Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 40
FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 329. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. Leikari myrti móður sína
2. Sauð upp úr í starfsmannapartíi
3. Fóru utan og því sviptir bótum
4. Stökkti ofbeldismönnum á flótta
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Einfaldleikinn er svo fallegur og
fólk er svo týnt í glamúr, glysi og mik-
ilfengleika og fjölskrúðugum útsetn-
ingum og miklu sándi,“ segir Svavar
Knútur um tónleikaplötuna Amma. »
34
Enginn glamúr eða
glys á Ömmu
Barnabókin
Dvergasteinn eftir
Aðalstein Ásberg
kom út á eist-
nesku í byrjun
nóvember hjá for-
laginu Nynorden í
Tallinn, í þýðingu
Toomas Lapp.
Bókina prýða nýj-
ar myndskreytingar eftir Krõõt Kukk-
ur. Dvergasteinn hefur þegar komið
út í Danmörku og Finnlandi og sænsk
útgáfa er væntanleg.
Barnabókin Dverga-
steinn á eistnesku
Nú stendur yfir í Nýlistasafninu yf-
irlitssýning á verkum Bjarna Þór-
arinssonar myndlistarmanns. Sunnu-
daginn nk., 28. nóvember, kl. 15, mun
Bjarni ræða við sýningargesti um
sýninguna og verk sín
ásamt Jóni Proppé
sýningarstjóra og
munu þeir svara
spurningum sýn-
ingargesta.
Safnið er á
Skúlagötu
28.
Fræðst um verk
Bjarna í Nýló
Á föstudag og laugardag Fremur hæg norðaustlæg átt og víða bjartviðri, en norðan
8-13 m/s og él við austurströndina. Frost 2 til 8 stig við sjávarsíðuna, en 8-15 til landsins.
Á sunnudag Hægviðri og víða léttskýjað, en skýjað með köflum og stöku él norðaustan
til. Kalt í veðri og talsvert frost til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s, dálítil él norðan og austan til, en léttskýjað
sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Hauka
mörðu sigur á botnliði Vals í
N1-deildinni í handknattleik
í gærkvöldi. Mark Einars
Arnar Jónssonar tveimur
sekúndum fyrir leikslok reið
baggamuninn að þessu
sinni að viðstöddum á ní-
unda hundrað áhorfenda á
Ásvöllum í Hafnarfirði,
23:22. Valur rekur enn
lestina í deildinni og
Haukar eru í fimmta
sæti. »3
Haukar mörðu
sigur á Val
„Skotar voru greinilega komnir út
fyrir velsæmismörkin í gagnrýni sinni
í garð svartklæddu konsertmeist-
aranna. Farnir að hóta dómurunum
og fjölskyldum þeirra. Vonandi verða
vandræði skoska knattspyrnu-
sambandsins við að
manna leiki komandi
helgar þörf áminning til
forvígismanna íþrótt-
arinnar – víðar en í
landi sekkjapíp-
anna og pils-
anna,“ skrifar
Víðir Sigurðs-
son m.a. í við-
horfsgrein. »2
Skotar komnir út fyrir
velsæmismörkin
Enska knattspyrnuliðið Tottenham er
komið í 16 liða úrslit Meistaradeildar
Evrópu í fyrstu tilraun en liðið þreytir
frumraun sína í keppninni í vetur.
Tottenham vann Werder Bremen
sannfærandi, 3:0. Wayne Rooney
tryggði Manchester United 1:0 sigur
á Rangers í Glasgow og United er
komið áfram, eins og Inter, Schalke,
Lyon, Valencia og Barcelona. »2
Tottenham í 16 liða
úrslitin í fyrsta sinn
ÍÞRÓTTIR
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Ljósin verða tendruð á Hamborg-
artrénu svokallaða á Miðbakka
Reykjavíkurhafnar næstkomandi
laugardag klukkan 17. Félags-
skapurinn Wikingerrunde frá Ham-
borg í Þýskalandi hefur í 44 ár sent
jólatré til hafnarinnar sem táknræn-
an þakklætisvott til íslenskra tog-
arasjómanna. Þar sem félagið hefur
nú að mestu leyti hætt starfsemi var
ákveðið að senda ekki tré til Reykja-
víkur að þessu sinni. Hamborgar-
tréð verður því alíslenskt í ár og
kemur úr Borgarfirðinum. Það gef-
ur þýskum forverum sínum ekkert
eftir í glæsileika og er tíu metrar á
hæð.
„Við ætlum að halda í hefðina og
nafnið í ár þar sem þetta er fallegur
atburður og skemmtilegur að mörgu
leyti,“ segir Ágúst Ágústsson, mark-
aðsstjóri Faxaflóahafna sf.
Þýskur blær yfir athöfninni
Að sögn Ágústs hafa góðir gestir
komið frá Hamborgarhöfn og Wik-
ingerrunde-félagsskapnum til að
fylgja gjöfinni grænu og vænu til Ís-
lands í gegnum árin, en nú verði það
ekki raunin.
Þrátt fyrir breytinguna verður
þýskur blær yfir athöfninni á laug-
ardaginn. Sendiherra Þýskalands á
Íslandi, Hermann J. Sausen, flytur
kveðjur frá Hamborg og þýsk-
íslenska viðskiptaráðið tekur
þátt í undirbúningnum ásamt
félögum í German- iu sem
munu fjölmenna
við tréð. „Þjóð-
verjarnir gætu
alveg átt það til að
reyna að halda þessu
áfram, mér heyrist
það á þeim. Þeir eru
mjög miður sín yfir
því að þetta hafi ekki
gengið upp.“
Ágúst hvetur sem flesta til að
koma á Miðbakkann á Reykjavík-
urhöfn á laugardaginn og njóta fal-
legrar jólastundar saman. Þá er
þeim sem tóku á einhvern þátt í því
að flytja fisk til Þýskalands á eft-
irstríðsárunum sérstaklega boðið og
þá ekki síst togarasjómönnum.
Barnakór Kársnesskóla syngur
vel valin jólalög við tréð og verður
gestum boðið að þiggja heitt súkku-
laði og jólabakkelsi í boði Faxaflóa-
hafna. Sá sem fær þann heiður að
tendra ljósin á trénu hefur enn ekki
verið valinn, en Ágúst segir að hald-
ið verði í gamlar hefðir og einhver af
yngri kynslóðinni fenginn í verkið.
Það er tilvalið enda eflaust margir
krakkar sem iða í skinninu að fá að
takast á við svo krefjandi verkefni.
Hamborgartréð íslenskt í ár
Hefur verið
sent frá Þýska-
landi í 44 ár
Morgunblaðið/Eggert
Íslenskt Ágúst við Hamborgartréð, sem mætti eflaust kalla Borgarfjarðartréð. Líkt og sjá má gefur það íslenska
þýskum forverum sínum ekkert eftir í glæsileika og stærð en það er tíu metrar á hæð.
Sagan í kringum Hamborgar-
tréð er bæði falleg og táknræn
fyrir boðskap jólanna. Tré
hafa verið send til landsins
sem þakklætisvottur til ís-
lenskra togarasjómanna sem
gáfu svöngu fólki í Hamborg
mat þegar togarar sigldu með
fisk til Þýskalands fyrst eftir
síðari heimsstyrjöld. Upp-
hafsmenn að þessari hefð
voru Hermann Schlünz og
Werner Hoenig sem minntust
rausnarskapar Íslendinga og
ákváðu árið 1965 að minnast hans
með þessum hætti.
Ágúst segir að biðraðir hafi
myndast þegar erlend skip lögðu
að bryggju eftir seinna stríð þar
sem enga vinnu var að fá, margir
áttu litla sem enga peninga og
nánast ekkert var hægt að versla.
„Þeir voru með fiskisúpu sem þeir
gerðu og gáfu fólkinu.“
Biðraðir eftir fiskisúpu
GÓÐHJARTAÐIR SJÓMENN GÁFU MATARGJAFIR