Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 27
Vísnahorn
Árni Björnsson sendi Vísna-horninu kveðju í gær:
„Ég fékk vikuskammtinn af
Mbl. í fyrradag og rak í Vísna-
horninu augun í gamla rímþraut
eftir Jón minn Rafnsson. Þar var
nokkur orðamunur frá því sem
hann kenndi mér en það var
svona:
Hún stóð þarna allsber og útglennt
í afspyrnuroki á skarís
og starði á brjálaðan stúdent
í strífuðum buxum frá París.
Þegar Jón kenndi mér vísuna
og sagði tildrög hennar, þegar
hann bað þá aldrei þrífast, Krist-
in E. og Jón keingon [prófessor
Helgason í Kaupmannahöfn],
lagði hann sérstakan þunga á að
fara rétt með orðmyndina „stríf-
uðum“ sem merkir víst „með upp-
hleyptum gárum“, ekki segja
„stífuðum“ eða „stríluðum“.“
Vésteinn Valgarðsson er í
samninganefnd í stéttarfélaginu
og var á fundi númer tvö í gær:
Mundu, þú sem græðir glaður
gull án þess að vinna,
að verðugur er verkamaður
vinnulauna sinna.
Pétur Stefánsson yrkir fallega
vetrarstemmningu:
Héluð jörðin heiminn prýðir.
Húmar að til lands og sjós.
Dofnar ört og deyr um síðir
dagsins hinsta sólarljós.
Þá Jón Gissurarson:
Hér mun tími vorsins vís,
varminn aukist getur.
Sólin aftur upp þá rís
eftir langan vetur.
Og loks Hólmfríður Bjartmars-
dóttir, Fía á Sandi:
Langar nætur, líka svartar
líða nú við pól.
Jörðin klakaskrauti skartar,
skíni lárétt sól …
Af buxum og sólarljósi
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÉG ÉG
„ÉG”? ERT ÞÚLÍKA MIKILL
AÐDÁANDI?
ER
BÚIÐ AÐ
VARA ÞIG VIÐ
SÓLMYRK-
VANUM?
JÁ,
ÞAÐ ER
BÚIÐ AÐ
VARA MIG
VIÐ
ÉG VIL
ALLS EKKI
SKEMMA
FALLEGU
AUGUN MÍN
ÞÉR FINNST ÉG VERA MEÐ
FALLEG AUGU? ER ÞAÐ EKKI?
JÚ, ÞAU ERU EINS OG
TVÆR BLEKKLESSUR
EKKI
VERA AÐ
RÍFA ÞIG!
ÞEGAR ÞÚ ERT
HEIMA ÞÁ
ÁTTU AÐ
HJÁLPA
KONUNNI
ÞINNI MEÐ
HÚSVERKIN!
GOTT
OG VEL!!
ÉG VONA BARA AÐ
STRÁKARNIR SJÁI MIG EKKI!
ÞAÐ Á AÐ
TAKA MIG ÚR
SAMBANDI Á
MORGUN GRÍMUR
JÁ, ÉG
HEYRÐI
ÞAÐ
ER ÞAÐ
EITTHVAÐ Í
LÍKINGU VIÐ ÞAÐ
AÐ LÁTA
UMSKERA SIG?
NEI,
ÞAÐ ER
EKKERT
LÍKT ÞVÍ
ÞANNIG AÐ
TÍKURNAR EIGA
EKKI EFTIR AÐ
FÍLA ÞAÐ...?
EINN AF
SKJÓLSTÆÐINGUM
MÍNUM VARÐ MJÖG
FÚLL ÚT Í MIG Í DAG
ÆI,
ÞAÐ HLÝTUR
AÐ HAFA VERIÐ
HRÆÐILEGT!
FÁÐU ÞÉR SÆTI OG
SEGÐU MÉR HVAÐ
GERÐIST
ÉG VEIT EKKI
HVORT ÞIG LANGAR AÐ
HLUSTA Á MIG Í
ALVÖRUNNI EÐA EKKI EN
ÞETTA ER ALLAVEGANA
FRAMFÖR
EF
MAMMA ER
ÁNÆGÐ, ÞÁ ERU
ALLIR ÁNÆGÐIR
HEFUR
HONUM ALLTAF
VERIÐ SVONA
ILLA VIÐ
LYFTUR?
JÁ, EN
ÉG ER BÚIN AÐ
VENJAST ÞVÍ
EIGUM
VIÐ AÐ KOMA
OKKUR?
SKRÍTIÐ!?! HANN
VAR Á UNDAN
LYFTUNNI ÞETTA ER ÞAÐ
SEM MIG VANTAR
NÚ FÆRIST ALVARA
Í LEIKINN...
Kvenhanskar
týndust
Svartir leður- og rú-
skinnshanskar með
þremur tölum týndust
líklega í Hlíðarsmára,
Sjálandi, Grandanum
eða við JL-húsið.
Finnandi vinsamlega
hafi samband í síma
561-4641.
Öðrum til
varnaðar
Ég keypti mér jakka
og pils í versluninni
Bernhard Laxdal síð-
astliðið sumar. Ein-
hver afsláttur var veittur af pilsinu
því það voru lokadagar útsölu. Fyrir
þetta tvennt borgaði ég rúmlega 40
þúsund krónur í peningum. Eins og
gengur með sparifatnað var þetta
fremur lítið notað. Í nóvember sl. fór
ég þó í pilsið og þá tók vinkona mín
eftir því að það var allt farið að
rakna á saumunum. Ég fór með pils-
ið í búðina og afgreiðslukonan sagð-
ist myndu láta saumakonu kíkja á
það.
Nokkrum dögum seinna fékk ég
símtal þar sem mér var tjáð að ekk-
ert væri hægt að gera við pilsið. Ég
fór því í búðina og fyrir
svörum var Guðrún
sem sagðist vera yfir-
maður. Í stuttu máli
mætti mér sá argasti
dónaskapur sem ég
hef orðið vitni að. Guð-
rún fullyrti að ég hefði
rekist utan í eitthvað
og rifið pilsið og að
ekkert væri hægt að
gera í því. Bætti svo
við að sennilega hefði
ég keypt pilsið á útsölu
og því borgað lítið fyr-
ir það.
Ég var miður mín
enda hafði ég alls ekki
rekið mig í eitthvað og
togað án þess að verða vör við það
enda aðeins notað pilsið í örfá skipti.
Einnig hefði mér aldrei komið til
hugar að reyna að fá einhverjar bæt-
ur út á pils sem ég hefði rifið sjálf.
Ég var ekki tilbúin til þess að sætta
mig við þessi málalok og vil því koma
þessu á framfæri öðrum til varn-
aðar. Góðir viðskiptahættir felast
nefnilega ekki í því að tala niður til
fólks og niðurlægja.
Sigríður Guð-
mundsdóttir.
Ást er…
… ferð um ævintýraland.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó
kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíðar kl. 9. Jólabingó og
jóga kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Kertaskreyting.
Helgistund kl. 10, sr. Hans Markús, börn
úr 7. bekk í Álftamýrarskóla lesa jólasögur
og ljóð kl. 13. Jólatrésskemmtun 21. des.
kl. 14. Jólasveinar mæta.
Dalbraut 18-20 | Jólabingó í dag kl. 14
glæsilegir vinningar, kaffihlaðborð, söng-
stund með Lýð eftir kaffi.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
botsía kl. 10.45.
Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Jóla-
ljósaferð 16 des. kl. 16.15 frá Nettó í
Mjódd.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Gleði-
gjafarnir syngja kl. 14. Sturla Guð-
bjarnason stjórnar og harmonikkuleik-
ararnir Guðni, Sigurður og Gunnlaugur
leika undir.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók-
menntaklúbbur kl. 13, dansleikur sunnu-
dagskvöld kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi.
Félagsheimilið Boðinn | Pálmar spilar á
harmonikku kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.30/13, málm- og silfursmíði kl. 9.30/
13, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður
kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, leikfimi kl.
10.30, Gleðigjafarnir kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8.15 og 9.15, síðustu
tímar í málun kl. 10, leðursaumi og fé-
lagsvist kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl.
9, m.a. bókband. Prjónakaffi kl. 10, staf-
ganga kl. 10.30. Spilaslur opinn, kóræfing
kl. 15.30. Á morgun kl. 11 frá Gerðubergi
könnungarleiðangur í göturými 111
Reykjavík. Mánud. kl. 9.30 koma börn frá
leiksk. Vinagerði.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Bridsaðstoð kl. 13.
Hraunsel | Rabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30,
brids kl. 12,30. Biljardstofa og pílukast kl.
9-16. Áramótadansleikur 29. des., Þor-
valdur Halldórsson leikur og syngur.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
8.30, 9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9.
Myndlist kl. 13. Jólabingó kl. 13.30, góðir
vinningar og kaffisala.
Hæðargarður 31 | Bútasaumssýning
listasmiðju og myndlistarsýning Erlu Þor-
leifsdóttur. Fastir liðir. Dagskrá í tilefni jóla
kl. 14.30. Soffíuhópur flytur kvæðið Jól
eftir Stefán frá Hvítadal og smásöguna
Túlípanaglösin eftir Ólöfu Stefaníu Eyjólfs-
dóttur. Hæðargarðsbíó kl. 16, Sigla him-
infley.
Íþróttafélagið Glóð | Botsía í Gjábakka
kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10.10, leikfimi kl. 11, jóla-bingó
kl. 13.30, góðir jólavinningar, kaffiveit-
ingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Myndlist/útskurður kl. 9,
jólahlaðborð kl. 18.
Vesturgata 7 | Skartgripa/kortagerð kl.
9, enska kl. 11 30, tölvukennsla kl. 13.30,
sungið v/flygil kl. 14.30, dansað kl. 14.30-
16.
Vesturgata 7 | Handverkssala frá kl. 13-
16. Sigurgeir við flygilinn og dans í umsjá
Sigvalda.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Leirmótun,
handavinnustofa, morgunstund, bingó
fellur niður v. jólafagnaðar.