Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010 Sudoku Frumstig 6 4 2 7 1 6 2 8 7 3 6 2 3 8 4 9 7 9 3 7 8 2 4 2 9 3 1 9 7 8 4 5 4 1 2 3 5 1 3 8 1 7 4 8 7 9 5 1 5 2 7 4 3 1 9 8 1 5 6 3 2 4 8 3 5 9 6 6 3 4 2 2 8 6 9 4 7 5 1 3 6 4 9 8 2 3 9 2 1 5 8 4 7 6 4 6 8 7 9 2 5 3 1 6 2 4 5 1 3 8 9 7 8 3 9 6 4 7 2 1 5 5 1 7 2 8 9 3 6 4 9 7 5 8 2 6 1 4 3 2 4 3 9 7 1 6 5 8 1 8 6 4 3 5 7 2 9 4 3 5 6 2 7 8 9 1 1 2 7 8 9 3 6 4 5 9 6 8 1 4 5 7 3 2 3 8 4 5 6 9 2 1 7 5 9 2 7 1 4 3 8 6 7 1 6 2 3 8 4 5 9 8 5 1 3 7 6 9 2 4 2 7 9 4 8 1 5 6 3 6 4 3 9 5 2 1 7 8 1 7 8 6 9 5 3 2 4 5 9 4 3 2 7 6 8 1 2 3 6 8 4 1 7 9 5 3 8 5 2 7 4 9 1 6 6 2 9 5 1 3 8 4 7 4 1 7 9 8 6 2 5 3 8 4 1 7 6 2 5 3 9 9 6 3 1 5 8 4 7 2 7 5 2 4 3 9 1 6 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 10. desember, 344. dagur ársins 2010 Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jobsbók 36, 15.) Litla flugan er góð, en það er gullsígildi að eiga jólavin, ekki síst á tímum gjaldeyrishafta. Að því komst Víkverji fyrir helgi. Í augum Víkverja er jólavinur rétt eins og guðfaðir eða guðmóðir, frændi eða frænka, afi eða amma. Einhver sem gefur manni eitt- hvað sem engum öðrum dettur í hug að gefa. x x x Víkverji hefur ferðast víða en aldr-ei komið til Afríku. Samt sem áður er hann kominn með annan fót- inn í álfuna, þökk sé jólavininum. Þannig er mál með vexti að Víkverji tók þátt í jólaleik og jólavinur Vík- verja gaf, fyrir hans hönd, fjórar hænur til fjölskyldu í Afríku. Hæn- urnar heita allar Jóhanna Sigurðar- dóttir og á gjafabréfinu kom fram að þær ættu eftir að reynast fjölskyldu nokkurri þarna suður frá vel í fátækt- inni. Væntanlega eiga þær eftir að verpa gulleggjum, fjölskyldan á eftir að vaxa og dafna og að því kemur að hún vill fá að sjá góðgerðarmanninn, sem gaf þeim hænurnar fjórar sem allar heita Jóhanna Sigurðardóttir. x x x Fjölskyldan fátæka getur auðvitaðekki staðið í því að bjóða alls ókunnugum manni til Afríku og þá kemur að jólavininum. Hann verður auðvitað að fylgja gjöfinni eftir að ári og Víkverji hefur á tilfinningunni að hann sé þegar byrjaður að leggja fyr- ir þúsundkall á dag til að geta styrkt Víkverja til fararinnar. Víkverji gerir þá fastlega ráð fyrir að fá að minnsta kosti eitt gullegg frá einni hænunni sem heitir Jóhanna Sigurðardóttir og fari svo mun hann færa jólavininum það við heimkomuna og loka þannig hænuhringnum. x x x Ámeðan Víkverji lætur hugannreika um komandi ferðalag verður honum hugsað til Fúsa og Litlu flugunnar, en perlur Sigfúsar Halldórssonar verða einmitt fluttar undir stjórn Björns Thoroddsens í Salnum í Kópavogi í kvöld og þar verður gott að vera og láta sig dreyma um hænur og gullegg. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ergileg, 8 útlimir, 9 gömul, 10 fóstur, 11 fiskur, 13 undin, 15 foraðs, 18 alda, 21 hár, 22 sori, 23 árafjöldi, 24 spaugsama. Lóðrétt | 2 úldna, 3 kremja, 4 sælu, 5 fuglar, 6 eldstæðis, 7 flanið, 12 veðurfar, 14 for- feður, 15 mann, 16 skyld- mennin, 17 gösla í vatni, 18 æki, 19 draugum, 20 ögn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fákæn, 4 fagna, 7 linir, 8 svört, 9 alt, 11 næra, 13 anar, 14 uggar, 15 harm, 17 grút, 20 emm, 22 mælum, 23 elgur, 24 romsa, 25 naska. Lóðrétt: 1 fælin, 2 konur, 3 nýra, 4 fúst, 5 grönn, 6 aktar, 10 lug- um, 12 aum, 13 arg, 15 hamar, 16 rólum, 18 regns, 19 terta, 20 emja, 21 mein. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. c3 Bd7 6. d4 g6 7. 0-0 Bg7 8. dxe5 dxe5 9. Be3 Rf6 10. Rbd2 De7 11. b4 b6 12. Bb3 0-0 13. Dc2 h6 14. Rc4 Be6 15. a4 Rd7 16. a5 b5 17. Rcd2 Rd8 18. Re1 c5 19. bxc5 Rxc5 20. Bxc5 Dxc5 21. Rd3 Dc7 22. Rb4 Rc6 23. Rd5 Bxd5 24. exd5 Re7 25. c4 Rf5 26. Da2 Rd4 27. cxb5 axb5 28. Re4 Rxb3 29. Dxb3 f5 30. Hac1 Df7 31. Rc5 Hfc8 32. Re6 Dd7 33. Hc6 Bf6 34. Hfc1 e4 35. Rc7 Hxa5 36. Hxf6 Hxc7 37. d6+ Hc4 38. Hxc4 bxc4 39. Dc3 Hd5 40. Dxc4 Staðan kom upp á millisvæðamótinu í Portoroz í Slóveníu árið 1958. Friðrik Ólafsson hafði svart gegn heimamann- inum Svetozar Gligoric. 40. … Dc6! 41. Df1 Dc2 og hvítur gafst upp. Friðrik lenti í 5.-6. sæti á mótinu ásamt Bobby Fischer og dugði það þeim báðum til að tryggja sér þátttökurétt í áskorendamótinu sem haldið var ári síðar. Mikhail Tal vann það mót og lagði síðan Botvinnik að velli í heimsmeistaraeinvígi sem haldið var árið 1960. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Harðir mótherjar. Norður ♠10 ♥7 ♦ÁD97653 ♣ÁG96 Vestur Austur ♠865432 ♠KG ♥KD632 ♥G10 ♦-- ♦KG84 ♣K5 ♣108742 Suður ♠ÁD97 ♥Á9854 ♦102 ♣D3 Suður spilar 3G. Ástralinn Peter Gill tók þátt í haustleikunum í Orlando. Þótt Gill sé daglegur gestur á Bridgebase og þekki þar alla stórmeistara með nafni, hefur hann, fjarlægðarinnar vegna, ekki setið til borðs með mörg- um þeirra. Suma þekkir hann af myndum, aðra alls ekki. Gill fékk út spaða. Keppnisformið var board-a-match, eins konar holu- keppni, þar sem spil vinnst, tapast eða fellur. Gill lét ♦10 rúlla yfir í öðr- um slag. Austur dúkkaði. Af myndum að dæma þóttist Gill þekkja þar Ítal- ann Antony Sementa – „besta spilara veraldar“ að mati Garozzo. Nú jæja. Gill renndi tígli aftur til austurs, sem nú tók á gosann og spilaði spaða. Gill drap, gaut augunum á vestur, en kannaðist ekki við kauða. Spilaði síð- an lúmskur ♣3 að blindum, en vestur flaug upp með kónginn! Einn niður. 10. desember 1924 Rauði kross Íslands var stofn- aður í Reykjavík. Fyrsti for- maðurinn var Sveinn Björns- son, síðar forseti Íslands. 10. desember 1932 Bókin „Jólin koma, kvæði handa börnum,“ eftir Jóhann- es úr Kötlum með teikningum Tryggva Magnússonar, kom út. „Gamlar sagnir í nýjum búningi,“ sagði í Morgun- blaðinu. Bókin hefur verið gef- in út oftar en tuttugu sinnum. 10. desember 1933 „Íslensk fyndni“ eftir Gunnar Sigurðsson frá Selalæk kom út, „150 skopsögur með mynd- um“. Í ritdómi í Morgun- blaðinu var sagt að þetta væri „hrein nýjung í bókmenntum okkar“ og að sögurnar væru „allar stuttar og flestar snjall- ar“. Tíu dögum eftir að bókin kom út var upplagið á þrotum. Á þriðja tug hefta kom út í þessum bókaflokki. 10. desember 1982 Íslendingar skrifuðu undir hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, ásamt fulltrúum 119 annarra þjóða. Setning slíks sáttmála hafði verið baráttu- mál þjóðarinnar í 35 ár. Hann öðlaðist gildi 1994. 10. desember 2005 Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, 21 árs laganemi, var kjörin Ungfrú heimur. Keppnin fór fram í Sanya í Kína og var henni sjónvarpað um allan heim. Þrisvar áður höfðu Ís- lendingar eignast alheimsfeg- urðardrottningu, 1963, 1985 og 1988. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Séra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, er sextugur í dag. Af því tilefni heldur Reykholtskór- inn tónleika honum til heiðurs. Er það í annað sinn sem afmæli Geirs er fagnað með þessum hætti því þegar hann var fimmtugur var einnig blásið til tónleika. „Þetta er voðalega notalegt,“ segir Geir. „Fólkið veit hvað mér finnst gaman að söngnum þeirra því þetta er virkilega gott söngfólk og hef- ur lengi verið í Borgarfirði.“ Sjálfur segist Geir hinsvegar ekki vera mikill söngmaður. „Nei ég kann ekkert að syngja, en þetta er dálítið sér- kennilegt því fyrstu messuna mína á ævinni sem prestur söng ég 10. desember 1978 í Reykholtskirkjunni gömlu, þegar ég varð 28 ára. Það var mín frumraun.“ Síðan eru liðin 32 ár og enn er kirkjan vettvangur söngs á afmælisdegi Geirs. Aðspurður hvernig tímamótin leggist í hann segir hann þetta kannski stærsta afmælið hingað til, a.m.k. samkvæmt bókum Rómverja. „Þeir töldu æskuskeið til þrítugs, þá tók við manndómsskeið og loks ellin um sextugt. Þannig að ég er kominn í elli, en það á að vera besta skeið ævinnar.“ Tónleik- arnir í Reykholtskirkju hefjast kl. 20:30 og eru allir velkomnir. Að þeim loknum verður boðið upp á veitingar í safnaðarsal. Séra Geir Waage sextugur Reykholtskórinn syngur Flóðogfjara Byggt á upplýsingum frá Veð Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Ve Reykjavík 7 súld Lúxemborg -1 snjóél Algarve 21 hei Bolungarvík 7 skýjað Brussel 2 skýjað Madríd 12 létt Akureyri 9 skýjað Dublin 2 skýjað Barcelona 13 ský Egilsstaðir 7 léttskýjað Glasgow 3 skýjað Mallorca 16 létt Kirkjubæjarkl. 1 skýjað London 3 léttskýjað Róm 15 létt (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Skemmtanalífið þitt er frekar form- legt þessa dagana. Það gæti þó breyst er líða tekur á mánuðinn. Ekki gera neitt sem þú gætir séð eftir seinna meir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Dagdraumar geta verið skemmtilegir en best er þó að sinna sínu í raunveruleik- anum og uppskera þar árangur. Nýttu þér þetta og hugaðu að því sem skiptir máli. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Farðu í skemmtiferð eða nýttu þér kvikmyndir, myndbönd og íþróttir til að gera daginn ánægjulegan. Einbeittu þér að því sem þér líkar í fari fólks. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Mögulegt er að þú kaupir einhvern listrænan, óvenjulegan eða nútímalegan hlut fyrir heimilið í dag. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Hristu af þér alla hræðslu og helltu þér í það sem þig langar mest að gera. Losaðu þig við óþarfa skuldbindingar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú verður að leggja af allan ving- ulshátt ef þú ætlar að ná takmarki þínu. Komdu böndum á peningamálin og fáðu rétta mynd af ástandinu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú vilt gjarnan halda í gamla hluti. Sköp- unargáfa þín og leikni þín með börn verða vel metin í umhverfi sem er vanalega ófrjótt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það eru um það bil hundrað ástæður fyrir því að þú getur ekki fengið það sem þú vilt. Heimurinn ferst ekki þótt þú sért ekki við stjórnvölinn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það hefur komið í þinn hlut að tala fyrir þeim sjónarmiðum sem eiga að ráða á vinnustaðnum. Fólk tekur mikið mark á ráð- um þínum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Stórbrotin áætlun er að verða að veruleika. Metnaður er góður og því vilja margir njóta félagsskapar þíns. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er engin skoðun svo skotheld að hún geti ekki breyst vegna nýrrar vitn- eskju eða einhvers annars. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Hafðu samband við þá sem skulda þér peninga eða hafa enn ekki skilað hlutum sem eru í þinni eigu. Breytingar (og átök) verða til góðs þó erfitt sé að sjá það sem stendur. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.