Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 10
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Já, miðað við að það erbyrjun desember, ég heffarið tvisvar í Bláfjöll ogeinu sinni norður. Það þykir mjög gott að hafa komist svona oft á þessum árstíma,“ segir Linda Björk Sumarliðadóttir for- maður Bretta- félags Íslands, spurð hvort hún sé búin að fara oft á snjóbretti það sem af er vetri. Hún segir aðstöðuna fyrir snjóbrettafólk alltaf að skána hér á landi. „Þetta gengur hægt en mjakast í rétta átt. Við erum ánægð með það sem er að gerast þótt við værum til í að sjá það komið aðeins lengra.“ – Hvernig aðstæður þurfa að vera á svæðinu svo gott sé að vera á bretti? „Við viljum sjá nokkra palla og brettarið (rails) og þetta væri allt skilmerkilega merkt, t.d. eftir getustigi. Draumurinn er svo að geta verið með hálfpípu. Það er mikil vinna á bak við það að vera með svona aðstöðu fyrir snjó- brettafólk. Það sem við vildum helst gagnrýna skíðasvæðin fyrir er að það þýðir ekkert að setja bara upp palla, það þarf að móta þá á hverj- um degi, fara yfir þá og slíkt. Ef pallarnir eru ekki í lagi geta þeir orðið hættulegir,“ segir Linda og bætir við að ef það er ekki tilbúin aðstaða fyrir brettafólk til staðar útbúi þau hana sjálf. „Þá er hægt að renna sér í brekkunum og svo finnum við okk- ur oft eitthverja staði og búum jafnvel til palla sjálf og notum það sem er náttúrulegt í fjallinu.“ Hlíðarfjall vinsælast – Hvernig snjór er bestur fyr- ir bretti? „Ef maður er að renna sér frjálst er púðursnjór alltaf hent- ugur, nýr snjór er bestur á bretta- Sátt svo lengi sem það er ekki harðfenni Brettaíþróttin er í stöðugri sókn hér á landi að sögn Lindu Bjarkar Sumarliðadóttur, formanns Bretta- félags Íslands. Hún segir aðstöðuna fyrir snjóbretta- fólk alltaf að verða betri en henni finnst sjálfri skemmtilegast að renna sér á Siglufirði. Reuters Linda Björk Sumarliðadóttir 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010 Það er tíska í skíðaíþróttinni eins og öðru og gaman að fylgjast með hverju fólk klæðist í brekkunum. Vef- síðunni Whatswhistlerwearing.com er haldið úti af fjórum kanadískum ungmennum sem stunda mikið snjó- bretti. Þau fylgjast vel með snjó- bretta- og skíðatískunni og blogga um hana á þessari slóð. Það er tískan á skíðasvæðinu Whistler Blackcomb í Kanada sem er umfjöllunarefnið. Undir liðnum Hall of Fame birta þau myndir sem þau hafa tekið af skíða- og snjóbretta- fólki í brekkunum og segja frá hverju það klæðist. Þau segjast sýna skíða- og brettatískuna eins og hún er hjá venjulegu fólki. Vefsíðan hófst sem einfalt blogg um Whistler-stílinn í mars 2009. Við- tökurnar voru það góðar að þau ákváðu að halda áfram með það þennan vetur um leið og brekkurnar í Whistler opna. Vefsíðan www.whatswhistlerwearing.com Fjólublátt flug Snjóbrettatískan er gjarnan í skærum litum. Venjuleg vetrartíska á fjallinu Það er fátt meira hallærislegt en að sjá fólk í Spánar-klúbbadressinu í tíu stiga gaddi á Lækjartorgi. Það kemur þó fyr- ir að sú sjón ber fyrir augu. Að klæða sig eftir veðri er meira töff en að sýna bert hold. Við búum á Íslandi, hér eru veturnir frekar kaldir og því um að gera að vaða ekki út í snjóinn og slabbið berleggjuð á lakkskónum. Það er í tísku núna að klæða sig vel; loðfeldir og prjónafatn- aður er móðins, notfærum okkur það. Endilega … … klæðið ykkur eftir veðri Reuters Nei nei Ekki vaða út í sumarskónum. Ég man þetta eins og þetta hefði gerst í gær: Þegar ég var fjórtán ára kom náskyld fjölskylda eitt sinn í heimsókn. Það er svo sem ekki í frá- sögur færandi nema af því að í miðjum leik uppgötva ég allt í einu að frænka mín, sem er nokkrum árum eldri og við skulum kalla Búbbu, er allt í einu horfin. Þegar ég fer að leita heyri ég allt í einu kallað feimnislega til mín af klósettinu: „Hófí … ert þetta þú?“ Ég gaf mig fram og þá kemur í ljós að klósettpappírinn var búinn og Búbba föst á klósettinu. Ég hljóp strax niður stigann og ætlaði að ná í nýja rúllu á hitt baðher- bergið en er ekki fyrr komin niður stigann en mamma kallar á mig inn í eldhús. Þar sitja hún og mamma Búbbu og á eldhúsborðinu er stafli af yfirhöfnum og útifatnaði sem þær eru að grisja í sameiningu. „Hóa mín, mátaðu snöggvast þessa lopapeysu.“ Ég var rétt byrjuð að mótmæla þeg- ar hún grípur fram í fyrir mér: „Svona, þetta tekur enga stund.“ Ég tróð mér í alltof litla lopapeys- una sem var blá með bleiku og gulu munstri og ég var löngu hætt að nota. „Svo bara þessi eina peysa í viðbót.“ Þegar ég var að smokra mér í seinni peysuna með loparafmagnað hárið allt út um allt tók ég eftir uppáhalds- úlpunni í bunka sem var augljóslega ætlaður í Rauða krossinn og upp hófst mikið þref: „Ég passa sko víst ennþá í úlpuna!“ „Þú notar hana aldrei! Hún er búin að hanga ósnert á snaga í tvö ár!“ Þetta tók dá- góða stund. Allt í einu sé ég að það kemur skrýtinn svipur á mömmurnar og þær þagna og leggja frá sér kaffibollana. Ég sný mér við og þar stendur Búbba frænka eldrauð í framan, varirnar samanbitnar og nasavængirnir þandir. Í fyrsta sinn á ævinni óttaðist ég um líf og limi. Mamma segir að það hafi runnið á mig undrunarsvipur en ég man að ýmsar tilfinningar fóru um mig; fyrst undrun, síðan skömmustutilfinning en að lokum var það forvitnin sem varð ofan á. „Með hverju skeindirðu þig?“ spurði ég varfærnislega. Ef það væri hægt þá hefði höfuðið á henni eflaust sprungið. Hún kreppti hnef- ana og öskraði svo, fnæsandi af bræði: „ÉG NOTAÐI BÓMULL!!!“ Hún snerist svo á hæli, rauk í burtu og skellti einhverri hurðinni á eftir sér. Ég var ennþá með hálfóttasleginn undrunarsvip á mér þegar ég leit á mömmurnar tvær sem höfðu frussað út úr sér kaffinu af hlátri og náðu vart andanum. Þegar heimsókninni var að ljúka sór Búbba og sárt við lagði að hún myndi leita hefnda þegar ég síst ætti von á því. Hún er hins vegar afar hjartahlý og yndisleg manneskja sem í dag á mann og falleg börn í einu úthverfi borgarinnar. Og mig grunar að henni þyki drottinn og dagarnir hafa refsað litlu frænku nóg með því að gera hana að einhleypum vest- urbæingi. Það breytir því hins vegar ekki að ég passa mig allt- af á því að hafa með mér aukarúllu í veskinu þegar ég fer í heimsókn til hennar. holmfridur@mbl.is »Allt í einu sé ég að þaðkemur skrýtinn svipur á mömmurnar og þær þagna og leggja frá sér kaffibollana. Heimur Hófíar Snjóbretti Að- staðan á Íslandi er kannski ekki eins góð og hjá þessum kappa sem er að renna sér í hæsta fjalli Þýskalands, Zugspitze. Glæsilegt úrval af fallegum jólafatnaði og góðum fatnaði á frábæru verði í jólapakkann Smáralind - Kringlan Jólakjóll 4.990 Bolir frá 1.290 Galla- og flauelsbuxur 2.990 Röndóttar og mynstraðar prjónapeysur 2.990 Jóla- og prjónakjólar 2.990 Verið velkomin Opið til kl 22 alla daga til jóla Glæsilegt úrval af fallegum jólafatnaði og góðum fatnaði á frábæru verði í jólapakkann Smáralind - Kringlan Jólakjóll 4.990 Bolir frá 1.290 Galla- og flauelsbuxur 2.990 Röndóttar og mynstraðar prjónapeysur 2.990 Jóla- og prjónakjólar 2.990 Verið velkomin Opið til kl 22 alla daga til jóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.