Morgunblaðið - 01.12.2010, Side 36
„Töluvert er til af heimildum um
dvöl Marlene hér á landi, en við
viljum gjarnan fá fleiri myndir af
henni hér á landi og komast í sam-
band við fólk sem hitti hana eða
var í einhverjum tengslum við fólk
sem hún var með hér á landi.
Núna, þessum áratugum frá stríðs-
lokum, eru Þjóðverjar algerlega
tilbúnir að lesa um það sem raun-
verulega gerðist í stríðinu og ekki
síður um Marlene Dietrich,“ segir
Óttar.
Óttar segir að Marlene hafi ver-
ið hér á landi til að skemmta her-
mönnum í Reykjavík í september
1944, á sama tíma og Goðafoss
lagði úr höfn í Reykjavík í sína
hinstu för til New York.
Vilja vita meira um Marlene
Árásin á
Goðafoss kemur
út í Þýskalandi
með nýju efni
Ljósmynd/Samuel Kadorian
Í Trípólíbíói Marlene Dietrich heilsar Sveini Björnssyni forseta eftir skemmtun sína í Trípólíbíói um miðjan sept-
ember 1944. Um borð í Goðafossi þegar hann var skotinn niður við Garðskaga var nýr forsetabíll af Packard-gerð.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Með árunum hafa viðhorf Þjóð-
verja til Marlene Dietrich breyst
og sömuleiðis til kvikmynda og
frásagna um það sem raunverulega
gerðist í seinni heimsstyrjöldinni.
Bók Óttars Sveinssonar Útkall –
árás á Goðafoss verður gefin út í
Þýskalandi næsta sumar og þar
verður hinni þýsk-bandarísku
Hollywood-goðsögn Marlene Diet-
rich gert hærra undir höfði en
gert var í íslensku útgáfunni árið
2003.
„Ég gerði samning um útgáfu
sögunnar um síðustu ferð Goðafoss
hinn 17. júní í sumar og bókin
kemur út í Þýskalandi í ágústmán-
uði,“ segir Óttar Sveinsson. „Þjóð-
verjar hrífast af þessari sögu og
ekki síst upplýsingum um dvöl
Marlene Dietrich hér á landi. Þjóð-
verjar beinlínis kalla eftir meiri
upplýsingum um dvöl hennar hér.“
Skemmti hermönnum
Í nýju útgáfunni verður lögð
meiri áhersla á leik- og söngkon-
una heimsfrægu, sem fæddist í
Þýskalandi, en varð bandarískur
ríkisborgari árið 1939. Útgefendur
bókarinnar koma hingað til lands á
næstunni og framundan er að taka
fleiri viðtöl sem tengjast Goðafossi
og Marlene Dietrich.
Þýskur kafbátur gerði árás á
Goðafoss 10. nóvember 1944 þegar
hann átti eftir um tveggja
klukkustunda siglingu til
Reykjavíkur. Um borð
voru 43 Íslendingar og 20
Bretar sem hálftíma áður
hafði verið bjargað af
logandi olíuflutningaskipi.
Skipið sökk á sjö mínútum,
19 Íslendingar björg-
uðust og tveir Bret-
ar.
Í Íslandsferðinni hitti leik- og söngkonan heimsfræga meðal annars
Svein Björnsson forseta, var í viðtölum við blöðin og eitt kvöldið var
henni boðið á heimili Þormar-hjónanna við Hringbraut þar sem hún þáði
meðal annars rabarbaravín og þótti gott, samkvæmt því sem fram
kemur í kvikmynd Jóns Ársæls Þórðarsonar og Björns Brynjúlfs
Björnssonar sem sýnd var á RÚV um hátíðarnar í fyrra.
Sigríður Þormar, dóttir hjónanna, fórst við Garðskaga þegar skipið
var að koma heim frá New York og var skotið niður. Hún lærbrotnaði í
árás Þjóðverja á Goðafoss, en komst á kjöl björgunarbáts. Björg-
unarskip kom nokkru síðar á vettvang en rakst á björg-
unarbátinn og féll Sigríður í sjóinn og drukknaði.
Rabarbaravín á Hringbrautinni
HITTI FJÖLDA FÓLKS Í ÍSLANDSFERÐINNI
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 335. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. 25 kjörin á stjórnlagaþing
2. Ætlaði að kaupa hús á Íslandi
3. Ólafur kominn af gjörgæsludeild
4. Lifði á kartöflum einum saman
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ljóðalestur verður á nýja sviðinu á
fimmtudag kl. 20. Hjalti Rögnvalds-
son leikari les þýðingar Sölva Björns
Sigurðssonar á ljóðum 19. aldar
skáldanna Johns Keats og Arthurs
Rimbauds.
Morgunblaðið/Ómar
Borgarleikhúsið
með ljóðalestur
Í dag hefst um-
fangsmikið tón-
leikaferðalag
Frostrósa um
landið. Fram-
undan eru 29 tón-
leikar vítt og
breitt um landið
og verða þeir
seinustu utan
Reykjavíkur haldnir 18. desember á
Akureyri. Fyrstu tónleikarnir verða
haldnir í dag í Ólafsvík, í félagsheim-
ilinu Klifi, kl. 20.
Frostrósir halda
í tónleikaferð
Píanóleikarinn Gunnar Gunnarsson
heldur tónleika annað kvöld kl. 21 í
Þjóðmenningarhúsinu, ásamt Tómasi
R. Einarssyni bassaleikara og Ómari
Guðjónssyni gítarleikara, í
tilefni af útkomu nýj-
ustu hljómplötu sinn-
ar, Gnótt.
Gunnar hefur áð-
ur sent frá sér
hljómplöt-
urnar Skálm,
Stef, Des,
Húm og Hrím.
Útgáfutónleikar í
Þjóðmenningarhúsi
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 5-13 m/s og dálítil rigning með köflum um
vestanvert landið í kvöld, en þykknar upp austan til. Hiti 0 til 6 stig.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Hauka
fögnuðu níu marka sigri
gegn erkifjendum sínum í
uppgjöri Hafnarfjarðarlið-
anna í N1-deildinni í
handbolta í gærkvöldi. Vel
á þriðja þúsund manns
lögðu leið sína í Kapla-
krika og sáu Haukana
leika granna
sína grátt.
Liðin eru nú
jöfn að
stigum. »3
Haukar léku FH
grátt í Krikanum
Júlíus Jónasson, þjálfari kvenna-
landsliðsins í handknattleik, tilkynnti
í gær hvaða 16 leikmenn lékju fyrir
hönd Íslands í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins sem hefst í Danmörku í
næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem
Ísland tekur þátt í stórmóti og er
spennan mikil hjá leikmönnum
íslenska liðsins. »2
Júlíus tilbúinn með
hópinn sem leikur á EM
West Ham, sem situr á botni
ensku úrvalsdeildarinnar, tók
Manchester United heldur
betur í karphúsið þegar liðin
áttust við í ensku deildabik-
arkeppninni. West Ham fagn-
aði 4:0-sigri og varð þar með
fyrst allra liða til að leggja
Manchester-liðið að velli á
þessari leiktíð. »3
United fékk skell
gegn West Ham
ÍÞRÓTTIR
VEÐUR » 8 www.mbl.is
Á fimmtudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri vestan til en dálítil él
eystra og við suðausturströndina. Hiti 0 til 6 stig. Vægt frost eystra en fer kólnandi.
Á föstudag Norðan 8-13 m/s og él við austurströndina, en annars hægari og yfir-
leitt léttskýjað. Frost 1 til 10 stig, en um frostmark við suður- og vesturströndina.