Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 28
Menning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
Munið að
slökkva á
kertunum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Kerti úr sama
pakka geta brunnið
mismunandi hratt
og á ólíkan hátt
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Bókafélagið Ugla gefur út fjórtán
bækur á þessu ári. Stofnandi og
eigandi Uglu, Jakob F. Ásgeirsson
rithöfundur, segir að mestum tíð-
indum muni að líkindum sæta ný
bók eftir Þór Whitehead prófessor,
Sovét-Ísland – óskalandið. Undirtit-
ill bókarinnar er: Aðdragandi bylt-
ingar sem aldrei varð.
Njósnir og launráð
„Í þessari bók Þórs kemur mjög
margt fram sem ekki hefur verið á
almanna vitorði: njósnir, launráð,
neðanjarðarstarfsemi og skipulögð
ofbeldisverk. Þetta er í fyrsta sinn
sem dregin er upp heildarmynd af
byltingarundirbúningi íslenskra
kommúnista á árunum 1921-1946
og viðbrögðum ríkisins,“ segir Jak-
ob. Hann bætir við að Þór segi
þessa sögu með sínum lifandi hætti
þar sem örlög einstaklinga eru
tvinnuð saman við þjóðarsöguna,
rétt eins og hann geri í bókum sín-
um um Ísland í síðari heimsstyrj-
öld.
Annað stórvirki sem Jakob gefur
út er bók Benedikts páfa XVI. um
mikilvægasta mann mannkynssög-
unnar, Jesús frá Nasaret. Joseph
Ratzinger er einn af fremstu guð-
fræðingum heims og þetta er fyrsta
bókin sem hann skrifar sem páfi.
Tvær bækur eftir Matthías Johann-
essen eru meðal útgáfubóka Uglu:
Kvæðabálkurinn Hrunadansinn, en
bókinni fylgir geisladiskur þar sem
Gunnar Eyjólfsson flytur bálkinn,
og Á vígvelli siðmenningar, sem
fjallar um upplausnina hér á Ís-
landi á fyrsta áratug 21. aldar.
Ensk klassík og spenna
Jakob gefur út eitt af meist-
araverkum enskra bókmennta á 19.
öld, Silas Marner eftir George Eliot
í þýðingu Atla Magnússonar. Einn-
ig kemur út á hans vegum rómuð
spennusaga, Pompei, eftir enska
höfundinn Robert Harris. Sagan
gerist á dögunum áður en eldgosið í
Vesúvíusi lagði Pompei og nágrenni
í rúst. Myrkraverk á Style-setri er
fyrsta bók Agöthu Christie en hún
kemur út í þýðingu Elíasar Marar
sem las söguna í útvarp á sínum
tíma.
Í bókinni Ranghugmynd Rich-
ards Dawkins eftir Alister McGrath
er tekist á við guðleysishugmyndir í
samtímanum. Endurútgáfa á skáld-
sögunni Pantaljón og sérþjónustan
eftir nýja nóbelsverðlaunahafann í
bókmenntum Mario Vargas Llosa
kemur á markað sama dag og höf-
undurinn tekur við verðlaununum
10. desember.
Adda og leit að hamingju
Leitin að sannri hamingju kemur
við sögu í Týndu rósinni, al-
þjóðlegri metsölubók eftir tyrk-
neska höfundinn Serdar Özkan.
Gunnar Dal segir frá Maríusýnum
á 20. öld í bókinni Leyndardómur
Maríu. Þá kemur út síðasta bókin í
Bartemæusar-þríleiknum eftir Jo-
nathan Stroud sem hefur notið
mikilla vinsælda erlendis, Hliðgátt
Ptólemeusar. Skáldsaga Christinu
Sunley, Freyjuginning, kemur einn-
ig út í kilju, en hún fjallar um fólk
af íslensku bergi brotið vestanhafs
sem leitar uppruna síns hér á landi.
Loks er að nefna að Ugla heldur
áfram að endurútgefa hinar sí-
vinsælu Öddubækur eftir Jennu og
Hreiðar með þriðju bókinni, Adda
lærir að synda.
Morgunblaðið/Kristinn
14 bækur Jakob F. Ásgeirsson gefur út fjórtán bækur í ár og þar er margt forvitnilegt að finna.
Þór Whitehead, páfi og
nýr nóbelsverðlaunahafi
Meðal nýrra höfunda Bókafélagsins Uglu
„Við flytjum mestmegnis jólalög af
léttara taginu,“ segir Snorri Wium
tenórsöngvari en þau Antónía Hevesi
píanóleikari koma fram á hádegistón-
leikum í Hafnarborg á morgun,
fimmtudaginn 2. desember. Tónleik-
arnir taka svip af aðventunni og er
boðað að búast megi við hátíðlegri
stund á tónleikunum sem standa yfir í
um hálfa klukkustund.
„Þetta verða í bland klassísk lög
tengd þessum tíma árs og amerísk
jólalög. Hvað er betra en að ganga út í
daginn eftir að hafa hlustað á „Have
Yourself a Merry Little Christmas“?“
spyr Snorri og vitnar í jólalagið banda-
ríska.
Aðgangur að tónleikunum er ókeyp-
is en Rio Tintio Alcan er bakhjarl
þeirra.
Snorri hefur sungið í óperuhúsum
víða um Evrópu auk þess sem hann
hefur tekið þátt í uppfærslum Íslensku
óperunnar og sungið á fjölda tónleika,
meðal annars sem einn af Tenórunum
þremur á hátíðartónleikunum Tenór-
arnir þrír í Háskólabíói í janúar 2010.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flytja jólalög Antonía Hevesi og Snorri Wium á æfingu í vikunni.
Jólalög á hádegistónleikum