Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010
Aðventudagar Sólheima í
Grímsnesi hefjast um helgina.
Á laugardaginn kl. 15 verða
tónleikar á Grænu könnunni.
Unnur Arndísardóttir (Uni) og
Jón Tryggvi Unnarsson leika
þá tónlist sem er þjóðlagaskot-
in og draumkennd.
Á aðventunni er annars opið
sem hér segir: Vala, verslun og
listhús er opin virka daga kl.
14.30-18.00 og um helgar kl.
14-17. Kaffihúsið Græna kannan er opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17 og Ingustofa, sam-
sýning vinnustofu er opin virka daga kl. 9-17 og
um helgar 14-17. Þá verður jólamarkaður Sól-
heima í Kringlunni 4. og 5. des.
Aðventan
Tónleikar og sýn-
ingar á Sólheimum
Kirkjan á
Sólheimum
Aðventutónleikar Kvennakórs
Reykjavíkur verða haldnir í
Neskirkju í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, klukkan 20, og á
laugardag klukkan 17.
Kórinn býður til fjöl-
breyttrar tónlistarveislu. Á
dagskrá eru hátíðleg verk, svo
sem Ave Marie eftir Liszt og
Salve Regina eftir Kocsár.
Einnig er slegið á léttari
strengi í Cool Yule og Santa
Baby og fleiri verkum.
Stjórnandi kórsins er Ágota Joó, en hún er að
ljúka fyrsta starfsári sínu með kórnum. Píanóleik-
ari er Vilberg Viggósson. Að auki er leikið á flautu
og slagverk.
Tónlist
Aðventutónleikar
Kvennakórsins
Kvennakór
Reykjavíkur
Bjarni Valtýr Guðjónsson hef-
ur sent frá sér ljóðabókina Á
sólnæturtíð. Er þetta önnur
ljóðabók hans og ber þess
glögg merki að hér heldur
bóndi á penna.
Bjarni Valtýr sækir yrk-
isefni sín í umhverfið, fuglarnir
eru vinir hans og hann skynjar
vel síbreytileik náttúrunnar.
Það er birta yfir ljóðum hans.
„Til viðtals ég kalla með von-
arblæ hvert vor í huga mér,“ segir í einu ljóða
hans, og að sögn Halldórs Blöndal, sem ritar um-
sögn um ljóð Bjarna á kápu, mega þessi orð vel
vera einkunnarorð ljóða hans. Á sólnæturtíð er 50
bls., Sigurjón Þorbergsson gefur út.
Bækur
Á sólnæturtíð eftir
Bjarna Valtý
Bjarni Valtýr
Guðjónsson
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta er stór konsert, einn af þess-
um stóru klassísku og það hefur tek-
ið tíma að æfa hann, að móta hverja
nótu og hugsa um verkið,“ segir
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðlu-
leikari. Hún leikur í kvöld einleik
með Sinfóníuhljómsveit Íslands, í
frægum fiðlukonsert Felix Mendels-
sohns.
Helga Þóra segir að ár sé síðan
henni var boðið að leika verkið með
hljómsveitinni og síðan hefur það
verið henni ofarlega í huga.
„Ég tók strax að kíkja á nóturnar
og æfa en fór svo að æfa af alvöru í
sumar. Síðustu tvo mánuði hef ég
helgað mig þessu verkefni,“ segir
hún.
Hvernig skyldi hún hafa hagað
æfingunum?
„Það er mikilvægt að stúdera
verkið á allan hátt, bæði partítúrinn
og fiðlupartinn, en líka með því að
hlusta á upptökur með leik annarra.
Ég hlustaði á margar enda er til
fjöldi upptaka af þessu verki; þetta
er eitt af allra frægustu fiðluverk-
unum. Svo komu líka tímabil þar
sem ég hlustaði á ekkert nema sjálfa
mig. Stundum þarf tónlistin að gerj-
ast innra með manni, maður þarf að
finna út hvernig nálgunin á að vera.
Það kemur smám saman.
Ég hef einnig farið í tíma hjá góð-
um kennurum í París, þar sem ég
bý, og fengið álit þeirra og góð ráð.“
Eftir að hafa hugsað um tónverk
svona lengi, mikið ein, er þá ekki allt
annað að mæta á æfingu með hljóm-
sveitinni?
„Jú, það er allt öðruvísi þegar öll
hin hljóðfærin bætast við. Ég hef
farið yfir verkið með píanista en það
er líka annað. Maður lærir ótrúlega
mikið á síðustu þremur dögunum,
við að vinna með hljómsveitinni. Þá
er líka ótrúlega gaman.“
En verður ekki tómarúm eftir
flutninginn, eftir að hafa lifað
svona lengi með verkinu?
„Jú, ég held að ég kvíði
meira fyrir því þegar
þetta verður búið en fyr-
ir tónleikunum sjálfum,“
segir hún og hlær. „Ég á
eftir að sakna verkefnisins
og verksins. Vonandi fæ ég
þó að spila það aftur ein-
hvers staðar seinna.“
Helga Þóra hefur
síðustu þrjú ár sótt
einkatíma í París og
segir afar gefandi
að búa og nema þar
í borginni.
„Þetta er stór konsert, einn af
þessum stóru klassísku“
Helga Þóra
Björgvinsdóttir
leikur með Sin-
fóníunni í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Fiðluleikarinn „Ég kvíði meira fyrir því þegar þetta verður búið en fyrir
tónleikunum sjálfum,“ segir Helga Þóra Björgvinsdóttir.
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í kvöld leikur
Helga Þóra Björgvinsdóttir
fiðluleikari einleik í Fiðlukonsert
í e-moll eftir Felix Mendelssohn.
Fyrir þremur árum lauk Helga
Þóra framhaldsnámi í fiðluleik í
Berlín, með hæstu einkunn, og
undanfarin ár hefur hún stund-
að nám í París. Hún lék einleik í
fiðlukonsert eftir Martinu með
Sinfóníuhljómsveitinni í janúar
2009 og fékk afar góða dóma
fyrir leikinn.
Önnur verk á efnisskrá hljóm-
sveitarinnar í kvöld eru Elskhug-
inn (Rakastava) eftir Jean Sibe-
lius og Rómeó og Júlía eftir
Sergei Prokofiev, tónlistin
við ballettinn og eitt ást-
sælasta verk tónskáldsins.
Stjórnandi á tónleik-
unum í kvöld er James Gaff-
igan. Hann stjórnaði hljóm-
sveitinni haustið 2008 og
tekur senn við sem að-
alstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveit-
arinnar í
Luzern í Sviss.
Fiðlukonsert
og ballett
KUNN TÓNVERK Í KVÖLD
Felix Mendelssohn
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Bókaútgáfan Tindur er með ýmislegt á boð-
stólum þessi jólin. Stúfur tröllastrákur er
fyrsta bók Helgu Sigurðardóttur en hún er
kennari að mennt og býr í Svíþjóð. Í Dagbók
Kidda klaufa – Róbbi rokkar eftir Jeff Kinney
halda ófarir Kidda áfram þar sem eldri bróðir
hans fær of mikið rými. Fyrri bókin vakti
mikla lukku í fyrra. Stelpurokk eftir Bryndísi
Jónu Magnúsdóttur gerist á hippatímanum og
fjallar um stelpu sem langar að stofna stelpna-
band í Keflavík, en goð hennar eru Hljómar og
Bítlarnir. Vetur í Rjúpuskógi eftir Atla Vigfús-
son og Hólmfríði Bjartmarsdóttur er barna-
bók þar sem dýrin og náttúra landsins eru í að-
alhlutverkum. Litmyndir Hólmfríðar setja
sérstakan svip á söguna. Gæsahúð 15 – Log-
andi víti og Gæsahúð fyrir eldri – Fangi nr. 5
eru spennusögur fyrir krakka eftir Helga
Jónsson.
Ást fyrir lífið eftir Stephen og Alex Kend-
rick er hjónabandsbók, ætluð fólki sem vill
leggja í sjálfsnám og vinnu við eigið hjóna-
band. Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni við
Glerárkirkju á Akureyri, þýddi. Bókin hentar
jafnt hjónum sem einstaklingum.
Íslensk knattspyrna 2010 er eftir Víði Sig-
urðsson, blaðamann á Morgunblaðinu. U206 –
ævintýri Ella P eftir Helga Jónsson er ævi-
saga Elísar P. Sigurðssonar, bílstjóra á Breið-
dalsvík, sem hefur ekki farið troðnar slóðir í
lífinu.
Stangveiði 2010 er dvd-diskur sem geymir
veiðiþætti í umsjón Gunnars Bender. Þetta er
úrval þátta sem sýndir voru á sjónvarpsstöinni
ÍNN sumarið 2010. Og að lokum kemur út
skáldsagan Enzo eftir Garth Stein í þýðingu
Helga Jónssonar.
Barnabækur, hjónaband og ævisaga
Barna- og unglingabækur eru áberandi á útgáfu-
lista Tinds Stangveiði Gunnars Bender á DVD
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Helgi Jónsson Rithöfundur, þýðandi og eigandi Tinds.
Út er kominn tvö-
faldur hljóm-
diskur með ein-
leik Guðnýjar
Guðmundsdóttur
fiðluleikara með
Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands í
fjórum einleiks-
konsertum.
Auk fiðlukons-
erta eftir Edward
Elgar og Benjamin Britten leikur
Guðný tvo konserta eftir íslensk tón-
skáld með austurrískar rætur, þá
Herbert H. Ágústsson og Pál P. Páls-
son. Upptökurnar eru frá árunum
1992-2001, en öll verkin voru frum-
flutt á Íslandi af Guðnýju og er hún
sú eina sem hefur leikið íslensku
verkin opinberlega.
Guðný hefur um árabil verið einn
kunnasti fiðluleikari þjóðarinnar og
hefur hún hlotið fjölda viðurkenninga
og verðlauna fyrir leik sinn hér heima
og erlendis. Hún hefur sett svip sinn
á íslenskt tónlistarlíf sem einleikari,
kennari, kammerleikari og sem kons-
ertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, en hún lét nýverið af því starfi
eftir að hafa gegnt því frá árinu 1974.
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Smekkleysa gefa diskinn út.
Tvöfaldur
diskur
Guðnýjar
Leikur fjóra einleiks-
konserta með SÍ
Guðný
Guðmundsdóttir
Ef maður getur
smækkað hlutina
niður og fundið þetta ein-
falda, þá finnur maður feg-
urðina34
»
Haustþing AkureyrarAkademíunn-
ar verður haldið á laugardaginn
kemur, frá kl. 14-17, í Gamla hús-
mæðraskólanum. Yfirskrift þess er
„Menningin og monníngurinn“ og
verður rætt um hagrænt og sam-
félagslegt gildi menningarstarfs.
Kolbrún Halldórsdóttir, forseti
BÍL, flytur framsögu og auk henn-
ar eru Sólveig H. Georgsdóttir, Að-
alheiður S. Eysteinsdóttir og Vil-
hjálmur Hjálmarsson með styttri
erindi. Þau taka svo þátt í pall-
borðsumræðum með þátttöku
gesta. Þóra Pétursdóttir stýrir mál-
þinginu.
Um gildi
menningar