Morgunblaðið - 25.11.2010, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
8
7
7
Farsíminn
hluti af
Símavist
FYRIRTÆKI
Í Símavist eru farsímar hluti af IP símkerfinu
og er greitt fast mánaðargjald á
hvern notanda.
Við erum sérfræðingar í rekstri símkerfa
Öll símtö
l
innan fyr
irtækis á
0kr.
Það er
800 4000 • siminn.is
FEIMNISMÁL
Hver talaði vel um framsóknar-
dindlana? Og hvernig fór svo með
hvolpinn sem Vilhjálmur neitaði
að flytja suður?
Þetta og margt fleira fróðlegt og
kímilegt í þessari tuttugustu bók
Vilhjálms Hjálmarssonar á Brekku.
holabok.is/holar@holabok.is
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Algengar tegundir bíla munu
hækka talsvert í verði og sumar
mikið verði frumvarp til laga um
breytingu á vörugjöldum af öku-
tækjum að lögum. Frumvarpið fór í
gegnum fyrstu umræðu á Alþingi í
fyrradag.
Pallbílar og algengir jeppar munu
hækka mikið. Özur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambands-
ins, telur að frumvarpið sé ekki far-
ið að hafa áhrif á sölu notaðra bíla.
„Ég er ekki viss um að fólk átti sig
á því sem er í vændum,“ sagði Özur.
Hann segir að Bílgreinasamband-
ið sé í grundvallaratriðum sátt við
að færa viðmið gjaldtöku af bílum
frá vélarstærð yfir í losun þeirra á
CO2. En sú gjaldtaka sem kynnt er í
frumvarpinu sé allt of brött. „Lang-
flestir meðalstórir bílar munu
hækka í verði, þrátt fyrir orð fjár-
málaráðherra í ræðustóli á Alþingi
um annað,“ sagði Özur. Hann sagði
rangt að flestir jepplingar og meðal-
stórir fólksbílar muni lækka í verði.
„Jepplingar, það eru bílar sem
helst hafa sótt í sig veðrið á síðustu
árum og gagnast langflestum án til-
lits til búsetu, munu hækka. Okkur
líst mjög illa á það,“ sagði Özur.
Jepplingar voru flestir í 30% vöru-
gjaldsflokki en fá á sig 45-55%
vörugjald. Özur segir að það geti
skipt sköpum um verðið hvort
jepplingurinn er beinskiptur eða
sjálfskiptur. Langflestir vilji sjálf-
skipta bíla og flestir bílar komi
þannig búnir.
Atvinnubílar á borð við pallbíla
munu einnig hækka mikið í verði.
Özur sagði ljóst að margir aðrir en
bændur, stofnanir og verktakar
hefðu keypt sér pallbíla, en þeir
báru lægra vörugjald en t.d. jeppar
í sama stærðarflokki. Nú stendur til
að hækka vörugjaldið. Özur telur að
gera þurfi ráðstafanir til að þeir
sem nota þessa bíla í atvinnuskyni
geti áfram fengið þá á viðráðanlegu
verði.
Líklegt má telja að fyrirhuguð
breyting taki fyrir innflutning á öll-
um algengustu bílum frá Bandaríkj-
unum, að mati Özurar. Þá munu al-
gengir jeppar á borð við Mitsubishi
Pajero, Toyota Land Cruiser, Niss-
an Patrol og Nissan Pathfinder
hækka verulega í verði.
Özur segir það alrangt að Íslend-
ingar aki flestir um á einhverjum
„lúxusbílum“. Hann segir að á vel-
megunarárunum fyrir hrun hafi
innflutningur réttnefndra „lúxus-
bíla“ hingað verið 4,5% af öllum inn-
fluttum bílum.
Hann nefnir til dæmis að í
Þýskalandi teljist 12-14% bíla
til gæðamerkja, og eru þá ein-
ungis gerðirnar Mercedes
Benz, Audi og BMW taldar
með. „Við stöndum Þjóð-
verjum langt að baki í
lúxusbílaeign,“ sagði
Özur.
Verð jeppa og pall-
bíla hækkar mikið
Frumvarp um mikla breytingu á vörugjöldum af bílum
Morgunblaðið/RAX
Bílaflotinn Viðbúið er að samsetning bílaflotans breytist mikið verði frumvarp um breytingu á vörugjöldum af bíl-
um samþykkt óbreytt. Stærri bílar á borð við aflmikla jeppa munu hækka mikið í verði frá því sem verið hefur.
Bílgreinasambandið (BGS)
óttast að fyrirhugaðar breyt-
ingar á vörugjöldum af bílum,
sem lagðar eru til í frumvarp-
inu um vörugjöld af bílum,
muni koma þyngra niður á
fólki úti á landi en þeim sem
búa á höfuðborgarsvæðinu.
Stærri bílar og vel búnir
munu bera mun þyngri gjöld
en smábílar.
BGS bendir á að meira en
40% bílaflota landsbyggðar-
fólks séu jeppar, jepplingar og
pallbílar en 35% bíla á höfuð-
borgarsvæðinu. Af fólksbílum
á höfuðborgarsvæðinu eru
9% með fjórhjóladrif en um
18% fólksbíla á landsbyggð-
inni.
Þá bendir sambandið á að
dreifðar byggðir, takmark-
aðar almenningssam-
göngur, rysjótt veður og
vegakerfið kalli á öðruvísi
bíla hér en algengastir
eru í þéttbýli á megin-
landi Evrópu.
Íþyngir dreif-
býlisfólki
BÍLGREINASAMBANDIÐ
GAGNRÝNIR FRUMVARPIÐ
Özur
Lárusson
Héraðsdómur
Reykjavíkur
hefur dæmt 53
ára karlmann í
átta mánaða
skilorðsbundið
fangelsi og til
að greiða 24
milljónir króna í
sekt fyrir að
standa ekki skil á virðis-
aukaskatti í rekstri fyrirtækis
sem maðurinn átti.
Brotin stóðu yfir á tímabilinu
frá 2003 til 2008 en upphæðin
sem maðurinn stóð ekki skil á
nam rúmum átta milljónum
króna.
Fram kemur í dómnum að
maðurinn játaði brotin. Hann var
árið 2001 dæmdur í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
sömu brot og hann var sakfelldur
fyrir nú.
Maður dæmdur til
að greiða 24 millj-
ónir króna í sekt