Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 23

Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 23
–– Meira fyrir lesendur MEÐAL EFNIS: Viðtöl við leikmenn Íslenska liðsins og þjálfara Kynning á liðunum Dagskrá mótsins Ásamt öðru spennandi efni Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað 6. desember 2010 um Evrópumót kvennalandsliða í handbolta þar sem 16 bestu liðin leika til úrslita, þar á meðal íslenska landsliðið. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 30.nóvember. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 EM KVENNA sérblað Í HANDBOLTA Blaðið er góður kostur fyrir þá sem vilja vekja athygi á vörum sínum og þjónustu. UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 Hugmyndin um stjórnlagaþing er góðra gjalda verð en tíma- setningin afhjúpandi. Óheppilegt er að núver- andi stjórnvöld stefni til slíks þings. Þau eru ekki það sameining- artákn sem þjóðin þarfnast. Þar tala dæm- in skýru máli: aðild- arviðræður við ESB í óþökk meirihluta þings og þjóðar; vítaverð vanræksla á ís- lenskum hagsmunum í Icesave- málinu; kaldrifjuð og bíræfin fram- ganga í Landsdómsmálinu, fyr- irhuguð atlaga að grunnatvinnuvegi þjóðarinnar og aðför meirihlutans í Reykjavík að félagafrelsi og kristn- um siðferðis- og trúargildum. Meiri- háttar breytingar á stjórnarskrá lýð- veldisins yrðu enn einn myllusteinn um háls þjóðarinnar sem stend- ur margklofin eftir for- gangsröð verkstjórn- arinnar í stjórnarráðinu. Ólíkt núverandi stjórnvöldum er stjórn- arskráin sameining- artákn. Henni er ekki ætlað að vera lýsing á himnaríki, heldur sátt- máli ólíkra og ófullkom- inna einstaklinga um þá hugmyndafræðilegu kjölfestu sem flestir þeirra sam- þykkja. Góð stjórnarskrá áréttar að- ferð fremur en áfangastað. Hún er ekki endanleg lausn á pólitískum álitamálum, heldur leiðarvísir um það hvernig við útkljáum ágreining á frið- saman og réttlátan hátt. Hún á ekki að taka afstöðu til þeirra pólitísku álitamála, hvort eða hvernig opinber stjórnvöld endurútdeila verðmætum samfélagsins. En hún áréttar með eignarrétti að sinna verka njóti hver, og dregur úr opinberri misbeitingu valds með því að standa vörð um þau sígildu mannréttindaákvæði sem skil- yrt eru af afskipaleysi annarra – ekki framlagi þeirra. Loks er hún yfirlýs- ing um sjálfsákvörðunarrétt okkar í eigin málum, fullveldi landsins. Mér er það ekkert launungarmál að ég tel óábyrgt af stjórnvöldum að kalla til stjórnlagaþings við núver- andi aðstæður. Tillögur um róttækar stjórnarskrárbreytingar munu valda enn meiri sundrung og tefja nauðsyn- lega uppbyggingu. Stjórnarskráin olli ekki hruninu og breytingar á henni leysa ekki þann vanda sem við stöndum frammi fyrir. Ég býð mig því fram til stjórnlagaþings til að standa vörð um stjórnarskrána og fullveldið. Sundrung eða sameiningartákn Eftir Vilhjálm Andra Kjartansson Vilhjálmur Andri Kjartansson Höfundur er háskólanemi. Stjórnarskráin er undirstaða laga og réttar í samfélaginu, og þarf eins og aðrar slíkar að standa sem mest óhögguð. Því þarf að færa stjórn- arskrána til betri veg- ar án þess að raska þeim grunngildum sem hún byggir á og varðveitir. Af því sem þarf að endurskoða skal fyrst nefna ákvæði um forseta- embættið, þjóðaratkvæðagreiðslur og röðun á kjörlista. Tæplega er ágreiningur um nauð- syn jafnréttis og mannréttinda öll- um til handa, en skilgreina þarf hvað felst í hugtökunum. Jafnrétti og mannréttindi kosta stundum peninga, og það er mjög áleitin spurning hvernig á að túlka þessi hugtök þegar spara þarf opinbert fé. Einfalt dæmi í þessu efni er rétt- ur kvenna til faglegrar þjónustu við fæðingu, sem og réttur eldra fólks til búsetu í heimabyggð þegar þörf er á sérhæfðri öldrunarþjónustu. Hin evangelíska lúterska kirkja á að vera áfram þjóðkirkja á Íslandi. Eignarrétturinn skal áfram vera friðhelgur, enda grunnforsenda vel- ferðar og siðaðs samfélags. Brýnt er að skilgreina hvað felst í orðinu auðlind. Það er t.d. augljóst að ís- lensk gróðurmold er ein af dýrmæt- ustu auðlindum landsins, en hún er að yfirgnæfandi meirihluta í einka- eign. Sama gildir um vatnið sem rennur um eignarlönd og það líf sem í því þrífst. Skilgreina þarf hug- takið þjóðareign og hver getur verið hand- hafi hennar. Verði ákveðið að skilgreina fiskimið innan ís- lenskrar lögsögu sem þjóðareign í stjórn- arskrá þarf jafnframt að fjalla um rétt þeirra byggða sem byggja til- veru sína á nýtingu auðlindarinnar. Undir engum kringumstæðum mega þær breytingar sem kunna að verða gerðar á stjórnarskránni leiða til þess að þjóðlendustríðið (þar sem nú er vopnahlé að kalla) verði enn harðara. Enn síður má leggja drög að nýju stríði á hendur landeig- endum, grundvallað á sókn í gróð- urmold, vatn eða hlunnindi hvers konar sem fylgt hafa jörðum frá landnámi. Sjá nánar á thorolfu.blog.is. Eftir Þórólf Sveinsson Þórólfur Sveinsson Höfundur er bóndi og er frambjóð- andi til stjórnlagaþings/2567. Áherslur við endurskoðun stjórnarskrárinnar Framundan eru kosningar til stjórn- lagaþings. Þings sem, ásamt þjóðfundi, á eftir að kosta skuldsetta þjóð tæpan milljarð króna. En það virðist engu máli skipta. Við bætum þessum kostn- að við vel yfir eitt þús- und milljarða króna sem við skuldum fyrir. Við sendum komandi kynslóðum reikninginn fyrir óráðsíu okkar og rýrum þar með tækifæri þeirra til ráðstöfunar eigin fjár. Og síðan vinnum við að því að fram- selja fullveldi okkar til þjóðabanda- lags sem á í jafnvel enn verri vanda- málum en við sjálf. Og bjargræðið á að vera í því fólgið. Og allt sem þarf til að keyra þetta í gegn er einfaldur meirihluti á Alþingi. Hluti þess meiri- hluta segist ganga ófús til verka, en telur völdin mikilvægari en málefnin. Stjórnarskráin tengist ekkert hruninu, en ríkisstjórnin boðar til þessara leikja til að dreifa athygli frá eigin ráðaleysi. Að hlaupa nú til og ráðast í róttækar breytingar á stjórn- arskránni væri fráleitt. En kannski er hér tækifæri til þess að setja inn ákvæði í stjórnarskrána sem geta komið í veg fyrir endalausan fjáraustur stjórnmála- manna, og komið í veg fyrir að fullveldið verði skert gegn vilja þjóð- arinnar. Nýtt ákvæði í stjórn- arskrá gæti bannað lán- tökur ríkisins til að fjár- magna rekstur og krafist aukins meiri- hluta til að taka lán til fjárfestinga. Hvað gefur núlifandi kynslóðum rétt til halda uppi vel- ferð sinni á kostnað framtíðarinnar? Það er heldur ekki ásættanlegt að tryggja eignarréttinn í stjórn- arskránni en gefa heimild til tak- markalausrar skattheimtu. Og nýtt ákvæði mætti setja inn sem krefðist aukins meirihluta þing- manna til að samþykkja samninga er framselja fullveldi eða sjálfstæði þjóðarinnar. Og í framhaldi af slíkri samþykkt á að leggja samninga undir þjóðaratkvæði þar sem bæði er kraf- ist aukins meirihluta og lágmarks- þátttöku. Ég býð mig fram á stjórnlagaþing- ið til að standa í vegi fyrir róttækum breytingum á stjórnarskránni. Stjórnarskráin er, og á að vera, vörn okkar gegn valdinu. Stjórnarskráin er vörn borgaranna Eftir Skafta Harðarson Skafti Harðarson Höfundur er rekstrarstjóri og er frambjóðandi til stjórnlagaþings. Stjórnarskráin er grundvöllur að rétt- látu og upplýstu sam- félagi sem þjónar fólk- inu í landinu. Lýðræðið er horn- steinn stjórnarskrár- innar og taka þarf fram að valdið komi frá þjóðinni. Mannréttinda- kaflinn er mikilvægur en til þess að tryggja að farið sé eftir honum þarf stjórn- kerfið að vera skilvirkt, skýrt kveð- ið á um upplýsingaskyldu og vand- að dómsvald sem er óháð framkvæmdavaldi og fjársterkum aðilum. Leiðin til að tryggja jafn- rétti er að fólk fái fréttir af hvers kyns mismunun svo hægt sé að bregðast við henni. Í þessu sam- bandi er líka mikilvægt að tryggja sjálfstæði fjölmiðla og eignarhald þeirra sé opinbert, sem og allra annarra fyrirtækja. Með góðu aðgengi að upplýsingum og óháð- um fjölmiðlum berst menntuð þjóð fyrir rétti sínum gagnvart valdhöfum og fjár- sterkum aðilum. Einn- ig þarf að auka mögu- leika fólks til að sækja rétt sinn gagnvart þessum sömu aðilum í gegn um dómskerfið. Hæstaréttardómara ætti Alþingi að skipa með auknum meirihluta at- kvæða, t.d. 2⁄3 hlutum þingmanna. Tryggja þarf eignarhald þjóð- arinnar á náttúruauðlindum sínum og að arðurinn af þeim renni til þjóðarinnar. Án þeirra er grund- vellinum undir lífsafkomu þjóð- arinnar stefnt í hættu. Að öðru leyti ber að tryggja atvinnufrelsi einstaklinganna og tjáningarfrelsi. Í nýrri stjórnarskrá þarf að tryggja jafnvægi milli þéttbýlis og dreifbýlis. Leiðin gæti verið að setja reglur um lágmarksþjónustu innan ákveðins radíusar, þannig að allir geti búið við mannsæmandi skilyrði óháð búsetu. Gott er að hafa stjórnarskrár annarra ríkja til hliðsjónar og nauð- synlegt er að hlusta á rödd þjóð- arinnar m.a. af vel heppnuðum þjóðfundi. Ég er ekki flokkspólitísk og mun ekki setja fjármagn í kosningabar- áttu mína þar sem það er andstætt lýðræðinu að mínu mati. Nánari upplýsingar um mig og stefnumál mín er að finna á kosning.is og inni á ýmsum vefmiðlum. Auðkennis- númer mitt er 6681. Stjórnarskráin undirstaða velferðar Eftir Elínu Ernu Steinarsdóttur Elín Erna Steinarsdóttir Höfundur er leikskólastjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.