Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 16

Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is „Stemningin er til staðar, en það vantar staðfestinguna á stemning- unni, sem við fáum svo oft úr fjöl- miðlum,“ segir Fjalar Sigurðarson, talsmaður óformlegs „hvatningar- hóps“ frambjóðenda til stjórnlaga- þings. „Alþingi hefur vísað því verki til þjóðarinnar sem hófst árið 1944 að endurskoða stjórnarskrána, rúm- lega 500 manns buðu sig fram og á laugardaginn er komið að okkur að kjósa. Þetta er fyrsta stóra skrefið sem þessi þjóð getur tekið til þess að horfa fram á veginn og við eigum að grípa það tækifæri.“ Viðtalsvandi fjölmiðla Sjálfur er Fjalar ekki í framboði, en talar fyrir hönd fjölda frambjóð- enda sem gagnrýna umræðu um það hversu flókið sé að kjósa, raunin sé önnur. „Þessir frambjóðendur óttast það sem við köllum viðtalsvanda fjöl- miðlanna,“ segir Fjalar. Fjölmiðlar geti ekki með góðu móti rætt við hinn gríðarlega fjölda frambjóðenda og til að sanngirni sé gætt sé því ekki rætt við neinn. Afleiðingin af því gæti orðið sú að kjörsókn yrði dræm. Fjalar segist telja að flestir geti verið sammála um kjörsókn skipti miklu máli. „Hún þarf að vera góð, bæði svo að frambjóðendurnir sem eru valdir endurspegli raunverulega þjóðina, og ekki síður svo að umboð stjórnlagaþings sé afgerandi.“ Sérfræðingar flækja málin Í yfirlýsingu, sem hvatningarhóp- urinn sendi nýverið frá sér, er vikið að umræðu sérfræðinga um kosn- ingakerfið, sem sögð er hafa letjandi áhrif á hugsanlega kjósendur. Sér- fræðingar hafi tilhneigingu til þess að flækja umræðu um umgjörð kosn- inganna, í stað þess að skýra hana. „Almenningur fær því endurtekið þau letjandi skilaboð að kosninga- kerfið sé flókið og að það sé sérstak- ur vandi að kjósa.“ En þar sem fjöl- miðlar hafi ekki tök á því að ræða við frambjóðendur og gera stefnumál- um þeirra skil sé frekar leitast við að fjalla um ytri umgjörð kosninganna. Tómarúm í fjölmiðlum „Við erum vön því, fyrir venjuleg- ar kosningar, að allir þessir daglegu fjölmiðlar okkar séu fullir af kapp- ræðum og umræðum og svipmynd- um af frambjóðendum og flokkum og slíku.“ Þessu sé ekki til að dreifa nú. Fjárhagslegt bolmagn frambjóð- enda gerir það að verkum að lítið er um auglýsingar í fjölmiðlum ef mið- að er við hefðbundnar kosningar. Þetta gerir það að verkum að „tóma- rúm“ myndast, miðað við fyrri kosn- ingar, bæði hvað varðar ritstjórnar- efni og auglýsingar. „Tómarúmið sem er á þessum tveimur hliðum, rit- stjórnarhliðinni og auglýsingahlið- inni, veldur því að fólk fær ekki þessa staðfestingu á því að það séu allir að pæla í þessu,“ segir Fjalar. Tákngervingur neikvæðni Frambjóðendahópurinn, sem í eru um 60 manns og heldur úti vefsíð- unni kjostu.org, hefur látið útbúa tákngerving fyrir dæmigerð nei- kvæð viðhorf sem heyrast í um- ræðunni – fúla karlinn. „Þó að það sé smá grín í því erum við líka að svara þessum algengustu viðbárum eins og „þetta er ekki til neins“, „þetta er svo flókið“, og „þetta eru tómir kve- rúlantar“. Ég held að það lýsi stöð- unni mjög glöggt, hvað svörin eru oft tiltölulega einföld,“ segir Fjalar. „[Margir] mála svolítið skrattann á vegginn, sem kæmi svo sem ekki að sök ef það væri bara ein rödd af þús- undum sem eru að tala um kosning- arnar. En af því að þessar raddir fá svona mikið vægi verður það eins og þetta sé meira mál en það í rauninni er.“ Engin eldflaugavísindi Fjalar bendir á að fæstir geti út- skýrt hvernig uppbótarþingsæti eru reiknuð. Það aftri þeim hins vegar ekki frá kosningaþátttöku. Jafn- framt slái fólk því stundum saman að erfitt sé að kjósa og að erfitt sé að telja atkvæðin. „Það eina sem menn þurfa að muna er að forgangsraða sínum frambjóðendum á miða, taka miðann með sér í kjörklefann, færa síðan númerin yfir á kjörseðilinn og skila síðan kjörseðlinum. Þetta eru engin eldflaugavísindi,“ segir Fjalar. Kosningakerfið ekki flóknara en vanalega  Hópur frambjóðenda hefur áhyggjur af dræmri kjörsókn Fúll Táknar hin „dæmigerðu nei- kvæðu viðhorf“ vegna kosninganna. BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Fjórum af þeim fimm Litháum sem í sumar voru dæmdir í 4-5 ára fang- elsi fyrir mansal hefur verið vísað úr landi með ákvörðun Útlendinga- stofnunar. Þeir kærðu ekki ákvörð- unina og kærufrestur er liðinn. Ekki er búið að taka ákvörðun um mál eins þeirra. Þegar afplánun þeirra lýkur verða þeir fluttir út á Keflavíkurflugvöll og séð til þess að þeir fari örugglega af landi brott. Þeir mega ekki koma til landsins næstu 30 árin. Fórnarlamb mansalsins var 19 ára litháísk stúlka. Einn þeirra, sem hlaut fjögurra ára fangelsi, hafði búið hér í þrjú ár. Eftir að hann var hnepptur í fang- elsi fyrir mansalið varð unnusta hans sem er búsett hér en er ekki ís- lenskur ríkisborgari, þunguð af barni hans. Útlendingastofnun tók tillit til þessara aðstæðna en þær breyttu þó ekki niðurstöðunni – hon- um skyldi vísað af landi brott. Ákvörðunin nær þó hvorki til unn- ustu hans né barns, hennar er að ákveða hvort hún og barnið fylgi honum úr landi. Mennirnir fimm eru allir borgarar í öðru EES-ríki. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, bendir á að mismunandi reglur gildi um brott- vísanir EES-borgara og þeirra sem koma frá svonefndum þriðju ríkjum, þ.e. ríkjum utan EES. Borgarar frá þriðju ríkjum njóta samkvæmt lögum minni réttinda hér á landi að þessu leyti. Fái þeir dóm þar sem lágmarksrefsing er meira en þriggja mánaða fangelsi, jafnvel þótt dómurinn sé mun væg- ari, kemur brottvísun ávallt til skoð- unar. Í raun getur því dómur fyrir eitt innbrot leitt til brottvísunar. Kristín tekur þó fram að ávallt sé tekið tillit til eðlis brotsins og að- stæðna hér á landi, s.s. hvort við- komandi eigi hér fjölskyldu. Öðru máli gegni hafi viðkomandi fengið stöðu flóttamanns vegna ótryggs ástands í heimalandi hans, þá verði honum varla vísað á brott, sama hversu alvarlegt afbrotið er. Þó yrði ávallt tekið til skoðunar hvort að- stæður hefðu breyst í heimaríki m.t.t. afturköllunar á stöðu hans sem flóttamanns og brottvísunar. Meiri réttindi EES-borgara Kristín segir að EES-borgarar hafi meiri réttindi sem felist fyrst og fremst í því að gerðar eru meiri kröfur til alvarleika þeirrar háttsemi sem til skoðunar er og hvort líklegt sé að viðkomandi EES-borgari brjóti af sér á ný. Horft sé til alvar- leika brotsins og hvort viðkomandi hefur brotið af sér áður. Við ákvarðanir sínar um brottvís- anir horfi Útlendingastofnun sér- staklega til ákvæða 8. greinar mann- réttindasáttmála Evrópu. Þar segir að ekki megi ganga á rétt manna til friðhelgi einkalífs „nema samkvæmt því sem lög mæla fyrir um og nauð- syn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, almannaheilla eða efnalegrar farsældar þjóðarinn- ar, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra“. Sömuleiðis fylgist stofn- unin vel með dómum Mannréttinda- dómstólsins en dómstóllinn hafi í mörgum dómum staðfest að ríki hafi mikinn rétt til að ákveða hverjir dvelji innan landamæra þeirra, að sögn Kristínar. Töldu brotið svívirðilegt Kristín segir að í mansalsmálinu blasi við að Útlendingastofnun hafði rétt til brottvísunar, enda hafi dóm- stólar talið brotið svívirðilegt. Þá líti stofnunin svo á að röð innbrota sé brot gegn allsherjarreglu og brott- vísun á þeim grundvelli brjóti ekki í bága við mannréttindasáttmálann. Við ákvörðun um brottvísun sé enn- fremur litið til þess hvort viðkom- andi eigi auðvelt með að setjast aft- ur að í ættlandinu og þá skiptir máli hversu lengi hann hafi búið hér á landi. Fólki sem hafi búið hér á landi í 20 ár sé t.d. varla vísað á brott nema þá fyrir mjög alvarleg afbrot. Fremji slíkur einstaklingur mann- dráp verði honum þó vafalaust vísað á brott, hafi hann ekki öðlast ríkis- borgararétt. Vísað úr landi fyrir mansal  Fjórum af fimm mönnum sem dæmdir voru fyrir mansal ungrar konu hefur verið vísað úr landi  Mega ekki koma aftur til landsins næstu 30 ár  Innbrot dugir til brottvísunar borgara utan EES Dæmdir Þegar mennirnir komu fyrir dóm voru þeir handjárnaðir. Útlendingastofnun er ekki með tengingu inn í tölvukerfi lögregl- unnar og stofnunin fær ekki form- legar tilkynningar um önnur af- brot útlendinga en þau sem leiða til fangelsisvistar. Óformlegar til- kynningar eru hins vegar algeng- ar. „Því miður hafa margir farið undir radarinn hjá okkur sem ekki hafa farið í afplánun en það stendur til bóta,“ segir Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlend- ingastofnunar. Fyrir liggi ákvörð- un um víðtækara samráð lögreglu og Útlendingastofnunar í þessum málum. Helst þyrfti stofnunin að hafa tengingu inn í lögreglukerfið og lögregla að hafa meiri teng- ingu inn í málaskrárkerfi stofn- unarinnar og jafnvel skráning- araðgang. „Þetta er mikilvægt til að halda utan um og koma í veg fyrir að útlendingur sem hér er í afbrotum fái án sérstakrar skoð- unar dvalarleyfi eða endurnýjun þess,“ segir hún. Nánara samstarf ákveðið MARGIR FARIÐ UNDIR RADAR ÚTLENDINGASTOFNUNAR Egill Ólafsson egolmbl.is Björgvin Þor- steinsson, lög- maður hjónanna í Árbót, segir að um 48 milljónir standi eftir af kostnaði sem hjónin í Árbót réð- ust í til að þar væri hægt að reka meðferðarheimili. Fyrrverandi fé- lagsmálaráðherra hafi óskað eftir að húsakostur yrði endurbættur og sam- ið hafi verið um að hann yrði greiddur með sérstöku framlagi. Björgvin segir að hjónin í Árbót hafi þrisvar sinnum ráðist í endur- bætur á húsnæði vegna óska frá barnaverndaryfirvöldum. Félags- málaráðherra hafi t.d. árið 2002 sent bréf til Árbótar þar sem vakin hafi verið athygli á að húsakostur með- ferðarheimilisins í Árbót væri ekki sambærilegur við þann sem almennt gerðist á meðferðarheimilum á veg- um Barnaverndarstofu. Björgvin segir að árið 2005 hafi skuldir vegna þessara endurbóta numið 43 milljónum og skuldin hafi staðið í 48 milljónum um síðustu ára- mót. Björgvin segir að þjónustusamn- ingurinn hafi gert ráð fyrir að greidd væri árlega föst upphæð vegna þess- ara útgjalda. Þegar samningnum hafi verið sagt upp hafi verulegur kostn- aður vegna framkvæmdanna verið ógreiddur. Talsverður kostnaður fylgi því að breyta húsnæðinu til ann- arra nota. Til grundvallar ákvörðun um að segja upp þjónustusamningnum við Árbót lagði Barnaverndarstofa það mat stofnunarinnar að nýting á heim- ilinu væri óviðunandi eftir að starfs- maður á heimilinu braut gegn stúlk- um á heimilinu og ekki væri líklegt að nýtingin batnaði þar sem barna- verndarnefndir í Reykjavík og Kópa- vogi vildu ekki senda börn á heimilið. Tilbúnar forsendur Björgvin segir að þetta séu tilbúnar forsendur. Barnaverndarstofa geti ráðið því hvort börn séu send á heim- ilið. Hann ber brigður á að rétt sé að barnaverndarnefndirnar hafi ekki viljað senda börn á heimilið. Í Árbót hafi verið vistuð börn bæði úr Reykja- vík og Kópavogi eftir að þetta kyn- ferðisbrotamál kom upp. Þar hafi ver- ið vistaðir þrír drengir en um tíma einnig stúlkur. Björgvin segir að upphaflegar kröfur hjónanna hafi verið að greiddir yrðu 13 mánuðir af þjónustusamn- ingnum eða samtals rúmlega 90 millj- ónir króna. Grundvöllur kröfunnar hafi verið að uppsögn þjónustusamn- ingsins hafi verið ólögmæt þar sem Barnaverndarstofa ráði á endanum eftirspurn á meðferðarheimilið. Björgvin bendir á að rökin um minni eftirspurn komi ekki heim og saman við yfirlýsingu forstjóra Barnavernd- arstofu um að þörf sé á að byggja upp nýtt heimili á Suðurlandi. Björgvin segir að hjónin í Árbót séu ekki ofhaldin af því að fá 30 millj- ónir greiddar vegna lokunar heimilis- ins. Þessi upphæð nái ekki yfir allan kostnað sem þau hafi ráðist í. Sá möguleiki að fara í dómsmál hafi verið skoðaður en hjónin hafi viljað ljúka málinu í sátt. Sátu uppi með kostnað vegna framkvæmda  Gagnrýnir forstjóra Barnaverndarstofu Björgvin Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.