Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 26

Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 ✝ Sigurjón Guð-mundsson fæddist í Reykjavík 13. júlí 1916. Hann lést á Droplaugarstöðum 18. nóvember 2010. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson sjómaður, f. 2. júní 1893, d. 18. nóvember 1918 úr spönsku veik- inni og Þóranna Rósa Sigurðardóttir, f. 23. júlí 1892, d. 3. sept- ember 1989. Hálf- systkin Sigurjóns voru Guðmundur Kristjánsson, f. 8. ágúst 1921, d. 22. ágúst 2007, og Sigurbjörg Kristjánsdóttir, f. 1. ágúst 1925. Uppeldissystir hans var Steinunn Kristjánsdóttir, f. 5. apríl 1916, d. 29. júní 2008. Fyrri kona Sigurjóns var Lára Antonsdóttir, f. 3. júlí 1921, d. 30. september 1987, þau skildu. Þau áttu saman eina dóttur, Stefaníu Rósu, f. 28. janúar 1940. Eig- inmaður hennar er Heimir Ingi- marsson, f. 1937. Börn Þeirra eru: a) Guðgeir Hallur, maki Sigríður Benjamínsdóttir, þau eiga tvö börn og tvö barnabörn. Fyrir á Hallur einn son. b) Sigþór, var kvæntur Hrönn Einarsdóttur og eiga þau saman 3 börn; c) Lára Ósk, maki Björn Kristinn Björnsson, þau eiga 3 börn og eitt barnabarn; Fyrir átti Björn einn son. d) Hafþór Ingi, kvæntur Jennýju Valdimars- dóttur, þau eiga tvö börn. Fyrir átti Jenný einn son. Seinni kona Sigurjóns var Þórunn Ólafsdóttir, f. 17. apríl 1908, d. 16. ágúst 1996. Með henni eign- aðist hann 2 börn; 1) Þuríði Eddu f. 15. júlí 1945, maki Alexander Þórsson, f. 1941, þau eiga 3 börn, a) Þór- unni, f. 1963, maki Hjörleifur Harðarson, f. 1961, og eiga þau 3 börn; b) Guðlaugu Haf- dísi, f. 1965, maki John Toohey, f. 1963, og þau eiga 3 börn; c) Sig- urjón, f. 1973, maki Signý Trausta- dóttur, f. 1974, og eiga þau 2 syni. 2) Guðmundur, f. 29. júlí 1948, maki Margrét Sverrisdóttir, f. 1954, þau eiga 2 börn; a) Karen Önnu, f. 1981, var gift Ólafi Finni Jónssyni, f. 1973, en þau slitu samvistum en eiga sam- an 2 dætur; og b) Andri Már, f. 1991. Sigurjón byrjaði til sjós 13 ára gamall. Eftir það starfaði hann lengst af sem vinnuvélastjóri þar til hann hóf störf hjá Hafskip árið 1968. Vann hann þar til starfsloka sem bifreiðastjóri og verkstjóri. Útför Sigurjóns fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 25. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku pabbi minn. Nú ert þú far- inn í ferðina miklu sem allir eiga fyrir höndum. Það er ótrúlegt að eiga ekki eftir að hitta þig, drekka kaffi og spjalla saman sem við gerðum í mörg ár, eða réttara sagt, í marga áratugi. Pabbi þú varst góður maður, mátt- ir ekkert aumt sjá, og varst einstak- lega barngóður, þú áttir alltaf ís og eitthvað gott í skápunum og ósjaldan spurðir þú afabörnin hvort þau væru „ekki blönk“ og stakkst smá pening í vasa þeirra. Það hefðu ekki allir farið í þín spor varðandi dugnað, það var órtúlegt að sjá þig, kominn yfir ní- rætt, mokandi snjó, hreinsa garðinn og eitt og annað sem þú „dyttaðir“ að eins og þú orðaðir það sjálfur þegar þú bjóst í Hólmgarðinum. Ég gæti skrifað margt fleira um þig en þú hefðir ekki viljað neina lofræðu, það var ekki þinn háttur. Elsku pabbi minn, ég á eftir að sakna þín mikið, en nú ert þú kominn til mömmu og allra þinna ættingja og vina og það er örugglega glatt á hjalla þar, ef ég þekki þig rétt. Þín dóttir, Edda. Mig langar að minnast föður míns sem lést 18. nóvember á Droplaug- arstöðum. Hann ólst upp í gamla bænum, og var því mikið að leika sér við sjóinn. Á fermingarárinu var hann úti að leika, þá kom maður í bíl að leita að ákveðnum dreng, en hann hét tveimur nöfnum, en viðkomandi aðili spurði eftir fyrra nafninu. Hann var spurður hvað hann vildi honum og þá vantaði hann aðstoðarmann í eldhús á skipi. Það fór þannig að hann bauð sig fram í plássið, og var hann sammála því ef hann mætti það. Hann hljóp heim til mömmu sinnar og sagði henni tíðindin, en hún var ekki á því að hann færi, en hann tíndi föt í poka sem hún tók af honum og sagði að hann færi ekkert. Að lokun hafði hann sitt fram, og fór þessa ferð, en mömmu hans fannst það af- leitt því daginn eftir að hann fór átti hann að ganga til altaris. Þetta var upphaf á sjómennsku hans. Hann var stoltur þegar komið var í land, og rétti móður sinni 100 krónur, sem voru miklir peningar þá. Hann var á bátum sem sigldu með aflann til út- landa á stríðsárunum, og það voru ýmsar uppákomur í þeim ferðum og í einni ferðinni kom sjónpípa upp úr sjónum við hliðina á bátnum og þarna var kafbátur á ferð. Þegar hann var níræður fórum við feðgarnir saman í bíltúr, en hann vildi aldrei vera heima á afmælisdag- inn og fórum við norður í Miðfjörð að Efra-Núpi, en þar hvílir Vatnsenda- Rósa, en við erum afkomendur henn- ar. Í þeirri ferð sagði hann mér margar sögur frá uppvaxtaárunum sínum. Ein sagan var um það þegar hann var sendur í sveit að Bæ í Mið- dölum, þá níu ára gamall, með Lax- fossi sem sigldi frá Reykjavík og í Borgarnes, en þangað átti að sækja hann. Þegar í land kom var enginn kominn, skipið fór og sat hann einn á bryggjunni. Þarna var níu ára strák- ur og enginn sjáanlegur. Vissi hann ekkert hvað hann ætti að bíða lengi. Loks kom maður á hesti og með ann- an til reiðar sem hann var látinn á. Þeir riðu sem leið lá upp Borgar- fjörðinn og yfir Bröttubrekku og þegar þeir voru komnir langleiðina niðir af heiðinni, þurfti fylgdarmað- urinn að hvíla sig, en lét hann sitja á hestinum á meðan. Heimilisfólkið á fyrsta bænum í Dölunum sá mann sitja á hesti og þegar hann fór ekki af baki fór húsfreyjan að athuga hver þetta væri. Þá steinsvaf fylgdarmað- urinn. Hann mundi enn hvað þessi kona var reið við fylgdarmanninn, en fór með drenginn heim að bænum, þar fékk hann að borða og hvílast áð- ur en farið var með hann þangað sem hann átti að vera. Pabbi lenti í miklu slysi um borð í togara og var lengi frá vinnu, en fór að vinna á krönum og var lengi á krana hjá Togarafgreiðslunni. Árið 1968 fórstu að vinna hjá Hafskip sem vörubílstjóri og fórst einn og einn túr sem smyrjari á Langá. Þegar þú varst í Lönguhlíðinni vildir þú alltaf vera að gera eitthvað eins og þrífa úti lauf og annað rusl. Eftir að þú komst á sjúkradeildina á Droplaugarstöð- um, vildir þú fá verkfæratöskuna, því að það þyrfti þar að dytta að ýmsu. Elsku pabbi, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjöl- skyldu. Guðmundur Sigurjónsson. Fyrir hartnær fimmtíu árum hitti ég Þórunni og Sigurjón fyrst í Hólm- garði 24. Ég var að vonum dálítið stressaður eins og flestir hafa reynt, sem hafa staðið í sömu sporum og ég en taugaspenningur var óþarfur. Við Sigurjón vorum ekki nándar nærri alltaf sammála um menn og málefni en skildum alltaf sem vinir, reyndar held ég að aldrei hafi farið neinn frá honum án þess að vera sáttur og ánægður. Undir hrjúfu yfirborði sló viðkvæmt hjarta sem ekkert bágt mátti vita um. Hann var einstaklega barngóður, enda sáu afabörnin ekk- ert nema hann og komu oft í heim- sókn til hans. Starfsævi Sigurjóns hefst á hefð- bundinn hátt. Hann var lengi á sjó, aðallega á togurum þar til hann slas- aðist mjög illa á handleggjum og höfði og varð að hætta af þeim sök- um. Hann talaði oft um sjómennsk- una og alltaf var gaman að hlusta á hann tala um þessa tíma. Seinna þeg- ar búið var að raða honum nokkurn- veginn saman eftir slysið, eins og hann orðaði það, var hann illa bækl- aður á handleggjum. Eftir þetta fór hann að vinna á beltakrana hjá Valda í Brekkukoti, m.a. gróf hann grunna að ýmsum byggingum og fleiru sem til féll. Seinna fór hann að vinna á krana hjá Togaraafgreiðslunni hf. Oft var vinnudagurinn langur og erf- iður fyrir bæklaðan mann en aldrei fann hann hjá sér ástæðu til þess að kvarta. Hann var samviskusamur með afbrigðum. Seinna fór hann að vinna hjá Hafskip hf. Oft minntist hann á veru sína hjá Hafskip en þar líkaði honum mjög vel. Hann var ákaflega umtalsgóður um fólk og man ég ekki eftir því að hann legði nokkuð illt til nokkurs manns enda friðelskur með eindæm- um, en það er dálítið sérstakt þar sem lífið hefur ekki beinlínis farið mjúkum höndum um hann. Sigurjón kom sér upp sumarbústað uppi í Svínadal, Hvalfjarðarstrandar- hreppi, og er það fyrsti sumarbú- staðurinn sem byggður var í Eyrar- landi. Bústaðurinn var stækkaður Sigurjón Guðmundsson✝Eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR SIGURÐSSON, Hamrahlíð 30, Vopnafirði, lést á heimili sínu 20. nóvember. Útför hans fer fram frá Vopnafjarðarkirkju mánu- daginn 29. nóvember kl. 14.00. Friðdóra Tryggvadóttir, Sigtryggur Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson, Gerður Sigurðardóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Móðir okkar, VALBORG GUÐMUNDSDÓTTIR, Tungufelli, Breiðdal, lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum mánudaginn 22. nóvember. Útförin fer fram frá Heydalakirkju laugardaginn 27. nóvember kl. 14.00. Jón Björgólfsson, Guðmundur Björgólfsson, Grétar Björgólfsson, Fjóla Ólöf Karlsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN GUÐMUNDUR BERGMANN fyrrverandi aðalgjaldkeri, áður til heimilis að, Ljósvallagötu 24, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 22. nóvember. Jarðsett verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 3. desember kl. 13.00. Andreas Bergmann, Guðrún Gísladóttir Bergmann, Ingibjörg Bergmann, Þorbergur Halldórsson, Halldór Bergmann, Anna Lára Kolbeins, Guðrún Bergmann, Gísli Sveinbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐNI ÞÓRARINN VALDIMARSSON, Hamrahlíð 21, Vopnafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð mánudaginn 22. nóvember. Útför hans fer fram frá Vopnafjarðarkirkju miðviku- daginn 1. desember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Sundabúðar, í síma 470 3077. Ásta Ólafsdóttir, Valdimar Guðnason, Droplaug Guðnadóttir, Kristján Geirsson, Páll Guðnason, Guðrún Anna Guðnadóttir, Sigurjón Haukur Hauksson og barnabörn. ✝ Ástkæra móðir mín, tengdamóðir og amma, HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, Gullsmára 9, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 22. nóvember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 29. nóvember kl. 13.00. Guðmundur Þórðarson, Rut Ólafsdóttir, Sólon Guðmundsson, Hjördís Rósa Guðmundsdóttir, Eva Rós Stefánsdóttir, Karl Heiðar Hilmarsson, Rökkvi Leó Karlsson. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð við andlát og útför, JÓHANNESAR ARASONAR fyrrverandi útvarpsþular. Guð blessi ykkur öll. Elísabet Einarsdóttir, Ása Jóhannesdóttir, Ari Jóhannesson, Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Einar Jóhannesson, Ívar Ólafsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Bróðir okkar og frændi, SÆMUNDUR SALÓMONSSON frá Ketilsstöðum, verður jarðsunginn frá Skeiðflatarkirkju laugar- daginn 27. nóvember kl. 14.00. Björgvin Salómonsson, Svandís Salómonsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.