Morgunblaðið - 25.11.2010, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 25.11.2010, Qupperneq 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is 5% Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ SKYLINE KL. 8 - 10 JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 8 - 10 12 12 ARTÚR 3 KL. 6 EASY A KL. 6 L L Nánar á Miði.is SKYLINE KL. 5.50 - 8 - 10.10 JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 JACKASS 3D LÚXUS ÓTEXTAÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 UNSTOPPABLE KL. 8 - 10.10 EASY A KL. 5.50 - 8 - 10.10 ARTHÚR 3 KL. 3.40 - 5.50 ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 KL. 3.40 AULINN ÉG 3D KL. 3.40 12 12 12 L L L L L SKYLINE KL. 5.50 - 8 - 10.10 UNSTOPPABLE KL. 8 - 10.10 EASY A KL. 8 - 10.10 ARTHÚR 3 KL. 5.50 YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8 - 10.15 INHALE KL. 6 BRIM KL. 6 12 L L L L 16 12 HÁSKÓLABÍÓ Sjáðu Jackass eins og þú hefur aldrei séð áður! Missið ekki af þessum magnaða vísindaskáldsögutrylli í bíó! Mynd í anda Independenc Day! ÍSL. TAL ÍSL. TAL "MYND SEM HITTIR Í MARK!" -H.H, MBL GLERAUGU SELD SÉR GLERAUGU SELD SÉR "HASAR Í LESTINNI" -H.V.A, FBL Sýnd kl. 6Sýnd kl. 8 og 10:15 Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 6, 8 og 10:15 - Ótextuð Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! FYNDNARI OG FÁRÁNLEGRI EN NOKKURN TÍMANN ÁÐUR, TEKIN Í FLOTTUSTU ÞRÍVÍDDARTÆKNI SEM VÖL ER Á! SJÁÐU JACKASS EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ ÁÐUR! 80% Fresh -Rotten Tomatoes HHH „This is a superb film” -Roger Ebert HHHH „...Fyrsta flokks afþreying“ -S.V., MBL Sýnd kl. 8 MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA VÍSINDASKÁLDSÖGUTRYLLI Í BÍÓ! MYND Í ANDA INDEPENDENCE DAY! HHH “Mynd sem skylda er að njóta í góðum félagsskap. Þú munt hlæja, gráta, líta undan en sömuleiðis skemmta þér konunglega!” T.V. - Kvikmyndir.is -bara lúxus Sími 553 2075 www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Ekkisens stjörnuflóð erþetta,“ er eitthvað semheyrist gjarnan um þess- ar mundir. Plötur sem fá þrjár stjörnur eru bara lélegar út af stjörnuverðbólgunni, önnur hver plata fær fjórar stjörnur ef ekki fimm. Meistaraverkin, hvort held- ur í íslenskum bókum eða plötum, koma á færiböndum. Og hér á landi hefur aldrei verið gerð lé- leg kvikmynd, sé litið til stjörnu- gjafar. Hugsið ykkur það. En út- lendingarnir, þeir virðast búa við víðari skala. Hvað veldur þessu?    Þið mynduð ekki trúa þvíhvað fólk er upptekið af þessum stjörnum, þá sérstaklega um þetta leyti. En það er skilj- anlegt, verið er að leggja hug- verk fólks í dóm og notaður á þau kvarði sem mörgum er mein- illa við. Þangað til stjörnurnar fimm rata í vasann það er að segja, þá er þeim flaggað villt og galið. Þessi stjörnukvarði (eða hvaða kvarði annar) er nýttur af miðlum samtímans í æ ríkari mæli. Ástæðan er einföld: Fólk er líklegra til að lesa umfjöllun sem lýtur þeim kvarða. Fólk stekkur á fimm stjörnu dóma en þó enn frekar á einnar og tveggja stjörnu dóma því að þá blossar upp í manni þessi löstur sem kenndur er við meinfýsi. En hvernig stendur á öllum þessum meistarastykkjum sem er verið að framleiða hérlendis? Er- um við virkilega að búa til svona góða list? Eru gagnrýnendur Lítil ádrepa um stjörnugjafir Meistarinn og verkin Jónas Sigurðsson gaf út frábæra plötu í upphafi hausts. Hann fékk fimm stjörnur hjá rýni. Átti hann kannski bara að fá fjórar og hálfa eftir allt saman? Ég meina, bindið á þessari mynd er klárlega skakkt! óvenju hrifnæmir í svartasta skammdeginu? Eða þora þeir ekki annað en að mæra flesta hluti í bak og fyrir út af frænd- semissamfélaginu, þar sem þú átt þess vegna von á því að hitta „viðfangið“ úti í kjörbúð? Það eru punktar (stjörnur?) í þessu öllu saman og þessum hug- leiðingum er ekki ætlað að svara fyrir eitt eða neitt. Miklu fremur að varpa ljósi á sem flesta fleti í þessu máli. Vandamálið með stjörnu- kvarðann er það að sínum augum lítur hver silfrið. Fólk er einfald- lega mismunandi stjörnuglatt og lesendur þurfa oft, og sumir eru komnir upp á lag með, að lesa í dóma hvers og eins. Stundum virðist t.d. ekki vera samræmi milli stjörnugjafar og texta; einn rýnirinn er hæstánægður með plötu og gefur henni þrjár stjörn- ur á meðan sá næsti lætur vaða frjálslegar.    Eins og ég lít á þetta, bermanni að nota kvarðann. Ég er t.d. ósammála því að fullt hús/ fimm stjörnur eigi að þýða að platan hafi valdið straumhvörfum í lífi þínu, hún sé með öllu lýta- laus og fólk verði fyrir trúarlegri upplifun þegar það hlýðir á. Þannig sé ég ekki þennan kvarða. Ef þú hlustar á plötu sem þú fílar í botn, lögin höfða til þín öll sem eitt og viðkomandi listamaður er á flugi á plötunni, á maður þá að leita uppi lagið sem var með að- eins of mörgum röddunum til að lækka plötuna niður í fjóra og hálfa stjörnu? Sjálfur forðast ég svo t.d. að gefa eina stjörnu, platan þarf að vera gjörsamlega handónýt til þess. Þrjár stjörnur: platan er fín en ekki gallalaus, fjórar stjörnur: mjög góð plata, fimm stjörnur: frábær plata sem fékk hjarta og heila til að hristast. Eitthvað sem gerðist t.d. í tilfelli Diskóeyj- unnar, Jónasar Sigurðssonar og Sóleyjar Stefánsdóttur þegar ég var að hlusta. Annaðhvort er ver- ið að gera betri plötur í ár en í fyrra í mínu tilfelli, eða ég er bara í betra skapi þetta árið. Ég skil viljandi eftir nokkra lausa enda, og þetta er ekki tæmt, því fer fjarri. Sendið kvartanir, klapp á bak og stjörnur á sama netfang og venjulega, kæru les- endur. »Ég er t.d. ósam-mála því að fullt hús/ fimm stjörnur eigi að þýða að platan hafi vald- ið straumhvörfum í lífi þínu, hún sé með öllu lýtalaus og fólk verði fyrir trúarlegri upplifun þegar það hlýðir á. Alþjóðlegu Emmy-verðlaunin voru veitt í byrjun vikunnar í New York og hlaut sjónvapsþáttaframleiðand- inn og plötuútgefandinn Simon Cowell viðurkenningu fyrir fram- leiðslu á þremur vinsælustu þátt- unum sem sýndir hafa verið í bandarísku og bresku sjónvarpi á árinu, American Idol, The X Factor og Britain’s Got Talent, auk þess að hljóta hana fyrir störf sín sem dóm- ari í hæfileikaþáttum. Af öðrum Bretum sem hlutu verðlaun má nefna leikarann Bob Hoskins, fyrir hlutverk sitt í þátt- unum The Street, og leikkonuna Helenu Bonham Carter sem hlaut verðlaunin fyrir Enid, en báðar þáttaraðirnar hafa verið sýndar í breska ríkissjónvarpinu BBC. Þá hlutu þættirnir The Street einnig verðlaun sem besta drama- tíska þáttaröðin. Enn ein þáttaröð- in sem BBC hefur sýnt í ár, Small Island, hlaut verðlaun sem besta stutta þáttaröðin í sjónvarpi og barnaþáttur BBC, Shaun the Sheep, eða Hrúturinn Hreinn, fékk verðlaun sem besti þátturinn fyrir börn og unglinga. Sáttur Cowell hreppti verðlaun. Cowell hlaut Emmy-verðlaun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.