Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Formenn stjórnarandstöðuflokkanna leggja áherslu á hve mikill munur er á nýju Icesave-samningunum og þeim fyrri sem felldir voru í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Þeir vilja þó kynna sér málið betur áður en þeir kveða upp úr um afstöðu sína til væntanlegs frumvarp. Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra sem var andvígur fyrri samningum reiknar með að styðja frumvarpið eins og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir málatil- búnað þeirra sem stóðu fyrir fyrri samningum, meðal annars með um- mælum um að þeir væru það besta sem í boði væri, nú endanlega hrun- inn. „Þessi samningur er mun bæri- legri í efnahagslegu tilliti. Ég verð að viðurkenna að það særir eftir sem áð- ur réttlætiskennd mína að við skulum vera að fjalla um þetta mál í stjórn- málunum, skuldir einkabanka en ekki banka í opinberri eigu,“ segir Bjarni. Hann metur samningana nú og í fyrra þannig að á þeim muni nærri 200 milljörðum. „Ég tek líka eftir því að öll uppsetning er með allt öðrum hætti og eðlilegri í samskiptum ríkja,“ segir Bjarni og bætir því við að nú sé komið fram við okkur sem fullvalda þjóð en ekki eins og aðila sem beri sök í málinu. „Það sem skiptir mig mestu er að leiða fram niðurstöðu sem er þjóðinni til mestra heilla. Það er augljóst að fyrri samningar voru ekki þannig. Nú þarf að fara fram yfirvegað mat á þessum kostum og ég ætla að nota næstu daga til að fara yfir málið,“ seg- ir Bjarni. Fari í þjóðaratkvæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er staddur erlendis og hefur ekki haft tækifæri til að kynna sér efni samn- ingsins til hlítar. „Það þarf afar góðan samning ef menn ætla að taka á sig kröfur sem ekki er lagastoð fyrir,“ segir Sigmundur. Hann telur að leggja eigi samning- inn fyrir þjóðina, burtséð frá efni hans, í ljósi þess að þjóðin hafnaði fyrri samningi. „Ef niðurstaðan er góð efast ég ekki um að þjóðin sam- þykki samninginn en ef ekki, þá er það samt sem áður á hennar valdi að taka afstöðu.“ Þór Saari, þingmaður Hreyfingar- innar, lýsti þeirri skoðun sinni í sam- tali við fréttavef mbl.is í gær að bankarnir ættu að taka á sig afgang- inn af Icesasve- skuldinni og gefa almenningi frí frá þessari byrði. „Ég segi: Biðin var þess virði,“ segir Ögmundur Jónasson dóms- málaráðherra þegar leitað er eftir af- stöðu hans. Ögmundur sagði af sér sem heilbrigðisráðherra vegna ágreinings við samráðherra sína um fyrri Icesave-samning og greiddi at- kvæði á móti staðfestingarlögunum. „Við erum að sjá ævintýralegan mun á þeirri niðurstöðu sem nú liggur fyrir og þeirri sem við stóðum frammi fyr- ir. Það skiptir gríðarlegu máli máli, ekki aðeins fyrir þjóðarbúið heldur velferðarkerfið í landinu að þessum klyfjum skyldi ekki vera þröngvað upp á okkur með ofríki eins og Bretar og Hollendingar reyndu.“ Ögmundur svarar játandi spurn- ingu um það hvort hann búist við að styðja samningana í þinginu. „Við fyrstu athugun á þeim valkostum sem uppi eru hef ég þá sýn,“ segir hann en tekur fram að hann muni kynna sér málið ítarlega áður en hann taki end- anlega ákvörðun. Eigum að grípa gæsina Össuri Skarphéðinssyni utanríkis- ráðherra líst vel á samninginn. Hann telur að aðstæður hafi þróast með hagstæðum hætti. Þá segist hann hafa fundið það greinilega að tónninn í viðsemjendum hafi breyst eftir kosningar í Bretlandi og þó sérstak- lega í Hollandi. Ný stjórnvöld vilji taka upp eðlileg samskipti við Íslend- inga. „Ég tel að þeir sem ollu þessari at- burðarás, að samið var núna en ekki þá, geti verið giska ánægðir með sinn hlut. Ég held að samtök eins og Inde- fence og hluti stjórnarandstöðunnar geti verið mjög sátt við að hafa leitt til þeirrar þróunar sem sparað getur þjóðinni stórar fjárhæðir.“ Össur telur ekki skynsamlegt að bíða lengur með að ljúka samningum. Bendir hann á að í þeim erfiðleikum sem sum Evrópuríki eigi nú í sjáist miklu hærri vextir en gert sé ráð fyrir í samningum Íslendinga. Þannig séu Bretar að lána nágrönnum sínum á Írlandi á tvöfalt hærri vöxtum. „Ég tel að í gervi þessara samningsdraga sé ákveðin gæs á flögri fyrir framan okkur og tel að það ætti að grípa hana áður en þjóðirnar kippa að sér hönd- um,“ segir Össur. Betri samningur fyrir efnahaginn  Ögmundur Jónasson reiknar með að styðja Icesave-samning Morgunblaðið/Ómar Alþingi Frumvarp um staðfestingu Icesave-samninganna verður lagt fram á Alþingi. Forystumenn stjórnarandstöðunnar hafa ekki gert upp hug sinn. Bjarni Benediktsson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Þór Saari Ögmundur Jónasson Össur Skarphéðinsson FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þótt flestir þingmenn stjórnarand- stöðunnar sem rætt var við síðdegis í gær og fram eftir kvöldi, hafi verið jákvæðir gagnvart þeirri niðurstöðu sem samninganefnd Íslands um Ice- save kom heim með frá Lundúnum í gær og kynnt var í þinginu, þá ber viðmælendum saman um að engin ástæða sé til þess að fara sér óðslega. Ekki verði hrapað að neinu og frá- leitt sé að gera sér í hugarlund, að Icesave fái einhverja hraðferð í með- förum Alþingis, jafnvel þótt það sé ugglaust það sem bæði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jó- hanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra vilja. Auðheyrt var á þingmönnum stjórnarandstöðunnar, að þeir telja himin og haf á milli þeirrar niður- stöðu sem kynnt var í gær og þess samnings sem Svavar Gestsson og samninganefnd hans gerðu í júní í fyrra og ríkisstjórnin knúði svo í gegnum Alþingi í fyrrahaust, en þjóðin hafnaði svo í þjóðaratkvæða- greiðslu. „Það er ekki eitthvað á annað hundrað milljarða sem þessi samn- ingur er hagstæðari. Munurinn er yfir 400 milljarðar króna, því Svav- ars-samningurinn gerði ráð fyrir kröfu á ríkissjóð upp á 479 milljarða króna, en þessi samningur gengur út á að 47 milljarðar geti fallið á ríkis- sjóð, þótt það sé vissulega háð alls kyns ytri aðstæðum,“ sagði þing- maður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið. Hann og reyndar fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Hreyfingarinn- ar og Framsóknarflokksins telja að þessi niðurstaða sé með þeim hætti, að ekki sé hægt að túlka hana á ann- an veg en þann að um gríðarlegan áfellisdóm sé að ræða fyrir ríkis- stjórnina, einkum Steingrím J. Sig- fússon og Jóhönnu Sigurðardóttur. „Við erum ekki búin að samþykkja eitt eða neitt. Nú munum við bara kynna okkur þennan samning í þaula og við klárum það ekkert á örfáum dögum,“ segir stjórnarandstöðu- þingmaður. Mistök og afglöp Annar segir að nú sé það komið á daginn að stjórnarandstaðan hafi haft rétt fyrir sér allan tímann. „Það reyndist hægt að gera svo miklu betri samning en Steingrímur og Jó- hanna og þeirra fólk héldu fram. Þau reyndu að troða mörg hundruð millj- arða skuldbindingu ofan í kokið á þjóðinni. Þau ættu auðvitað bara að skammast sín, segja af sér og biðja þjóðina afsökunar, því afglöp þeirra og mistök hafa nú verið afhjúpuð með afgerandi hætti,“ segir þing- maður. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðu í gær, að af fenginni reynslu væri óráðlegt að reyna að flýta af- greiðslu málsins, þegar samningur- inn kæmi fram í þinginu í frumvarps- formi. Það þyrfti að gaumgæfa allar hliðar hans og velta upp þeim kost- um sem fyrir hendi væru. Enn væru mjög margir þeirrar skoðunar, að ís- lenska þjóðin ætti ekki taka á sig neinar greiðslur vegna taps einka- fyrirtækis, en aðrir teldu að ljúka bæri málinu og ef það ætti að gerast með samningi, þá yrði sennilega ekki lengra komist. Icesave fær enga hraðferð á Alþingi  Áfellisdómur yfir ríkisstjórn Íslands Morgunblaðið/Kristinn Þing Alþingi á eftir að samþykkja nýtt Icesave-samkomulag. Þurfa góðan tíma » Viðmælendur segja að það hafi komið skýrt fram í kynn- ingu Lee Buchheit, að hann teldi enga tímapressu vera á Alþingi frá Bretum og Hollend- ingum. » Nú þurfi menn að grand- skoða drögin og taka sér þann tíma í það sem þeir telja nauð- synlegt og meta þá kosti sem eru fyrir hendi. Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt! Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur tel- ur að upplýsingar um góðan árangur í rekstri borgarannar staðfesti að umfangsmiklar hækkanir skatta og gjalda á næsta ári séu óþarfar. Aðstoðarmaður borgarstjóra segist ánægður með góða stöðu og ef staðan verði einnig góð á næsta ári muni það verða til hagsbóta fyrir borgarbúa. Hagnaður af rekstri samstæðu Reykjavíkurborgar var 16,5 milljarðar kr. á fyrstu níu mánuðum ársins, sam- kvæmt árshlutareikningi sem kynntur var í borgarráði í gær. Rekstur borgarsjóðs skilaði rúmum milljarði í af- gang. Hins vegar urðu gengisbreytingar á lánum Orku- veitu Reykjavíkur til þess að hagnaður samstæðunnar fór yfir 16 milljarða. „Þessar upplýsingar staðfesta þann góða árangur sem náðist eftir hrun með samstilltu átaki borgarfulltrúa, starfsmanna borgarinnar og borgarbúa. Þær staðfesta einnig að aðgerðir núverandi meirihluta gagnvart íbúum eru með öllu óþarfar og í raun óskiljanlegar,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna. Hún seg- ir að nýta ætti þann góða árangur sem náðst hefði í fjár- málunum borgarinnar síðastliðin tvö ár, í þágu borgarbúa með því að hlífa þeim við svo umfangsmiklum hækkunum skatta og gjalda. Ekki náðist í formann borgarráðs eða borgarstjóra. S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, segir að ekki hafi gefist nægur tími til að greina niðurstöður árshlut- areikningsins. Hann vekur þó athygli á því að niðurstaðan sýni fyrst og fremst bókhaldslegan hagnað vegna breyt- inga á lánum Orkuveitunnar og nýtist því ekki. Hann segir að aðeins sé verið að hækka útsvar um 0,17%. Hins vegar sé verið að taka inn hluta af verðlagshækkununum und- anfarin ár með hækkun á gjaldskrám sem verið hafi óbreyttar frá árinu 2008 og í einhverjum tilvikum að leið- rétta gjaldskrár. helgi@mbl.is Segir hækkanir skatta og gjalda óþarfar  Hagnaður af rekstri borgarinnar fyrstu 9 mánuði ársins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.