Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
MARKAÐSSETNING Á UPPLIFUN
Morgunverðarfundur ÍMARK og Íslandsstofu
3. desember kl. 8.15-11.30 á Grand Hótel Reykjavík
B. Joseph Pine II
B. Joseph Pine II, meðhöfundur metsölubókarinnar „The
Experience Economy: Work Is Theatre & Every Business a
Stage“, sýnir fram á hvernig fyrirtæki geta nýtt sér upplifun
sem markaðstæki til að ná forskoti á keppinautana.
Pine segir fyrirtæki geta nýtt sér allt umhverfi sitt til að láta
viðskiptavini sína verða fyrir upplifun sem sé svo sterk að athygli
þeirra fylgi kaup á hverju því sem þau kjósa að bjóða upp á.
Meðal fyrirtækja sem hann hefur unnið með eru Nike, AT&T,
P&G, Shell, Kraft Foods, 3M, Adidas o.fl.
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP og
Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður markaðs- og
viðskiptaþróunar Icelandair flytja erindi um upplifun í
markaðssetningu.
Marina Candi, dósent við Viðskiptadeild HR, segir frá rannsókn á
því hvernig þjónustufyrirtæki geta nýtt sér upplifun til að skapa
sér samkeppnisforskot, en hún fékk nýverið styrk frá ESB til
þeirrar rannsóknar.
Fundarstjóri er Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu
Verð 5.000 kr. fyrir félagsmenn ÍMARK
Almennt verð 7.500 kr.
Athugið að greitt er við innganginn.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir
kl. 13:00, fimmtudaginn 2. desember.
Skráning á imark@imark.is
Nánari upplýsingar veita:
Hermann Ottósson, Íslandsstofa,
hermann@islandsstofa.is og
Ninja Ómarsdóttir, ÍMARK,
imark@imark.is.
Egill Ólafsson og
Guðmundur Sv. Hermannsson
Svokallaður bandormur um skatta
og gjöld, sem fjármálaráðherra lagði
fram á Alþingi í gær, gerir ráð fyrir
að lífeyrissjóðunum verði heimilað
að vera með allt að 15% mun á eign-
um og framtíðarskuldbindingum.
Þetta er þriðja árið í röð sem gerð er
sú breyting á lögum að heimila líf-
eyrissjóðunum að reka sig með allt
að 15% halla.
Samkvæmt nýrri skýrslu Fjár-
málaeftirlitsins voru 25 deildir líf-
eyrissjóða án ábyrgðar með nei-
kvæða tryggingafræðilega stöðu í
árslok 2009, þar af 3 deildir með
meiri halla en 15% og verða því að
skerða réttindi. 15 lífeyrissjóðir voru
með halla á bilinu 10-15%.
10,2 milljarðar til sveitarfélaga
Í frumvarpi fjármálaráðherra er
m.a. lagt til að tekjuskatthlutfall
verði lækkað um 1,2% og útsvar
hækki um 1,2%. Með þessu móti
verði færðir 10,2 milljarðar frá ríki
til sveitarfélaga vegna yfirfærslu á
málefnum fatlaðra frá ríki til sveitar-
félaga.
Í frumvarpinu eru einnig ákvæði
um skattaleg úrræði fyrir fyrirtæki,
annars vegar vegna skattalegrar
meðferðar á eftirgjöf skulda og hins
vegar vegna heimildar til greiðslu-
uppgjörs á gjaldföllnum skatta-
skuldum frá fyrri árum.
Þá eru lagðar til breytingar á lög-
um um nýsköpunarfyrirtæki til frek-
ari eflingar þeirri starfsemi, auk nið-
urfellingar hlutabréfaafsláttar.
Skattrannsóknarstjóri fær heimild
til að einfalda og hraða málsmeðferð
gagnvart aðilum sem eru til rann-
sóknar.
Fyrirhugað var að mælt yrði
fyrir frumvarpinu á Alþingi í
gær, en þegar í ljós kom að
Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra hafði fal-
ið umhverfisráðherra að
gera það lagðist stjórnar-
andstaðan gegn því. Málið
var þá tekið út af dagskrá
fundarins.
Reka má lífeyrissjóði
með allt að 15% halla
Morgunblaðið/Golli
Þing Ekki var mælt fyrir bandormi.
10,2 milljarðar fara
til sveitarfélaga
vegna fatlaðra
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Steingrímur J.
Sigfússon fjár-
málaráðherra
segir að meðal
þess sem verið sé
að skoða, við
lausn á fjárhags-
vanda heim-
ilanna, sé að auka
vaxtabætur um
sex milljarða
króna. „Það er
hafið yfir allan vafa í mínum huga að
einfaldasta og skilvirkasta aðferðin
er að gera þetta í gegnum vaxtabóta-
kerfið; að lækka þannig vaxtakostnað
hjá öllum þorra fólks,“ sagði Stein-
grímur á opnum stjórnmálafundi hjá
VG á Akureyri í gærkvöldi.
Ráðherra segir heimilin í landinu
greiða um 60 milljarða króna á ári í
afborganir og vexti af íbúðalánum og
það myndi skipta umtalsverðu máli
ef hægt yrði að auka vaxtabætur um
10% af þeirri upphæð. „Nú er ég lík-
lega búinn að segja fullmikið hér með
tilliti til viðveru fjölmiðla, en við skul-
um sjá til. Þetta er leyndarmál þar til
botn fæst í málið!“
Ráðherra sagði að niðurstaða yrði
að liggja fyrir í þessum efnum sem
fyrst. „Helst á næstu klukkutímum
eða sólarhringum,“ sagði hann við
Morgunblaðið á fundinum nyrðra.
Steingrímur vildi ekki svara því
hvort lífeyrissjóðirnir hefðu alfarið
verið á móti því að lækka veðsetn-
ingu íbúðarhúsnæðis niður í 100-
110%. „Við erum að reyna að ná
þessu saman og vinnum með því
hugarfari að allir verði með og von-
andi tekst það. En málið er ekki í
höfn; það hefur reynst erfiðara að ná
þessu endanlega saman en ég von-
aði.“
Spurður hvort til stæði að skatt-
leggja fjármálafyrirtæki sér-
staklega, eins og heyrst hefur, vegna
mögulegrar hækkunar vaxtabóta,
sagðist Steingrímur ekki vilja tjá sig
efnislega um það.
„Við eigum eftir að ræða þetta
fram og til baka. Það eru engar nið-
urstöður komnar varðandi vaxta-
bótahugmyndirnar og ég get engu
svarað um það hvernig, ef til kemur,
þær hækkanir yrðu fjármagnaðar.“
Bæta sex milljörð-
um í vaxtabætur?
Einfaldasta og skilvirkasta aðferðin
Steingrímur J.
Sigfússon.
„Þetta er ágæt blanda, sýnist
mér, en ég leyni því ekki að ég
hefði viljað sjá hlut landsbyggð-
arinnar betri,“ sagði Stein-
grímur J. spurður um kjörið til
Stjórnlagaþings. „Ég er ánægð-
ur með þá fulltrúa sem við norð-
anmenn sendum á þingið; það
gleður hjarta mitt að sjá Erling
Sigurðarson og Ara Teitsson
þarna inni.“
Hlutur lands-
byggðar lítill
STJÓRNLAGAÞINGIÐ
Garðar Pálsson, sem var skipherra hjá Landhelgisgæslunni, var borinn til
grafar í gær og samkvæmt venju fylgdi honum heiðursvörður landhelg-
isgæslumanna. Garðar hóf störf hjá Landhelgisgæslunni árið 1948 og varð
skipherra árið 1952. Hann lést í Reykjavík 21. nóvember sl., 88 ára að aldri.
Útförin fór fram í Neskirkju í Reykjavík. Sr. Örn Bárður Jónsson jarðsöng.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útför Garðars Pálssonar
Egill Ólafsson og
Agnes Bragadóttir
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og
fulltrúar banka og lífeyrissjóða
funduðu á tveimur fundum í gær um
skuldir heimilanna. Hrafn Magn-
ússon, framkvæmdastjóri Lands-
sambands lífeyrissjóða, telur líklegt
að það dragi til tíðinda í dag. Hann
segir að málið sé að skýrast en enn
sé talsverð vinna eftir. Haldið verð-
ur áfram að funda í dag.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur ríkisstjórnin lagt
fast að lífeyrissjóðunum að sætta sig
við að veðsetningarhlutfall á fast-
eignum yrði lækkað niður í 100-
110%. Viðbrögð lífeyrissjóðanna við
þessari tillögu hafa verið alfarið nei-
kvæð. Sjóðirnir hafa ekki verið til-
búnir til að fallast á þessa tillögu og
telja sig raunar ekki hafa heimild
umbjóðenda sinna til slíks enda
myndi það rýra mjög eignir sjóð-
anna.
Einnig hefur ríkisstjórnin kynnt
fyrir samráðshópnum og stjórn-
arandstöðunni áform um að skatt-
leggja bankana aukreitis til að fjár-
magna hærri vaxtabætur.
Hugmyndir um
hærri bankaskatt
Fundað áfram í dag um skuldamálin
Morgunblaðið/Eggert
Á fund Þórarinn V. Þórarinsson sat
fundinn fyrir hönd lífeyrissjóðanna.
Þingmenn og formenn bæði
Framsóknarflokks og Hreyf-
ingarinnar, og tveir þingmenn
Vinstri grænna, hafa lagt fyrir
Alþingi þingsályktunartillögu
um að fela efnahags- og við-
skiptaráðherra að láta vinna
efnahagsáætlun sem tryggir
velferð og stöðugleika án að-
stoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins.
Í frumvarpinu segir að í
efnahagsáætluninni verði skil-
greindar nauðsynlegar að-
gerðir til að gera íslenskt hag-
kerfi óháð aðstoð sjóðsins og
forðast frekari skuldsetningu
ríkissjóðs, aðgerðaáætlun
útbúin og henni fylgt eftir.
„Leitað verði liðsinnis færustu
erlendra sérfræðinga á sviði
hagvísinda við mótun og
framkvæmd áætlunarinnar til
að tryggja efnahagsstjórn
landsins nauðsynlegan
trúverðugleika.“
Verði tillagan
samþykkt á áætl-
unin að liggja fyrir
1. mars 2011 og
koma þá til fram-
kvæmda.
Vilja losna
við AGS
HREYFING OG FRAMSÓKN