Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010
Kringlan s: 568 6244 Smáralind s: 544 4230
NÝJAR JÓLAVÖRUR
Lady Di hipster 2.990,- Canada peysa 6.500,- Johnny kjóll 3.490,- Page toppur 2.990,-
Lady Di push up 3.990,-
Kjóll
5.990,-
Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksókn-
ari Alþingis, gerir ekki athugasemd-
ir við að Andri Árnason, lögmaður
Geirs H. Haarde, verði formlega
skipaður verjandi Geirs fyrir lands-
dómi. Þetta kemur fram í umsögn
hennar til forseta landsdóms í gær.
Geir hefur krafist þess að honum
verði án tafar skipaður verjandi.
Forseti landsdóms bað saksóknara
um afstöðu til þessarar kröfu Geirs.
Geir gagnrýndi einnig þá ákvörðun
þar sem saksóknari hefði ekkert með
það að gera.
Sigríður vísar í umsögn sinni m.a.
til þess að þó að ákæruskjal hafi ekki
verið gefið út, þá sé búið að bera Geir
sökum um refsiverða háttsemi með
ályktun Alþingis um málshöfðun
gegn honum fyrir landsdómi. Sigríð-
ur segir í samtali að þar með sé Geir
líka nefndur ákærður skv. lands-
dómslögunum.
Hún nefnir einnig til hliðsjónar 3.
málsgrein, 6. greinar Mannréttinda-
sáttmála Evrópu um stöðu manna
við þessar kringumstæður sem eigi
þá rétt á skipun verjanda.
Skv. lögunum um landsdóm fari
Alþingi með ákæruvaldið. „Ég segi í
umsögninni að það séu ekki efni til
að ég hafi uppi athugasemdir við að
Andri Árnason verði skipaður verj-
andi Geirs.“ omfr@mbl.is
Hefur ekkert á móti
skipun verjanda strax
Þegar búið að bera Geir sökum um refsiverða háttsemi
Geir H.
Haarde
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Forseti landsdóms hefur ekki
tekið ákvörðun um kröfu Geirs
H. Haarde um skipun verjanda
en í gær barst umsögn saksókn-
ara Alþingis, skv. upplýsingum
Þorsteins A. Jónssonar, ritara
landsdóms. „Landsdómur kem-
ur væntanlega ekki saman fyrr
en við þingfestingu máls, þegar
saksóknari er tilbúinn með sína
ákæru og búinn að fá útgefna
stefnu hjá forseta dómsins,“
segir Þorsteinn. Mati á hæfi
dómara sem sitja í landsdómi
þarf að vera lokið í síðasta lagi
þegar dómurinn kemur saman.
Ekki ákveðið
LANDSDÓMUR
hreyfingarinnar á Akureyri. Sömu-
leiðis að komið verði á fót
íþróttasafni í bænum. Það var Þröst-
ur Guðjónsson, formaður Íþrótta-
bandalags Akureyrar, sem sendi
íþróttaráði erindi þar að lútandi.
Johnny Cash verður minnst í
kvöld á Græna hattinum þegar Sig-
urður Ingimarsson og hljómsveit
flytja lög kempunnar. Annað kvöld
verður Memfismafían með tónleika á
hattinum.
Bragi Valdimar Skúlason verður
áberandi í menningarhúsinu Hofi um
helgina. Fyrst eru Bragi og félagar
hans í Baggalúti með tvenna að-
ventutónleika á laugardagskvöldið
og á sunnudag verður flutt fjöl-
skylduævintýrið Diskóeyjan; lög og
textar Braga Valdimars í flutningi
Páls Óskars Hjálmtýssonar og fleiri
þekktra tónlistarmanna.
Kveikt verður á jólatrénu á Ráð-
hústorgi á laugardaginn. Dagskrá
hefst þar kl. 14.50. Tréð er að vanda
gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar
í Danmörku.
Gísli Sigurgeirssson, fv.
fréttamaður, er húsbóndi á Sigur-
hæðum og býður upp á fjölbreytta
dagskrá. Í kvöld verður fjallað um
Hjört heitinn Gíslason, hagyrðing og
höfund bókanna um Salómon svarta
og Garðar og Glóblesa.
Pétur Pétursson læknir fjallar
um Hjört og Reynir, sonur Hjartar,
segir frá „skáldaþingum“ sem oft
fóru fram á heimili hans. Þangað
komu m.a. Rósberg Snædal, Gísli
Jónsson, Bjarni Jónsson og Kristján
frá Djúpalæk. Reynir lumar á óbirt-
um kvæðum frá þeim kvöldum.
Diskó, bolti og jól
KEA Styrkþegarnir ásamt menntamálaráðherra og forstjóra KEA.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Vinur minn fékk innilegar ham-
ingjuóskir í pósti á dögunum, „með
sjötugsafmælið“ eins og þar stóð skil-
merkilega. Hann fagnaði nýverið
tímamótum en brá samt, því skv.
þjóðskrá varð hann bara fertugur.
Í ljós kom að maður með sama
nafni varð sjötugur daginn sem skeyt-
ið barst en sendandinn hafði óvart
valið rangt heimilisfang. Ekki einu
sinni hægt að kenna póstinum um …
Stemningin á heimaleikjum
strákanna í Akureyri – handbolta-
félagi er rómuð. Reikna má með að
Höllin verði full og sungið sem aldrei
fyrr í kvöld. Akureyri, sem hefur unn-
ið fyrstu sjö leikina í deildinni, fær þá
HK í heimsókn en Kópavogsliðið hef-
ur aðeins tapað einum; steinlá fyrir
norðanmönnum á heimavelli í fyrstu
umferðinni.
Akureyri vann HK svo aftur í
Kópavogi í bikarkeppninni í haust.
Munurinn þá var naumur og fróðlegt
verður að sjá hvort sunnanmenn ná
að hefna í kvöld.
KEA úthlutaði í vikunni alls 8,1
milljón króna úr Menningar- og við-
urkenningasjóði félagsins. Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráðherra
afhenti styrkina ásamt framkvæmd-
stjóra KEA, Halldóri Jóhannssyni,
við athöfn í Ketilhúsinu. Ýmis fé-
lagasamtök og einstaklingar fengu
styrk, frá 125 til 300 þúsund kr.
Skorað hefur verið á bæjar-
yfirvöld að láta skrá sögu íþrótta-
Í umræðu um störf þingsins á Alþingi
í gær deildu stjórnarliðarnir Lilja
Mósesdóttir, þingmaður VG og for-
maður viðskiptanefndar þingsins, og
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk-
ingarinnar og formaður efnahags- og
skattanefndar, um áhrif Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins á efnahagsmál hér
á landi.
Lilja sagði meðal annars í um-
ræðunni, að hún hefði lengi varað við
því, að efnahagsáætlun Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins dýpkaði kreppuna hér á
landi. Helgi sagði, að það væri þægi-
legt að finna sökudólga fyrir efna-
hagsstöðu sinni í einhverjum öðrum
og einkanlega væri auðvelt að finna
einhverjar vondar stofnanir í útlönd-
um, eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,
til að bera ábyrgðina.
„En auðvitað er það ekki þannig.
Það mun hvorki skapa hagvöxt að
halda áfram að safna skuldum og
forðast erfiðar ákvarðanir um niður-
skurð né að hækka skatta frekar, eins
og formaður efnahags- og skatta-
nefndar hefur lagt hér til. Það sem
mun skapa hér hagvöxt og koma hjól-
um efnahagslífsins af stað er fjárfest-
ing, ekki síst erlend fjárfesting og
samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn er lykilatriði í því að koma hér af
stað þeim fjárfestingarverkefnum,
sem okkur hefur ekki tekist að hrinda
í framkvæmd,“ sagði Helgi.
Sigurður Ingi Jóhannesson, þing-
maður Framsóknarflokksins, sagði
að áhugavert hefði verið að hlusta á
öfluga þingmenn sinn úr hvorum
stjórnarflokknum rífast um stefnu og
skoðanir. Það væri ekki skrítið þótt
ríkisstjórninni gengi erfiðlega að
koma málum fram þegar ágreining-
urinn væri svona mikill.
Stjórnarliðar deildu
um AGS á þingi
Helgi
Hjörvar
Lilja
Mósesdóttir