Morgunblaðið - 01.12.2010, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 01.12.2010, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010 Látinn er Sigurður Viðar Óskarsson. Góð- ur vinur minn og fé- lagi á lífsins vegferð. Hann var fáum líkur og gekk síst hina troðnu slóð fjöldans. Náttúrubarn og ástríðu- maður. Gæddur frumkrafti og orku sem sjaldgæft er að finna meðal fólks. Leiðir okkar lágu saman á unglingsárum í gegnum hina stóru sameiginlegu ástríðu – hesta- mennskuna. Þar var okkur líkt farið um margt í aðdáun og gleði í faðm- lagi hestsins. Sigurður hafði næmt auga fyrir góðum hrossum og var gæddur ríku innsæi hvað varðar all- ar hliðar hestamennsku. Þar vann hann og margan sigur. Hann var ið- inn og þolgóður tamningamaður og ekki síður var árangur hans í hrossarækt eftirtektarverður. Frá honum komu gæðingar og m.a. sig- urvegari síðasta landsmóts. Af eðliskostum Sigurðar má nefna hversu traustur hann var og heiðarlegur í öllum samskiptum. Sigurður Viðar Óskarsson ✝ Sigurður ViðarÓskarsson fædd- ist á Ísafirði 25. nóv- ember 1960. Hann lést á heimili sínu 16. nóvember 2010. Útför Sigurðar var gerð frá Akureyr- arkirkju 25. nóv- ember 2010. Orð hans stóðu sem stafur á bók. Hann var hjálpsamur og gott að leita til hans með allt. Hann var ráðagóður og hollur vinum sínum. Börn og unglingar hændust að honum vegna eðlis- kosta hans. Hann var ekki mikið fyrir að trana sér fram, vann að sínu, ósérhlífinn, kappsamur og einarð- ur, oft þrjóskur og hélt sínu striki hvað sem öðrum þótti. Í fjölmörg ár vann hann erfiðustu verkamannavinnu og vann mikið. Aldrei kvartaði hann eða bar sig illa. Þótti mörgum nóg um hversu harð- ur húsbóndi hann var sjálfum sér. Hann var stöðugt á ferðinni og þeg- ar vinnu lauk tóku stundir með hrossin við eða hjálpsemi við ein- hvern. Fyrir nokkrum árum fékk hann þá hugmynd að koma upp hesthúsum fyrir börn og unglinga og lét ekki sitja við orðin tóm. Þar gerði hann einstaklega vel. Húsin frábærlega vel umgengin og útbúin og þar nutu margir góðrar gestrisni hans og hollráða. Þó Sigurður dveldi ekki við langskólanám voru gáfur hans góðar og engan mann þekki ég sem með líkum hætti lærði tungu- mál og hann. Sú gáfa nýttist honum vel því á síðari árum nam hann leið- sögn og starfaði sem slíkur síðast- liðin sumur hjá SBA-Norðurleið. Margar góðar minningar koma nú upp í hugann og sakna ég þess að eiga ekki von fleiri slíkra stunda með góðum vini. Ófáar voru ferð- irnar að líta á hross í einhverjum girðingum, umræður um hesta á kaffistofunni eða ferðir með hrossa- rekstur fram Eyjafjörð og ekki hvað síst í Sörlastaði í Fnjóskadal. Á þeim gleðistað var gott að vera og áhyggjur heims fjarri. Þar var eilíft sumar í faðmi dalanna sem bera sannarlega mynd jarðneskrar para- dísar. Ég minnist líka gleðistundar í Hálskirkju þegar þau Sigurður og Ulrika Sillus gengu í hjónaband. Hún var hans stóra ást og lífslán. Þó illvígur sjúkdómur sem uppgötvað- ist á vordögum gæfi ekki mikla von um bata var hugur Sigurðar fullur af bjartsýni og lífsþrótti. Enginn má þó sköpum renna, hans tími út- mældur og vegferð lokið í þessu jarðlífi. Guð blessi minningu Sigurðar og styrki Ulriku og aðstandendur alla í sorginni sem aðeins fullvissan um endurfundi eilífðar fær sefað. Allt er sömu örlögum selt. Hið jarðneska hverfur til moldar en sálin og lífs- andinn heldur á vit eilífðarsumars- ins í faðmi Guðs. Arnaldur Bárðarson. Mig langar með nokkrum orðum að minnast vinar míns og vinar okk- ar allra í sveitinni sem við vorum svo heppin að kynnast fyrir nokkr- um árum og höfum á þessum tíma átt margar skemmtilegar og eftir- minnilegar stundir með. Göngur, heyskapur, hestaferðir, spjall um lífið og tilveruna við eldhúsborðið og almennt hestastúss eru fyrstu minn- ingarnar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um hann Sigga okk- ar. Ég hitti Sigga síðast í sveitinni í Hörgárdalnum í sumar þegar við vorum að ljúka við að taka inn síð- ustu vagnana eftir fyrsta slátt. Að þessu sinni hjálpaði hann ekki til við mokstur eins og hann hefði allajafna gert enda orðinn frekar máttfarinn eftir erfið veikindi. Áhugann skorti þó ekki og ef líkaminn hefði ekki verið orðinn svona uppgefinn þá hefði hann verið manna virkastur við verkin. Þess í stað gæddu þau hjónakornin sér á kræsingum hjá mömmu og fylgdust með að allt færi vel fram. Að hafa hann á staðnum hjá okkur og sjá hversu glaður og ánægður hann var með að vera í sveitinni var einstaklega ánægju- legt. Tilhugsunin um þessa stund í sumar hlýjar manni um hjartarætur nú þegar maður þarf að horfast í augu við andlát hans og þá stað- reynd að maður sjái ekki alskeggj- aða vin sinn aftur í sveitinni, glað- beittan og ánægðan. Minningin um yndislegan mann sem gaf okkur svo margt kemur til með að lifa innra með okkur, mann sem alltaf var til þjónustu reiðubúinn og svo góður við okkur systkinin, uppeldisfrænd- ur okkar tvo, börnin í sveitinni og ekki síst við foreldra okkar sem áttu Sigga að sem góðan og traustan vin og félaga. Við eigum öll eftir að sakna þín, elsku Siggi. Elsku Ulrike, við sendum þér og öllum ástvinum Sigga okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd allra í sveitinni þinni, Siggi minn, Árdís Ármannsdóttir. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Nú er lokið þriggja kvölda tví- menningskeppni. Baráttan um fyrsta sætið var mjög jöfn. Röð efstu para var þessi. Oddur Hanness. – Árni Hannesson 828 Björn Arnarss. – Baldur Bjartmarss. 811 Sveinn Ragnarss. – Torfi Sigursson 747 Birgir Kristjánss. – Jón Jóhannsson 746 Örn Einarsson – Björn Árnason 714 Sunnudaginn 28/11 var spilað á 15 borðum. Röð efstu para var þessi. Norður/Suður Oddur Hannesson – Árni Hannesson 291 Björn Arnarsson – Baldur Bjartmars 274 Kristín Andrews – Jón Þ. Karlsson 230 Austur/Vestur Örn Einarsson – Björn Árnason 264 Sveinn Ragnarsson – Torfi Sigursson 257 Karólína Sveinsd. – Sigurjóna Björgvd. 245 Sunnudaginn 5/12 Verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Síðasta spilakvöld fyrir jól er föstudagurinn 10/12. Þá spilum við jólabrids. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14, á sunnudögum klukkan 19. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 26. nóvember var spilað á 18 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S: Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónsson 362 Friðrik Hermannss. – Oddur Halldórss. 335 Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 335 A/V Kristján Þorlákss. – Haukur Guðmss. 381 Örn Ísebarn – Örn Ingólfsson 360 Ásgeir Sölvason – Helgi Sigurðss. 352 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Fatnaður Háaleitisbraut 68 sími 568 4240 Fimleika- fatnaður Fimleika og jazz fatnaður í miklu úrvali Skór, töskur o.m.fl. Ástund dance Minkapels til sölu Af sérstökum ástæðum er til sölu minkapels. Mjög hagstætt verð. Stærð M-L. Upplýs- ingar í síma 843 7811 eftir kl. 17. Gisting Þú átt það skilið að slappa af fyrir jólin! Allar helgar langar í vetur í Minniborgum. Þú færð 3 nætur á verði tveggja. Fyrirtækjahópar, óvissu-hópar, ættarmót. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. www.minniborgir.is Gisting á góðum stað. AKUREYRI Höfum til leigu 50, 85 og 140 m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s. 897- 5300. Sumarhús Laus sumarhús fyrir jólabakst- urinn!!! Næstu helgar fram að jólum eigum við laust fyrir föndur og jóla- bakstur. Helgarverð kr. 18.900. Velkomin í Tungurnar. S. 698 9874, 898 6033, eyjasol@internet.is Til sölu BÚÐU TIL ÞÍN JÓLAKORT Gleðileg jól! Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT DAGATAL JÚLÍ 20 08 Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!!...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT MYNDA- ALBÚM Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Snowex dreifarar Salt- og sanddreifarar til afgreiðslu strax. Ýmsar stærðir. Kynnið ykkur verð og kjör. Visa/Euro. ORKUVER ehf. www.orkuver.is, Smiðjuvegi 11, Kópavogi. Matta rósin og Halastjarnan Ný sending af glösum ofl í Möttu rósinni og Halastjörnunni. Einnig glös í öðrum munstrum. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Verslun Vönduð armbandsúr fyrir dömur og herra Pierre Lannier, 2011 árgerðin af þessum vönduðu og fallegu úrum komin frá Frakklandi. Bæði mekkan- ísk og kvarz úr. ERNA, Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is Óska eftir KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílaþjónusta Hjólbarðar Útsala á 13“ og 14“ dekkjum. Kaldasel ehf., Hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogur, s. 5444333. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Blómaskór. Margir litir. Eitt par 1.200 kr., tvö pör 2000 kr. Ný sending af kínaskóm kr. 1500 Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Labrador Retriever hvolpar. Hreinræktaðir. Ættbókarfærðir HRFÍ. Sprautaðir. Tilbúnir til afhendingar. Upplýsingar í síma 695 9597 og í síma 482 4010 eftir kl. 17.00. Dýrahald Ýmislegt Ökukennsla Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Tilvalin jólagjöf Ný sending af vinsælu hringtreflu- num. Einnig mikið úrval af húfum, treflum, vettlingum, grifflum, hnésokkum og legghlífum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. finnur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.