Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010 Í síðustu viku var nýr íþrótta- og sjúkraþjálfunarsalur formlega opn- aður í húsnæði iðjuþjálfunar á 31C í geðdeildarhúsinu við Hringbraut. Tækjabúnaðurinn var keyptur fyrir einnar milljónar króna gjöf Acta- vis, auk þess sem uppbygging salar- ins naut góðvildar nokkurra fleiri fyrirtækja. Tveir íþróttafræðingar völdu tækin og settu upp salinn. Heilsueflingarátak hefur lengi ver- ið á óskalista sjúklinga og starfs- manna geðsviðs og stuðningurinn var því kærkominn. Nýr íþróttasalur Þann 14. desember nk. verða liðin 100 ár frá því að fyrsta eintakið af dagblaðinu Vísi kom út. Af því til- efni efnir DV til afmælisfagnaðar á Ingólfstorgi á morgun, laugardag. Hefst fagnaðurinn kl. 15 og er gert ráð fyrir að hann standi til kl. 17. Meðal skemmtiatriða er leikhópur- inn Lotta, Bubbi Morthens, Fjalla- bræður og Bjartmar og Bergris- arnir. Kynnir verður Dr. Gunni. Boðið verður upp á malt og appels- ín, mandarínur og Nóa-konfekt á meðan birgðir endast. Afmæli Vísis fagnað á Ingólfstorgi Á morgun, laugardag, verður vinnustofan við Mánagötu 1 í Kefla- vík opin fyrir gesti, en í ár eru ein- mitt 15 ár frá því að listakonan Sossa opnaði fyrst vinnustofu sína fyrir gesti í upphafi aðventunnar. Af því tilefni munu þeir Jón Rafns- son og Björn Thoroddsen spila fyrir gesti og gangandi. Opið hjá Sossu STUTT Íslandsdeild Am- nesty Inter- national tekur nú í sjöunda sinn þátt í alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty Inter- national sem fram fer í meira en 60 löndum víða um heim. Laugardaginn 11. desember fer maraþonið fram á skrifstofu deild- arinnar að Þingholtsstræti 27, 3. hæð. Allir velkomnir. Hljómsveitin Varsjárbandalagið kemur fram á hátíðinni. Fólki gefst kostur á leggja þolendum mann- réttindabrota lið. Í ár er sjónum beint að sex einstaklingum sem þurfa allir á stuðningi að halda. Bréfamaraþon Amnesty á morgun Hvernig líður starfsfólkinu þínu í vinnunni? VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Virðing Réttlæti Öll fyrirtæki geta tekið þátt í könnun VR, Fyrirtæki ársins. Stjórnendur þeirra geta svo nýtt sér niðurstöðurnar og fengið skýra mynd af aðbúnaði og ánægju starfsfólksins. Þessar upplýsingar koma sér vel í daglegum rekstri. Það er því allra hagur að sem flestir segi hvað þeim finnst. Hvetjum samstarfsfólk okkar til að taka þátt í könnuninni! Athugið að skila þarf inn þátttökulistum í síðasta lagi 6. janúar 2011. Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðu VR, www.vr.is, eða með því að senda póst á vr@vr.is Fyrirtæki ársins 2011 „Það bilaði steypustöð sem er hér í Vík. Sel- foss er næstur en við vorum í rauninni fljótari að fá steypuna frá Eyjum,“ sagði Guðmundur Jón Viðarsson frá Skálakoti undir Eyjafjöll- um. Hann var í gær að steypa í Vík í Mýrdal. Verið er að breyta gömlu húsi til að stækka Hótel Lunda um 12 herbergi. Guðmundur er bóndi og einn þeirra sem eiga og reka hótelið. Tveir steypubílar komu með steypuna í Landeyjahöfn í gær og óku austur í Mýrdal. Guðmundur taldi að það kæmi ekkert síður út peningalega að sækja steypuna til Eyja en Sel- foss. Hann taldi víst að þetta væri í fyrsta sinn sem steypa væri flutt úr Vestmannaeyjum til lands. „Ef höfnin helst opin er þetta ekkert vandamál,“ sagði Guðmundur. „Bíllinn bara keyrir um borð og 30 mínútum seinna er hann kominn á fastalandið.“ Guðmundur sagðist eiga eftir að steypa oft í vetur. Hann sagði það koma vel til greina að kaupa steypu frá Vestmannaeyjum í allan vet- ur. Steypan var hífð upp í sílóum og síðan látin renna niður um trekt í gegnum göt á þakinu. „Ég steypi hótelið í hólf og gólf. Ég á eftir að rífa þak hér ofan af, steypa milliplötu og átta herbergi þar ofan á. Nú er ég að steypa her- bergjaveggi inni í gamalli trésmiðju og nota mér þakið ef það fer að verða snjór eða eitt- hvað. Ég ríf þakið bara seinna þegar að því kemur,“ sagði Guðmundur. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Steypa Tveir steypubílar komu með steypuna frá Vestmannaeyjum til Víkur í Mýrdal. Steypan kom úr Eyjum  Unnið er að stækkun Hótel Lunda í Vík í Mýrdal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.