Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
– Lifið heil
www.lyfja.is
Jólin eru tími til að gefa.
Í Lyfju finnurðu úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra
sem þér þykir vænst um. Við erum aldrei langt undan.
Mundu eftir jólahandbók Lyfju.
Kannski er
jólagjöfin í Lyfju
Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga
Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík
LYFJA STYÐUR LANDSLIÐ KVENNA Í HANDBOLTA
FRÉTTASKÝRING
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Samkvæmt breytingartillögu meiri-
hluta fjárlaganefndar á fjár-
aukalögum munu stjórnvöld fá heim-
ild til þess að auka eiginfjárstöðu
Íbúðalánasjóðs um allt að 33 millj-
arða króna. Um er að ræða verulegar
fjárhæðir eða sem samsvarar um
2,2% af landsframleiðslunni í fyrra.
Eins og fram kemur í breyting-
artillögu stjórnarmeirihlutans í fjár-
laganefnd miðast heimildin við að
efla eiginfjárstöðu Íbúðalánasjóðs
þannig að hún verði 5% af áhættu-
grunni hans eins og honum er gert að
stefna að samkvæmt lögum. Sam-
kvæmt breytingartillögunni á heim-
ildin að duga til þess að mæta „af-
skriftarþörf vegna útistandandi
lánveitinga og áhrifum af ráðstöf-
unum sem kunna að verða gerðar
vegna skuldavanda heimilanna“. Að
sögn Oddnýjar Harðardóttur, þing-
manns Samfylkingarinnar og for-
manns fjárlaganefndar, er ráðgert
að um 20 milljarðar af heimildinni
fari beinlínis til fjármögnunar Íbúða-
lánasjóðs og það sem eftir stendur
verður notað til þess að bæta upp tap
hans vegna mögulegra aðgerða
vegna skuldavanda heimilanna.
Oddný segir að þessir 33 millj-
arðar verði fjármagnaðir af ríkinu
með sambærilegum hætti og eig-
infjárframlag ríkisins í bankakerfið
eftir hrun. Þá gaf ríkið út skuldabréf
til bankanna sem þeir hafa síðan get-
að notað í veðlánaviðskiptum við
Seðlabankann. Slík fjármögnun þýð-
ir að breytingin leiðir ekki til þess að
fjárlagahallinn aukist í ár. En hún
leiðir til þess að skuldastaða ríkisins
versnar um 33 milljarða, verði heim-
ildin fullnýtt, og að vaxtakostnaður
vegna skuldabréfaútgáfunnar bætist
við útgjöld ríkisins frá og með næsta
ári. Sem kunnugt er eru vaxtagjöld
orðin að ráðandi útgjaldalið hjá rík-
issjóði vegna skuldasöfnunar. Sé
horft til skuldabréfaflokks sem ríkið
gaf út í tengslum við fjármögnun
bankakerfisins má gera ráð fyrir að
skuldabréf í tengslum við endur-
fjármögnun Íbúðalánasjóðs myndi
bera 4% vexti eða sambærilega vexti
og Seðlabankinn greiðir vegna reikn-
inga innlánsstofnana.
Síðbúinn fjárauki þrátt fyrir að
þörfin hafi legið fyrir
Sérstaka athygli vekur að stjórn-
armeirihlutinn skuli setja nú fram
breytingartillögu á fjáraukalögum
svo hægt sé að koma eiginfjárstöðu
Íbúðalánasjóðs í viðunandi horf.
Vandi sjóðsins er ekki nýr af nálinni
og um alllanga hríð hefur verið ljóst
að ríkið þyrfti að hlaupa undir bagga
með rekstrinum.
Eiginfjárhlutfall sjóðsins var kom-
ið í 3% við lok síðasta árs. Stjórnvöld
skuldbundu sig í viljayfirlýsingu í vor
í tengslum við aðra endurskoðun á
efnahagsáætlun AGS til þess að færa
eiginfjárkröfurnar á sjóðinn til sam-
ræmis við aðrar fjármálastofnanir
sem er 8%. Ennfremur skuldbinda
stjórnvöld sig til þess, í viljayfirlýs-
ingu í tengslum við þriðju endur-
skoðunina frá því í október, að sjá til
þess að eiginfjárhlutfall sjóðsins færi
ekki undir slík mörk. Tekið er sér-
staklega fram í viljayfirlýsingunni að
stjórnvöld ættu að sjá til þess með
því að tryggja aðgengi Íbúðalána-
sjóðsins að markaðshæfum rík-
isbréfum.
Gróflega reiknað dugar 20 millj-
arða framlag frá ríkinu til þess að
koma eiginfjárhlutfalli Íbúðalána-
sjóðs í 8%. Þar með er sagan ekki
sögð, enda eru horfurnar á fast-
eignamarkaðnum og í efnahagslífinu
dökkar um þessar mundir. Þannig
geta aukin vanskil hjá sjóðnum leitt
til fjölgunar fullnustuaðgerða en
uppboðsíbúðir eru óvaxtaberandi
eignir, eins og gefur að skilja, og hafa
því áhrif á vaxtamun sjóðsins. Ein af-
leiðinga slíkrar þróunar er versnandi
eiginfjárhlutfall.
Um 33 milljarðar í Íbúðalánasjóð
Morgunblaðið/RAX
Fasteignafrost Fjármálakreppan og efnahagsástandið hafa leikið Íbúðalánasjóð grátt að undanförnu.
Útgjaldaaukningin vegna Íbúðalánasjóðs í fjáraukalögum nemur um 2,2% af landsframleiðslu
Skuldastaða ríkissjóðs versnar sem því nemur og vaxtagjöld fjárlaga næsta árs aukast enn frekar
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.,
+/+-/+
++0-1/
2.-03+
+/-/,2
+1-140
++,-.1
+-451/
+,/-33
+32-00
++,-43
+/2-23
++3-.2
2.-3++
+/-52/
+1-1/4
++,-45
+-0..5
+,5-./
+32-/,
2.1-,403
++,-14
+/2-15
++3-41
2.-3,+
+/-5/0
+1-,42
++,-,2
+-0.3
+,5-1+
+34-4
Það að ríkissjóður skuli gefa
út skuldabréf sem hann svo
lætur aðra ríkisstofnun fá, sem
fer með það upp í Seðlabanka
þar sem hún fær peninga í
staðinn, minnir óneitanlega á
hefðbundna peningaprentun. Í
raun er þetta ekki svo ólíkt
þeim aðgerðum sem seðla-
bankar Bandaríkjanna og Bret-
lands hafa beitt til þess að
auka peningamagn í umferð á
undanförnum árum. Sam-
kvæmt svari frá skrifstofu
seðlabankastjóra er Seðlabank-
anum heimilt samkvæmt lög-
um að kaupa og selja rík-
istryggð verðbréf í því skyni að
ná markmiðum um verðstöð-
ugleika. Samkomulagið við
AGS felur ekki í sér bann við
aðferðum sem notaðar hafa
verið af öðrum seðlabönkum í
því skyni að auka laust fé í
umferð. Í svari við fyrirspurn
Morgunblaðsins segir Seðla-
bankinn að þessari aðferð hafi
hins vegar ekki verið beitt,
enda ekki talin þörf á því
vegna þess að lausafjárstaða
fjármálafyrirtækja hefur verið
rúm og engin áform verið um
slíkt. Seðlabankinn minnir
einnig á að bein lántaka rík-
issjóðs í Seðlabankanum er
óheimil samkvæmt lögunum
enda yrði slíkt talið ýta undir
verðbólgu og lausung í fjár-
málum.
Lausung og
verðbólga
MILLI VASA RÍKISINS