Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010
✝ Einar Björg-vinsson fæddist í
Krossgerði á Beru-
fjarðarströnd 31.
ágúst 1949. Hann
lést 29. nóvember
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Björgvin Gísla-
son, f. 19. janúar ár-
ið 1910, d. 3. sept-
ember 1971, og Rósa
Gísladóttir, f. 13.
mars 1919. Hún lifir
son sinn. Systkini
hans eru 1) Fjóla
Margrét Björgvinsdóttir, f. 1. júní
1945, 2) Kristborg Björgvins-
dóttir, f. 30. maí 1948, og 3) Sig-
urður Óskar Björgvinsson, f. 9.
maí 1953.
anum um nokkurt skeið eftir að
hann lauk námi, við almenna
blaðamennsku og sem þing-
fréttaritari á meðan á þingi stóð.
Hann dvaldist svo um tíma í Sví-
þjóð og Danmörku þar sem hann
vann við ýmsar verklegar fram-
kvæmdir. Lengst af starfaði hann
hjá Íslenskum aðalverktökum á
Keflavíkurflugvelli.
Hans síðustu störf voru við ör-
yggisgæslu, meðal annars fyrir
Seðlabanka Íslands, Alcoa á
Reyðarfirði og fyrir tónlistar-
húsið Hörpu sem var hans síðasti
vinnustaður. Eftir Einar liggja
fjórar útgefnar bækur, þar af ein
ævisaga. Að auki liggur eftir
hann mikið af óbirtum skáldsög-
um, smásögum, hugrenningum og
öðru efni.
Útför Einars fer fram frá
Laugarneskirkju í dag, 10. des-
ember 2010, og hefst athöfnin kl.
11.
Einar gekk í
hjónaband með Mar-
gréti Valdemars-
dóttur, ljósmóður í
Reykjavík, en þau
slitu samvistum árið
2005. Dóttir þeirra
er Þórey Rósa, f. 19.
apríl 1983.
Einar lauk lands-
prófi frá Alþýðuskól-
anum á Eiðum árið
1967. Haustið 1968
hóf hann nám við
Samvinnuskólann á
Bifröst þaðan sem
hann lauk námi árið 1970. Á
námsárum sínum vann Einar á
sumrin við Búrfellsvirkjun sem þá
var í smíðum. Hann vann sem
blaðamaður á dagblaðinu Tím-
Einar bróðir minn fæddist og
ólst upp í Krossgerði á Berufjarð-
arströnd beint á móti Djúpavogi
þar sem ljósin loguðu allar nætur
því þar var raflýst. Hann var
fæddur á því herrans ári 1949 þeg-
ar Alþingi íslendinga samþykkti
aðild Íslands að Atlantshafsbanda-
laginu. Það gerðist aðeins fimm
mánuðum fyrir fæðingu hans og
gerði þar með þjóðina að hern-
aðarbandalagsþjóð. Ef til vill hefur
það gert hann að þeim áhuga-
manni um hernað sem hann varð.
Hugur Einars beindist fljótt að
skriftum og man ég eftir því að
hann gisti næturlangt í tjaldi fyrir
utan hús með ritvél sína og pikk-
aði. Einnig lagðist hann út inn á
Krossdal með tjaldið sitt og ritvél.
Eins og hlutirnir gerðust í sveit-
inni þá fóru krakkar mjög ungir að
heiman hvort sem það var til að
vinna eða í skóla. Það gerði Einar
eins og aðrir en hann fór í skóla á
Djúpavog fimmtán ára gamall. Þá
fannst manni langt þangað og að
þurfa að keyra inn fyrir allan
Berufjörðinn á holóttum vegi. Dvöl
Einars á Djúpavogi varð mér samt
happadrjúg því fljótlega fóru mér
að berast pakkar frá honum með
mjólkurbílnum. Pakkar fullir af
perubrjóstsykri og Sírius súkku-
laði með hnetum og rúsínum. Alla
tíð hefur mér fundist þetta sæl-
gæti gott.
Alfarið fór hann að heiman þeg-
ar hann fór á Alþýðuskólann á
Eiðum. Ég saknaði alltaf systkina
minna þegar þau fóru og það gerði
ég einnig með Einar. Eftir að ég
flutti til Reykjavíkur um 1972 má
segja að ég hafi kynnst honum aft-
ur en þó ekki mikið. Okkar sam-
vera sem börn og unglingar var
ekki það mikil að hún tengdi okkur
föstum böndum. Hjá Einari var
það þó föst venja að koma í heim-
sókn til okkar á aðfangadag. Ef
hann var ekki kominn um hálfþrjú
eða um það bil þá vissi maður að
hann hefði tafist í öðrum húsum
sem hann heimsótti í leiðinni.
Hann tók sér tíma til að þiggja
kaffi og spjalla um heimsmálin þó
að oft væri tíminn knappur. Það
verður söknuður að fá ekki þessar
heimsóknir oftar.
Eitt af mörgu sem við gerðum
og er skemmtilegt í minningunni
er blaðaútgáfa okkar bræðra. Í
prentaraverkfalli um sumarið 1972
gáfum við út dagblað undir nafn-
inu Morgunfréttir. Ef ég man rétt
var blaðið gefið út fimm sinnum
áður en verkfallið leystist. Einar
fékk titilinn ritstjóri og blaðamað-
ur en ég titilinn tækni- og útgáfu-
stjóri og sá um fjölritun. Hann
nýtti sér þau sambönd sem hann
hafði sem fyrrverandi blaðamaður
og aflaði frétta fljótt og örugglega.
Einar varð þess aðnjótandi að
eiga þátt í að taka á móti hljóm-
sveitinni Led Zeppelin þegar hún
kom hingað í heimsókn upp úr
árinu 1970. Má sjá Einari bregða
fyrir á tónlistarmyndbandi sem
tekið var upp á tónleikum þeirra í
Reykjavík. Hann var mikill aðdá-
andi tónlistar þessara tíma og
manna fróðastur um hana.
Að ganga með erfiðan sjúkdóm
þarf hreysti sem hann hafði, en lét
þó lokum undan bugast. Ég ætla
að ljúka þessum orðum mínum
með kveðskap föður okkar. Megi
guð varðveita þig.
Lífsins faðir, ljóssins herra
leiði þig um gæfu stíg.
Vonin sanna, vorið blíða,
vefji kærleiks örmum þig.
Þinn bróðir,
Sigurður.
Einar Björgvinsson
✝ Hermann Stef-ánsson fæddist í
Ásgarði á Svalbarðs-
strönd 30. október
1926. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 29. nóvember
síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Stefán
Magnússon, ættaður
frá Tungu á Sval-
barðsströnd, f. 23.
maí 1901, d. 11. maí
1976 og Ingibjörg
Valdemarsdóttir frá
Leifshúsum á Svalbarðsströnd, f. 8.
september 1903, d. 19. janúar 1998.
Þau bjuggu í Ásgarði á Svalbarðs-
strönd til ársins 1947 er þau fluttu
til Akureyrar. Systkini Hermanns
eru: Sigríður Ingibjörg, f. 5. júlí
1929, d. 27. apríl 2000, Bragi, f. 11.
maí 1933 og Birgir, f. 2. október
1942.
Hinn 17. júní 1951 kvæntist Her-
mann eftirlifandi eiginkonu sinni,
Kristínu Friðbjarnardóttur frá
Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, f.
1. júlí 1930. Kristín er dóttir Frið-
björns Olgeirssonar, f. 13. sept-
ember 1898, d. 31. desember 1982
og Ólafar Kristjánsdóttur, f. 29.
apríl 1911. Börn
þeirra eru: Ólafur
Ingi, f. 21. nóvember
1950, kvæntur Bjarn-
heiði Ragnarsdóttur,
f. 24. júní 1956. Þau
eiga fjögur börn, þar
af eru þrjú á lífi. Þá
eiga þau tvö barna-
börn. Elva, f. 31.
ágúst 1955, gift Ein-
ari Jóhannssyni, f. 18.
janúar 1955. Þau eiga
fjögur börn og eitt
barnabarn. Atli, f. 20.
nóvember 1956,
kvæntur Ingibjörgu Róbertsdóttur,
f. 8. nóvember 1956. Þau eiga tvo
syni og tvö barnabörn. Hermann og
Kristín bjuggu allan sinn búskap á
Akureyri. Fyrstu tuttugu árin í
Norðurgötu 58, síðan 26 ár í Birkil-
undi 2 og síðustu árin í Vallargerði
2. Hermann starfaði lengst af sem
vöruflutningabílstjóri á bifreiða-
stöðinni Stefni og ók leiðina á milli
Akureyrar og Reykjavíkur. Síðustu
10 starfsárin var hann hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga.
Útför Hermanns fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 10. desem-
ber 2010, og hefst athöfnin kl.
13.30.
Í dag kveðjum við Hermann Stef-
ánsson, flutningabílstjóra á Akur-
eyri, en á þeim tíma sem hann var í
þessum akstri, þ.e. frá miðri síðustu
öld, var starf flutningabílstjóra hjúp-
að ljóma, allavega þekkti ég sem
strákur nöfnin á þessum körlum og
númerin á bílunum. Ég kynntist þó
Hermanni ekki fyrr en 1979 þegar
ég fór að vinna á Vöruleiðum í
Reykjavík, en þar höfðu Stefnis-
menn afgreiðslu. Það var gaman að
fá að kynnast þessari stétt manna,
sérstaklega þessum gömlu jöxlum
sem höfðu lent í ýmsu á ferðum sín-
um, ég hafði þó einna minnst sam-
skipti við Hermann, sem var þó ein-
göngu vegna þess að hann var mjög
lítið fyrir að draga hlutina á langinn
eins og ég kynntist síðar og var hann
því mjög snöggur að losa og lesta og
þurfti því lítið fyrir honum að hafa.
Það var ekki fyrr en nokkrum ár-
um síðar sem ég kynntist Hermanni
fyrir alvöru þegar hann lenti í því að
fá mig fyrir tengdason, það var hins
vegar mikið gæfuspor fyrir mig.
Síðustu tuttugu árin eða svo átti
hann margar ferðirnar í sveitina og
þau voru ófá handtökin sem hann
átti þar, enda var hann lítið fyrir
ókláruð verk, ef eitthvað var ógert
var Hermann mættur og lét ekki
stoppa sig þó að aldurinn færðist yfir
og hann orðinn mjög stirður. Það
kom þó ekki í veg fyrir að hann bras-
aðist með þung bretti, klifraði upp og
niður kartöfluupptökuvélina eða
hvað annað sem fyrir lá. Ekki má
heldur gleyma öllum kræsingunum
sem hann kom með í sveitina, hvers-
konar bakkelsi, kleinum og smurðu
brauði sem oft kom sér vel á löngum
vinnudögum. Hermann bakaði þetta
þó ekki sjálfur, hann var nefnilega
svo lánsamur aða hafa hana Stínu
sem galdraði fram kökur, kleinur og
annað góðgæti oft áður en aðrir fóru
á fætur, enda held ég að þátttaka
hans í matargerð hafi ekki náð
lengra en að grillinu. Enda ekki
ástæða til þegar þú hefur konu eins
og hana Stínu í eldhúsinu. Þegar ég
sit hérna við eldhúsborðið og reyni
að koma á blað örlitlu af þeim ara-
grúa góðra minninga sem ég á eftir
samskipti okkar, og orðinn allt of
seinn með það, hugsa ég að Her-
mann hefði sennilega klárað þetta í
gær.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði
líf mannlegt endar skjótt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Með þökk fyrir allt og allt.
Kveðja frá
Einari, Elvu og fjölskyldu,
Eyrarlandi.
Hermann Stefánsson
✝ Sigríður Theó-dóra Péturs-
dóttir fæddist 25.
júlí 1945 í Reykja-
vík. Hún lést á
heimili sínu í Stykk-
ishólmi 1. desember
2010. Foreldrar
hennar voru Jóna
Breiðfjörð Krist-
insdóttir, f. 8. mars
1923, d. 19. maí
2006, og Pétur Guð-
mundur Jóhannsson,
f. 7. október 1917, d.
16. október 1999.
Systkini Sigríðar eru Ragnar
Pétursson, f. 16. október 1934,
Hafliði Pétursson, f. 7. maí 1937,
Særún Sigurðardóttir og börn
þeirra eru: Sigurður Halldór,
Andrea Jóna, Anna Lind og Valdís
María.
Börn Sigríðar og Halldórs eru:
Þórir, f. 9. febrúar 1968, maki
hans er Þórhalla Kristín Valþórs-
dóttir og sonur Þóris er Hinrik
Þór. Erla, f. 7. janúar 1975, maður
hennar er Ívar Sigurður Krist-
insson og börn þeirra eru Sara,
Sunna Dís og Sigríður Lilja. Gyða
Stefanía, f. 16. nóvember 1977,
maki Ævar Karlsson, dóttir henn-
ar er Aníta Sif.
Á sínum yngri árum lærði Sig-
ríður til meinatæknis í Danmörku.
Hún fluttist síðan til Stykkishólms
og vann sem meinatæknir á St.
Francikusspítala í mörg ár. Síðar
vann hún ýmis störf, meðal annars
við rekstur keramikframleiðslu og
blómabúðar.
Útför Sigríðar fer fram í Stykk-
ishólmskirkju í dag, 10. desember
2010, og hefst athöfnin kl. 14.
og Unnur Helga
Pétursdóttir, f. 25.
febrúar 1954.
Árið 1968 giftist
Sigríður Halldóri
Jónassyni, f. 26. nóv-
ember 1943, d. 3.
mars 2004. Hann var
sonur hjónanna
Clöru Jennýjar Sig-
urðardóttur, f. 20.
ágúst 1920, d. 22.
desember 2000, og
Jónasar Halldórs-
sonar, f. 30. júní
1921, d. 16. október
2001. Sonur Sigríðar og Friðriks
Bergmanns Bárðarsonar er Egg-
ert, f. 30. júní 1965, maki hans er
Elsku amma, við vorum mjög
sorgmæddar þegar við heyrðum að
þú værir dáin. Okkur fannst mjög
gaman að koma til þín í Stykk-
ishólm. Það var alltaf gaman að
vera með þér eins og þegar við
fórum á leikrit saman eða í berja-
mó. Það var líka mjög gaman þeg-
ar þú komst til okkar til Banda-
ríkjanna síðastliðið vor og þurftir
að vera mánuði lengur en þú ætl-
aðir af því að þú komst ekki heim
út af eldgosinu. Við eigum mjög
margar góðar minningar með þér
og erum þakklátar fyrir að þú
varst hjá okkur um síðustu helgi.
Hvíldu í friði, amma okkar, og
við vitum að Dóri afi tekur vel á
móti þér á himnum.
Þínar ömmustelpur,
Sara, Sunna Dís og
Sigríður Lilja.
Í dag er til moldar borin í
Stykkishólmi Sigríður Pétursdóttir
lífeindafræðingur. Undirritaður
átti því láni að fagna að fá að
starfa með þesssari einstöku konu
á fyrstu starfsárum sínum á
Franciskusspítala. Hún byggði
upp rannsóknarstofu spítalans af
ódrepandi elju og áhuga og starf-
aði óslitið í á fjórða áratug sem
meinatæknir/lífeindafræðingur við
stofnunina. Hún sýndi stofnuninni
meiri hollustu en hægt er að krefj-
ast af nokkrum starfsmanni, og
jafnvel eftir að hún lauk störfum
áttum við greiðan aðgang að henni
og hennar reynslu og kunnáttu um
árabil.
Sigga hafði allt það til að bera,
sem prýðir framúrskarandi fag-
mann. Sívakandi áhugi og metn-
aður, dugnaður, ósérhlífni og sér-
lega gott skap gerðu samstarfið
við hana einstaklega ánægjulegt.
Hún lét af störfum til að sinna
öðru hugðarefni sínu, leirlistinni,
upp úr miðjum tíunda áratug, og
var áhugi hennar og starfsorka
síst minni á því sviði. Seinna rak
Sigga blómaverslun í Stykkishólmi
og varð það til þess að blómagjöf-
um til eiginkonu undirritaðs fjölg-
aði að mun, enda ætíð gjöfult að
rölta inn í blómabúð Siggu, setja
saman blómvönd með aðstoð henn-
ar og fá í kaupbæti hlýtt bros
hennar, leiftrandi húmor og vin-
arþel.
Undanfarið átti Sigga við van-
heilsu að stríða og tókst hún á við
hana af dugnaði og æðruleysi, en
nú er hún öll, og það er með mik-
illi eftirsjá sem þetta örbyggðarlag
við Breiðafjörðinn kveður þessa
vönduðu konu. Í nafni starfsfólks
og vina á Heilsugæslustöð Stykk-
ishólms og St. Franciskusspítala
færi ég ættingjum hennar dýpstu
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Jósep Ó. Blöndal.
Sigríður Theódóra
Pétursdóttir
✝
Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN HELGASON,
andaðist á Hákólasjúkrahúsinu í Lundi, Svíþjóð,
laugardaginn 27. nóvember.
Jarðsett verður frá Södra Sandby kirkju miðviku-
daginn 22. desember kl. 11.00.
Súsanna Magnúsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar og mágur,
ÓLAFUR ÁGÚSTSSON,
Skaftahlíð 13,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni, Suðurlands-
braut 66, þriðjudaginn 7. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Erla Eyjólfsdóttir,
Loftur Andri Ágústsson, Kristjana Petrína Jensdóttir,
Ingibjörg Ágústsdóttir, Árni Sigurjónsson,
Svanhildur Ágústsdóttir.