Morgunblaðið - 01.12.2010, Síða 13
13Stjórnlagaþing
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Nokkuð fjölbreyttur hópur fólks var kjörinn til
að sitja á stjórnlagaþingi, en sláandi er að að-
eins 3 af 25 fulltrúum eru búsettir utan höf-
uðborgarsvæðisins. Fulltrúar á þinginu eru á
aldrinum 24-70 ára, en stærsti aldurshópurinn
er á aldrinum 60-70 ára.
Á kjörskrá voru samtals 232.374, en 83.531
greiddi atkvæði eða 35,95%. Heildarfjöldi
ógildra atkvæða var 1.196 eða 1,4%.
Samkvæmt lögum um stjórnlagaþing má
kynjamunur ekki vera meiri en 40%, en nið-
urstaðan varð sú að konur eru 40% þingfull-
trúa og karlar 60%. Ekki kemur því til þess að
þingfulltrúum verði fjölgað til að jafna kynja-
hlutfallið.
Ef hægt er að tala um einhvern einn sig-
urvegara í kosningunum þá er það Þorvaldur
Gylfason prófessor en 7.192 settu hann í fyrsta
sæti sem er meira en helmingi meira en næsti
maður fékk, en það var Salvör Nordal, for-
stöðumaður Siðfræðistofnunar.
Þorvaldur og Salvör eru bæði starfsmenn
Háskóla Íslands, en samtals náðu fimm há-
skólakennarar kjöri. Mikill meirihluti fulltrúa
er með háskólamenntun af einhverju tagi.
Aðeins þrír fulltrúar búa á landsbyggðinni,
þ.e. Akureyringarnir Dögg Harðardóttir og
Erlingur Sigurðarson og Þingeyingurinn Ari
Teitsson. Hugsanlega má flokka Lýð Árnason
lækni sem landsbyggðarmann, en hann bjó til
skamms tíma á Vestfjörðum.
Íris Lind næst því að ná kjöri
Yngsti fulltrúinn á stjórnlagaþinginu er Ást-
rós Gunnlaugsdóttir sem varð 24 ára í haust.
Freyja Haraldsdóttir er jafngömul. Elstur er
hins vegar Ómar Ragnarson, en hann varð sjö-
tugur á árinu.
Íris Lind Sæmundsdóttir lögfræðingur var
næst því að ná kjöri á stjórnlagaþingið, en síð-
astur inn var Lýður Árnason. Lögin um stjórn-
lagaþing gera ekki ráð fyrir neinum varamönn-
um. Ef einhver forfallast verða þingfulltrúar
einfaldlega færri. Landskjörstjórn kemur
saman á morgun þar sem gengið verður frá
kjörbréfum til þingfulltrúa og er þeim sem
náðu kjöri boðið að vera viðstaddir.
Eins og kunnugt er tók talsvert langan tíma
að telja, m.a. vegna þess að seðlar sem voru
ógildir að hluta voru um 10 þúsund. Það var
ekki bara landskjörstjórn sem sá um að
tryggja að rétt væri talið því sérstakir menn
gerðu sjálfstæða athugun á gæðum talningar.
Jóhann Malmquist sagðist vera mjög ánægður
með útkomuna. Hann sagði engan vafa leika á
því að talningarvélarnar hefðu aukið ná-
kvæmni talningarinnar. Útkoman hefði ekki
orðið eins nákvæm ef talið hefði verið í hönd-
unum, en hætta á mistökum við talningu eykst
þegar frambjóðendur eru svona margir. Þeir
voru 522. Frambjóðendur máttu fylgjast með
talningu, en mjög fáir nýttu sér það.
Stjórnlagaþingið kemur saman í febrúar og
reiknað er með að það starfi í tvo mánuði.
Verkefni þess er að endurskoða stjórnar-
skrána. Samkvæmt lögunum á þingið sérstak-
lega að taka til umfjöllunar eftirfarandi: Und-
irstöður íslenskrar stjórnskipunar og helstu
grunnhugtök hennar, skipan löggjafarvalds og
framkvæmdavalds og valdmörk þeirra, hlut-
verk og stöðu forseta, sjálfstæði dómstóla og
eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkis-
valds, ákvæði um kosningar og kjördæmaskip-
an, lýðræðislega þátttöku almennings, framsal
ríkisvalds til alþjóðastofnana og meðferð utan-
ríkismála og umhverfismál, þar á meðal um
eignarhald og nýtingu náttúruauðlinda.
Aðeins þrír koma
af landsbyggðinni
15 karlar og 10 konur kjörin á stjórnlagaþing
Yngsti fulltrúinn er 24 ára en elsti er sjötugur
Fulltrúar á stjórnlagaþingi
Karlar: 15
Konur: 10
Af höfuð-
borgarsvæðinu: 22
Af landsbyggðinni: 3
Meðalaldur: 48,12ára
21-30 ára
31-40 ára
41-50 ára
51-60 ára
61-70 ára
3
3
2
8
9
Flest atkvæði í 1. sæti
Þorvaldur Gylfason 7.192
Salvör Nordal 2.482
Ómar Ragnarsson 2.440
Andrés Magnússon 2.175
Pétur Gunnlaugsson 1.989
Þorkell Helgson 1.930
Ari Teitsson 1.686
Illugi Jökulsson 1.593
Freyja Haraldsdóttir 1.089
Silja Bára Ómarsdóttir 1.054
Næstir inn
Íris Lind Sæmundsdóttir
Stefán Gíslason
Þorgeir Tryggvason
Jón Ólafsson
Magnús Thoroddssen
Birna Þórðardóttir
Gunnar Hersveinn
Guðrún Högnadóttir
Þorsteinn Arnalds
Árni Indriðason
Læknar
Lögmenn
Stjórnmálafræðingar
Fjölmiðlamenn
Stærðfræðingar
Guðfræðingar
Bændur
Nemar
Háskólamenn
Framhaldsskólakennarar
Deildarstjórar
Verkalýðsleiðtogar
Atvinnurekendur
Embættismenn
Leikstjórar
Hver fulltrúi getur tilheyrt fleiri en einum flokk
Atkvæði greiddu 83.531
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
Embættispróf í lög-
fræði úr lagadeild Há-
skóla Íslands 1973.
Stundaði nám í heim-
speki og sögu í Há-
skóla Íslands. Er með
lögmannsréttindi og
er sjálfstætt starfandi lögmaður.
Stjórnarformaður Útvarps Sögu og
starfar þar sem útvarpsmaður.
5. Pétur Gunnlaugsson
MA-gráða og dokt-
orsnám í alþjóða-
samskiptum frá Uni-
versity of Southern
California. Verkefna-
og sviðsstjóri á Jafn-
réttisstofu 2003-2006,
forstöðumaður Alþjóðamálastofn-
unar HÍ 2006-2008, aðjúnkt við
stjórnmálafræðideild HÍ frá 2005.
10. Silja Bára Ómarsdóttir
Með stúdentspróf frá
MA. Menntuð í Eng-
landi og Þýskalandi.
Leikstjóri, leik-
hússtjóri LR 1996-
2000. Einn af stofn-
endum Kvenna-
framboðs og Kvennalista.
Varaborgarfulltrúi 1982-1990. Sat
á Alþingi 1987-1991.
16. Þórhildur Þorleifsdóttir
Með MA-próf í mann-
réttindum frá Uni-
versity of London. BA
í lögfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík.
Einnig með BA-próf í
blaðamennsku frá
Dublin City University á Írland.
Var meðal ræðumanna á mótmæla-
fundum á Austurvelli.
20. Katrín Oddsdóttir
Læknir, sérmenntun í
heimilislækningum.
Starfað lengst af á
landsbyggðinni. Hand-
rits- og kvikmynda-
gerð, á nokkrar mynd-
ir að baki, heimilda-
myndir og leiknar. Greinaskrif og
pistlar um árabil, mestmegnis um
þjóðfélagsmál.
25. Lýður Árnason
Er læknir, með
doktorspróf og hefur
verið prófessor við ís-
lenska og erlenda há-
skóla. Hefur unnið öll
helstu verka-
mannastörf til sjós og
lands, verkað fisk, starfað við inn-
flutning, þróunarhjálp, á barna-
heimilum og kennt jóga.
4. Andrés Magnússon
Hefur lokið BA-námi í
þroskaþjálfafræði og
stundar nú meist-
aranám í fötl-
unarfræði við HÍ. Hef-
ur starfað talsvert
með börnum í leik- og
grunnskólum, rekur fyrirtækið
Forréttindi og er varaformaður í
stjórn NPA-miðstöðvarinnar.
9. Freyja Haraldsdóttir
Stúdent af eðlis-
fræðisviði MH. Starf-
aði sem forritari, hug-
búnaðarhönnuður og
tæknistjóri í eigin fyr-
irtæki frá 1983. Verið
stjórnarmaður í ýms-
um upplýsingatækni- og fjarskipta-
fyrirtækjum hér og erlendis, m.a.
stjórnarformaður í CCP frá 2006.
14. Vilhjálmur Þorsteinsson
Stúdentspróf frá Fjöl-
brautaskólanum í
Garðabæ og nám í
hagnýtri íslensku í
Háskóla Íslands.
Stundar núna nám í
listfræði við Háskóla
Íslands. Starfaði sem blaðamaður
að loknu stúdentsprófi og hefur
unnið við fjölmiðla í tæp 15 ár.
19. Inga Lind Karlsdóttir
Talsmaður neytenda
frá 2005, fram-
kvæmdastjóri BHM
1998-2005, aðjúnkt við
HR frá 2008. Lögfræð-
ingur HÍ 1997, hdl.
1998. MBA próf með
áherslu á mannauðsstjórnun HR
2004, vottaður sáttamiðlari 2008,
stúdent frá Danmörku 1989.
24. Gísli Tryggvason
Stundaði nám í laga-
deild HÍ 1960-1964 og
tók atvinnuflug-
mannspróf 1967. Hef-
ur leikið í leikhúsum
frá 1953 og er starf-
andi skemmtikraftur.
Fréttamaður og dagskrárgerðar-
maður í sjónvarpi frá 1969. Sjálf-
stæð kvikmyndagerð frá 2001.
3. Ómar Ragnarsson
Hefur starfað við
blaðamennsku og
margvísleg ritstörf,
skrifað bækur, grein-
ar, viðtöl og pistla. Ill-
ugi hefur meðal ann-
ars ritstýrt dagblaði
og tveimur tímaritum. Hann hefur
einnig unnið við dagskrárgerð í út-
varpi og sjónvarpi.
8. Illugi Jökulsson
Er stúdent frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1985.
Lauk B.Sc. prófi í
hjúkrunarfræði frá
Háskóla Íslands 1992
og uppeldis- og
kennslufræði frá Háskólanum á
Akureyri (HA) 2000. Er í diplom-
anámi í heilbrigðisvísindum við HA.
13. Dögg Harðardóttir
Stúdent frá MA. BA-
próf í íslensku og
sagnfræði og kandi-
datspróf frá HÍ. Nám í
Bandaríkjunum fyrr
og í Þýskalandi síðar.
Kennari við MA í tvo
áratugi, forstöðumaður Sigurhæða
– Húss skáldsins í sex ár, nú lífeyr-
isþegi og fæst við ritstörf.
18. Erlingur Sigurðarson
Stúdentspróf frá
Kvennaskólanum í
Reykjavík 2006. Lauk
BA-prófi í stjórn-
málafræði frá HÍ
2010. Stundar meist-
aranám í alþjóða-
samskiptum við HÍ. Lauk leiðtoga-
skóla NSU sem haldinn var í
Færeyjum sumarið 2005.
23. Ástrós Gunnlaugsdóttir
Stúdent frá MR 1966.
Lauk læknaprófi 1973.
Heimilislæknir í
Reykjavík frá 1980.
Borgarfulltrúi í
Reykjavík 1982-1994.
Þingm. Reykvíkinga
1999-2003, varaþingm. 1995-1999
og 2003-2007. Form. Félags ís-
lenskra heimilislækna 1995-1999.
22. Katrín Fjeldsted
Er forstöðumaður Sið-
fræðistofnunar Há-
skóla Íslands og
menntuð í heimspeki.
Er einn höfunda sið-
fræðihluta skýrslu
rannsóknarnefndar
Alþingis og hefur tekið virkan þátt
í umræðu um orsakir og afleiðingar
bankahrunsins.
2. Salvör Nordal
B.Sc.-próf í búvís-
indum frá Hvanneyri
1973 og sauðfjárbóndi
frá sama ári. Héraðs-
ráðunautur og
mjólkureftirlitsmaður
1973-1995. Formaður
Bændasamtaka Íslands 1995-2004.
Stjórnarformaður Sparisjóðs
Suður-Þingeyinga frá árinu 1990.
7. Ari Teitsson
Doktor í stjórn-
málafræði, dósent og
forstöðumaður
Evrópufræðaseturs
Háskólans á Bifröst.
Höfundur fjölda bóka
og fræðigreina um
þjóðfélagsmál, einkum um tengsl
Íslands við umheiminn. Hefur
stundað kennslu og rannsóknir.
12. Eiríkur Bergmann
Embættispróf í guð-
fræði frá HÍ 1986.
Prestur frá 1987.
Doktorspróf í guð-
fræði frá The Luth-
eran School of Theo-
logy í Chicago, 1996.
Kennari við guðfræði- og trúar-
bragðafræðideild HÍ frá hausti
1996. Prófessor frá 2008.
17. Arnfríður Guðmundsdóttir
Sveinspróf í rafvirkj-
un. Framhaldsnám í
Tækniskóla Íslands og
dönskum tækniskól-
um. Kennarapróf frá
Kennaraháskólanum.
Rafvirki hjá Ísal en
hjá Rafiðnaðarskólanum frá 1975.
Formaður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands frá 1993.
21. Guðmundur Gunnarsson
Nam guðfræði í Eng-
landi, vígður djákni
1979, cand.theol. við
HÍ 1984, doktorspróf
frá Fuller Theological
Seminary í Kaliforníu
1995, nám við Yale-
háskóla 2009. Verkefnis- og
fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar 1990-
1999. Prestur Neskirkju frá 1999.
11. Örn Bárður Jónsson
Nam stærðfræði í
Göttingen, München
og við MIT, doktors-
próf þaðan 1971. Hef-
ur verið prófessor við
Háskóla Íslands, að-
stoðarmaður heil-
brigðisráðherra, ráðuneytisstjóri,
orkumálastjóri og stjórnarformað-
ur Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
6. Þorkell Helgason
Lauk meistaraprófi í
stærðfræði frá Há-
skóla Íslands 2005.
Hefur unnið sem
kennari við Háskólann
í Reykjavík frá 2006.
Hefur ritað reglulega
pistla í Fréttablaðið og unnið sem
ráðgjafi, m.a. fyrir Alþingi vegna
endurskoðunar kosningalaga.
15. Pawel Bartoszek
Er prófessor í hag-
fræði í Háskóla Ís-
lands. Hefur ritað
nítján bækur og á ann-
að hundrað ritgerða
og bókarkafla auk 700
blaðagreina. Hann
lauk doktorsprófi í Princeton og
hefur starfað við kennslu, rann-
sóknir og ráðgjöf víða um heim.
1. Þorvaldur Gylfason
25 kjörin á stjórnlagaþing, raðað eftir fjölda atkvæða