Morgunblaðið - 29.11.2010, Qupperneq 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ODDI, ÞAÐ ER
EINHVER VIÐ HURÐINA!
HVER? ÞAÐ ERT
ÞÚ GÁFNALJÓS!
YIP! YIP!
YIP! YIP!
HÚN
ÆTLAR AÐ
KOMA MEÐ
MÉR!
FYRST ÞÚ GETUR EKKI
PASSAÐ UPP Á MIG, ÞÁ VERÐUR
HÚN BARA AÐ GERA ÞAÐ!
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ
SKIPTA MÉR ÚT FYRIR
VARAMANN!
HVAÐ
ÆTLARÐU AÐ
GERA Í DAG?
ÉG HAFÐI
HUGSAÐ MÉR AÐ
MÁLA HÚSIÐ...
...EÐA
KÍKJA Á
KRÁNNA MEÐ
STRÁKUNUM
ÉG BIÐ AÐ
HEILSA
STRÁKUNUM
AF HVERJU
TÓKSTU MIG
EKKI MEÐ
ÞÉR?
GUÐRÚN
GPS?
ÉG VEIT HVAR ÞÚ
VARST, ÉG VEIT
ALLTAF HVAR ÞÚ ERT
ÞAÐ ER
FREKAR
ÓHUGGULEGT
AF HVERJU ÞEFARÐU EKKI
AF MÉR, EINS OG ÞÚ
ÞEFAÐIR AF TÍKINNI SEM
ÞÚ HITTIR!?!
VEGNA
ÞESS AÐ ÞÚ ERT
EKKI MEÐ...
ÉG
MYNDI
LÁTA
ÞETTA
ÓSAGT
UPP Á SÍÐKASTIÐ ÞÁ HEFUR
JÓNA VERIÐ AÐ FORÐAST MIG
Í VINNUNNI
ÆTLI HÚN SÉ BARA
Í VONDU SKAPI ÞESSA
DAGANA EÐA ÆTLI ÉG HAFI
GERT HENNI EITTHVAÐ?
HVAÐA
MÁLI SKIPTIR ÞAÐ?
ÞETTA VERÐUR
ALLT Í LAGI
ÞAÐ
SKIPTIR
MIG MÁLI!
HVERNIG
LÍÐUR FRÆNKU
ÞINNI?
HÚN ER
KOMIN HEIM AF
SPÍTALANUM
MIG LANGAÐI
BARA AÐ ATHUGA
HVORT ÞAÐ VÆRI EKKI
ALLT Í LAGI MEÐ ÞIG?
AF HVER-
JU ÆTTI EKKI
AÐ VERA Í LAGI
MEÐ MIG?
ÚPS! ÉG Á EKKI
AÐ VITA AF
INNBROTINU
Sandur í Land-
eyjahöfn
Fyrir nokkrum ára-
tugum hlustaði ég á
fyrirlesara, sem var
að segja frá suður-
hluta Íslands, sem
hann sagði að væri
stærsta samfellda
flatlendi landsins, þ.e.
Suðurlandsundir-
lendið. Einnig sagði
hann að þetta undir-
lendi hefði smám sam-
an myndast (byggst
upp) af sandi. Fyrir
utan sjálfa ströndina
er einnig sandur, sem
sjórinn ber sífellt að landi og þannig
stækkar flatlendið jafnt og þétt.
Þeir, sem skoða landakort af þessu
svæði, sjá að meðfram allri strand-
lengjunni þarna eru mjög fáar báta-
hafnir, allt frá Hornafirði vestur að
Stokkseyri. Ætli
Landeyjahöfn sé ekki
svona nokkurn veginn
miðja vegu þar á milli?
Nú þegar sífelldar
fréttir berast af vand-
ræðunum við Land-
eyjahöfn og sífelldum
sandburði þar, þrátt
fyrir sanddælingu og
aftur sanddælingu,
væri fróðlegt að vita
hvort þessi sífelldi
sandburður væri
nokkuð ný bóla og
hefði átt að vera mörg-
um ljós. Hefðu jarð-
fræðingar t.d. ekki séð
þetta fyrirfram?
Hugsandi og for-
vitinn Íslendingur.
Ást er…
… að finna einhvern til
að hefja nýtt líf með.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Handavinna/smíðar/
útskurður kl. 9, félagsvist kl. 13.30,
myndlist kl. 16.
Dalbraut 18-20 | Myndlist/postulín kl.
9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
bænastund og umræða kl. 9.30, leik-
fimi kl. 11, upplestur kl. 14.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist, sem halda átti annan hvern
þriðjudag í félagsheimilinu Boðanum,
Boðaþingi 9, Kópavogi, er frestað fram
yfir áramót vegna ónógrar þátttöku. Fé-
lagsvist er spiluð í Gjábakka á mið-
vikudögum kl. 13 og föstudögum kl.
20.30, en í Gullsmára á mánudögum kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Jóga
kl. 9.30, brids kl. 13, kaffi/spjall kl.
13.30, danskennsla- námskeið kl. 18.
Félagsheimilið Boðinn | Handavinna
og jóga kl. 9, stafaganga kl. 16 (Glóðin),
hringdans kl. 18.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30, gler- og postulín kl. 9.30 og kl. 13,
lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræf-
ing kl. 17, skapandi skrif kl. 20.
Félagsmiðstöðin Bólstaðarhlíð |
Jólafagnaður 2. des. kl. 18, salur opn-
aður kl. 17.30. Jólahlaðborð, jóla-
hugvekja, Gissur Páll Gissurarson syng-
ur við undirleik Jónasar Þóris. Thelma
Lind Victorsdóttir 9 ára syngur og Arn-
þór Birkir Sigurðsson 10 ára les jóla-
sögu. Skráning eigi síðar en 1. des.
Uppl. í síma 535-2760.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10,
handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl.
20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 10.45,
gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9, 10 og 10,45,
gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 13,
skráning á jólahátíð í Jónshúsi 4. des.
kl. 19.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, spilasalur op. Guðrún Ögmundsd.
les kl. 14.30 . Kóræf. kl. 15.30. Mið. 1.
des. bíóferð á Með hangandi hendi og
kaffiveit., farið frá Gerðubergi kl. 13.30,
skrán. á staðnum og s. 5757720.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Félagsvist kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna, bæna-
stund, matur, myndlist.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl.
10 frá Haukahúsi, kór kl. 10.30, gler-
bræðsla kl. 13, tréskurður kl. 13, fé-
lagsvist og botsía kl. 13.30. Vatns-
leikfimi kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30. Vinnustofa kl. 9. Brids kl. 13.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listasmiðja kl. 9.15. Stef-
ánsganga kl. 9. Tölvuleiðb. kl. 13.15-
14.15. Félagsvist kl. 13.30. skapandi
skrif kl. 16. Morgunstund með Stein-
unni Finnbogadóttur á morgun kl. 9.30.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 11.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egils-
höll kl. 10, skartgripa- og kortagerð á
Korpúlfsstöðum kl. 13. Sjúkraleikfimi í
Eirborgum við Fróðengi kl. 14.30. Á
morgun er sundleikfimi kl. 9.30.
Norðurbrún 1 | Handavinna kl. 9 og 13.
Útskurður kl. 9. Botsía kl. 10. Samvera
með djákna kl. 14.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókband og postulínsmálun kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10,
framhaldss. kl. 12.30, handavinnustofa
eftir hádegi, spil, stóladans kl. 13.
Grétar Snær Hjartarson var aðblaða í gömlum pappírum og
fann nokkrar vísur á blaði, sem
rötuðu til Vísnahornsins í bréfi:
„Læknir á Húsavík hélt þar
tölu á fundi um sóðaskap þeirra
norðanmanna og taldi minnka
lífslíkur. Maður nokkur, sóði en
höfðingjadjarfur, stóð upp og
sagði að nú væri búið til lyf úr
myglu, sem ekki hefði þótt annað
en óhreinindi. Sjálfur hefði hann
atvinnu af því að bera skít á tún
og því sennilega étið meiri skít
en aðrir, en lifði þó góðu lífi. Þá
kvað Egill Jónasson:
Læknarnir bregðast lífsins vonum
lyfin selja einskis nýt,
í stað þess að segja sjúklingonum
að sitja heima og éta skít.
Manni að nafni Þorsteinn Þor-
steinsson var heldur í nöp við
arkitekta. Hann kvað:
Ég byggði mér hús eins og bænda
er siður
og bjó þar af mikilli spekt.
Þröskuldinn upp, en þakið niður,
þá var ég arkitekt.
Um mann, sem gjarnan orkti
níð um samferðamenn sína, orkti
Þorsteinn Þorsteinsson, yngri:
Ár og síð og alla tíð
einn af Hlíðar sonum,
yrkir níð um land og lýð,
lítil prýði að honum.
Þegar Karl Kristjánsson al-
þingismaður hætti þingmennsku
var honum haldið hóf á Húsavík.
Í hófinu var sýnd koparstunga af
Karli, en þess látið getið að kop-
arstunguna ætti ekki að hengja
upp á Húsavík, henni væri ætl-
aður staður frammi á Laugum.
Egill Jónasson orkti þá:
Karl í bronsi kominn er
krýndur geisla baugum,
hann á ekki að hengja hér
heldur fram á Laugum.“
Vísnahorn
Af skít og lífslíkum