Morgunblaðið - 01.12.2010, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
✝ Eðvarð Krist-jánssson fæddist
á Brekkuvelli, Barð-
arstrandarhr. V-
Barð. 20. júní 1928.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 16. nóvember
2010.
Foreldrar hans
voru Kristján Ólafur
Ólafsson, bóndi á
Brekkuvelli, síðar
verkamaður á Pat-
reksfirði, f. 18. okt.
1899 í Miðhlíð, Barð-
arstrandarhr., d. 2. jan. 1983, og
k.h. (skildu) Guðrún Lilja Krist-
ófersdóttir, f. 12. ágúst 1904 á
Brekkuvelli. d. 16. mars 1987.
Eðvarð kvæntist 30. des. 1955
Friðrúnu Þóru Fjólu Friðleifs-
dóttur, f. 3. mars 1932 á Hellis-
sandi, d. 20. mars 1963 í Reykja-
vík, húsfreyju í Reykjavík. Þau
dórsdóttur, f. 4. nóv. 1948 á
Siglufirði. Þau skildu. Barn
þeirra: f) Ósk Eðvarðsdóttir, f.
19. okt. 1993 í Reykjavík. Eðvarð
var síðustu 11 árin í sambúð með
Sigríði Jónsdóttur, f. 9. júlí 1938
í Sandgerði. Börn hennar: Örn
Benedikt Sverrisson, Kristín
Björgvinsdóttir, Guðbjörg Marta
Björgvinsdóttir og Jón Sveinn
Björgvinsson.
Eðvarð tók hið meira fiski-
mannapróf frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík 1955. Hann var
stýrimaður á ýmsum skipum frá
Akranesi, m.a. á Skipaskaga AK
102; var síðan skipstjóri á Ás-
mundi AK 8, Heimaskaga AK 85
og síðan tvær vetrarvertíðir á
Rán AK 304; var skipstjóri á Sæ-
borgu BA 75 1964, á Dofra BA 50
1965 og á Þorra BA 1966-1967;
var yfirstýrimaður og skipstjóri á
Perlu RE 1984; skipstjóri á Sand-
ey 1984–1987; reri einnig á eigin
báti, Villa AK 50, 9 brl. eikarbáti
1976-1978. Eðvarð ók greiðabíl
síðustu ár starfsævi sinnar.
Útför Eðvarðs fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 1. desem-
ber 2010, og hefst athöfnin kl.
15.
skildu. Börn þeirra:
a) Guðrún Lilja, f.
16. mars 1957 í
Kópavogi. b) Ragn-
heiður E. Jónsdóttir,
f. 1. júlí 1961 í Kópa-
vogi. Eðvarð kvænt-
ist 28. sept. 1963,
Sigrúnu Daníels-
dóttur, f. 6. mars
1937 á Akranesi, d.
30. mars 2003 á
Akranesi, hjúkr-
unarfræðingi á
Akranesi. Þau
skildu. Barn þeirra
c) Eðvarð Dan, f. 12. júní 1965 á
Akranesi. Eðvarð var í sambúð
með Svanborgu Kjartansdóttur, f.
29. des. 1949 á Kjartansstöðum.
Þau slitu samvistir. Börn þeirra:
d) Kristján Ólafur, f. 7. júní 1973
á Akranesi. e) Páll Valgarð, f. 10.
apríl 1978 á Akranesi. Eðvarð
kvæntist 4. nóv. 1988, Maríu Hall-
Elsku pabbi minn, mig langar að
minnast þín með þessum orðum.
Ég var eina barnið þitt sem var
alla tíð hjá þér og á þínu framfæri,
vegna þess að móðir mín dó þegar
ég var mjög ung, en þetta var oft
erfitt, bæði fyrir mig og þig, vegna
þess að þegar þú varst á sjónum
þurftir þú oft að koma mér fyrir og
ekki alltaf hjá sama fólkinu, þess
vegna á lagið „Litla stúlkan við
hliðið“ svo vel við og ég sendi þér
það eitt sinn í þættinum Óskalög
sjómanna. Þú varst alltaf hlýr og
góður, en ég veit að þetta var þér
erfitt.
Þú varst svo handlaginn og góð-
ur smiður. Manstu eftir skrifborð-
inu sem þú smíðaðir handa mér til
að læra við og þú skreyttir það
með fallegum blómamyndum og
svo man ég vel eftir kirkjunni sem
þú smíðaðir fyrir ein jólin, hún var
með ljósum í gluggunum og allt.
Hún var alltaf sett upp á jólum og
þótti einstaklega falleg.
Eitt er mér mjög hugleikið en
það er þegar ég missti mitt fyrsta
barn og þú þitt fyrsta barnabarn.
Þá grést þú sárt. Þú og Svanborg
bjugguð svo fallega um hann í kist-
unni með svo fallegu vöggusetti og
það þykir mér afar vænt um.
Þú varst alltaf kátur og hress og
gott að leita til þín ef eitthvað bját-
aði á og alltaf gast þú hresst mann
ef eitthvað var að.
Það var þitt yndi að semja lög
og vísur og spila og syngja og þú
kenndir mér mörg lög og sjórinn
var þér alltaf hugleikinn.
Maður gat setið tímunum saman
og hlustað á þig segja sögur af
sjónum.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Ég fer oft með þessa bæn og
hugsa mér að þú sért einn af engl-
unum.
Ég sakna þín, elsku pabbi minn.
Guð geymi þig.
Þín dóttir,
Lilja Eðvarðsdóttir.
Mig langar að minnast Edda
pabba eins og ég kallaði hann allt-
af frá því við kynntumst. Þannig er
að þegar ég fæddist voru aðstæður
ekki þær að foreldrar mínir gætu
séð mér farborða, móðir mín mikill
sjúklingur og Eddi pabbi sjómaður
svo það var tekin sú ákvörðun að
ættleiða þetta litla kríli sem fædd-
ist tveim mánuðum fyrir tímann.
Það var Eddi pabbi sem hélt í mér
lífinu nýfæddri með volgu sykur-
vatni þar til ég komst undir lækn-
ishendur. Síðar létu kjörforeldrar
mínir svo skíra mig höfuðið á ljós-
móðurinni og Edda pabba, sem var
ósk móður minnar, og ber ég nafn-
ið hans með stolti.
Það var ekki erfið ákvörðun fyr-
ir kjörforeldra mína að verða við
þeirri ósk eftir að vera trúað fyrir
þessu litla kríli. Þegar ég svo var
15 ára gömul hitti ég hann í fyrsta
skipti sem og Lilju, alsystur mína.
Lilja fór með mér upp á Skaga að
hitta hann. Það er mér mjög minn-
isstætt þegar við gengum á land og
hann kom gangandi á móti okkur,
fyrst svolítið feiminn en svo tóku
tárin að leka af ánægju yfir að
hitta loksins þetta barn. Eftir þessi
fyrstu kynni þróaðist með okkur
gott samband og fylgdist hann með
mér upp frá því. Þegar ég var svo
farin að búa í Kópavoginum kom
hann oft í kaffi, sérstaklega þegar
hann var í útkeyrslunni fyrir
blómabúðirnar, þá fannst honum
gott að koma í sopa og reykja píp-
una sína. Svo seinna þegar hann
kynntist Siggu sinni komu þau oft
saman í heimsókn. Hann var hag-
yrtur mjög og margar vísurnar eru
til eftir hann. Ég hef stundum
reynt að yrkja eitthvað svona til að
athuga hvort hæfileikarnir séu
þarna. Yfirleitt tekst vel með fyrri-
partinn en sá seinni verður öllu
erfiðari. Þá var leitað til Edda
pabba og hann ekki lengi að laga
þetta til. Hér kemur ein sem við
sömdum saman í gestabók í sum-
arhúsi.
Þegar gest að garði ber,
nafn sitt getur párað.
Þá í þessa skræðu hér
Þá kostinn hefur klárað
(REJ/EK.)
Hann hringdi líka oft í mig bara
til að leita frétta. Þegar við vorum
að kveðjast sagði hann oft: Jæja,
elskan, þá er talið búið. Hann var
glettinn og stríðinn og mikill húm-
oristi og gerði líka óspart grín af
sjálfum sér. Oft gerðum við krakk-
arnir líka grín að honum og þá
kannski sérstaklega þegar hann
var að keyra, því okkur fannst
hann fara frekar hægt yfir og aldr-
ei sjá neitt ef maður mætti honum
við aksturinn. Hann sagðist nú
ekki geta verið að veifa fólki út um
allan bæ heldur væri hann að ein-
beita sér að akstrinum. Svo hló
hann að öllu saman. Eftir að ég
svo eignaðist börn fylgdist hann
vel með uppvexti þeirra og Eddi
afi átti stóran sess í hjörtum þeirra
beggja.
Elsku Eddi pabbi, nú er talið
okkar búið í bili, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Ragnheiður Edda
Jónsdóttir og fjölskylda.
Það er sumar, ég er að leika mér
í garðinum fyrir utan Fögruhlíð 13
á Eskifirði, Rauður Ford Falcon
rennir í hlað, afi er kominn í heim-
sókn. Þetta er fyrsta minningin
mín um Edda afa minn. Afi var
alla tíð mjög hress og skemmti-
legur.
Afi var mestalla sína ævi skip-
stjóri bæði á Patreksfirði og Akra-
nesi, svo var hann svolítið í trillu-
útgerð með bátinn Villa AK. hann
var alltaf farsæll skipstjóri og end-
aði sinn sjómannsferil sem skip-
stjóri á sanddæluskipunum Sandey
og svo síðast Perlunni. Eftir það
fór afi í land og keypti sér sendibíl,
Toyota Liteace. Ég fór nokkur
sumur til hans að hjálpa honum á
sendibílnum við burð og annað til-
fallandi, og ég man sérstaklega vel
eftir því að hann gat látið alla sem
hann þurfti að koma við hjá hlæja
og alltaf lék afi á als oddi og var
hrókur alls fagnaðar. Mér hlotn-
aðist sá heiður að fá alltaf að fara
til afa einn mánuð á sumrin og er
ég mjög þakklátur fyrir að hafa
kynnst honum svona vel þessi sum-
ur sem ég fór til hans og verð ég
að minnast á ferðirnar sem við fór-
um í Þjórsárdal um helgar.
Afi átti hjólhýsi í „dalnum“ eins
og hann kallaði það alltaf og var
hann búinn að gera sér einstaklega
fallegt og notalegt sumarhús þar
sem hann gat dundað sér um helg-
ar og haft það notalegt. Hann
byggði fallegan pall í kringum hús-
ið, salernisaðstöðu og gerði sér lít-
ið afdrep á fallegum stað. Mér eru
minnisstæð kvöldin í dalnum þegar
fólk gekk á milli hjólhýsa og söng
„Tondeleijo“, „Sestu hérna hjá mér
ástin mín“, „Undir
bláhimni“ svo eitthvað sé nefnt
og lét afi vel í sér heyra og stjórn-
aði oft söngnum af mikilli list enda
mikill tónlistarunnandi og söngv-
ari, enda vil ég meina að þetta höf-
um við yngri bróðir minn erft frá
honum að miklu leyti. Hann átti
forláta skemmtara sem hann hafði
mjög gaman af að setjast við og
spila gamla valsa og í sérstöku
uppáhaldi var hjá mér þegar hann
settist við skemmtarann og spilaði
„Undir bláhimni“ af mikilli snilld.
Hann samdi líka mjög fallega valsa
á þennan skemmtara sem hann lét
svo hljóðrita.
Afi minn, ég á svo margar minn-
ingar um þig sem mig langar að
skrifa niður þar sem ég sit í setu-
stofunni á skipinu mínu og sigli
norður í haf, en ég ætla að láta
staðar numið hér, minningarnar
lifa með okkur öllum þó svo að þú
sért farinn frá okkur og mér
fannst það svo dýrmætt að geta
verið hjá þér þegar þú kvaddir
þennan heim, því ég þurfti að fara
til sjós daginn eftir. Ég veit að þér
líður vel núna og við sjáumst aftur
síðar og þá syngjum við „Undir
bláhimni“ saman.
Takk fyrir allar góðu samveru-
stundirnar sem eru mér svo kærar.
Elsku Sigga (amma), mamma mín,
Raggý, Palli, Kristján, Eddi og
Ósk, Guð veri með ykkur í þessari
sorg, en nú er Eddi afi kominn á
góðan stað og passar upp á okkur
öll.
Farðu í friði, elsku afi minn, og
ég sakna þín.
Bless bless.
Þinn dóttursonur,
Eðvarð Þór.
Eðvarð
Kristjánsson
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
frá Bakkagerði,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju fimmtudaginn
2. desember kl. 13.00.
Sæunn Guðjónsdóttir,
Birgir Guðjónsson,
Björn Guðni Guðjónsson,
Halldóra Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HEKLU ÁRNADÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Eir.
Geir Guðmundsson,
Margrét Geirsdóttir, Gestur Jónsson,
Árni Jón Geirsson, Sigríður Þ. Valtýsdóttir,
Guðrún Geirsdóttir, Jón Friðrik Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HERMANN STEFÁNSSON,
Vallargerði 2c,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar mánudaginn
29. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristín Friðbjarnardóttir,
Ólafur Ingi Hermannsson, Bjarnheiður Ragnarsdóttir,
Elva Hermannsdóttir, Einar Jóhannsson,
Atli Hermannsson, Ingibjörg Róbertsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
KOLBEINN INGI KRISTINSSON,
Háengi 3,
Selfossi,
lést á á Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn
30. nóvember.
Þorbjörg Sigurðardóttir,
Sigurður K. Kolbeinsson, Edda D. Sigurðardóttir,
Eva Katrín Sigurðardóttir, Kristján Þór Gunnarsson,
Andrea Þorbjörg Sigurðardóttir,
Kristín Edda Sigurðardóttir
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
EINAR HAFSTEINN GUÐMUNDSSON
skipstjóri,
sem lést sunnudaginn 21. nóvember, verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 3. desem-
ber kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofn-
anir.
Ása Lúðvíksdóttir,
Magnús Einarsson, Salvör Jóhannesdóttir,
Sólveig Einarsdóttir, Gunnar Már Eðvarðsson,
Guðrún Einarsdóttir, Árni Blandon Einarsson,
Gísli Hafsteinn Einarsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.