Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Sýnd kl. 2(650kr.) og 3:50 (ísl. tal)
Sýnd kl. 2(950kr.) og 5
EINN BESTI
SPENNU-
TRYLLIR
ÁRSINS...
ÞRÆLMÖGNUÐ
SPENNUMYND
HHH
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:30
HHH
“Heldur manni í heljargreipum.
Ég sef með kveikt ljósin á næstunni...”
T.V. - Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10 (enskt tal - ótextuð)
KOMDU Í FERÐALAG OG UPPLIFÐU
ÆVINTÝRI NARNIA EINS OG
ÞÚ HEFURALDREI SÉÐ ÁÐUR.
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 10 (ótextuð)
Sýnd kl. 2(950kr.), 4 og 6 (íslenskt tal)
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.isTilboð í bíó GILDIR Á ALLARSÝNINGAR MERKTARMEÐ RAUÐU
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
NARNIA 3 3D KL. 3 (900kr.) - 5.30 - 8 - 10.15
UNSTOPPABLE KL. 6 - 8
PARANORMAL ACTIVITY 2 KL. 10
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 3 (600kr.) - 4.30
7
12
16
L
Nánar á Miði.is
MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 1 (950kr.) 3.30 - 5.50
MEGAMIND 3D ENSKT TAL ÓTEXTUÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10
NARNIA 3 3D KL. 1 (950kr.) 3 - 5.30 - 8 - 10.30
NARNIA 3 3D LÚXUS KL. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
FASTER KL. 8 - 10.10
PARANORMAL ACTIVITY 2 KL. 10.10
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 1 (700KR.) 3.30
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8
ARTHÚR 3 KL. 1 (700) laugardag - 3.40
L
L
7
7
16
16
L
12
L
NARNIA 3 3D KL. 4 (950kr.) - 6.30 - 9
FASTER KL. 8 - 10.10
AGORA KL. 3 - 6 - 9
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 4.30 (700KR.) - 6.20
UNSTOPPABLE KL. 10.10
EASY A KL. 4 - 6
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8
7
16
14
L
L
L
L
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR
ÍSL. TALÍSL. TALT.V. - KVIKMYNDIR.IS
Hann leitar
hefnda á þeim
sem sviku hann.
Frábær hasarmynd!
"MYND SEM HITTIR Í MARK!"
-H.H, MBL
Í 3-DMEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Í 3-D
5%
Einfalt með kokkalandsliðinu
Matarritstjórn: Bjarni G. Kristinsson
og Fritz M Jörgensson.
Sögur
bbbbn
Hugmyndin
er góð, að fá
kokkalands-
liðið til að
sjóða saman
auðvelda sæl-
kerarétti sem
eiga það sam-
eiginlegt að
innihalda aldrei fleiri en fjögur hrá-
efni. Um leið fáum við að kynnast
liðsmönnum kokkalandsliðsins sem
deila með okkur sínum eftirlæt-
isréttum.
Reyndar innihalda margar upp-
skriftanna aðeins fleiri hráefni, en
þau má finna í flestum eldhúsum og
eru vatn, olía, salt og sykur, svo fátt
eitt sé nefnt.
Þó svo að uppskriftirnar innihaldi
ekki mörg hráefni eru þarna hug-
myndir að nokkuð fjölbreyttri mat-
seld, smáréttum, meðlæti, kjöt- og
fiskréttum, sósum, brauðum og eft-
irréttum svo fátt eitt sé nefnt.
Myndir af kokkunum eru per-
sónulegar og flottar og eins er vel til
fundið að hrúga öllu liðinu inn í eitt
eldhús eins og gert er á for-
síðumyndinni. Allt umbrot er einnig
til fyrirmyndar.
Bókin er góð viðbót í eldhúsið og
hægt að nýta við hvers kyns matseld
sem flestir ættu að ráða við.
Stóra Disney matreiðslubókin
Ritstjórn: Helga Dögg Björgvinsdóttir /
Crymogea.
Edda útgáfa.
bbbbm
Ekki er ég
viss um að út-
gefendur Stóru
Disney-
matreiðslubók-
arinnar hafi
gert sér í hug-
arlund að bókin
ætti eftir að
verða ein mest
selda bók ársins
2010. Sú varð hinsvegar raunin og
því fjölmargir landsmenn sem luma
á einni slíkri, eða munu allavega
gera það eftir jólin.
Bókin er afar fjölbreytt og klisjan
um að allir finni eflaust eitthvað við
sitt hæfi á vel við. Uppskriftirnar
eru misjafnar, í sumum er hollustan
ekkert endilega í aðalhlutverki en
aðrar innihalda spelt, agave-sýróp
og annað sem jafnan einkennir upp-
skriftir sem þykja í hollari kant-
inum. Þá eru þarna afar einfaldar
uppskriftir með örfáum hráefnum í
bland við aðeins flóknari gjörninga
og allt þar á milli.
Uppsetningin á bókinni er afar
góð, upplýsingar skýrar og aðgengi-
legar og myndirnar stílhreinar og
girnilegar. Listar yfir áætlaðan eld-
unartíma, áhöld og erfiðleikastig
matreiðslunnar auðvelda ungum
matreiðslumeisturum undirbúning
og listar yfir hráefni og aðferðir eru
afar skýrir og auðskiljanlegir.
Disney-fígúrurnar sem leggja
nafn sitt við uppskriftirnar eiga ef-
laust eftir að auka áhuga ungra mat-
reiðslumanna á eldamennskunni
ekki síður en matnum sjálfum. Það
er nokkuð öruggt að grænmet-
isvefjur Þyrnirósar sem litlar hend-
ur hafa matreitt sjálfar bragðast
talsvert betur en hefðbundnar
grænmetisvefjur úr eldhúsi foreldr-
anna.
Léttir réttir Hagkaups
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
Hagkaup
bbbbn
Nú hefur ver-
ið ákveðið að
talað verði um
verslunina Hag-
kaup í eintölu,
því heitir nýj-
asta mat-
reiðslubókin frá
versluninni
Léttir réttir
Hagkaups. En
það er önnur saga. Hér er það kokk-
urinn góðkunni Friðrika Hjördís
Geirsdóttir, Rikka, sem er höfundur
uppskrifta.
Það er skemmst frá því að segja
að umrædd bók er stútfull af girni-
legum léttum réttum. Rikka hefur
greinilega viðað að sér fjölda girni-
legra uppskrifta í gegnum tíðina og í
bókinni má finna margskonar rétti
úr fjölbreyttu hráefni. Þrátt fyrir að
léttir réttir sé þema bókarinnar eru
uppskriftirnar langt því frá einsleit-
ar og þarna er að finna ýmiskonar
mat, meðlæti og smárétti eins og áð-
ur sagði.
Í stíl við hina léttu línu sem er
dregin í bókinni fylgir svo rammi
með upplýsingum um næringargildi
í hverjum rétti fyrir sig og aftast í
bókinni fylgja svo nánari útskýr-
ingar á hlutverki helstu næring-
arefna sem nefnd eru til sögunnar.
Þessi hluti bókarinnar gagnast trú-
lega mörgum.
Uppsetning bókarinnar er í takt
við aðrar matreiðslubækur Hag-
kaups og ekkert uppá það að klaga.
Ég saknað þess að stungið væri
uppá hvers kyns mat sósur og með-
læti pössuðu best með. Það er nefni-
lega vel til fundið að benda á ým-
iskonar meðlæti í bókinni með
stærri réttunum til að hægt sé að
nýta allt sem bókin hefur uppá að
bjóða.
Léttir réttir Hagkaups á án efa
eftir að gagnast mörgum við elda-
mennsku, bæði byrjendum og lengra
komnum.
Gestgjafinn 30 ára –
í tilefni dagsins
Ritstjórn: Sólveig Baldursdóttir
og Guðrún Hrund Sigurðardóttir
Birtíngur/Gestgjafinn
bbbnn
Hið margróm-
aða tímarit Gest-
gjafinn fagnar 30
ára útgáfuafmæli
um þessar mund-
ir. Því er vel til
fundið hjá að-
standendum að
gefa út sam-
antekt af síðum
blaðanna í bókarformi. Þá er reynd-
ar skrítið að ekki hafi verið gengið
alla leið og gerð ærleg samantekt frá
upphafi útgáfunnar, en bókin inni-
heldur uppskriftir frá „und-
anförnum árum“.
Bókin er falleg og fagmannlega
sett upp og myndirnar sömuleiðis
eins og best verður á kosið í mat-
reiðslubókum. Enda fagfólk á ferð
sem fæst við þessa hluti með góðum
árangri í Gestgjafanum mán-
aðarlega.
Röð uppskrifta er fremur óhefð-
bundin, byrjað er á eftirréttum, en
svo taka eftirréttir og partíréttir við.
Aðalréttirnir reka svo lestina. Tals-
vert fleiri uppskriftir er að finna í
fyrstnefndu flokkunum, og upp-
skriftir að girnilegum kökum og
klúbbaréttum ná langt framyfir
miðja bók. Því hefði kannski átt að
halda til haga í upptalningu á forsíðu,
hafa fjölmennustu flokkana sem fyrst
koma fyrir í bókinni efsta á lista.
Þá fannst mér helst til mikill sam-
tíningur í kaflanum um morgunmat-
inn, réttir eins og volg eplakaka
hefðu frekar átt heima í kaflanum
um kökur og eftirrétti.
En uppskriftirnar í þessari fallegu
bók eru afar girnilegar og henta fyr-
ir alla sælkera sem vilja gera sér og
sínum glaðan dag.
Matreiðslubækur
Birta Björnsdóttir
birta@mbl.is
Yfirlit yfir nýútkomnar
matreiðslubækur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
4 stjörnur Léttir réttir Friðriku Hjördísar Geirsdóttur virka vel.