Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 30

Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 30
30 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 25. nóvember 1902 Vélbátur var reyndur í fyrsta sinn hér á landi, á Ísafirði. Vél hafði verið sett í árabát en í fyrstu ferðinni kom í ljós „að hún var eigi nógu kraftgóð í svo stóran bát, þar eð hann fékk ekki jafn mikla ferð með maskínunni eins og þegar 6 menn róa“, sagði í Auglýs- ingablaðinu. 25. nóvember 1940 Breska herstjórnin á Íslandi lýsti allt hafsvæðið milli Vest- fjarða og Grænlands hættu- svæði. Gjöfulum fiskimiðum var þá lokað fyrir sjómönnum þar til hættusvæðið var minnkað í janúar 1941. 25. nóvember 1961 Sundlaug Vesturbæjar í Reykjavík var vígð. Hún var talin vegleg og vönduð og standast samanburð við slík mannvirki erlendis. „Steyptu sér fyrst fjórar stúlkur út í til sunds en síðan fjórir piltar,“ sagði Morgunblaðið. 25. nóvember 1966 Bókin „Landið þitt“ eftir Þor- stein Jósepsson kom út í fyrsta sinn. Hún hefur selst í tugþús- undum eintaka. 25. nóvember 1993 Teresa Berganza messósópr- ansöngkona kom fram á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói. Hún átti að baki glæstan söngferil í fremstu óperuhúsum heims og „heillaði áheyrendur með ynd- isfögrum söng sínum“, sagði í Morgunblaðinu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Flóðogfjara 25. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.09 0,6 8.22 4,0 14.44 0,7 20.48 3,6 10.29 16.02 Ísafjörður 4.14 0,4 10.16 2,2 16.55 0,4 22.38 1,8 10.59 15.41 Siglufjörður 0.54 1,2 6.28 0,4 12.40 1,3 19.07 0,2 10.43 15.23 Djúpivogur 5.35 2,3 11.54 0,6 17.44 1,9 23.58 0,5 10.04 15.25 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Nú er ekkert sem heitir að þú verður að taka til á skrifborðinu þínu og klára öll þau verk sem þú hefur tekið að þér. Haltu djarfur/ djörf á vit nýs árs og þeirra möguleika sem það gefur. (20. apríl - 20. maí)  Naut Sambandið sem þú ert í gefur þínu stórhuga hjarta frelsi. Leitaðu þér upplýsinga um hlutina og dragðu þínar eigin ályktanir af þeim. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Varastu að blanda eigin tilfinn- ingum inn í viðkvæmt vandamál sem þér hef- ur verið falið að úrskurða í. Gott ráð er að laga skilaboðin að viðtakandanum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Flokkaðu sjálfan þig með fólki sem þú hefur gaman af. Temdu þér skipulagningu og taktu ekki meira að þér en þú ert maður til. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Samstarfsfólk styður þig í dag og þess vegna gætir þú átt dásamlegan vinnudag. Fólk á það til að sleppa fram af sér beislinu í dag. Gamall vinur hefur samband og kemur með skrítna tillögu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Tilfinningarnar sem leynast í undir- meðvitundinni koma allar upp á yfirborðið í dag. Gefðu þér tíma til þess að slappa af. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Leitaðu stuðnings við fyrirætlanir þínar áður en þú leggur af stað. Einhver leitar ráða hjá þér. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er engin ástæða til þess að láta aðra sjá öll spilin sem þú hefur á hend- inni. Allra augu hvíla á þér – farðu varlega. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Himintunglin leggjast á eitt við að styrkja sjálfsmynd þína. Mundu að þú þarft að henta maka þínum ekki síður en hann/ hún þér. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú rakar saman karmastigunum um þessar mundir. Sumar ákvarðanir sem þú tekur eru þér framandi. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú vaknar við fyrsta hanagal og kemur meiru í verk fyrir hádegi en á heilum degi. Hver segir að maður þurfi alltaf að vera að gera eitthvað? (19. feb. - 20. mars) Fiskar Vertu opin/n fyrir fleiri en einni lausn á viðkvæmu deilumáli, sem þú stendur í. Stjörnuspá Sudoku Frumstig 2 3 8 6 2 9 7 1 2 5 1 7 5 7 2 3 8 9 1 7 8 5 3 6 8 6 9 2 7 4 5 4 5 2 9 7 1 6 4 5 1 8 7 2 2 6 1 5 8 9 6 9 7 2 5 4 9 4 2 3 7 2 6 3 8 5 2 8 6 4 9 7 7 3 6 4 6 7 5 9 1 2 8 3 9 1 3 6 2 8 5 7 4 8 2 5 4 7 3 9 6 1 1 8 2 3 6 7 4 9 5 5 9 6 8 1 4 7 3 2 7 3 4 9 5 2 8 1 6 3 5 8 1 4 9 6 2 7 2 4 1 7 8 6 3 5 9 6 7 9 2 3 5 1 4 8 3 4 7 8 9 1 5 6 2 5 2 8 7 6 4 9 3 1 9 1 6 5 3 2 8 7 4 8 7 2 1 5 9 3 4 6 1 6 3 4 2 8 7 9 5 4 5 9 3 7 6 1 2 8 6 3 4 9 8 5 2 1 7 2 9 5 6 1 7 4 8 3 7 8 1 2 4 3 6 5 9 8 1 7 6 9 5 2 3 4 3 9 2 7 4 8 6 5 1 4 5 6 2 1 3 9 8 7 1 3 4 8 7 9 5 2 6 7 8 5 4 2 6 3 1 9 2 6 9 3 5 1 7 4 8 6 2 8 9 3 4 1 7 5 9 7 1 5 8 2 4 6 3 5 4 3 1 6 7 8 9 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 25. nóvember, 329. dagur ársins 2010 Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I.Kor. 8, 3.) O tempora, o mores, sögðu Róm-verjar, hvílíkir tímar, hvílíkir siðir, og fannst ekkert jafn slæmt og samtíminn. Þetta hefur verið við- kvæðið í aldanna rás: Heimur versn- andi fer. Samkvæmt því ætti sam- tími okkar daga að vera versti tími allra tíma. Þó tuða fáir um það að þeir vildu fremur vera uppi á tímum Rómarveldis, víkinga eða móðuharð- inda fremur en í volæðinu, sem nú mun ríkja. Það kann að hljóma freistandi að hafa verið uppi fyrr á öldum, en Víkverja er til efs að margir væru tilbúnir að gefa nútíma- þægindi upp á bátinn til langframa. x x x Víkverji heyrði á leið til vinnu ígærmorgun mæðulegan lestur um að pöddur – ipod á ensku – væru eitt helsta mein samtímans. Ung- dómurinn rápaði um með pöddurnar sínar, styngi þreifurum þeirra í eyr- un og lokaði sig frá umheiminum. Fyrir vikið hefði ungt fólk ekki hug- mynd um hvað væri á seyði í kring- um það, bæri ekkert skynbragð á undur náttúrunnar, heyrði hvorki óviðjafnanlegan söng lævirkjans né ógnargný brimsins. Í pöddunni byggi hrun siðmenningarinnar. x x x Siðmenningin er reyndar í stöð-ugri hættu. Tölvur eru stór- hættulegar. Fólk týnist á netinu og hending ef það á afturkvæmt. Tölvu- leikir gleypa menn eins og svarthol. Ýmislegt hefur þótt glepja ungt fólk í gegnum tíðina. x x x Víkverja var skemmt þegar hannlas í hinni stórgóðu bók Sigrún- ar Pálsdóttur um Þóru biskups um þær áhyggjur, sem kviknuðu fyrir rúmri öld vegna þeirra, sem týndu sér í rómönum. Slíkt lesefni þótti greinilega lítill menningarauki í þá daga. Nú hins vegar stökkva menn hæð sína í hvert skipti sem kemur út bók, sem fólk fæst til að lesa. Menn- ingarvitarnir fitja reyndar upp á nef- ið þegar Dan Brown og hans nótar eru nefndir, en almennt þykir lestur fyrirmyndariðja, sama hvert lesefnið er. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 búsílag, 4 nothæf- ur, 7 búið, 8 veglyndi, 9 fæða, 11 geð, 13 vegur, 14 skeldýr, 15 í vondu skapi, 17 tala, 20 vínstúka, 22 ham- ingja, 23 gróða, 24 lasta, 25 dýrin. Lóðrétt | 1 skinnpoka, 2 hneigja sig, 3 hey, 4 biti, 5 spjald, 6 ráfa, 10 smáa, 12 ýtni, 13 op, 15 ánægð, 16 meðalið, 18 hugaða, 19 skóf í hári, 20 stamp, 21 hása. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 klókindin, 8 góðar, 9 fenna, 10 afl, 11 lúrir, 13 innan, 15 stóls, 18 staka, 21 kát, 22 klaga, 23 ásinn, 24 farkostur. Lóðrétt: 2 lúður, 3 karar, 4 nafli, 5 iðnin, 6 Egil, 7 kann, 12 ill, 14 net, 15 sekk, 16 óraga, 17 skark, 18 stáss, 19 atinu, 20 asni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 Rf6 2. g3 e6 3. b3 d5 4. Rf3 c5 5. Bg2 Rc6 6. 0-0 Be7 7. cxd5 exd5 8. d4 0-0 9. Bb2 Re4 10. Rc3 Bf6 11. Ra4 b6 12. Hc1 Ba6 13. dxc5 Bxb2 14. Rxb2 bxc5 15. Rd3 He8 16. He1 Db6 17. e3 Had8 18. Bf1 c4 19. Rf4 Rb4 20. Ha1 Df6 21. Kg2 Rc3 22. Dc1 Rcxa2 23. Da3 cxb3 24. Dxb3 Bc4 25. Bxc4 dxc4 26. Dxc4 Hc8 27. Db3 Dc3 28. Da4 Dc4 29. Heb1 a5 30. Dxa5 Ha8 31. Dh5 Rc2 32. Hb6 Rxa1 33. Rg5 h6 34. Hxh6 gxh6 35. Dxh6 Ha6 36. Dh7+ Kf8 37. e4 Hf6 38. Rd5 Nú er röðin komin að því að sýna tíu fléttur stórmeistarans Margeirs Pét- urssonar en hann varð fimmtugur fyrr á þessu ári. Hér hafði Margeir svart gegn dönsku goðsögninni Bent Larsen á svæðamóti sem haldið var í Gausdal í Noregi árið 1985. 38. … Hxf2+! 39. Kxf2 Dd4+ 40. Kf3 Dg7 41. Df5 Dg6 42. Df4 Rc2 43. Rf6 Hd8 44. De5 Rd4+ 45. Kg2 Rc6 46. Db2 Rab4 47. h4 Ke7 og hvítur gafst upp. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Jón og símanúmer. Norður ♠84 ♥KG962 ♦K8 ♣10984 Vestur Austur ♠KDG1092 ♠– ♥83 ♥ÁD54 ♦10 ♦ÁG652 ♣KG93 ♣ÁD72 Suður ♠Á7653 ♥107 ♦D9743 ♣5 Suður spilar 2♠ doblaða. „Tartan-tveir“ er alþjóðaheitið yfir þá sagnvenju að opna á 2♥/♠ með veika hönd, fimm spil í sögðum hálit og láglit til hliðar. Á Íslandi er sagnvenjan betur þekkt sem „Jón og Símon“, sem helgast af því að Jón Ásbjörnsson og Símon Símonarson voru einna fyrstir til að taka hana í notkun fyrir um það bil þremur áratugum. Menn sáu fljótt að opnunin átti sínar skuggahliðar. Í slæmri legu gátu mótherjarnir nælt sér í tölu, sem minnti um margt á síma- númer. Komst þá á kreik nýyrðið „Jón og símanúmer“. Í Champions Cup nú á dögunum kom í ljós að Tartan nýtur enn mikilla vinsælda. Á fimm borðum, hvorki meira né minna, vakti suður á 2♠. Austur doblaði, vestur sektarpassaði og kom út með ♠K. Og útkoman? 1700- kall í AV. Sagnhafi fékk einn slag. „Ég ætla nú bara að halda upp á það að ég er að klára söngnámskeið hjá Heru Björk, þannig að það verða skemmtilegheit í sambandi við það í dag, það er áfangi,“ segir Þórey Sigþórsdóttir, leikkona og afmælisbarn dagsins, um áformin í til- efni dagsins. „Ég ætla að bjóða vinkonum mínum til mín á föstudaginn og hafa stelpupartí. Svo kem- ur fjölskyldan í kaffi um helgina.“ Þórey, sem er 45 ára í dag, var í þann mund að fara á annað námskeið þegar blaðamaður náði af henni tali. Það námskeið kennir hún hins vegar sjálf. „Ég er að kenna raddtækni á raddþjálfunar- námskeiði sem ég held annað slagið í samvinnu við Listaháskóla Ís- lands,“ segir hún. „Svo var ég að leika aðeins hjá honum Friðriki Þór [Friðrikssyni] í dag, í Tíma nornarinnar,“ bætir hún við. Um er að ræða sjónvarps- þáttaröð sem byggð er á samnefndri sögu Árna Þórarinssonar. Fyrir- hugað er að þættirnir verði sýndir í Ríkissjónvarpinu. Þórey segist þó aðallega vera að kenna leiklist, en hana kennir hún nemendum í Aust- urbæjarskóla. Hún hefur því í nógu að snúast. „Já, það er alveg öruggt. Alveg glás,“ segir hún. „Bara skemmtilegt!“ einarorn@mbl.is Þórey Sigþórsdóttir leikkona 45 ára „Bara skemmtilegt!“ Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.