Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010  Plata með fáheyrðum Singa- pore Sling-lögum lúrir nú í plötu- búðum borgarinnar, en alls voru 100 eintök pressuð. Segir for- sprakkinn, Henrik Björnsson, að hann hafi í vor farið í gegnum nokkur lög og nokkrar hugmyndir sem hann átti til, efni sem hafi þurft að koma út. Sjaldgæft efni með Singapore Sling Fólk Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Mögulega er ofstuðlað í fyrirsögninni en hvað á maður að gera þegar maður fréttir af heimildarmynd um húðlflúrmeistarann Fjölni Bragason og ferðalag hans til Fær- eyja ásamt félögum sínum, þeysandi um á vélfákum, opnandi húðflúrsstofu í Klakks- vík!? Myndin, sem kallast Flúreyjar, verður frumsýnd í Bíó Paradís kl. 17.00 í dag. Að sögn Sigurðar Páls Sigurðssonar, framleið- anda, liggja tildrög myndarinnar í vinskaop hans og meðlima hljómsveitarinnar Boys in a Band. „Ég kynntist þeim á Airwaves og Heri, hljómborðsleikarinn knái, langaði í húðflútt. Ég lóðsaði honum beinustu leið til Jóns Páls og Fjölnis og þar sem Heri var í stólnum kvartaði hann yfir því að enga húðflúrstofu væri að finna í Færeyjum. Við þetta kviknaði á ljósaperu mikilli, og því var komið til leið- ar að stofa var opnuð í Klakksvík í tvær vik- ur sumarið 2009. Tengdamamma Hera redd- aði læknastofu undir þetta og þetta var mikil og góð samvinna á milli landanna. Stofan var svo troðfull allan tímann og Fjölnir hef- ur farið í þrjár ferðir eftir það út.“ Sigurður segir að samfara þessu hafi hug- myndin að myndinni kviknað. „Það er léttur og spellvænn andi í þessu hjá okkur og Fjölnir tekur út menningarlíf eyjanna á sinn hátt, svo ekki sé nú meira sagt!“ Sigurður vonast svo til þess að myndin fari í frekari sýningar í janúar. Fjölnir og flúraðir Færeyingar festir á filmu Reffilegur Fjölnir Bragason, flúrari með meiru.  Dauðarokkssveitin Beneath hefur skrifað undir samning við plötuútgáfuna Unique Leader Re- cords um útgáfu og dreifingu á plötum hljómsveitarinnar á heims- vísu. Fyrsta breiðskífa Beneath er væntanleg á næstu mánuðum og mun eftirvinnsla hennar vera á lokastigi en platan var tekin upp í Sundlauginni og Stúdíó Fosslandi og hljóðblönduð af Daniel Bergs- trand í Dug Out Studios í Upp- sölum í Svíþjóð. Bergstrand hefur m.a. unnið með In Flames, Behe- moth og Meshuggah. Í fyrra fór Beneath með sigur af hólmi í keppninni Wacken Metal Battle og lék á Wacken Open Air-hátíðinni í kjölfar þess. Beneath semur við Uni- que Leader Records  Gjörningur Ragnars Kjartans- sonar í þjóðleikhúsi Svía, Drama- ten, hefur gengið vel í frændur vora. Fékk hann m.a. þá dóma í Dagens Nyheter að þetta væri einstakasti viðburður í sögu leik- hússins. Allt sem Ragnar snertir á um þessar mundir virðist breytast í gull … Ragnar Kjartansson fær góða dóma Ingibjörg og Lilja Birgisdætur opna sýningu sína The last shapes of Never: Safn vídeóverka fyrir Múm í gallerí Kling og Bang í kvöld, föstudaginn 10. desember klukkan 20:00. Þar munu þær sýna fullt hús vídeóverka sem þær unnu fyrir viðhafnartónleika hljómsveit- arinnar Múm í Krakow, Póllandi, á árinu. Múm ætlar af því tilefni að spila á opnuninni og leika sitt fyrsta raftónlistarsett á Íslandi í mörg ár. Ingibjörg er útskrifuð úr Listaháskóla Ís- lands og hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér og erlendis en hélt sína fyrstu einkasýn- ingu í Listasafni Reykjavíkur í fyrra. Lilja út- skrifaðist úr Konunglega listaháskólanum í Haag og á einnig að baki margar samsýningar. Systurnar unnu saman plötuumslag bróður síns Jónsa úr Sigurrós sem kom út á árinu. Vídeóverkin sem sýnd verða í kvöld hafa ekki verið sýnd hér á landi áður. „Þau hafa verið sýnd á Art-faire-hátíð í París og í Póllandi en eru í fyrsta skipti sýnd hér á landi núna um helgina,“ segir Lilja. „Mesta vinnan í verk- unum fór fram í eftirávinnslu, þar sem við gerðum þetta að myndlistarverki, við af- skræmdum raunveruleikann.“ Sýningin mun aðeins vera opin yfir helgina. borkur@mbl.isSystratjáning Boðið upp á kokkteil úr tónlist, myndlist og vídeó hjá Kling og Bang. Myndlistarverk Múm  Ungliðahreyfing Kling og Bang á sviðinu  Systurnar Birgisdætur afskræma veruleikann Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fjöllistahópurinn Skyr Lee Bob, skipaður Ernu Ómarsdóttur dans- ara, Guðna Gunnarssyni myndlist- armanni og tónlistarmanninum Lieven Dousselaere, mun um helgina flytja dansleikhúsgjörning sinn Square Wunder Globe í Gerðarsafni í Kópavogi. Kópavogs- bær styrkti gerð verksins og því verður það sýnt í safninu. Verkið var nýverið frumsýnt á norrænu listahátíðinni Les Boré- ales í Caen í Frakklandi og er út- gangspunktur þess leit mannsins að veraldlegum undrum, hinu ótrú- lega og fordæmislausa, eins og hópurinn lýsir því. Umgjörð verks- ins er hugmyndin um s.k. Wunder- kammer, eða undraskáp, fyrstu til- raunina til safns á endurreisnar- tímanum í Evrópu. Slíkir skápar innihéldu ýmsa muni, allt frá trú- ar- og sagnfræðilegum til list- og hönnunarmuna. Meðal annars mátti finna ævintýralega muni á borð við einhyrningshorn eða hluti tengda Jesú Kristi. Blaðamaður tók Ernu tali til að varpa frekara ljósi á þetta forvitnilega verk. Panic monkey Erna segir auðuga menn á end- urreisnartímanum hafa safnað munum í undraskápana eða -her- bergin svonefndu, oft og tíðum hlutum sem þeir hafi fundið á ferðum sínum til framandi landa, hlutum úr framandi menningarsamfélögum sem vöktu forvitni í hinum vestræna heimi. – En hvernig túlkið þið þetta í verkinu, þessa hugmynd um Wun- derkammer? „Þetta er náttúrlega túlkað í tónlist, dansi og ljósum, þetta er náttúrlega ljóðrænt ferðalag eða eitthvað þess háttar. Við segjum sögu af einni dýrategund sem finnst í e.k. regnskógum, þetta er uppspunnin dýrategund sem heitir panic monkey, e.k. fugla- og apa- tegund í bland við manneskju,“ segir Erna. Guðni og Dousselaere fari með hlutverk tveggja manna, landnema, í verkinu og hún leiki hið furðulega dýr, panic monkey, sem þýða mætti sem skelf- ingarapa. Erna segir einnig áhugvert við undra- skápana eða -her- bergin að þar hafi bæði verið að finna hluti sem ekki voru raun- verulegir, t.d. einhyrningshorn, sem og raunverulega hluti, list- muni og aðra gripi. Api í Seyðisfirði Erna bætir því við að lokum að verkið eigi sér lengri sögu, í raun megi rekja það aftur til Listahátíð- ar þegar Skyr Lee Bob sýndi gjörning og ljósmyndir í Skaftfelli á Seyðisfirði. Skelfingarapinn á því ætti rætur að rekja til Seyðisfjarð- ar, ef þannig mætti að orði kom- ast. Square Wunder Globe verður sýnt á efri hæð Gerðarsafns í kvöld og annað kvöld og hefjast sýningar kl. 20.30 báða daga. Ljósmynd/Christopher Lund Ótti Skelfingarapinn (Erna Ómarsdóttir) leitar huggunar í appelsínum í ávaxtaborði ónefndrar matvöruverslunar. Hinir meðlimir Skyr Lee Bob, Guðni Gunnarsson og Lieven Dousselaere, sýsla eitthvað í bakgrunni. Leit að veraldlegum undrum  Skyr Lee Bob sýnir dansleikhúsgjörninginn Square Wunder Globe í Gerðar- safni  Umgjörð verksins hugmyndin um Wunderkammer, undraherbergi Erna hóf dans sem táningur hjá Dagný Björk í félags- miðstöðinni Agnarögn í Kópa- vogi og nam síðar við PARTS í Brussel (Performing arts research and training studios). Hún hefur starf- að með mörgum þekktum höfundum og stjórnendum í þeirri list, m.a. Jan Fabre. Erna Ómarsdóttir ERNA ÓMARSDÓTTIR Þekkt nafn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.