauminn og biður innilega afsökunar á seinkuninni. Aldur mannsins er óræður þar sem skeggið hylur andlit hans allt að augunum und- anskildum. Náunginn virðist við fyrstu sýn fremur undarlegur og ekki laust við að móðirin fyllist kvíða við tilhugsunina um að skilja dóttur sína eftir í hans umsjá. Þær áhyggjur hverfa þó með öllu eftir að hafa rætt við Sigga í skamma stund, því bros hans nær svo sannarlega til augnanna sem horfa óhikað í augu viðmælandans. Þetta voru fyrstu kynni okkar mæðgnanna af sérstaklega alúð- legum náunga sem reyndist vera gull af manni. Einlæg ást hans á hestum og hestamennsku, réttlæt- iskennd, náungakærleikur og ekki síst fórnfýsi og ósérhlífni varð til þess að Siggi tók að sér að leið- beina unglingum á Akureyri í þeirra fyrstu svo og áframhald- andi kynnum af hestum og hesta- mennsku, og varð um leið góður vinur þeirra og samferðamaður. Fyrst í „Unglingahesthúsinu“ og síðar með því að opna eigið hest- hús fyrir unglingunum, þar sem þau nutu gæðinganna hans og að- stöðunnar og fengu um leið ómælda aðstoð við gjafir og um- hirðu. Sjálfum sér trúr svaraði Siggi því jafnan til að hann þyrfti hvort sem er að hugsa um sín eig- in hross og munaði því ekki um að bæta við einu eða tveimur – jafn- vel þótt þeim fylgdi einn ungling- urinn til. Þetta viðhorf einkenndi Sigga og endurspeglaðist í allri hans umgengni við unglingana. Með árunum hafa leiðir sjaldnar legið saman eins og oft vill verða en alltaf var jafn notalegt að hitta Sigga og eiga við hann gott spjall. Síðast hittum við þennan góða dreng fyrir rúmu ári og var til- efnið þá að leiða efnilega hryssu undir stoltið hans, unga rauð- bleika graðfolann. Enga umbun vildi Siggi fá fyrir greiðann frem- ur en jafnan áður. Skýringin að þessu sinni var sú að ekki væri komin reynsla á gripinn og því ómögulegt að vera að selja undir hann … „og svo langar mig til að gera þetta fyrir hana Huggu mína,“ sagði hann eins og svo oft áður. Síðsumars kom síðan lítil rauðstjörnótt SigurÓsk í heiminn og verður hún um ókomin ár ein af mörgum dýrmætum minningum okkar um þennan góða dreng. Hafðu bestu þakkir fyrir allt, kæri vinur. Rannveig (Ranný) og Hugrún. Að sverði er hniginn vinur okk- ar Sigurður Óskarsson og verður til grafar borinn á Akureyri í dag. Sigga höfum við þekkt frá barn- æsku og eru það sameiginleg áhugamál okkar, hestarnir, sem tengja okkur. Við höfum um all- langa hríð haldið hesta okkar við sömu götu í Breiðholtinu ofan Ak- ureyrar og átt þar gott samfélag þar sem Siggi var ákveðið akkeri sem aðstoðaði við morgungjafir og fleiri verk sem til greiða má telja. Siggi hefur margan brattan garðinn klifið alveg frá barnæsku því strax þá var hann haldinn al- varlegri fötlun í fótum og var lengst af haldið að honum yrði ekki gangs auðið en strax þá kom í ljós að hann léti ekki venjulegar hamlanir stöðva sig og með ótrú- legri hörku náði hann að koma sér til fóta og berjast fyrir þeirri til- veru sem bauðst. Hestarnir og allt sem að þeim sneri var honum í blóð borið. Það fór svo að hann varð snemma heppinn hvað hross- in varðar og eignaðist 1. verðlauna hryssuna Kátínu frá Hömrum og fór að rækta út af henni og er þar kominn allnokkur hópur gæðinga t.d. sá hestur er vann A-flokkinn á síðasta landsmóti, Aris frá Akur- eyri og einnig má nefna Þoku frá Akureyri, Ása-Geir og Sóleyju sem öll fengu 1. verðlaun. Það var gam- an að spjalla um hross við Sigga því hann var alltaf með drauma um hvað framundan væri í rækt- unarmálunum en fór fullkomlega sínar eigin leiðir sem voru stund- um öðrum lítt skiljanlegar. Siggi fór sínar eigin leiðir í gegnum lífið. Ekki er hægt að rita um Sigurð Óskarsson án þess að geta þess mikla starfs sem hann vann fyrir akureyska hestamennsku þar sem hann hefur verið hálfgerður guð- faðir nær allra barna og unglinga sem hafa verið að stíga sín fyrstu spor í hestamennskunni undan- farna áratugi. Fyrst sá hann um félagshesthús Léttis þar sem ein- göngu voru til húsa börn og ung- lingar og var það í byrjun hreint hugsjónastarf sem engin laun komu fyrir, síðar keypti hann hesthús og leigði út fyrir unglinga sem hann veitti ómælda aðstoð þannig að margir eiga honum að þakka leiðbeiningu í gegnum fyrstu árin og víst er að þar munu blika mörg tár á hvörmum þegar hans er minnst. Siggi naut ekki langrar skóla- göngu sakir þeirrar fötlunar sem að sótti á unglingsárum en hins- vegar menntaði hann sig sjálfur ekki minna en margur skólinn gat boðið upp á. Hann varð altalandi á mörg tungumál og síðustu árin hefur hann gert allmikið af því að leiðsegja erlendum ferðamönnum um landið og er víst að hann var vinsæll í því starfi enda hafði hann mikla þekkingu á öllu sem fornt var og sagnabrunnur mikill og svo var hann bæði forn í tali, töktum og útliti. Einnig var hann vísna- sjóður mikill og ágætur hagyrð- ingur. Við nágrannar Sigga viljum þakka fyrir mörg ár og margan greiða. Gatan okkar er fátækari en fyrr því ekki mun lengur brosmild- ur móskeggjaður félagi sitja í kaffistofum okkar né halla sér um grindverk og segja sögur, sporin hverfa en minningin lifir. Konu og ættingjum vottum við samúð af heilum hug. Kjartan, Friðrik, Sveinn Ingi, María, Margrét, Tryggvi, Lúðvík, Stefán, Pétur H., Reynir og Pétur P. Þriðjudagsmorguninn 16. nóv. lagði Siggi Óskars á í hinsta sinn og reið um Gjallarbrú. Þannig sé ég hans síðustu ferð fyrir mér því hestarnir voru Sigga hjartans mál. Í hrossarækt náði hann langt. Hann ræktaði t.d. Ares, efsta gæð- inginn á síðasta landsmóti og Þoku er næstefst varð á landsmótinu 1998 og 1. verðlauna graðhestinn Ásageir. Mörg fleiri úrvalshross hafa komið frá honum eða farið um hendur hans. Siggi var t.d. sá, sem sneri hinum rauðblesótta keppnishesti Oddi frá Skaga- strönd á þá braut sem varð að mikilli sigurgöngu í höndum Sig- urbjörns Bárðarsonar. Siggi var sálfræðingur í eðli sínu og hann var snillingur í að laga kergju og áunna galla í hestum. Siggi reið ekki endilega sömu götur og aðrir hestamenn og lét engan segja sér um það, því hann var vel gefinn og vissi vel hver var hin besta leiðin. Hann hafði ekki hátt og lét ekki mikið yfir sér en vann sín störf á sinn hátt. Ævin var Sigga ekki auðveld en hann kom frá góðri fjölskyldu og hún stóð með honum. Hann fædd- ist bæklaður á fótum en með fá- dæma dugnaði og viljastyrk, þjálf- aði hann sig þangað til hann varð vel fær þó alltaf sæist þetta á göngulagi hans. Hann var ekki gamall er hann fór að ganga upp í Skíðahótel og Fálkafell til að þjálfa fætur sína. Ef hann fékk ekki einhverja stráka með sér, fór hann bara einn og fyrir kom að hann gekk upp að báðum þessum stöðum sama daginn, sem er erfitt fyrir fullfríska. Siggi var ekki langskólageng- inn, hafði ekki áhuga á því en hugurinn hneigðist strax í æsku að hestum og fór hann þá að venja komur sínar upp í hesthúsahverf- in og fékk þá að koma á bak, þar til hann eignaðist hesta og hest- hús. Eins og með margt annað fór Siggi sínar eigin leiðir í að mennta sig. Þegar hann var enn á ung- lingsárum tók hann upp á því að fara á tjaldstæðin hér á Akureyri til að tala við erlenda ferðamenn og læra af þeim tungumál enda varð hann snemma vel fær í þýsku og ensku. Seinna fór hann í þýskunám til Þýskalands og var flugmæltur á báðar þessar tung- ur. Hann varð því ákjósanlegur leiðsögumaður og vann sem slíkur síðustu árin. Í sinni leiðsögu- mennsku lagði hann sig eftir að segja frekar sögur úr umhverfinu er farið var um og að kynna ís- lenskan arf, heldur en að fara með tölulegar staðreyndir, þó hann hefði þær á hraðbergi. Annað stórt áhugamál Sigga var vísnaarfurinn. Hann var haf- sjór af vísum og sjálfur var hann prýðilega hagmæltur þó hann gerði lítið af að yrkja í seinni tíð. Siggi var afar hamingjusamur er hann náði í sína þýsku Úlriku, sem er mikil hestakona enda hefði annað ekki hæft fyrir hann. Siggi sagði mér í sumar hve ómetanlegt það væri fyrir sig að eiga Úlriku að í veikindunum og ekki spillti að hún er hjúkrunarkona. Þvílíkur sjónarsviptir verður að, er maður sér Sigga ekki lengur sitja framan við hesthúsið sitt, Miðhús, og segja álit sitt er mað- ur ríður framhjá. Þór Sigurðarson. Sigurður Viðar Óskarsson Elsku Lilla. Mig langar til að minnast þín í fáum orðum. Ég á margar góðar minningar um þig. Það var alltaf svo gott að koma niður á Heiðarveg til ykkar. Alltaf mætti manni góðmennska og hlýja. Ég man hvað var spennandi þegar þú hljópst eftir gosi í gleri niður í kjallara og oftar en ekki kom nú eitt- Guðný Sigurðardóttir ✝ Guðný Sigurð-ardóttir fæddist í Brautarholti, Reyð- arfirði, 18. mars 1930. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 10. nóvember 2010. Útför Guðnýjar fór fram frá Reyðarfjarð- arkirkju 20. nóv- ember 2010. hvert „gotterí“ með. Ég man líka að þið Nafni fenguð mig til að grafa fyrstu tönn- ina, sem ég missti, í blómapott hjá ykkur. Það var líka alltaf svo gaman að koma á bókasafnið til þín og Jóhönnu. Það var nú ekki leiðinlegt að vera með sambönd þegar nýjar bækur komu. Eftir stendur minn- ing um ljúfa og góða konu með skemmtileg- an húmor. Ég vil þakka fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Elsku Jóhanna mín, þetta er mikill missir fyrir þig og Guð veri með þér í þessari miklu sorg. Kveðja, Sigrún Valgerður og fjölskylda. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður val- inn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birt- ingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birt- ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSDÍSAR GÍSLÍNU ÓLAFSDÓTTUR, Miðtúni 7, Sandgerði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Arthúr Guðmannsson, Ólafur Arthúrsson, Eygló Antonsdóttir, Guðrún Arthúrsdóttir, Eggert Þór Andrésson, Hallgrímur Arthúrsson, Inga Jóna Ingimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.