Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010
BRUCE WILLIS,
MORGAN FREEMAN,
JOHN MALKOVICH OG
HELEN MIRREN ERU
STÓRKOSTLEG Í ÞESSARI
ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGU
GRÍN HASARMYND
HHHH
- HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
- MOVIELINE
HHHH
- NEW YORK POST
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA
HHHH
- H.S. MBL
HHHH
- Ó.H.T. – RÁS2
14.000gestir
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
GÓI
JÓHANNES
HAUKUR
ROBERT
DOWNEY JR.
OG ZACH
GALIFIANAKIS
EIGA EFTIR AÐ
FÁ ÞIG TIL AÐ
GRENJA ÚR
HLÁTRI
FRÁ TODD PHILIPS,
LEIKSTJÓRA
THE HANGOVER
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
„HELDUR ATHYGLI
MANNS FRÁ
UPPHAFI TIL ENDA”
- MORGUNBLAÐIÐ
„HELVÍTI
HRESSANDI“
- ERPUR EYVINDARSSON
HHHHH
- ANDRI CAPONE -- RÁS 2
HHHHH
- PRESSAN
HHHH
- FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND Í KRINGLUNNI OG SELFOSSISÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
HARRY POTTER and the Deathly Hallows kl. 5:30 - 8:30 - 10:10 10
GNARR kl. 8 L
DUE DATE kl. 8 - 10:20 10
ÆVINTÝRI SAMMA ísl. tal kl. 63D L
THE SWITCH kl. 5:50 10
/ KRINGLUNNI
HARRY POTTER kl. 8 - 11 10
RED kl. 8 - 10:20 12
/ KEFLAVÍK
HARRY POTTER kl. 8 - 11 10
THE SWITCH kl. 8 10
THETOWN kl. 10:20 16
/ SELFOSSI
HARRY POTTER kl. 6 - 9 10
GNARR kl. 6 L
DUE DATE kl. 8 - 10:10 7
/ AKUREYRI
SNILLDAR GAMANMYND
Kvikmyndin Ástarstjarna erbyggð á síðustu þremurárunum í lífi breska ljóð-skáldsins Johns Keats og
fjallar um rómantískt samband hans
við Fanny Brawne, stúlku sem býr í
næsta húsi. Myndin gerist árið 1818 í
London. Keats og Brawne eru ólíkar
persónur, hún hefur meiri áhuga á
tískufatnaði en ljóðlist og því verða
kynni þeirra stirð í fyrstu. En þau
eru bæði listrænir og miklir persónu-
leikar og laðast því hvort að öðru.
Brawne nálgast Keats með því að
biðja hann um að kenna sér að lesa
og skilja ljóðlist og brátt eru þau orð-
in yfir sig ástfangin. Ástinni eru þó
settar ýmsar hömlur en þau nota
hverja stund til að vera saman eða
þar til þau eru aðskilin af þeim sjúk-
dómi sem síðan dregur Keats til
dauða, aðeins 25 ára að aldri.
Bright star er vísun í eitt frægasta
ljóð Keats, sem er talið að hann hafi
ort um Brawne; „Bright star, would I
were stedfast as thou art“. Ljóðin
hans Keats skipa vissulega stóran
sess í myndinni enda er hann talinn
eitt höfuðskálda ensku rómantík-
urinnar. Fyrir vikið er myndin ein-
staklega rómantísk en líka átakanleg
því allt virðist vinna gegn því að þessi
ástföngnu ungmenni fái að eigast
þótt nálægðin sé svo mikil. „En anda
sem unnast fær aldregi eilífð að skil-
ið.“ Það er ekki að ástæðulausu sem
íslenska þýðingin á titli myndarinnar
vísar í Ferðalok Jónasar Hallgríms-
sonar.
Umfjöllunarefni myndarinnar er
frekar hefðbundið, fyrsta ást ung-
menna, en það er framsetning efnis-
ins sem er svo einstakt í þessari
mynd. Þetta er eins og að horfa á ljóð
eða skoða ljósmyndir þar sem ein-
stök andartök eru fönguð. Mynd-
irnar eru látnar tala og túlka, það er
svo fallegt hvað eitt skot á fingur,
blóm, eina hreyfingu eða gluggatjald
sem bærist getur sagt mikið. Maður
heldur eiginlega niðri í sér andanum
alla myndina því hún er svo falleg.
Hin ástralska Jane Campion kann
þetta eins og sást í mynd hennar The
Piano.
Handritið er líka gott, textinn er
ljóðrænn, líka stundum skondinn.
Sérstaklega er það Charles Brown
(Paul Schneider), vinur Keats og um-
sjónarmaður, sem heldur húmornum
uppi. Myndin er vel leikin og er
frammistaða Abbie Cornish sem
Brawne aðdáunarverð.
Þeir sem hrífast af búningadrama,
Jane Austin, Bretlandi á nítjándu
öld, ástinni, ljóðlist og lífinu ættu að
sjá þessa mynd, hún er algjört
augnakonfekt. Lokaatriði mynd-
arinnar er líka magnað; þegar
Brawne hefur frétt af andláti Keats
gengur hún út í snjóinn og fer með
„Bright Star“, mjög áhrifaríkt.
Bíó Paradís
Ástarstjarna (Bright Star) bbbbn
Leikstjóri Jane Campion. Aðalleikarar:
Ben Whishaw, Abbie Cornish, Paul
Schneider, Kerry Fox, Thomas Sangster.
Ástralía/Bretland/Frakkland. 118 mín.
2009.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
KVIKMYND
Ástarstjarna Virkilega fallegt mynd um ástina og lífið.
Anda sem unnast fær ekkert að skilið
Lífið er saltfiskur“ stendurþar og engum blöðum umþað að fletta að vesaldóm-ur þjóðarinnar hefði geng-
ið enn nær henni ef sú gula soðning
hefði ekki haldið í okkur líftórunni í
harðærum sem orkugjafi og útflutn-
ingsvara.
Sá guli, heimildarmynd Páls
Steingrímssonar, er fræðandi og
markviss og segir sögu þorskveiða
við landið frá landnámi. Allt frá sjó-
sókn með handfærum á árabátum til
nútímaveiða með rafmagnsrúllum,
snurvoð, línu, botnvörpu o.s.frv.
Fiskveiðiþjóðinni veitir ekki af slíkri
uppfræðslu, við höfum fjarlægst
þennan fisk og þennan undirstöðu-
atvinnuveg á síðustu áratugum. Stór
hluti vinnslunnar hefur flust um
borð í togara sem eru fljótandi
frystihús en hinn hluti hennar er
meira og minna unninn af Pólverjum
og öðrum frá fyrrum austantjalds-
þjóðum og Austurlandabúum sem
hafa sest hér að og flökrar hvorki við
slori né fisklykt. Í söguskoðun sinni
fer Páll vítt og breitt í tíma og rúmi.
Það er t.d. ótrúlegt til þess að vita
hversu stíft franskir „duggarar“
sóttu hér sjóinn allt fram á síðustu
öld þrátt fyrir hrikaleg áföll. Þeir
fórust í þúsundatali í lífshættulegri
baráttunni við þann gula. Sjálfsagt
eru fleiri meðvitaðir um þorskastríð-
in sem við háðum við breska ljónið
upp úr miðri síðustu öld. Þannig
fikrar Páll sig skipulega til samtím-
ans og heldur um borð í ýmsar gerð-
ir fiskiskipa. Það á vel við að hann
tekur drjúgan hluta myndarinnar á
hinum fornfrægu veiðislóðum undir
Jökli og í einni fegurstu höfn lands-
ins, vestur á Arnarstapa.
Það er stór kostur við Þann gula
hversu auðveldlega Páli og hans
flinku samstarfsmönnum tekst að
aðlagast sjóurunum um borð, hvort
sem það er aflaklóin Pétur frá Mal-
arrifi og hamhleypur hans á Bárði,
16 tonna smábáti, eða áhöfn á trölls-
legum frystitogara. Engu er líkara
en maður sé sjónarvottur um borð,
en blessunarlega laus við veltinginn
og ógleðina. Sá guli er þörf, aðgengi-
leg og auðmelt heimild um lífsbjörg
okkar og einn besta matfisk hafsins
og hentar því mjög vel sem fræðslu-
mynd í skólakerfinu. Stutt, skil-
merkileg mynd um undirstöðuþætti
í atvinnu- og efnahagslífinu sem ætti
að skylda okkur til að hafa einhverja
grunnþekkingu á.
Það á vel við að við fylgjumst að
lokum með þeim gula framreiddum
eftir kúnstarinnar reglum og ekki
annað að sjá en neytendurnir hafi
velþóknun á lostætinu. Annað hvort
væri það nú! Það hefur ekki farið
framhjá neinum að þorskveiðiþjóðin
hefur sett hin seinni árin þennan eð-
alfisk á stall með besta góðmeti mat-
seðlanna og var tími til kominn.
Glíman við þann gula
Háskólabíó
Sá guli bbbmn
Íslensk heimildarmynd. Leikstjóri og
handrit: Páll Steingrímsson. Kvik. 55
mín. Ísland. 2010.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Gulur Sá guli, þorskurinn, syndir hjá kafara í undirdjúpunum.
Bandaríski leikarinn Leonardo Di-
Caprio ætlar að gefa eina milljón
dollara til samtakanna World Wild-
life Fund og á peningurinn að renna
til verndar tígrisdýrum. Hluti af
starfi WWF er að reyna að stöðva
ólöglegar veiðar á dýrum í útrým-
ingarhættu, vekja athygli á þeim
með auglýsingaherferðum og reyna
að fjölga dýrum í útrýmingarhættu.
Þá hefur eyðilegging á náttúrunni
einnig sín áhrif. „Ef við gerum ekki
eitthvað í málinu núna gæti eitt
merkasta dýr jarðarinnar dáið út
eftir nokkra áratugi,“ er haft eftir
DiCaprio á vef Guardian.
Tígrar Leonardo DiCaprio.
Annt um
tígrisdýrin
Söngvari Guns N’ Roses, Axl Rose,
hefur höfðað mál á hendur tölvu-
leikjafyrirtækinu Activision vegna
tölvuleiksins Guitar Hero III og
krefst 20 milljóna dollara í skaða-
bætur. Rose segir fyrirtækið hafa
fengið leyfi fyrir því að nota lagið
„Welcome to the Jungle“ í leiknum
en ekki að búa til persónu í líki gít-
arleikarans Slash, eins og það gerði.
Fúll Axl Rose er ekki sáttur.
Í mál vegna
Guitar Hero