Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010 Jólapakkarall Jólasveinar á mjólkurbílum aka Laugaveg að Ingólfstorgi kl. 15 og leggja af stað frá Hallgrímskirkjuplani kl. 16 og aka niður Skólavörðustíg að Lækjartorgi. Á leiðinni taka jólasveinarnir við pökkum sem þeir munu afhenda Fjölskylduhjálpinni og Mæðrastyrksnefnd. Látum gott af okkur leiða. Mjólkursamsölunnar og Miðborgarinnar okkar í dag 18. desember. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA „Við getum ekki tekið fram fyrir hendur korthafanna eða ráðskast með það hvernig þeir nota kortin sín, svo framarlega sem notkunin er innan laga og reglna, frek- ar en að Seðlabankinn geti stjórnað því hvernig fólk notar peninga,“ segir Viðar Þorsteinsson, forstjóri VALITOR, spurður að því hvernig hann bregðist við ummælum Ögmundar Jónassonar, dómsmála- og mannréttindaráðherra. Ögmundur sagði við Morgun- blaðið í gær að kortafyrirtæki ættu að „íhuga eigin ábyrgð“ hvað fjárhættuspil á netinu varðaði. Færu þeir sem haldnir væru spilafíkn „sér og sínum að voða í spilamennsku á netinu [væri] ábyrgðin þeirra sem opn- uðu á slíka möguleika“. Viðar segir fyrirtækið starfa eftir landslögum og reglum alþjóðlegu kortafélaganna um viðskipti á netinu. Martha Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Kreditkorta, tekur í sama streng. Greiðslukort séu eins og hvert annað tæki til þess að greiða fyrir vörur og þjónustu og ekki sé auðvelt að stýra því hvað notendur greiði fyrir. Hvað fjárhættuspil á netinu varðar segir Martha erfitt að setjast í dómarasæti um það hvenær spilamennskan sé eðlileg eða hvenær um fíkn sé að ræða. Kreditkort sjái til þess að umgjörðin sé í lagi, og reglur um korta- viðskipti virtar. Hvorki Martha né Viðar kannast við það að borist hafi erindi eða fyrirspurn frá dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu. einarorn@mbl.is Kortafyrirtækin setjast ekki í dómarasætið  Ráðherra segir kortafyrirtæki þurfa að íhuga eigin ábyrgð Morgunblaðið/Kristinn Fíkn Sífellt fleiri ánetjast fjárhættuspilum af ýmsu tagi. Gunnar I. Birgisson, bæjar- fulltrúi og fyrrverandi bæjar- stjóri Kópavogsbæjar, hefur gefið út sína eigin fjárhags- áætlun fyrir sveitarfélagið árið 2011. Gunnar telur jafn miklar hækkanir á sköttum og þjón- ustugjöldum, líkt og meirihluti bæjarstjórnarinnar leggur til, óþarfar. Álögur meirihlutans eru tæplega hálfum milljarði hærri en fjárhagsáætlun Gunnars gerir ráð fyrir. Ósáttur við tillögur meirihlutans Gunnar fann sig knúinn til að leggja fram sína eigin áætlun. „Minnar nærveru var ekki óskað, eða þannig. Ég var mjög ósáttur við bæði aðferð- ina, grunninn og þær tillögur sem voru á lofti. Ég sem sjálfstæðismaður gat bara ekki staðið á þessu, því miður,“ segir Gunnar. Í fjárhagsáætlun hans eru rekstrarliðirnir sundurliðaðir. „Restin er svo niðurskurður í mannskap. Það má minnka mannskap án þess að fara í uppsagnir með því að ráða ekki í stað þeirra sem hætta. Stærstu þætt- irnir í vinstriáætluninni eru hækkanir á sköttun og þjónustugjöldum.“ Það sama og er að gerast í þinginu Fulltrúar sex flokka í bæjarstjórn lögðu fram þá fjárhagsáætlun sem Gunnar mótmælir. „Menn koma sér ekki saman um niðurskurðinn og þá ákveða menn að hækka skatta. Þetta er auðvelda leiðin. Þetta er það sama og er að gerast inni á þingi,“segir Gunnar sem kveður áætlun sína ekki skerða grunnþjónustu sveitarfélagsins. „Á árun- um 2003-2008 vorum við að bæta í. Það var aukin krafa um mannskap. Sveitarfélögin kepptu við at- vinnulífið sem blómstraði þá mjög og voru laun hækkuð og mannskapur aukinn. Til dæmis hefur starfsmönnum í grunnskólum fjölgað miðað við litla fjölgun nemenda. Ég er að taka til baka af því. Án þess að kennsla barna skerðist.“ Fjölskyldur verða óánægðar Gunnar segir það óviðunandi að Kópavogsbær fylgi fordæmi ríkisstjórnarinnar með því að hækka álögur á íbúa sína. „Það verður ekki mikil ánægja meðal fjöl- skyldna í Kópavogi þegar þær fá reikninginn í jan- úar og febrúar. Þetta er árás á ungar barnafjöl- skyldur,“ segir Gunnar að lokum. Vill lækka álögur um hálfan milljarð  Gunnar I. Birgisson gefur út sína eigin fjárhagsáætlun fyrir Kópavogsbæ árið 2011  Segir nærveru sinnar ekki óskað við gerð fjárhagsáætlunar meirihlutans Gunnar Birgisson Engar við- ræður enn farið fram Ekkert miðar í kjarabaráttu slökkviliðsmanna, en kjarasamn- ingar þeirra runnu út um síð- ustu mánaðamót, líkt og á við um fjölda annarra stétta. Lands- samband slökkvi- liðs- og sjúkra- flutningamanna (LSS) hefur farið fram á fund með Launanefnd sveit- arfélaga, en þeirri beiðni hefur enn ekki verið svarað. Samtök atvinnu- lífsins boðuðu hinn 2. desember síð- astliðinn til fundar með ríki, sveit- arfélögum og launþegahreyfingunni. Til stóð að sá fundur færi fram 9. desember, en honum var aflýst á síð- ustu stundu. Í bréfi sem fulltrúar LSS hjá Slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins (SHS) sendu stjórn SHS í byrjun desember voru vinnu- brögð stjórnarinnar fordæmd. Þá hafði áhættuálag starfsmanna, sem bættist ofan á mánaðarleg laun þeirra, verið fellt niður. Í bréfinu segir að starfsmenn SHS séu mjög óánægðir með þá ákvörðun, og að ábyrgðin á ófyrirséðum afleiðingum aðgerða stjórnar sé alfarið hennar. einarorn@mbl.is Slökkviliðsmenn eru óánægðir.  Ekki útlit fyrir viðræður á þessu ári Karmelnunnurnar í Hafnarfirði sitja aldrei auðum höndum og handavinna þeirra er víða vel þekkt. Þær taka að sér útsaum á hátíðarfánum og messuklæðum, skrautrita texta í bækur og fleira, mála íkonamyndir, skreyta kerti, umslög, kort og gestabækur og mála á styttur, svo eitthvað sé nefnt. Fyrir jólin leggja þær sérstaka áherslu á að eiga mikið úrval af vörum sem tengjast hátíðinni, jólatrésskreytingar og fleira. „Við vinnum sérstaklega mikið með kerti,“ segir varaabbadísin Agnes sem hefur verið á Íslandi í 26 ár, lengst allra í klaustrinu, en þar eru nú 13 pólskar nunn- ur. Agnes segir að margir komi reglulega í verslunina í klaustrinu og auk þess hafi þær verið með varning sinn til sölu í Jólaþorpinu í Hafnarfirði frá byrjun. Hagn- aðurinn fari til líknarmála og í rekstur klaustursins. Á myndinni er systir Melkorka. steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Ernir Alltaf með sölubás í Jólaþorpinu Nóg að gera hjá Karmelnunnunum í Hafnarfirði Ögmundur Jónasson dóms- málaráðherra segir að raunhæfasta leiðin til að létta hratt þrýstingi af fangelsiskerfinu felist í því að sam- þykkja sem fyrst breytingar á fulln- ustulögunum sem fela í sér mögu- leika á að taka upp rafrænt eftirlit með föngum og aukna nýtingu á samfélagsþjónustu. Þetta kemur fram í skriflegu svari hans, við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur á Alþingi. Segir þar að dómsmálaráðuneytið vinni að frumvarpi í samráði við nefnd sem fer yfir lög um fullnustu refsinga og mótar stefnu í fangelsismálum. Rafrænt eftirlit með föngum Dómsmála- og mannréttinda- ráðuneytið ætlar ekki vinna að und- irbúningi löggjafar um spilavíti, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, aðstoð- armanns dómsmálaráðherra. Fyrir ríflega ári barst erindi til dómsmálaráðherra og iðnaðar- ráðherra í sambandi við rekstur spilavíta hérlendis. Iðnaðarráðu- neytið leitaði umsagna og voru þær almennt neikvæðar. Heilbrigð- isráðuneytið lagðist alfarið gegn því og tók undir orð landlæknis um neikvæð áhrif spilavíta á heilsu landsmanna. Á meðal lögreglu- stjóra voru viðhorfin líka neikvæð. Iðnaðarráðuneytið ákvað að beita sér ekki fyrir lögleiðingu þessarar starfsemi og Halla segir að sama viðhorf ríki í dómsmála- og mann- réttindaráðuneytinu. steinthor@mbl.is Spilavíti ekki á dag- skrá í ráðuneytinu Í fjárhagsáætlun Gunnars eru tekin dæmi um þjónustu- gjaldahækkun til samanburðar við áætlun bæjarins. Þar kemur m.a. fram að gjöld foreldris sem hefur eitt barn á leikskóla og eitt í grunnskóla þurfa aðeins að hækka um 46 þúsund krónur í stað 146 þúsund króna líkt og gert er ráð fyrir í áætlun bæj- arins. 100.000 kr. munur DÆMI UM ÞJÓNUSTUGJÖLD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.