Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010 Vandamál Íra eru ekki úr sög-unni þrátt fyrir „efnahags- aðstoð“ ESB og AGS. Meginvandi Íra var sá að landið naut ekki trausts vegna of mikillar skuldsetn- ingar. „Efnahags- aðstoð“ hjálpar- sveitanna frá ESB og AGS var sú að Ír- ar skyldu skuldsetja sig verulega til við- bótar með háum vöxtum.    Nú hefur matsfyrirtækið Fitchverðlaunað Íra fyrir að þiggja efnahagsaðstoðina. Lánstraust landsins er lækkað enn en það var þar til fyrir skömmu í hæstum hæð- um.    Þetta er athyglisvert og ekkibara fyrir Íra, sem máttu ekki við miklu. Þetta er einnig athyglis- vert fyrir Ísland. Því síðast í fyrra- dag vitnaði Már Guðmundsson á fundi í Seðlabankanum í matsfyrir- tækin og afstöðu þeirra til skulda- klyfja vegna Icesave. Gaf Már til kynna að matsfyrirtækin teldu það miður að Ísland hefði ekki skuldsett sig til viðbótar um nokkur hundruð milljarða.    Enn hefur Már Guðmundssonsem betur fer ekki verið spurður um hvort tveir plús tveir séu enn fjórir sem er kenning sem hefur haft töluvert fylgi.    Hætt er við að Már kynni aðkollvarpa kenningunni með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.    Því þeir sem hafa hangið á þvíeins og hundar á roði að tveir plús tveir séu enn fjórir hafa einnig verið haldnir þeirri augljósu bábilju að stóraukin skuldsetning þjóðar- innar erlendis myndi fyrr en síðar gera lánshæfismati þeirra skrá- veifu. Már Guðmundsson Auknar skuldir allra meina bót STAKSTEINAR Veður víða um heim 9.12., kl. 18.00 Reykjavík 7 súld Bolungarvík 7 skýjað Akureyri 9 skýjað Egilsstaðir 7 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 1 skýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 3 þoka Ósló -7 heiðskírt Kaupmannahöfn -1 heiðskírt Stokkhólmur -5 alskýjað Helsinki -5 snjóél Lúxemborg -1 snjóél Brussel 2 skýjað Dublin 2 skýjað Glasgow 3 skýjað London 3 léttskýjað París 1 skýjað Amsterdam 3 léttskýjað Hamborg -1 heiðskírt Berlín 0 skýjað Vín 0 snjókoma Moskva 1 þoka Algarve 21 heiðskírt Madríd 12 léttskýjað Barcelona 13 skýjað Mallorca 16 léttskýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 20 léttskýjað Winnipeg -7 snjókoma Montreal -10 skýjað New York -3 heiðskírt Chicago -7 skýjað Orlando 10 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:08 15:34 ÍSAFJÖRÐUR 11:50 15:02 SIGLUFJÖRÐUR 11:35 14:43 DJÚPIVOGUR 10:46 14:55 Liðlega 10% þeirra sem greiddu atkvæði í kosningunum til stjórn- lagaþings fengu engan fulltrúa á þingið en ekki 44% eins og fyrri útreikningar ráðgjafa landskjör- stjórnar sýndu. Ráðgjafinn hefur sent Morgunblaðinu nýja töflu sem sýnir leiðrétta niðurstöðu. Jóhann Pétur Malmquist, pró- fessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, var ráðgjafi landskjör- stjórnar við stjórnlagaþingskosn- ingarnar. Hann reiknaði út hvern- ig atkvæðin dreifðust, til að mynda hversu margir hefðu engan full- trúa fengið á stjórnlagaþingið og hversu margir hittu á að vera með flesta fulltrúa. Útreikningarnir voru kynntir á fundi fulltrúa landskjörstjórnar með allsherjar- nefnd Alþingis sl. mánudag og Morgunblaðið fékk þær hjá Jó- hanni í kjölfarið. Upplýsingarnar reyndust rang- ar. „Eftir ábendingu frá tveimur samstarfsmönnum og nokkurn svefn endurreiknaði ég töfluna og fann villu hjá mér í fyrri útreikn- ingum, sem ég harma mjög,“ segir Jóhann í skýringum sínum. Hann tekur fram að nýju útreikningarn- ir hafi verið yfirfarnir af sam- starfsmanni. Aðspurður segir Jó- hann að þessar tölur séu viðbótarupplýsingar og hafi engin áhrif á niðurstöður stjórnlaga- þingskosninganna. Nýju tölurnar sýna að 8.483 kjósendur eða 10,3% gildra at- kvæða, fengu ekki fulltrúa á stjórnlagaþing. Hins vegar nefndu 73.853 kjósendur einn eða fleiri sem hlutu kjör á þingið sem svarar til 89,7% gildra atkvæða. Flestir reyndust vera með eitt til fjögur nöfn rétt en sumir fleiri og þrír voru með fimmtán rétta. helgi@mbl.is 10% fengu ekki fulltrúa Á sunnudag nk. verður haldið afmælis- skákmót til heiðurs Jóni L. Árnasyni, en Jón varð fimm- tugur 13. nóv- ember sl. Afmælis- skákmótið verður haldið í Hótel Glym í Hvalfirði. Keppt verður um 50.000 króna verð- launapott og fjölda annarra verð- launa. Afmælisskákmótið er öllum op- ið, en meðal keppenda verða stórmeistararnir Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason sjálfur. Jón varð á sínum tíma heims- meistari unglinga og hefur lengi verið í fremstu röð skákmeistara. Afmælisskákmót Jóns L. Árnasonar Jón L. Árnason Föstudaginn 10. desember verður lokað hjá embætti ríkisskattstjóra og á öllum starfsstöðvum (skattstofum). Lokað í dag Hæstiréttur hefur staðfest 3½ árs fangelsisdóm yfir karlmanni á fer- tugsaldri, Tomasz Burdzan, fyrir að nauðga konu í íbúð í Reykjavík. Maðurinn, sem er pólskur, hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi hér á landi, svo kunnugt sé. Samkvæmt upplýsingum frá yfir- völdum í Póllandi var hann í mars 2000 sakfelldur fyrir tilraun til nauðgunar. Konan leitaði til lögreglu í júlí á síðasta ári og lagði fram kæru á hendur óþekktum aðila fyrir kyn- ferðisbrot, framið aðfaranótt 26. júní 2009. Maðurinn neitaði sök og sagð- ist ekki hafa haft við hana samræði, en að þau hefðu þó „kysst og knús- ast“. Sýni úr nærfatnaði og kynfær- um var sent til Rettsmedisinsk Institutt í Noregi til rannsóknar. Samkvæmt niðurstöðu stofnunar- innar voru sæðisfrumur úr Burdzan í leggöngum konunnar. Vitni báru einnig um að konan hefði verið illa á sig komin síðar þessa nótt. Lýstu þau því þannig að hún hefði verið í sjokki og grátandi. Hún hefði strax skýrt frá því að henni hefði verið nauðgað, segir í dómi héraðsdóms. Staðfesti 3½ árs fangelsisdóm Morgunblaðið/Sverrir Hæstiréttur Maðurinn neitaði sök en var talinn ótrúverðugur.  Reyndi einnig að nauðga árið 2000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.