Morgunblaðið - 01.12.2010, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
BRUCE WILLIS,
MORGAN
FREEMAN,
JOHN MALKO-
VICH OG HELEN
MIRREN ERU
STÓRKOSTLEG Í
ÞESSARI ÓTRÚLEGA
SKEMMTILEGU GRÍN
HASARMYND
HHHH
- HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
- MOVIELINE
HHHH
- NEW YORK POST
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI
ROBERT
DOWNEY JR.
OG ZACH
GALIFIANAKIS
EIGA EFTIR AÐ
FÁ ÞIG TIL AÐ
GRENJA ÚR
HLÁTRI FRÁ TODD PHILIPS,
LEIKSTJÓRA THE HANGOVER
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í EGILSHÖLL
„HELDUR
ATHYGLI
MANNS FRÁ
UPPHAFI TIL
ENDA”
- MORGUNBLAÐIÐ
„HELVÍTI
HRESSANDI“
- ERPUR
EYVINDARSSON
HHHHH
- PRESSAN
HHHH
- FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA
HHHH
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- H.S. MBL
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
Í BEINNI ÚTSENDINGU FRÁ
NATIONAL THEATER 9. DES KL. 19.00
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
MIÐASALA Á
WWW.SAMBIO.IS
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMATHE JONSES kl. 5:50 - 8 - 10:10 10
HARRY POTTER and the Deathly Hallows kl. 5:30 - 8:30 10
DUE DATE kl. 8 - 10:20 10
THE SWITCH kl. 5:50 10
/ KRINGLUNNI
HARRY POTTER kl. 6 - 9 10
DUE DATE kl. 6 - 8 10
RED kl. 10:10 12
/ AKUREYRI
SNILLDAR GAMANMYND
8 lítrar
Coca -
Cola
og 1 DV
D
ódýrt og gott
8 lítrar Coca Cola
og 1 DVD
1198kr.pk.
Sambíóin frumsýna í dag kvik-
myndina The Joneses. Í myndinni
segir af Jones-fyrirmyndarfjöl-
skyldunni, Steve og Kate Jones og
börnum þeirra tveimur á tánings-
aldri, Jenn og Mick. Fjölskyldan
flytur í nýtt og fínt hverfi í upp-
hafi myndar en fljótlega kemur í
ljós að hér er ekki um raunveru-
lega fjölskyldu að ræða heldur
starfsmenn markaðsfyrirtækis sem
hafa það að markmiði að fá ná-
granna sína og íbúa hverfisins
aðra til að kaupa hinar ýmsu
vörur og þjónustu. Þetta gengur
vel hjá „fjölskyldunni“ í fyrstu, ná-
grannarnir keppast við að lifa í
sömu vellystingum og Jones-
fjölskyldan en óvæntur atburður í
hverfinu setur strik í reikninginn.
Leikstjóri er Derrick Borte og
með aðalhlutverk fara David Duc-
hovny, Demi Moore, Amber Heard
og Ben Hollingsworth.
Metacritic: 55/100
Variety: 50/100
Frumsýning
Engin fyrirmyndarfjölskylda
Blekkingar David Duchovny og Demi Moore þykjast vera hjón í The Joneses.
Maxímús Músíkús trítlar í tón-
listarskólann
Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn
Már Baldursson
Forlagið
bbbbb
Höfundurinn Hallfríður og teikn-
arinn Þórarinn eru bæði hljóðfæra-
leikarar í Sinfón-
íuhljómsveit
Íslands. Fyrir
tveimur árum kom
út fyrsta bókin um
Maxímús Músíkús,
litla mús sem ratar
inn á æfingu hjá
Sinfóníuhljómsveit-
inni og kynnist þar töfrum tónlistar-
innar. Nú er komin út önnur bók um
Maxímús og í þetta sinn trítlar hann í
tónlistarskóla. Líkt og í fyrra skiptið
fylgir geisladiskur með bókinni en á
honum má heyra upptöku af tón-
leikum sem Sinfóníuhljómsveitin hef-
ur haldið þar sem sagan er lesin af
Val Frey Einarssyni. Sinfón-
íuhljómsveitin leikur svo ýmiskonar
tónlist sem styður söguna.
Það er skemmst frá því að segja að
bókin og diskurinn eru miklir gæða-
gripir. Sagan er stórskemmtileg,
sögð frá sjónarhóli músarinnar, sem
þvælist um og lendir í ýmsum æv-
intýrum.
Maxímús er algjört yfirkrútt, hvort
sem hann dansar, læðist á tánum, sit-
ur á strokleðri eða reiðist Svartþrest-
inum félaga sínum. Þórarinn gæðir
hann lífi í teikningum sínum sem eru
afar vel heppnaðar.
Bókin er fræðandi um heim hljóð-
færa og tónlistar og gerist í ramm-
íslenskum raunveruleika. Frábært
framtak hjá þeim Hallfríði og Þórarni
sem gerir starfsemi Sinfón-
íuhljómsveitarinnar enn aðgengilegri
unga fólkinu. Svo er gaman að bjóða
Maxímús velkominn í hóp eft-
irminnilegra söguhetja í bókmennta-
sögunni.
Kvöldsögur Disney
Þýðandi: Helga Soffía
Einarsdóttir
Edda
bb mnn
Í bókinni Kvöldsögur má finna 19
sögur af góðkunningjum barnanna
úr Disney-fabrikkunni margrómuðu.
Undir vörumerki
Disney hafa ver-
ið framleiddar
ótal margar
gæða-teikni-
myndir sem
margir geta ver-
ið sammála um
að eru með því
besta sem gengur og gerist í kvik-
myndaheiminum. Nægir að nefna
Leitina að Nemó, Mjallhvíti og
dvergana sjö og Ratatouille máli
sínu til stuðnings. Í teiknimynd-
unum hefur verið kynnt til sögunnar
spennandi sögusvið og enn skemmti-
legri karakterar svo sjálfsögð viðbót
er bók sem fjallar um frekari æv-
intýri góðkunningja á borð við Gosa,
Hefðarkettina, Dúmbó og Bang-
símon.
Kvöldsögur eru upp til hópa
skemmtilegar sögur fyrir svefninn,
þó þær flokkist kannski seint undir
tímamóta bókmenntaverk. Þær eru
passlega langar og með mjög fal-
legum myndum, eins og við var að
búast. Eðlilegt er að börnum þyki
gaman að lesa enn meira um persón-
ur sem þeim eru kunnugar frá öðrum
vettvangi.
Stingur þá í stúf sagan Ratatou-
ille, sem er hrein endursögn á sögu-
þræði þeirrar teiknimyndar. Saga
með allt of mörgum persónum og
óskýrum söguþræði á 14 blaðsíðum.
Það hefði verið mun meira gaman að
fylgjast með rottunni Remý fást við
önnur verkefni en þau sem okkur
voru áður kunn. Annars eru Kvöld-
sögur prýðis kvöldskemmtun fyrir
sanna teiknimyndaunnendur.
Með á nótunum 2
Hrafnhildur Sigurðardóttir tók
saman. Sigríður Ásdís Jón-
asdóttir myndskreytti. Sigrún
Andrésdóttir sá um nótnaskrift.
JPV útgáfa
bbbnn
Eins og titillinn á bókinni afhjúpar
er um að ræða aðra bók Hrafnhildar
Sigurðardóttur þar sem hún tekur
saman vísur og
þulur sem eiga það
sameiginlegt að
hægt er að syngja
þær með hreyf-
ingum.
Að syngja með
börnum hlýtur að
flokkast undir
skemmtilega samverustund og því
stórfínt að hafa við höndina bók með
textum, nótum og uppskrift að hreyf-
ingum með lögunum. Bókinni fylgir
diskur þar sem lögin eru flutt og
hjálpar það þeim sem ekki þekkja öll
lögin í bókinni.
Eins eru nóturnar við lögin með-
fylgjandi í bókinni, sem kemur sér af-
ar vel fyrir heimili og skóla þar sem
spilandi einstaklingur er fyrir hendi.
Þetta er því afar gott framtak hjá
Hrafnhildi og félögum.
Vísurnar í bókinni eru alls 58,
margir góðkunningjar þar á meðal
eins og Gamli Nói, Meistari Jakob og
Maðurinn með hattinn.
Teikningarnar í bókinni eru ágæt-
ar, margar skemmtilega útfærðar til
að dýpka skilning yngstu lesenda á
efni laganna.
Barnabækur
Birta Björnsdóttir
birta@mbl.is
Yfirlit yfir nýútkomnar barnabækur,
íslenskar og þýddar
Maxímús Músíkús Músin sjálf ásamt sögumanninum Vali Frey á tónleikum.