Morgunblaðið - 29.11.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.11.2010, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2010 ✝ Haukur LárusHauksson, blaða- maður og ráðgjafi, fæddist í Reykjavík 28. júní 1957. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 21. nóvember 2010. Foreldrar hans voru hjónin Edith Olga Clausen hús- freyja, f. 7. september 1917, d. 18. mars 2006, og Haukur Bragi Lárusson vél- stjóri, f. 27. apríl 1916, d. 22. apríl 1975. Systkini Hauks eru Elísabet Hauksdóttir, f. 12 mars 1939, maki Arnór Valgeirsson, f. 9. ágúst 1932, og Karl Pétur Hauksson, f. 8. apríl 1942. Haukur giftist 30. desember 1982 eftirlifandi eiginkonu sinni, Heru Sveinsdóttur, f. 22. september 1963. stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977 og stundaði nám í sálfræði við Háskóla Íslands og síð- an við Kaupmannahafnarháskóla. Haukur dvaldist í Danmörku á ár- unum 1981-1987 en þar starfaði hann meðal annars sem fréttaritari DV á árunum 1985-87. Eftir að Haukur fluttist aftur heim starfaði hann lengst af sem blaðamaður á DV. Á síðustu árum starfaði hann sem ráðgjafi í almannatengslum hjá fyrirtækinu AP almannatengsl. Auk þess gegndi Haukur ýmsum trúnaðarstörfum í tengslum við störf sín sem blaðamaður. Hann sat meðal annars í stjórn Blaðamanna- félags Íslands um skeið, var for- maður Félags blaðamanna á DV og fór lengi fyrir ritstjórninni í starfs- manna- og fagmálum hennar. Haukur var virkur í baráttu sinni við krabbamein. Hann ferðaðist meðal annars um landið með fyrir- lestur um glímu sína við sjúkdóm- inn. Haukur var einn stofnenda fé- lagsins Framför en það stendur fyrir átakinu Karlar og krabba- mein. Útför Hauks fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 29. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Foreldrar Heru: Guð- rún Björnsdóttir, f. 8. júlí 1934, d. 26. mars 2009, og Sveinn Arn- ar Davíðsson, f. 3. mars 1927. Systkini Heru eru: Birna El- ísabet, f. 1951, maki Árni Árnason, f. 1953, Sesselja Guðrún, f. 1954, maki Sigurður Kristinsson, f. 1951, Hilmar, f. 1955, maki Pála A.L. Vilhjálms- dóttir, f. 1956, Davíð, f. 1956, maki Anna María Rafnsdóttir, f. 1958, Vignir, f. 1960. Börn Hauks og Heru eru Arinbjörn, f. 2. ágúst 1984, maki Lára Sigríður Lýðsdóttir, f. 20. mars 1986, og Edda Þöll, f. 31. júlí 1989, maki Haraldur Þór Svein- björnsson, f. 6. október 1986. Haukur ólst upp í Langholts- hverfinu í Reykjavík. Hann lauk Þegar ég hugsa um pabba þá veit ég ekki alveg hvort ég á að brosa eða gráta. Gráta af söknuði eða brosa við tilhugsunina um allar þær stundir sem við áttum saman. Hann pabbi var lífsglaður maður og hann sagði oft við mig að honum þætti fátt skemmti- legra en að halda góðar veislur, stór- ar sem smáar. Honum þótti bara svo gaman að eiga góðar stundir með fólki sem honum þótti vænt um. Við fjölskyldan deildum ótal góðum stundum saman og sátum oft heilu kvöldstundirnar þar sem mamma og pabbi rifjuðu upp gamlar góðar stundir yfir eins og einu rauðvíns- glasi. Það var bara ekki hægt að sjá annað en að þau væru alltaf eins ást- fangin og þegar þau hittust í fyrsta sinn. Við pabbi vorum svo heppnir að deila sama áhugamáli og ég man sér- staklega eftir einu atviki þegar ég var u.þ.b. 6-7 ára. Við sátum heima á Kirkjuteigi og horfðum á United keppa við eitthvert smærra lið, okkar mönnum gekk frekar illa og pabbi bölvaði svo mikið að ég varð hálf- smeykur. Þá skildi ég ekki alveg þessa ástríðu sem fótboltinn er. Þannig að ég fer til mömmu og bið hana að segja pabba að hætta að blóta svona. Stuttu síðar kemur pabbi til mín og gerir mér grein fyrir því að hann sé nú ekki að beina þessu blóti til mín heldur leikmannanna, tekur svo utan um mig og segist elska mig. En þetta gerði hann alltaf ef manni leið illa eða eftir að hann hafði þurft að skamma mann svolítið. Svo má nú segja að síðastliðin ár höfum við pabbi báðir setið og rifist og skamm- ast yfir boltanum. En við höfum verið það lánsamir að okkar mönnum hefur gengið frekar vel svo að við feðgar höfum nú oftast nær verið að röfla yf- ir eintómum smámunum. Mér er það mjög minnisstætt að pabbi lýsti því að það að greinast með krabbamein hefði verið eins og að fá högg frá Mike Tyson. Eftir alla þessa baráttu get ég nú ekki annað sagt en að hann hafi staðið þann bardaga prýðisvel af sér. Ég verð því bara að segja að ég er stoltur af honum pabba mínum og ég er viss um að hann hefur verið fyrirmynd margra sem urðu á vegi hans í gegnum tíðina. Hann er allavega fyrirmyndin mín og ég kveð hann með söknuði en get þó glaðst yf- ir öllum minningunum sem ég á um hann. Arinbjörn Hauksson. Sunnudaginn 21. nóvember síðast- liðinn missti ég pabba minn. Ekki bara pabba minn heldur líka besta vin minn. Pabbi var með stærsta hjarta í heimi og sýndi fólki kærleik og um- hyggju hvert sem hann fór. Mér þótti alltaf svo vænt um þegar hann tók fast utan um mig, kyssti mig og kall- aði mig litla gullmolann sinn, það var ekki ósjaldan sem hann gerði það. Hann hvatti mig áfram í öllu og studdi alltaf við bakið á mér og kom því svo stundum inn ef ég varð of stórtæk að ég þyrfti að taka einn bita í einu ef ég ætlaði mér að klára heilan fíl. Við vorum mjög náin og það var oft sem við gerðum eitthvað saman bara tvö. Hann bauð mér þá oft út að borða niður í miðbæ þar sem við gátum spjallað um allt sem okkur lá á hjarta á léttum nótum hvort sem það hét krabbamein, vinna, skóli, dauðinn eða lífið. Eftir matinn gengum við svo Laugaveginn hönd í hönd og brostum út í lífið, okkur fannst það svo ynd- islegt. Þegar sumrið nálgaðist blómstraði pabbi með blómunum í garðinum því þetta var hans uppáhaldstími. Þá setti hann góðan disk í græjurnar, fór í litríka sumarskyrtu og settist út á svalir þar sem hann naut sín í botn í kringum alla fallegu sumarlitina. Ég sat oft við hliðina á honum og þá horfðum við á náttúruna í kringum okkur og svifum um í okkar eigin draumaheimi og hlustuðum á músík- ina sem heyrðist innan úr stofu. Hann var algjör nautnamaður og hann elsk- aði að borða góðan mat og fá sér vín í góðra vina hópi og kunni alltaf að njóta augnablikanna og gera þau eft- irminnileg. Pabbi kenndi mér að hlusta á tón- list og gátum við setið saman langa stund inni í stofu þar sem við hlust- uðum á allt frá Eivöru upp í Deep Purple og þá sagði hann mér stund- um sögur frá því þegar hann og strákarnir settu músíkina í botn í gamla daga og fengu sér í glas og rokkuðu fram á nótt. Svo hlógum við saman og héldum áfram að láta okkur dreyma við tónlistina sem hann hafði sett í tækið. Við fórum á fullt af tón- leikum saman í gegnum tíðina og man ég sérstaklega eftir því að við fjöl- skyldan fórum á Kim Larsen á Nasa og dönsuðum eins og við ættum lífið að leysa. Hjónaband mömmu og pabba var það fallegasta í veröldinni. Það sást hvert sem þau fóru að þarna væru hjón sem elskuðu hvort annað og sagði pabbi alltaf að hann ætti glæsi- legustu og fallegustu konuna. Mamma var algjör hetja og stóð við hlið pabba eins og klettur alla barátt- una við krabbameinið og studdi hann áfram. Ég trúi því að það hafi verið jákvætt hugarfar og þessi þrjóska „að ætla“ sem drifu pabba áfram í baráttunni og gáfu honum aukastyrk til þess að halda henni áfram. Þegar hann dó hafði hann barist við krabba- mein í fjögur og hálft ár. Allt sem ég upplifði með pabba, allt það sem hann kenndi mér og hvaða persónu hann hafði að geyma mun ég geyma í hjarta mínu að eilífu. Hvíl í friði elsku pabbi. Edda Þöll Hauksdóttir. Baráttu Hauks Lárusar við erfiðan sjúkdóm er lokið, eftir fjögur og hálft ár. Haukur trúði á, að hann myndi sigrast á sjúkdómnum og barðist hetjulega gegn honum, með öllum til- tækum ráðum. Ekki aðeins tókst hann á við sjúkdóminn með traustum stuðningi eiginkonu sinnar Heru og barna þeirra, Arinbjörns og Eddu Þallar, tengdabarna og vina, heldur miðlaði hann af reynslu sinni og þekk- ingu til annarra, með viðtölum í sjón- varpi, útvarpi og fundahöldum. Hann var einn af stofnendum félagsins Framför, sem er félag þeirra sem glíma við krabbamein í blöðruháls- kirtli. Haukur var óþreytandi í þessu starfi. Kynni okkar Hauks, mágs míns, hófust þegar hann kom heim á Leifsgötu 9 af fæðingardeildinni, en þá höfðum við Elísabet systir hans þegar kynnst. Haukur var fallegur drengur og augasteinn foreldra sinna, þeirra Edithar Olgu Clausen og Hauks Braga Lárussonar, yfirvél- stjóra hjá Eimskip, sem bæði eru lát- in. Haukur var þriðja barn foreldra sinna, sem áttu fyrir Elísabetu og Karl Pétur. Fjölskylda Hauks flutti fljótlega að Goðheimum 13, í hús sem foreldar hans byggðu ásamt föður- bræðrum hans, þeim Friðþjófi og Sverri. Æskuheimili Hauks var mikið myndarheimili, enda foreldrar hans dugnaðarfólk, sem lagði kapp á að búa börnum sínum sem best heimili og veita þeim gott uppeldi. Þrátt fyrir tíðar fjarverur föður síns, vegna starfs hans, fékk Haukur tækifæri til þess að eiga góðan tíma með honum, því hann fór alloft í siglingar með föð- ur sínum til annarra landa er gaf þeim tækifæri til þess að vera saman, sem stuðlaði að aukinni víðsýni og þroska Hauks. Aðeins eitt og hálft ár skilur að son okkar Val og Hauk og urðu þeir því fljótt góðir vinir, sem hélst alla tíð síðan. Tengsl Hauks við systur sína Elísabetu voru alla tíð mjög góð og sama er að segja um tengsl Hauks við eldri bróður sinn, Karl Pétur, en þau tengsl voru mjög náin og studdi Haukur bróður sinn í ýmsu því sem hann tók sér fyrir hendur. Haukur kynntist eiginkonu sinni Heru eftir að hann kom til Kaup- mannahafnar og þegar Arinbjörn fæddist máttum við Elísabet til með að heimsækja fjölskylduna í Kaup- mannahöfn og sjá afkomandann. Þegar Haukur, Hera og Arinbjörn fluttust heim 1987 áttu þau sitt fyrsta heimili á Íslandi hjá okkur Elísabetu, í Seljugerði 10. Fljótlega fjölgaði í fjölskyldunni þegar Edda Þöll fædd- ist og þá þurfti að stækka við sig hús- næðið og þau fluttu að Kirkjuteigi 25, þar sem þau áttu heima næstu árin, eða allt þar til þau fluttu að Laug- arásvegi 8. Þau Haukur og Hera voru samhent í því að búa sér og börnum sínum glæsilegt heimili, þar sem við höfum átt margar ánægjulegar stundir á ýmsum tímamótum hjá fjöl- skyldunni. Einstök smekkvísi og dugnaður þeirra Heru og Hauks við frágang á húsi sínu og fallegum garði eru eftirtektarverð. Við Elísabet og Valur, Unnur tengdadóttir og Vikt- oría barnabarn okkar söknum Hauks mjög mikið. Hann var einstakur mað- ur, sem verður okkur ávallt eftir- minnilegur. Hans er sárt saknað. Arnór Valgeirsson og fjölskylda. Þetta er lífið – sagði Haukur eitt sinn þegar hann sat við matarborðið heima hjá okkur, það var jóladagur og við höfðum nýlokið góðri jólamál- tíð og sátum saman fjölskyldan, nokkuð stór hópur, og spjölluðum saman og hlógum, hlógum mikið, fram eftir kvöldi, fram á nótt. Þessi orð og þessi stund lýsa Hauki vel. Hann var stemningsmaður sem kunni að njóta lífsins í öllum sínum myndum, naut þess í botn að vera umvafinn fólki og fékk okkur hin til að staldra við að taka eftir hvað við erum í raun heppin, fékk okkur til að meta litlu hlutina sem við tökum allt of sjálfsagða. Haukur var maður sem gat talað um alla heimsins hluti, hann sýndi alltaf áhuga, hann var vel með á nótunum, dæmdi aldrei og var tilbú- inn til að sjá nýjar hliðar á málunum, miðla og leiðbeina. Þetta er lífið – er lýsandi fyrir líf Hauks, líf hans í þökk og gleði, þess vegna geislaði af honum elskan og umhyggjan. Hann yfirgaf þetta líf allt of snemma en dánarstundin var í hans anda, umkringdur vinum og fjöl- skyldu sem elskuðu hann og hann elskaði. Við þökkum Hauki samfylgdina og allt sem hann hefur gefið okkur og kennt. Við vottum Heru, Arinbirni og Eddu samúð okkar og þökkum þeim fyrir að hafa leyft okkur að njóta Hauks með þeim. Guðríður og Grétar. Haukur var gæfumaður og kunni að lifa lífinu. Móðir hans Edith var húsmóðir af gamla skólanum og nutu gestir ávallt mikillar gestrisni og hlýju á heimili þeirra. Faðir Hauks var vélstjóri á fraktskipi og fáséðar erlendar munaðarvörur stundum á boðstólum. Haukur var snemma mik- ill fylgismaður Manchester United og stóð með liði sínu sama á hverju gekk. Við veðjuðum ósjaldan um úrslit leikja í landsprófinu gamla. Í húfi voru snúður og kókómjólk. Haukur fylgdi liði sínu niður í 2. deild þann vetur en liðið mitt varð meistari og ég því mörgum snúðum ríkari. En holl- usta Hauks borgaði sig þó síðar með- an ég lifði mörg mögur ár með liðinu mínu. Síðar áttum við tónlistaráhuga sameiginlegan og marga plötuna hlustuðum við á og skeggræddum hinar ýmsu tónlistarstefnur. Há- punktinum náðum við félagarnir þeg- ar við fórum ásamt Kristjáni til Amst- erdam 2008 og sáum goðið okkar Neil Young. Tvennir frábærir hljómleikar í glæsilegri tónleikahöll á besta stað og við nutum hverrar einustu mínútu. Ætíð var gott að koma heim til Hauks og Heru. Heimili þeirra er fal- legt og munir valdir af smekkvísi. Þar áttum við Kristín margar góðar stundir með Hauki, fjölskyldu hans og öðrum vinum. Fimmtugsafmæli Hauks er sérlega eftirminnilegt. Blásið var til mikillar garðveislu og stórum vinahring boðið heim til Hauks og Heru. „Veðrið verður gott,“ sagði Haukur og auðvitað varð hon- um að ósk sinni. Fallegasta sumar- daginn bar upp á afmælisdaginn hans og veislugestir skemmtu sér vel fram á rauða nótt. Karakter Hauks kom einkar skýrt fram í veikindum hans. Hann tók þeim af yfirvegun eins og hverju öðru verkefni sem taka þyrfti á. Engin tepra eða umgengni eins og köttur kringum heitan graut. Haukur ræddi sjúkdóminn opinskátt og aflaði sér upplýsinga sem hann miðlaði ötullega til annarra. Hera og fjölskyldan öll stóðu ætíð þétt við hlið hans og Hauk- ur hélt reisn sinni til síðasta dags. Hauks verður sárt saknað en minn- ingin um góðan dreng mun ætíð lifa. Helgi og Kristín Hildur. Í kistulagningu Hauks fór prestur- inn með tilvitnun úr Biblíunni um kærleikann, um kærleikann sem trúir öllu, vonar allt og umber allt. Það var vel við hæfi því Haukur var afskap- lega kærleiksríkur maður. Og einnig vegna þess að fyrir 40 árum gáfu Óð- menn út plötu með fallegu lagi við þennan texta, sem hann hélt mikið upp á. Við Haukur vorum sammála um það að þessi plata væri ein besta plata íslenskrar rokksögu. Haukur sá ástæðu til að hringja í Rás 2 og kvarta þegar valinn var listi yfir 100 bestu plötur Íslands og Óðmannaplötuna var hvergi þar að finna. Hann lét sér nefnilega fátt mannlegt óviðkomandi og hafði ákveðnar skoðanir á hlutun- um. Haukur hlustaði mikið á tónlist. Við áttum margar sameiginlegar hetjur frá ýmsum löndum. Meðal annars Neil Young. Einar eftirminni- legustu stundir lífs míns eru ferðalag- ið sem við þrír vinirnir, Haukur, Helgi og ég, fórum til Amsterdam til að sjá þessa hetju okkar á tónleikum. Það var löngu uppselt á alla þrenna tónleikana, sem voru í sal sem tók um Haukur Lárus Hauksson Hjá okkur var hún alltaf kölluð Magga frænka í Framnesi. Hún hét Margrét Loftsdóttir og var systir Bergs tengdapabba. Þau voru 3 systkinin frá Klauf í V-Landeyj- um, sem komust upp, en auk hennar voru Bergur og Kristín, hún var yngst þeirra og er hún sú síðasta af þeim sem kveður. Við Magga kynntumst fyrir tæp- um 50 árum. Hún var skemmtileg kona, hláturmild og kát og ekkert Margrét Loftsdóttir ✝ Margrét Lofts-dóttir var fædd í Klauf í Vestur- Landeyjum 17. nóv- ember 1917. Hún lést á heimili sínu 24. október 2010. Útför Margrétar fór fram frá Kálf- holtskirkju 6. nóv- ember 2010. fyrir það að vera að kvarta. Hún var ætt- rækin og traust og fylgdist vel með sínu fólki. Við hittum ætt- ingjana stundum þeg- ar við heimsóttum þau hjónin, Möggu og Guðbjörn í Framnesi, en það var gott að heimsækja þau. Kaffi- brauðið hennar bragð- aðist vel og ekki gleymast hrossabjúg- un, sem hún sendi okkur og voru engu lík. Myndarskapur einkenndi hana, dugnaður og seigla. Við Magga höfðum líkar skoðanir á ýmsum málum og töldum að það væri ekki síst vegna þess að við vor- um í sama stjörnumerki og höfðum oft gaman af því. Við áttum margar góðar, glaðar stundir með Möggu á öllum þessum árum, hér hjá okkur og í sveitinni hjá þeim hjónum, og erum þakklát fyrir þær. Guðbjörn og Magga eignuðust tvíburadæturnar, Jónu og Þórunni og voru þær foreldrum sínum mikill stuðningur þegar aldurinn færðist yfir þau og þær, ásamt Guðbirni, gerðu Möggu kleift að vera á heimili sínu, þar til yfir lauk, með stuðningi hjúkrunarfólks. Barnabörnin henn- ar Möggu voru sannarlega stolt ömmu sinnar og ljómaði hún þegar hún talaði um þau. Sambandið milli þeirra var einstaklega fallegt það leyndi sér ekki. Elsku Guðbjörn, Jóna, Þórunn og fjölskyldur, við fjölskyldan sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi elsku Möggu frænku og allar góðu minningarnar um hana. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Erna Sigurjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.