Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 34

Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010  Bedroom Community er í hátíð- arskapi þessa dagana. Með hinn sanna jólaanda að leiðarljósi verður platan – Bedroom Community: Yule fáanleg sem frítt niðurhal með öllum kaupum sem fara í gegnum nýuppfærða vefverslun Bedroom Community fram að jólum. Bedroom Community gefur út jólaplötu Fólk Heljarinnar Rokkabillý verður haldið á Faktorý nú á föstudaginn en þá stinga The 59́s, Bárujárn og Blue Willis í samband. DJ Gísli Glymskratti (eftir samnefndum þætti á X-inu) mun þá þeyta skífum. Bassaleikari The 59’s (eða Crazy Smutt & The 59’s eins og hún mun brátt nefnast) er Smutty nokkur Smiff, náungi sem hefur marga rokka- billífjöruna sopið. Hann hefur verið í rokka- billíbransanum í tæp 30 ár og sveit hans Rockats lék m.a. með Clash, Pretenders og David Bowie. Smutty er rokkabillíið holdi klætt, góðvinur hans er m.a. Brian Setzer úr The Stray Cats en fyrir tveimur árum flutti Smutty hingað til lands, m.a. til að koma rokkabillísenu á lagg- irnar eins og hann orðar það. „Ég rek búðina Wildcat á Hverfisgötunni,“ segir hann í stuttu spjall við blaðamann. „Fyrir ári settist ég niður með tveimur bræðrum frá Vestmannaeyjum, þeim Gísla og Aroni, og við ákváðum að setja band á laggirnar.“ Fjórði með- limurinn er svo gítarleikarinn snjalli, Pétur Hall- grímsson. Allt er að gerast hjá bandinu nú um stundir, fyrsta lagið, „Snap“ er komið í spilun og Boz Boorer, sérleg hægri hönd sjálfs Morrisseys, hef- ur lýst yfir áhuga á að fá að starfa með sveitinni. „Það eru svona senur úti um allan heim og löngu kominn tími á eina hérna,“ segir Smutty að lokum, glaðbeittur. Veislan hefst kl. 22:00 og það er frítt inn. arnart@mbl.is Rokkabillígoðsögn á Faktorý á föstudaginn Töff Smutty Smiff er rokkabillí.  Hið íslenska glæpafélag efnir til glæpakvölds á Gallery-bar 46 Hverfisgötu 46, í kvöld. Glæpa- kvöldin eru löngu orðin fastur liður í skammdeginu enda fátt sem léttir lund okkar meira í myrkinu en góð- ar glæpasögur og glæpadjass. Tríó Edda Lár sem spinnur glæpadjass af fingrum fram og þeir sem lesa eru Páll Kristinn Pálsson (les upp úr bók Árna Þórarinssonar), Lilja Sigurðardóttir, Óskar Hrafn Þor- valdsson, Ragnar Jónasson, Yrsa Sigurðardóttir, Þórunn Erlu Valdi- marsdóttir og Ævar Örn Jósepsson. Glæpakvöld á Gallery-bar 46  Hann Biggi Maus er nýfarinn að tónlistarblogga (vasadisko.blogg- ar.is) og ætlar hann að halda fyrsta Vasadiskó-kvöldið í kvöld á Bar 11. Kvöldið er hannað fyrir tónlistar- grúskrara sem vilja stöðugt fá eitt- hvað nýtt og spennandi að heyra og hvetur Biggi fólk til að mæta snemma og grúska saman. DJ Biggi Maus kynnir Vasadiskó #1 á BAR 1 Tónlistarmað- urinn Ríkharður Mýrdal Harð- arson hefur verið að vasast í tónlist frá unglingsaldri og verið í ýmsum hljómsveitum, m.a. Draumaland- inu en sú sveit var á árum áður iðin við ballaspilerí víða um land. Í þeirri hljómsveit var m.a. Einar Þór Jóhannsson, gítarleik- ari Dúndurfrétta, og skipar hann stórt hlutverk á nýútkominni plötu, Para- dísarlaut, sem hefur að geyma frum- samin lög og texta eftir Ríkharð og er jafnframt hans fyrsta sólóplata. Á plöt- unni er mikið stjörnulið söngvara, m.a. Friðrik Ómar, Magni Ásgeirsson, Heiða Ólafsdóttir, Pétur Örn „Jesús“, Matt- hías Matthíasson, Sjonni Brink, Erna Hrönn og Páll Rósinkrans. Getur ekkert sungið Ríkharður segist hafa tekið upp grunnana að lögunum í heimastúdíói í bílskúr föður síns í Borgarnesi en hafi leitað til ýmissa söngvara með sönginn því hann geti sjálfur ekkert sungið. Hann hafi hringt í þá söngvara sem hann vildi fá á plötuna og sent þeim lög- in, þeim hafi litist vel á og slegið til. „Þeim fannst þetta falleg og áhugaverð lög,“ segir Ríkharður en flestir söngv- aranna heimsóttu hann í Borgarnes til að taka upp sönginn en platan var að mestu tekin upp í hljóðverinu Gott hljóð í Borgarnesi. Meðal hljóðfæraleikara á plötunni eru Einar Þór fyrrnefndur, Sigurþór Kristjánsson trommuleikari og Gunnar Ringsted gítarleikari. „Þetta er mikið um ástina og svolítil tveggja heima sýn. Sumir textarnir fjalla um hvort ástin sé bæði hérna megin og flytjist með okkur yfir, þessa eilífð, og alla vega nálgun á hamingjuna og sorg- ina og líka vonina,“ segir Ríkharður um lögin og textana á plötunni. „Ég reyni að leggja áherslu á fallegar melódíur og að textinn syngist vel,“ segir Rík- harður. Hann sé ekki að finna upp hjól- ið. helgisnaer@mbl.is Ást tveggja heima, hamingjan, sorgin og vonin Umslagið Tónlistarmaðurinn Ríkharður Mýrdal Harðarson sendir frá sér plötuna Paradísarlaut. Úrvalslið söngvara er að finna á henni. Ríkharður Mýrdal Harðarson Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Amma er fallegur og einfaldur plötutitill, hlýr og ástríkur eins og góð amma. Plötuna tileinkar tónlist- armaðurinn Svavar Knútur ömmum sínum, þeim Svövu, Vilborgu og Þórhildi, en á henni er að finna gömul og góð íslensk lög sem Svav- ari eru hjartfólgin. Má þar nefna lög á borð við „Draumalandið“, „Sofðu unga ástin mín“, „Meyj- armissir“ og „Hvert örstutt spor“. Platan var hljóðrituð á tvennum stofutónleikum Svavars heima hjá útgefandanum Aðalsteini Ásberg Sigurðssyni, að kveldi til hinn 12. október sl. Ættingjar og vinir Svav- ars sóttu þessa tónleika og var fá- mennt en góðmennt. Meðal gesta var amma Svavars, Svava, og hlýddi á gömlu, góðu lögin sem Svavar hafði alltaf langað að syngja fyrir hana, eins og hann orðar það. Blaðamaður sló á þráðinn til Svavars í fyrradag og spurði hann fyrst að því hvort hann væri svolítill ömmustrákur. „Eru ekki allir ömmustrákar inn við beinið? Maður þarf bara svolítið að viðurkenna það,“ svaraði Svavar. – Fátt er betra en góð amma... „Jú, þær eru svo hlýjar og vernda mann og umbera vitleysuna í manni, segja bara „gott hjá þér“. Það er alltaf svolítið spes að vera ömmustrákur,“ segir Svavar kíminn og bætir við að platan sé eitthvað sem ömmur kunna að meta. Enginn glamúr eða glys Svavar segir gaman að gera eina millibilsplötu eins og Ömmu með ábreiðum og nú sé hann að und- irbúa næstu plötu með frumsömdu efni. Á Ömmu ráði einfaldleikinn ríkjum. „Einfaldleikinn er svo fal- legur og fólk er svo týnt í glamúr, glysi og stórbreytileika, mikilfeng- leika og fjölskrúðugum útsetningum og miklu sándi. Þetta er eins og að elda níu rétta máltíð í hvert skipti en gleyma því hvernig hundasúra er á bragðið,“ segir Svavar um Ömmu. Mikill heimur búi í einum gítar og rödd. „Mér finnst nútíminn þurfa á einfaldleika að halda. Að geta lifað þannig lífi, lífi sem er ekki enda- lausar utanlandsferðir, skíðaferðir í Alpana, stór sjónvörp og glæsileg fellihýsi og bílar, að eiga gott líf með vinum sínum og fjölskyldu,“ út- skýrir Svavar. Hann leiti einfald- leikans í sínum verkum, hann skipti miklu máli. „Ef maður getur smækkað hlut- ina niður og fundið þetta einfalda, þá finnur maður fegurðina. Hún dvelur í einfaldleikanum.“ Fjölskyldulist Dóttir Svavars, Dagbjört Lilja, teiknaði myndina á plötuumslaginu og er hún af föðurnum með gítarinn fyrir framan íslenskan burstabæ, fáni blaktir og hestur stingur höfð- inu út um glugga. Svavar segir dóttur sína hafa myndskreytt allar hans plötur til þessa. „Ég gerði við hana samning um að við myndum fylgjast að, þegar ég gæfi út sóló- plötur myndi hún teikna kóverin,“ segir Svavar. Dóttir hans hafi myndskreytt plötur hans til þessa. „Hún vex svolítið með mér sem listakona,“ bætir hann við en Dag- björt Lilja er tólf ára. „Hún er nátt- úrlega voða glöð að fá að vera með, það er svo æðislegt líka að fjöl- skyldan geti svolítið gert þetta sam- an.“ Fegurðina er að finna í ein- faldleikanum  Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur syngur lög sem eru honum kær á plöt- unni Amma  Platan var tekin upp á tvennum stofutónleikum í október Ljósmynd/Högni Sigurþórsson Einlægur Svavar Knútur á stofutónleikunum sem eru nú komnir út á diski sem ber heitið Amma. Svavar tileinkar diskinn ömmum sínum. Svavar Knútur Kristinsson söngva- skáld er einnig for- sprakki hljómsveitarinnar Hrauns. Hann hefur haldið tónleika víða und- anfarin ár, hér heima sem er- lendis. Hraun hefur gefið út tvær plötur, I can’t believe it’s not happiness árið 2007 og Si- lent Treatment ári síðar. Fyrsta sólóplata Svavars Knúts, Kvöld- vaka, kom út í fyrra og Amma er nýkomin út. Söngvaskáld SVAVAR KNÚTUR Svavar Knútur heldur útgáfu- tónleika í kvöld í Þjóðmenning- arhúsinu, kl. 21.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.