Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010
Tveir kvikmynda-
gerðarmenn, Hjálmtýr
Heiðdal myndatöku-
maður og Karl Smári
Hreinsson handritshöf-
undur, hafa nýlega lok-
ið gerð kvikmyndar um
steindar gluggarúður,
sem nú eru m.a. í tveim-
ur íslenskum kirkjum,
en eru þangað komnar
frá Bretlandi í síðari
heimsstyrjöldinni.
Einkum er rúða úr dómkirkjunni í
Coventry gerð að umtalsefni, en sá
listgripur hefur verið í Akureyrar-
kirkju allt frá árinu 1943.
Bæði í kvikmyndinni sjálfri, sem
sýnd var í Ríkissjónvarpinu 31. októ-
ber sl., og í viðtalsgrein í Morgunblað-
inu 27. október, gefa höfundar í skyn,
að rúða þessi sé til Akureyrar komin á
afar vafasaman hátt, þar komi bæði
þjófnaður og smygl við sögu og þar að
auki uppdiktaðar kraftaverkasögur,
og er þó ekki allt talið. Kvikmyndin sé
gerð til að svipta hulunni af ósóman-
um.
Hér er ekki rúm til að rekja feril og
sögu þessarar rúðu, en í þess stað er
vísað til Sögu Akureyrarkirkju, Akur-
eyri 1990, bls. 287-289 og 295-297.
Ekki skal heldur reynt að leiðrétta all-
ar þær missagnir, villur og firrur, sem
er að finna í fyrrgreindum textum. Þar
er þó mikinn skóg að grisja.
Kenyon Wright hét sá maður, sem
séð hafði um samskipti við kirkjunnar
menn á Akureyri af hálfu Coventry-
manna. Hann lét af störfum þar og
flutti til Skotlands sumarið 1981. Þar
er að finna skýringuna á því, að fyrir-
hugað samband kirknanna frestaðist
um hríð. Tilhæfulaust er að gefa í
skyn, að þar sé við einhverja tregðu
eða pennaleti heimamanna á Akureyri
að sakast. Nú er hann kominn aftur til
starfa í Coventry og hefur tekið upp
þráðinn. Í fyrra heimsótti hann Akur-
eyrarkirkju ásamt dómkirkjuprestin-
um dr. David Porter og tjáðu þeir
heimamönnum meðal annars þá skoð-
un sína, að gluggarúðan væri vel
geymd og varðveitt í Akureyrarkirkju
og þar ætti hún að vera til frambúðar.
Við guðsþjónustu í Akureyrarkirkju
10. maí 2009, þar sem dr. David Porter
prédikaði, afhentu þeir félagar kirkj-
unni að gjöf minjagrip til staðfestingar
orðum sínum. Þannig standa þessi mál
nú í sátt og bróðerni. Aldrei hafa kom-
ið fram tilmæli um, að rúðunni yrði
skilað, og því síður kröfur.
Kvikmyndagerðarmennirnir tveir
virðast hafa gaman af að dæma aðra,
bæði nafngreinda einstaklinga og heil
sveitarfélög, af litlum eða þá tilbúnum
forsendum. Mannlegt samfélag á Ak-
ureyri og einstakir menn í kaupstaðn-
um fóru ekki varhluta af þessari dóm-
girni, og þegar hún dugði ekki til,
fengu þeir vel máli farna aðkomumenn
í lið með sér til að útskýra, af hverju
þessi undarlegi bæjarbragur stafaði
og í hverju hann birtist. Akureyringar
voru taldir lokaðir og lítt mannblendn-
ir, þurrir á manninn og fátalaðir,
hleyptu nýbúum ekki of
nærri sér. Hér voru á
ferðinni gamlir, þurrir
hleypidómar, sem hver
tyggur út úr öðrum til
þess að þurfa ekki að
hugsa sjálfur.
Í téðri kvikmynd eru
tvö félög á Akureyri sér-
staklega talin drottna yf-
ir atvinnulífi, bæjarbrag
og flestum lífshræring-
um bæjarbúa. Þau eru
Frímúrarareglan og
Oddfellowstúkan og þá einkum for-
ystumenn þeirra, sér í lagi frímúrara.
Manni skilst, að ósýnilegur andi þeirra
hljóti að liggja eins og mara yfir bæj-
arlífinu. Þó var sérstaklega tilnefndur
forstjóri Kaupfélags Eyfirðinga, Jak-
ob Frímannsson. Helst verður ráðið af
lýsingunni, að valdahrammur hans
hafi vofað yfir bænum eins og svart
ský, gott ef ekki fjármálalífinu í land-
inu öllu. Frímúrarar hefðu verið bak-
hjarlar hans og vikapiltar. Það var
vissara að tala ekki of mikið um
kirkjurúður upphátt.
Það datt ofan yfir Akureyringa að
heyra þessar lýsingar í sjónvarpi allra
landsmanna. Íbúar þessa kaupstaðar
höfðu ekki kynnst þeirri persónu, sem
þarna var lýst. Jakob hafði komið bæj-
arbúum fyrir sjónir, bæði pólitískum
samherjum og andstæðingum, sem
elskulegur og fágaður maður, góðvilj-
aður, gamansamur, vingjarnlegur og
viðmótsþýður, en jafnframt harðdug-
legur, strangheiðarlegur og vel viti
borinn. Vitanlega vann hann að hags-
munamálum þeirra fyrirtækja, sem
honum var trúað fyrir, eins og honum
bar skylda til. Við Jakob vorum vel
málkunnugir, og get ég því af eigin
kynnum borið honum hina bestu sögu.
Veiðibráðir fréttafálkar ættu að
vanda verk sín, þegar þeir halda, að
þeir hafi komist í feitt og séu að fletta
ofan af hneykslunarefnum. Þeir gætu
orðið fengsælir, fundið sannindi og
hreinsað andrúmsloftið eins og Water-
gate-kapparnir, en þeim gæti líka orð-
ið hrösult og þeir orðið sér til minnk-
unar, ef þeir eru of fljótfærir eða
hroðvirkir. Fyrsta varúðarregla
þeirra ætti að vera að fara rétt með
staðreyndir og kanna vel málsatvik.
Síðan kemur að því að draga réttar
ályktanir og setja þær slysalaust fram.
En framar öllu ættu menn að forð-
ast að bera ósannar sakir á fólk, ekki
síst látið fólk, sem getur ekki lengur
varið sig, og narta í æru þess og mann-
orð. Slíkt er lítill drengskapur. Engum
er frami að slíku athæfi, þó að frægðin
kunni að verða auðfengin og skjóttek-
in – og þá að endemum.
Meira: greinar@mbl.is
Veiðibráðir
fréttafálkar
Eftir Sverri Pálsson
» Aldrei hafa komið
fram tilmæli um, að
rúðunni yrði skilað, og
því síður kröfur.
Sverrir Pálsson
Höfundur er fv. skólastjóri og fréttaritari
Morgunblaðsins á Akureyri 1962-1982.
Vaxandi umræða
um aðgerðir ríkja til
að halda niðri gengi
gjaldmiðils síns verð-
skuldar athygli.
Bandaríkin hafa lengi
gagnrýnt Kína fyrir
þetta. Við Íslendingar
höfum orðið fyrir mik-
illi lækkun krónunnar.
Strax fyrri hluta 2008
vegna undangeng-
innar þenslu og eftirfarandi sam-
dráttar og síðan um haustið við
bankahrunið. Það er ekki fyrr en
nýlega sem almennt er viðurkennt
að hrun krónunnar hafi verið nauð-
synlegt til þess að við næðum aftur
vopnum okkar í útflutningi og verð-
mætasköpun. Kína hefur getað
haldið gengi gjaldmiðils síns niðri
vegna alræðis stjórnarinnar, sem
þarf ekki að taka tillit til afleiðing-
anna í minni kaupmætti almenn-
ings. Gjald sem verkalýðurinn þarf
að gjalda til að halda „sínum“
mönnum við völd. Á vesturlöndum
gengur þetta ekki. Þar heimta
verkalýðsfélög strax kauphækkun
ef gengið er lægra en við-
skiptajöfnuður útheimtir.
Þýskalandi tókst lengi að lifa vel
við stöðuga styrkingu þýska
marksins og svo evrunnar. Verka-
lýðsfélögin þýsku sættu sig við að
fá lítið meiri kaupmáttaraukningu
en sem því nam og verðbólgu var
þannig haldið niðri. Þar kom auð-
vitað margt til, svo
sem nægjusemi fyrst
eftir stríð og svo að-
flutt vinnuafl og mút-
ur frá ríkisstjórnum í
formi valds verkalýðs-
félaga yfir sjóðum og
þröngum lagaskil-
yrðum við uppsögn
starfsmanna. Vel að
merkja þá hefur þetta
leitt til ósveigjanleika
vinnuafls sem á eftir
að bitna með vaxandi
þunga á nýsköpun nú þegar dreg-
ur úr aðflutningi vinnuafls. Það er
spennandi að fylgjast með því hvað
verður ofaná í ESB, að Þýskaland
taki aftur upp sitt þýska mark eða
veikari ríkin svo sem Grikkland
segi sig frá evrunni. Ég hallast að
hinu fyrra nú eftir að ESB hefur
samþykkt að styðja við Grikkland.
Hér er að vísu gengið út frá því að
Grikkland muni aldrei geta end-
urgreitt í neinu formi þann stuðn-
ing. Þýskaland hefur getað lifað
við hátt gengi gjaldmiðils vegna
tækniþekkingar og menntunar
vinnuafls sem ekkert annað ríki
trompar.
Önnur ríki með evru ráða ekki
við sterkan gjaldmiðil og Frakk-
land mun sjá til þess að evran
haldi áfram að veikjast. Til þessa
er það ekkert annað en metnaður
og mikilmennskubrjálæði miðstýr-
ingarvaldsins sem hefur leyft evr-
unni að styrkjast stöðugt. ESB og
sérstaklega Frakkar vildu skáka
USA. Ég er ekki viss um að það
takist. Bandaríkjamenn virðast
hafa fattað að tilraunir til að stýra
peningamagni snerta einnig geng-
ið. Hærri vextir ættu að minnka
eftirspurn eftir peningum og draga
úr fjárfestingu og að vísu styrkja
gengið og auka neyslu innflutn-
ings. Þetta með gengið gerir að
vísu ekki mikið til í Bandaríkj-
unum, því þar eru áhrif innflutn-
ings ekki mikil. Hjá okkur gegnir
öðru máli, þar sem hækkun gengis
er mikil kaupmáttaraukning og
hækkun vaxta getur valdið auknu
framboði erlends fjármagns og
fjárfesting aukist í kjölfarið en
ekki minnkað. Í Bandaríkjunum
veldur lækkun vaxta og aukning
peningamagns einhverri aukningu
fjárfestingar en meiru geta skipt
áhrifin á lækkun gengis dollarans
og aukin samkeppnisstaða Banda-
ríkjanna. Þarna verða peningarnir
bara til innanlands. Þetta er ný
upplifun fyrir Bandaríkin, sem til
þessa hafa tengt sterkan dollar við
stórveldisdrauma sína.
Hvað getum við lært af reynslu
annarra þjóða? Það er takmarkað,
ef við skiljum ekki samhengi at-
burðanna við ástandið á hverjum
stað. Nú loksins er farið að lækka
vexti hér heima svo máli skiptir.
Samt heldur krónan áfram að
styrkjast, sem sýnir bullið í vaxta-
stefnunni til þessa. Okkur vantar
ekki tilfinnanlega gjaldeyri, þótt
gott sé að Seðlabankinn sanki ein-
hverju að sér úr því gengið þolir
það. Okkur vantar vilja til að nota
þá peninga sem til eru í bönk-
unum. Þennan vilja vantar vegna
hamlandi aðgerða ríkisvaldsins.
Við þurfum raunar enga atvinnu-
stefnu. Það mundi hjálpa ef ráð-
herrar hefðu enga skoðun á at-
vinnumálum og hættu að þvælast
fyrir. Hugsanlega vill þjóðin
stærra ríkisvald og meiri skatt-
heimtu. Nú er ekki rétti tíminn
fyrir slíkar aðgerðir.
Peningamálin
Eftir Halldór I.
Elíasson
Halldór I. Elíasson
Höfundur er stærðfræðingur.
»Nú loksins er farið
að lækka vexti hér
heima svo máli skiptir.
Nú þegar dimma
tekur og vetur kon-
ungur gengur í garð
er vert að huga að
endurskini. Það fer
ekki mikið fyrir end-
urskinsmerkjum en
þessi litlu merki geta
bjargað mannslífum.
Allir þurfa að nota
endurskinsmerki,
jafnt stórir sem smáir
og jafnvel kettir,
hundar og hestar svo dæmi séu
tekin. Fullorðnir eiga að sjálf-
sögðu að vera börnum fyrirmyndir
í þessum efnum. Til eru margar
gerðir og stærðir af þessum
merkjum og því ættu allir að geta
fundið endurskin við hæfi. Til að
mynda er nauðsynlegt fyrir skokk-
ara að vera í endurskinsvestum en
margir þeirra hlaupa út í myrkrið
í skokkhópum árla morguns eða
síðla dags. Síðustu ár hefur það
aukist að fólk hjóli allan ársins
hring með því að setja sérstök
vetrardekk undir hjólin. Þessi
ferðamáti er bæði góður fyrir um-
hverfið og líkamann en áríðandi er
að þessir hressu hjólreiðamenn
séu vel búnir og noti
bæði ljós og end-
urskin. Að hjóla er
einhver öruggasti og
heilsusamlegasti
ferðamáti sem hugs-
ast getur og því er
mikilvægt að menn
varpi ekki skugga á
kosti þess að hjóla
með því að tryggja
ekki með sem bestum
hætti öryggi sitt.
Hvað hunda og ketti
varðar þá er hægt að
fá sérstök hunda- og
kattahálsbönd og sjálfsagt er að
bregða endurskinsborða um fætur
hesta þegar farið er í reiðtúr.
Flestir ættu einnig að skella end-
urskinsmerki á barnavagna og svo
er ekki slæmt að líma endurskin á
göngustafina þegar lagt er af stað
í stafgönguna.
Í myrkri sjást gangandi vegfar-
endur illa þrátt fyrir götulýsingu
og ökuljós bifreiða. Það er aftur á
móti staðreynd að ökumenn sjá
gangandi vegfarendur með end-
urskinsmerki fimm sinnum fyrr og
því getur notkun endurskins skilið
á milli lífs og dauða.
Það er ekki sama hvar endur-
skinsmerki eru hengd á fatnað.
Þau eiga að vera sýnileg. Best er
að setja endurskinsmerki fremst á
ermar, á skó eða neðarlega á
buxnaskálmar. Þá virka end-
urskinsmerkin eins og blikkljós
þegar ljós skín á þau.
Hægt er að fá endurskinsmerki
í flestum apótekum, stórmörk-
uðum og bensínstöðvum. Þá er
þeim oft dreift af fyrirtækjum, fé-
lagasamtökum og íþróttafélögum.
Þau eru einnig oftar en ekki til í
skúffum og skápum á flestum
heimilum.
Endurskinsmerki eru ódýr og
fyrirferðarlítil en þau skipta sköp-
um. Settu á þig endurskinsmerki
því við viljum sjá þig í vetur!
Sjáumst í umferðinni
Eftir Þóru Magneu
Magnúsdóttur » Það er staðreynd að
ökumenn sjá gang-
andi vegfarendur með
endurskinsmerki fimm
sinnum fyrr og því getur
notkun endurskins skil-
ið á milli lífs og dauða.
Þóra Magnea
Magnúsdóttir
Höfundur er fræðslufulltrúi hjá
Umferðarstofu.
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
EXECUTIVE
MBA
INFORMATION MEETING
Tuesday November 30th at 17.30 at the Hotel Hilton Reykjavik
Nordica, Surlandsbraut 2, Reykjavik.
• Executive MBA
• Executive MBA in Shipping, Offshore and Finance
• Executive MBA in Energy
• Executive Master in Energy Management
All programmes are part-time and in English. Registration: www.bi.no/mba
EFMD