Morgunblaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010
Kúdrjavtsévs og
Berkovs minnst
Laugardaginn 27. nóv. kl. 16 efnir fél. MÍR, Menningartengsl
Íslands og Rússlands, til fundar í félagsheimilinu á Hverfis-
götu 105. Minnst verður tveggja mætra rússneskra heiðurs-
félaga sem létust í haust, Nikolajs Kúdrjavtsév, fyrrum
ráðherra, og Valerijs Berkov, málvísindamanns og orðabókar-
höfundar. Æviferill þeirra verður rakinn, Árni Bergmann
rithöfundur spjallar um Berkov og kynni sín af honum, og
Eydís Franzdóttir óbóleikari flytur nokkur lög.
• Kaffi og te á borðum í lok fundar.
• Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn MÍR
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þótt allt sé til þess að gera slétt og
fellt á yfirborðinu hjá Vinstrihreyf-
ingunni – grænu framboði, í kjölfar
flokksráðsfundarins um síðustu
helgi, er ekki allt sem sýnist og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
kraumar megn óánægja undir niðri
meðal fjölmargra félagsmanna.
„Þetta er ekkert annað en svikalogn
sem á eftir að springa í andlit okkar
eftir einhvern tíma og eigi síðar en á
næsta landsfundi flokksins,“ segir
óánægður félagi í VG.
Eins og kom fram hér í Morg-
unblaðinu fyrir helgi lá það fyrir að
Atli Gíslason og 70 aðrir VG-félagar,
flyttu tillögu á fundinum um að að-
lögunarferli Íslands að lögum og
reglum ESB yrði hætt og fjárstreymi
frá ESB til kynningar og áróðurs fyr-
ir ESB á Íslandi yrði stöðvað og við-
ræður við ESB yrðu þar með settar í
nýjan farveg.
Tillaga Atla og félaga var felld, en
tillaga á vegum formannsins, Stein-
gríms J. Sigfússonar, sem gerði ráð
fyrir að samningaviðræðum yrði
haldið áfram í óbreyttri mynd, en að-
lögun Íslands að lögum og reglum
ESB yrði stöðvuð og fjárveitingar frá
ESB yrðu afþakkaðar, var samþykkt.
Ótímabær fögnuður?
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins ríkti gleði í röðum helstu
stuðningsmanna Steingríms J. strax
að loknum flokksráðsfundinum á
laugardag; hann og hans helsta
stuðningsfólk í forystunni munu hafa
talið að niðurstaða fundarins hafi leitt
í ljós, að hann og hans nánasta sam-
starfsfólk hafi fulla stjórn á VG, einn-
ig órólegu deildinni. Hann mun telja
að hann hafi gengið sterkari frá
flokksráðsfundinum en til hans.
Þessu eru ýmsir úr órólegu deild
VG ekki sammála og telja að Stein-
grímur J. og co. ættu að ganga hægt
um gleðinnar dyr. Ótímabært sé með
öllu að fagna, því engin niðurstaða sé
komin í helstu átakamál innan flokks-
ins. Ágreiningnum hafi einfaldlega
verið slegið á frest og segja megi að
tillagan sem samþykkt var, hafi á
ýmsan hátt komið til móts við sjón-
armið Atla og félaga.
Vissulega hafi Steingrímur og
hans nánasta stuðningsfólk úr foryst-
unni og flokksráðinu unnið áfanga-
sigur á fundinum, bæði með því að
fella tillögu Atla og félaga og eins
með því að vísa sérstakri tillögu Atla
Gíslasonar um að landsfundi VG
verði flýtt og hann haldinn eigi síðar
en 15. apríl 2011 í stað næsta hausts,
til stjórnar flokksins, þannig að
flokksráðið tók ekki afstöðu til þeirr-
ar tillögu.
Þó er bent á að það geti varla talist
sterk niðurstaða að tillagan sem sam-
þykkt var hafi hlotið 38 atkvæði en
tillaga Atla 28. Í hópi þeirra sem
greiddu tillögu Atla atkvæði sitt hafi
verið sex þingmenn flokksins, þar af
tveir ráðherrar: Þau voru Ásmundur
Einar Daðason, Atli Gíslason, Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir, Jón
Bjarnason, Lilja Mósesdóttir og Ög-
mundur Jónasson.
Skaða flokkinn – draga úr fylgi
Nálægt 120 manns eiga sæti í
flokksráði VG og því þykir þátttakan
í atkvæðagreiðslunni hafa verið afar
dræm. Það geti ekki heldur talist
sterkt fyrir Steingrím J., sérstaklega
ekki þegar horft er til þess hversu
marga VG-flokksráðsmenn utan af
landi hafi vantað á fundinn. Í þeirra
hópi séu sterkustu gagnrýnendurnir
á það sem nefnt er „svik forystunnar
við stefnu VG í Evrópusambands-
málum“.
„Þessi mikla umræða um innri
átök í flokknum okkar, er okkur síður
en svo hjálpleg,“ segir einn úr stuðn-
ingshópi Steingríms J. „og stundum
getur ekki farið hjá því, að manni
detti í hug, að þeir sem berjast á móti
flestu sem forystan beitir sér fyrir,
séu með það eitt að markmiði að
skaða hagsmuni flokksins og draga
úr fylgi hans“.
Órólega deildin í VG telur að svona
áburður sé vart svaraverður. „Til
hvers ætlast þetta fólk eiginlega?
Það er búið að svíkja svo margt, sem
lýtur að stefnumálum VG. Eigum við
bara að þegja þunnu hljóði í þágu ein-
hverra ímyndaðra hagsmuna þröngs
hóps, sem ætlar að vaða með okkur
inn í ESB; fólk sem er tilbúið til þess
að afsala Íslandi fullveldi og laska til
frambúðar okkar svokallaða norræna
velferðarkerfi? Það hefur myndast
gjá á milli grasrótarinnar í VG og fá-
menns forystuhóps flokksins og við
því þarf forystan að bregðast með
trúverðugum hætti,“ segir óánægður
VG-maður.
Mun skerast í odda
Annar óánægður VG-félagi bendir
á að það hljóti að hafa ákveðnar af-
leiðingar í för með sér, þegar til
lengri tíma er litið, með hvaða hætti
Steingrímur J. og hans helsta stuðn-
ingsfólk hafi tekið völdin í flokks-
ráðinu. Þau hafi ráðið því nokkurn
veginn undanfarin ár, getað valið sitt
fólk í ráðið og sagt því meira og
minna fyrir verkum. En þegar næsti
landsfundur flokksins verði haldinn,
hvort sem það verði í apríl eða októ-
ber á næsta ári, hljóti einfaldlega að
skerast í odda. Grasrótin, alls staðar
af á landinu, hljóti þá að gera kröfu
um það að flokkurinn dusti rykið af
eigin stefnuskrá og fari að hafa það
að leiðarljósi að framfylgja eigin
stefnu.
„Það er ekki boðlegt í hreyfingu
eins og okkar að við séum ýmist
reiðubúin til þess að láta af okkar
helstu stefnumálum til þess að geta
setið í ríkisstjórn með Samfylking-
unni, eða að setja þau á ís,“ segir VG-
félagi utan af landi.
Gagnrýnendur þess með hvaða
hætti viðræðum við ESB er háttað,
segja engan vafa leika á að Ísland
eigi að fara undir regluverk Evrópu-
sambandsins í sjávarútvegsmálum.
Gögn sem þau hafi skoðað, leiði það í
ljós, með óyggjandi hætti, þótt um
tímabundnar undanþágur geti orðið
að ræða. Það liggi fyrir að enginn af-
sláttur verði gefinn frá regluverki
ESB til frambúðar, og því sé það
nánast útilokað að ríkisstjórn með
VG innanborðs geti skrifað undir
slíkan samning.
„Það getur einfaldlega ekki komið
til þess að samningur sem feli í sér
regluverk ESB um sjávarútvegsmál,
landbúnaðarmál, deilistofna og
strandríkjarétt verði gerður. Því trúi
ég a.m.k. ekki,“ segir VG-félagi.
Svikalogn komið á hjá VG
Morgunblaðið/Golli
Vinstri græn Uppgjöri innan VG um Evrópusambandsmál, velferðarmál og önnur mál sem félagar í VG hafa tekist á um, hefur verið slegið á frest.
Eftir átakafund flokksráðs VG hefur átökum í flokknum einfaldlega verið slegið tímabundið á frest
Hvorki sátt né eining sem einkennir pólitískt starf VG og uppgjöri er spáð á landsfundi
Gagnrýnendur þess innan Vinstri-
hreyfingarinnar – græns fram-
boðs, hvernig samningaviðræðum
Íslands við Evrópusambandið um
hugsanlega aðild er háttað, hafa
mjög margt við viðræðurnar að at-
huga – ekki síst það að nú sé hafin
aðlögun að regluverki ESB, og
engar líkur séu á nokkrum afslætti
frá þeim reglum þegar til fram-
tíðar er horft.
Meðal annars er bent á að ef Ís-
land gangi til samninga við ESB á
þeim nótum sem ESB keppir að,
fæli slíkt í sér stóraukin yfirráð
Evrópusambandsins á hafsvæðinu
á norðurslóðum.
Slík yfirráð séu Evrópusam-
bandinu mikið kappsmál, enda
myndi yfirráðasvæði ESB á hafinu
á norðurslóðum margfaldast að
stærð, miðað við það sem nú er.
Kappsmál að auka völd og
áhrif sín á norðurslóðum
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Árni Þór
Sigurðsson
Atli
Gíslason
Ásmundur Einar
Daðason
Steingrímur J.
Sigfússon
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt fertuga þýska konu, Elenu
Neuman, í átta ára fangelsi fyrir að
flytja til landsins nærri 20 lítra af am-
fetamínbasa, sem falinn var í bensín-
geymi bíls. Önnur þýsk kona, 32 ára,
sem var með henni í ferð og sætti
ákæru í sama máli, var sýknuð.
Neuman hefur setið í gæsluvarð-
haldi frá því í júní þegar konurnar voru
handteknar á Seyðisfirði en þær komu
með Norrænu til Íslands.
Talið var að úr amfetamínbasanum
væri hægt að búa til rúmlega 264 kg af
amfetamíni, sem svarar til næstum
allrar ársneyslu á Íslandi.
Grunur leikur á, að Lithái, sem
dæmdur var hér árið 2006 í fjögurra
ára fangelsi fyrir að flytja inn amfeta-
mínvökva og brennisteinssýru, tengist
málinu. Óskaði lögreglan hér á landi
eftir því við lögregluna í Litháen að
maðurinn yrði handtekinn og yfir-
heyrður en ekki hefur tekist að hafa
uppi á honum.
Í dómnum segir, að Elena hafi gert
sér far af fremsta megni um að afvega-
leiða rannsókn málsins og breytt fram-
burði sínum hjá lögreglu við rannsókn
málsins og lítið sem ekkert upplýst að
fyrra bragði og nánast ekki fyrr en
henni varð kunnugt um að lögreglan
hefði upplýsingar sem hún gat ekki
mælt í mót.
Skýrar vísbendingar séu um, að
Elena hafi verið virkur þátttakandi í
brotinu og hafi með ósannindum, röng-
um og misvísandi framburði reynt að
hindra lögreglu í að upplýsa brotið.
Þýsk kona dæmd í átta ára fang-
elsi fyrir smygl á fíkniefnum
Héraðsdómur sýknaði konu sem var með henni í för