Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 25

Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 ✝ Eyjólfur Karlssonfæddist á Ak- ureyri 3. nóvember 1952. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 14. nóvember 2010. Hann var sonur hjónanna Guðnýjar Aradóttur og Karls Jónassonar. Systkini Eyjólfs eru: Karl, f. 1945, Björg, f. 1946, Rannveig, f. 1948, d. 19. júlí 1981, Ari, f. 1950, Björn, f. 1956, og Gísli Stefán, f. 1959. Eyjólfur kvæntist Kristjönu Júlíu Jónsdóttur 5. október 1974, for- eldrar Kristjönu eru Unnur Jó- hannsdóttir og Jón Gunnar Jó- hannsson. Eyjólfur og Kristjana eignuðust eina dóttur, Huldu Lind, f. 10. september 1974. Hulda Lind giftist Ólafi Sigmundssyni 20. októ- ber 2001, þau hafa eignast fjögur börn: Björn Húna, f. 1. febrúar 2001, d. 8. nóvember 2002, dæt- urnar eru: Kristjana Lind, f. 24. maí 2002, Sigríður Lind, f. 26. maí 2005, og Unnur Birna, f. 2. nóvember 2006. Fyrir hafði Hulda Lind eign- ast soninn Eyjólf Karl, f. 16. júní 1993, faðir hans er Gunnar Júlísson. Eyj- ólfur Karl er að mestu leyti alinn upp hjá móðurforeldrum sínum Kristjönu Júlíu og Eyjólfi. Eyjólfur ólst upp á Akureyri fyrstu átta ár ævi sinnar í stórum systkinahópi, en árið 1960 fluttist fjöl- skylda Guðnýjar og Karls til Kópavogs þar sem Eyjólfur lauk hefðbundinni skóla- göngu. Ungur gerðist Eyjólfur far- maður á skipum Eimskips og var í siglingum um nokkurra ára skeið, lengi vann hann sem deildarstjóri hjá Asiaco sem var umsvifamikið innflutningsfyrirtæki um margra ára skeið, hann vann einnig í fjöl- skyldufyrirtækinu Vörumerkingu ásamt bræðrum sínum og systrum. Hin síðari ár stundaði Eyjólfur sjálfstæðan atvinnurekstur og starfaði mikið erlendis í sambandi við þau viðskipti, m.a. í Kína og fleiri löndum í Austurlöndum fjær. Útför Eyjólfs fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 25. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Þá er Eyfi bróðir allur. Frá því ég var smágutti var Eyfi aldrei langt undan, og var ég svo heppinn að vera með honum í sumarbúðum á Ástjörn snemma á sjöunda áratugnum, þar var hann reyndur og sá ætíð um að gæta litla bróður. Seinna fórum við í sveit til Hornafjarðar og dvöldum hjá ömmusystrum okkar, Eyfi á Borg, og ég í Hoffelli, þar hittumst við oft yfir sumartímann. Eyfi fór til sjós og sigldi nokkur ár með Eimskip til Eystrasaltsland- anna og Rússlands og voru ófáar sögurnar sem hann sagði okkur frá þeim ferðum, og allir tóku spenntir á móti honum við hverja heimkomu, ekki sakaði að eitthvað góðgæti var alltaf í farteski hans og var hann ætíð örlátur. Hann starfaði síðar u.þ.b. áratug hjá Asiaco og í framhaldi starfaði Eyfi sjálfstætt í innflutningi og sölu allt til loka. Eyfi var víðförull um heiminn og hafði frá mörgum skemmtilegum uppákomum að segja. Það er óhætt að segja að hann var með skemmtilegri mönnum og uppá- tæki hans og húmor einstakur, það var alltaf hægt að reikna með ein- hverju sérstöku þegar Eyfi var með í ferðalögum eða gleðskap. Elsku Nana, Hulda Lind og börn, Eyfa verður sárt saknað, en við get- um yljað okkur við minningar um frábæra tíma sem við áttum saman. Björn Karlsson og Svanhildur Þórarinsdóttir. Þegar ég sat hjá þér laugardaginn 13. nóvember síðastliðinn fannst mér sem nú hlyti þetta allt að fara að lagast, meinið hverfa, og við mund- um eiga góðar stundir saman um ókomna tíð, það hvarflaði ekki að mér að það væri í síðasta sinn sem ég sæi þig á lífi en svona er vonin sterk og getur blekkt mann. Lífið rennur hjá og maður tók varla eftir öllum góðu stundunum sem við bræðurnir höfum átt því alltaf var eitthvert nýtt grín í gangi. Þinn ein- staki hæfileiki til að sjá spaugilegar hliðar á öllu er nokkuð sem ætti að lögleiða og kenna í grunnskólum. Hvort heldur það voru veiðitúrar, utanlandsferðir, viðskiptaferð eða hvað það nú annars var sem við gerðum saman þá soguðust fyndnar uppákomur að þér og veit ég ekki um neinn sem kann að nýta sér þær eins vel og þú gerðir. Ég gæti örugg- lega skrifað heila bók um atvik þar sem þér tókst að snúa háalvarlegum viðburði upp í fyndið atvik en þar sem ég kann ekki að skrifa bók ætla ég bara að geyma þessar minningar með sjálfum mér og við getum svo rifjað þetta allt upp er við hittumst um síðir. Elsku Eyfi minn, eins og þú sagðir alltaf „allir dagar eru góðir dagar“ þá þykist ég þess fullviss að þér líður núna vel hjá afastráknum þínum honum Húna litla. Ég kveð þig með söknuði elsku bróðir og þakka þér samfylgdina. Elsku Nana, Eyjó, Hulda Lind, Óli og litlu afastelpurnar, megi allar góðar vættir veita ykkur styrk og gleði við góðar minningar um góðan dreng. Ari bróðir. Kæri Eyvi, mig langar til að þakka langa og góða samfylgd í gegnum árin, leiðir okkar eiga örugglega eftir að liggja saman á ný. Allar ferðirnar, bíltúrarnir, símtölin, skemmtilegi húmorinn, allt þetta vil ég þakka með þessum orðum: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Þinn vinur, Einar Gústafsson. Í dag verður Eyjólfur Karlsson borinn til hinstu hvílu. Aðdragand- inn var ekki langur, fyrir nokkrum mánuðum var Eyvi eins og við mun- um hann, jákvæður, glaður og bjart- sýnn. Þessum eiginleikum hélt hann ótrúlega vel til hinstu stundar, því minnir fráfall hans okkur enn betur á að við erum ávallt berskjölduð þeg- ar kallið kemur. Alltaf erfitt og sárt og illskiljanlegt þegar því er beint að mönnum fullum orku og lífsgleði. Margs er að minnast á langri leið, sem lá upphaflega saman við skondnar kringumstæður sem við höfðum jafnan gaman að rifja upp. Þá vorum við kornungir menn fyrir einum 40 árum. Sviðið var rústað brúarþakið á vertíðarbátnum m/b Pétri Jónssyni, sem við vorum fengnir til að mála af verktökunum Daðasonum, Rúnari og Kristjáni. Eitthvað greindi okkur á um starfs- aðferðir og vildi hvorugur lúffa. Það varð að kalla til þá ágætu bræður, sem leystu málið þannig að Salómon konungur hefði mátt vera fullsæmd- ur af. Á þeim áratugum sem gengu í garð urðu ágreiningsefnin ekki fleiri, en ánægjustundirnar þess fjöl- skrúðugri, bæði innanlands og utan, með konum okkar eða einir saman. Við áttum mörg svipuð áhugamál, sum harla skrítin, líkt og óseðjandi forvitni um launhelgar og stríðs- glæpi Þriðja ríkisins. Við ákváðum því að fara í pílagrímsför um Pólland þvert og endilangt og sjá með eigin augum útrýmingarbúðir nasista og fleiri minnismerki um skepnuskap mannsandans. Það var engin ástæða til að æsa sig upp, við létum loks verða af ferð- inni um áratug síðar og komum margs vísari til baka. Ákveðin var önnur ferð, vitanlega í kynlegri kantinum, að sjá hverfandi ummerki gamla Járntjaldsins. Ólíklegt að hún verði farin á hefðbundinn hátt. Það er mikill söknuður þegar góð- ir drengir falla í valinn, ekki bætir úr skák í blóma lífsins. Þá er gott fyrir þá sem eftir lifa og unna Eyjólfi Karlssyni, að rifja upp óteljandi minningar um einstakan mann. Hógværa húmoristann, kallaði ég hann stundum, þetta háttvísa og yf- irvegaða prúðmenni, hann var nefni- lega ekki allur þar sem hann var séð- ur. Eyvi var bráðfyndinn og skemmtilegastur félaga undir sínu rólyndislega yfirbragði – sem var einkar varhugavert að taka alvar- lega. Þá var ekki ónýtt að leita til hans ráða því hann var alltaf ráða- góður og bjartsýnn og uppgjöf var nokkuð sem var ekki til í hans orða- bók. Við hjónin áttum margar góðar stundir með Eyva og Nönu sem við erum ákaflega þakklát fyrir og ófá, fræg maraþonsímöl þar sem rætt var um allt milli himins og jarðar, en Eyvi var hugmyndaríkur, skarp- skyggn og lét ekki sitja við orðin tóm. Nú getur maður aðeins hneigt höfuðið og þakkað fyrir að hafa átt slíkan vin. Það er huggun harmi gegn, þeir eru vandfundnir. Kæra Nana mín, við Rannsý og Stefán Óli sendum þér og fjölskyld- um ykkar og vinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. „Oh Danny boy, the pipes, the pipes are calling … Sæbjörn Valdimarsson. Við Eyjólfur Karlsson, eða Eyfi eins og við vinirnir kölluðum hann ávallt, kynntumst á unglingsárunum i Gagnfræðaskóla Kópavogs. Við urðum fljótt góðir vinir enda var Eyfi skemmtilegur og traustur fé- lagi. Eyfi var mikill karakter og það hefur mótað hann að alast upp í stórum og fjörugum systkinahópi. Mér er minnisstætt fallegt heimili foreldra hans í Melgerði, þar sem við vinir Eyfa vorum eins og heimaln- ingar, enda alltaf tekið vel á móti okkur af foreldrum hans. Það var ýmislegt brallað saman á okkar yngri árum og þó að aldurinn færðist yfir hélst vinátta okkar óbreytt. Seinna unnum við Eyfi saman í fyr- irtæki föður hans Vörumerkingu, ásamt því að stofna prentfyrirtæki saman. Eyfi var mikill húmoristi og sá yf- irleitt spaugilegar hliðar á málum. Hann var alltaf pollrólegur, ég man ekki eftir að hann hafi nokkurn tím- an breytt skapi, þó að ýmislegt hafi stundum gengið á hjá okkur strák- unum. Eyfi virtist aldrei óttast neitt og mat alla hluti rólegur og yfirveg- aður. Við vorum á tímabili báðir á sjó og frá þeim tíma er mér minnisstætt frækilegt björgunarafrek sem Eyfi vann í Reykjavíkurhöfn, þegar hann kastaði sér á eftir manneskju sem hafði lent í sjónum, án þess að hika, í nístingskulda og krapi. Eyfi starfaði lengstum sjálfstætt og helgaði sig viðskiptum, en þau léku í höndum hans. Hann var sann- kallaður frumkvöðull og lét drauma sína rætast, óragur að breyta til og að prófa eitthvað nýtt. Hann sá tækifæri alls staðar og fylgdi sínum málum vel eftir enda fljótur að ávinna sér traust, hvort sem hann var að kaupa eða selja. Þetta kom fram strax á yngri árum, alltaf voru einhverjar pælingar í gangi og yf- irleitt áður en við vinirnir vissum af var Eyfi búinn að framkvæma á meðan við vorum enn að pæla. Hann var alltaf fyrstur til að eignast það sem okkur dreymdi um, hvort sem um var að ræða mótorhjól, bíl eða jafnvel íbúð. Eftir að við stofnuðum fjölskyldur héldum við alltaf sambandi og er ég þakklátur fyrir það í dag. Við hjónin höfum átt margar ánægjulegar stundir með Eyfa og konu hans Nönu. Það er sárt að horfa á eftir góðum vini kveðja þennan heim fyrir aldur fram, en ég er þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum saman og að hafa átt Eyfa sem vin. Elsku Nana og Hulda Lind, missir ykkar er mikill en um leið er margs að minnast. Megi minningin um góð- ar stundir, með góðum dreng, vera ykkur leiðarljós á erfiðum tímum. Blessuð sé minning vinar míns Eyj- ólfs Karlssonar. Brynjólfur Sigurðsson og fjölskylda. Kær vinur er nú fallinn frá og verður hans sárt saknað. Ég er bú- inn að þekkja Eyjólf Karlsson í tæpa þrjá áratugi og er svo heppinn að geta kallað hann einn af mínum allra bestu vinum á lífsleiðinni. Ógleym- anlegar eru stundir sem við höfum átt saman í gegnum árin en ég er sérstaklega þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum saman í sum- ar. Ég vil að lokum senda fjölskyld- unni mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Hvíldu í friði. Þinn vinur, Ævar Einarsson. Eyjólfur Karlsson ✝ Stefanía Kárs-dóttir Mansfield fæddist í Reykjavík 30. maí 1952. Hún lést á sjúkrahúsi í Perth í Ástralíu 13. nóvember 2010. Foreldrar hennar eru hjónin Kár Guð- mundsson, f. 30.5. 1925 í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd, og Júlía Einarsdóttir, f. 7.3. 1932 í Tungugröf í Strandasýslu. Þau eru búsett í Perth í Ástralíu. Stefanía var elsta barn foreldra sinna. Systkini hennar eru: 1) Kristinn, samfeðra, f. 4.8. 1950, kvæntur Ingibjörgu Leós- dóttur, þau eru búsett á Íslandi. 2) Súsan Freydís, f. 9.9. 1955, gift Brian Harvey, búsett í Ástralíu. 3) Signý, f. 25.3. 1958, gift John Dic- kie, búsett í Ástralíu. 4) Helga Björg, f. 10.12. 1959, í sambúð með Peter Weare og búsett í Ástralíu. 5) Benedikt Jóhannes, f. 2.11. 1961, búsettur í Ástralíu. Stefanía skilur eft- ir sig eiginmann til 38 ára, Terence Keith Mansfield, f. 2.8. 1951, og börn þeirra, sem eru 1) Kris Terence, f. 10.8. 1974. Kona hans er Melissa, f. 12.7. 1977. Þau eiga soninn Jack Aubrey. 2) Jodie Fiona, f. 27.3. 1976. Hennar maður er Jeff Appleton, f. 15.6. 1976. Börn þeirra eru: Jacinta, Ísabelle, Tory og Kel- don. Stefanía bjó á Íslandi fyrstu tvö æviárin, en flutti þá með foreldrum sínum til Kanada. Þau fluttu aftur til Íslands árið 1959 og bjuggu í Kópavogi til ársins 1963 er þau fluttu til Akraness. Árið 1968 tók fjölskyldan sig aftur upp og flutti til Ástralíu þar sem þau búa enn. Útför Stefaníu fór fram í Perth 19. nóvember 2010. Ég var lánsöm að eiga Stebbu systur mína sem kæra vinkonu og minn besta trúnaðarvin. Stebba var sú sem dreif hlutina áfram, það þurfti ekki að biðja hana, hún vissi alltaf hvað gera þurfti og framkvæmdi án orðleng- inga. Hún var kletturinn sem mamma og pabbi gátu treyst á, sér- staklega á fyrstu árunum okkar hér í Ástralíu. Ég bar ótakmarkaða virðingu fyrir Stebbu systur. Hún var svo lagin í höndunum, hvort sem það var saumaskapur, matseld eða eitt- hvað sem þurfti lagni við, hún gerði það vel. Ég var svo heppin að fá að búa hjá Stebbu og Terry í Darvin í fjóra mánuði árið 1977, þegar þau bjuggu þar. Það var yndislegt, því þá fékk ég líka tækifæri til að kynnast börn- unum þeirra, Kris og Jodie, og vin- skapur okkar systra efldist. Það var Stebba systir sem ég tal- aði fyrst við eftir að Sarah mín fæddist og það var hún sem valdi nafnið Sarah Nicole … ég hafði ætl- að að nefna hana Freyju, en Stebba fékk að sjálfsögðu að ráða því hún var jú stóra systir mín og viturri en ég. Stebba og Terry hafa reynst mér alveg óskaplega vel. Þau hafa alltaf verið til staðar, þegar ég hef þurft á því að halda. Það eina sem skyggði á þegar ég og stelpurnar mínar fluttum til Ís- lands árið 1997 var að þurfa að yf- irgefa fjölskyldu og vini, sérstak- lega mína bestu vinkonu. Stebba og Terry komu svo og heimsóttu okkur árið eftir og við áttum yndislegar fjórar vikur saman á gamla góða Ís- landi. Við ferðuðumst víða og bröll- uðum margt. Á þessum tíma var verið að klára gerð jarðganga undir Hvalfjörðinn. Daginn sem þau voru opnuð var fólki boðið að ganga, hlaupa eða hjóla þessa rúmlega 5 km vega- lengd. Þetta afrekuðum við og feng- um að launum medalíu og bol til minningar. Þetta var erfitt og hálf- gerð geggjun á þeim tíma … eða það fannst Stebbu minni, en minn- ingin er ljúf. Við fórum líka bátsferð um Jök- ulsárlón sem við minnumst sem æv- intýraferðar. Á lítilli skektu, sigl- andi innan um ísjaka og heyrðum brak þeirra og bresti, yfirnáttúr- legt. Ég grét í tvo daga eftir að Stebba og Terry yfirgáfu Ísland eftir þetta fjögurra vikna frí. Ég flutti svo aft- ur heim til Ástralíu eftir tæp tvö ár á Íslandi og það var yndislegt að vera aftur í nálægð við systur mína. Stebba hélt upp á fertugsafmælið mitt fyrir mig árið sem ég sneri aft- ur heim frá Íslandi og hún gerði það með stæl. Við systurnar fjórar förum reglu- lega saman í helgarfrí. Bara við fjórar og við njótum þess í botn. Stebba með tarot-spilin, góður mat- ur og áströlsk eðalvín, stelpumynd- ir í sjónvarpinu og íslensku stelp- urnar, dætur þeirra Júllu og Kárs, njóta sín í botn. Nú hefur fækkað í okkar góða hópi, Stebba er farin og hennar verður sárt saknað. Ég finn til með Terry, sem hefur verið mér sem bróðir sl. 40 ár, og ég sendi honum og afkomendum þeirra Stebbu hugheilar samúðarkveðjur. Ég vil að lokum senda öllum ætt- ingjum og vinum bæði í Ástralíu og heima á Íslandi bestu kveðjur frá okkur öllum og þakka auðsýnda samúð okkur til handa. Stebba, ég elska þig til hins óend- anlega. Þín systir, Helga Björg. Stefanía Kársdóttir Mansfield

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.