Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 52
52 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
6
1 2 8 5
7 2
1 9
5 3
6 7 8
9 1 6
6 7 8 9
8 2 3
6 8 2
4 1
2 4 1 5
5 2
4 8 2 6 1
2 1 7 4 5
8
7 8 3 4
8 6 7 3
7
1 8 9
9 7 2
4 6
6 4
6 1 2
8 9 7 1
2 1 4 9 3
2 4 9 1 8 3 7 5 6
7 5 8 6 9 2 1 3 4
1 6 3 5 4 7 8 2 9
9 2 5 3 6 1 4 7 8
3 7 1 8 2 4 6 9 5
4 8 6 7 5 9 3 1 2
5 9 7 4 3 6 2 8 1
6 3 2 9 1 8 5 4 7
8 1 4 2 7 5 9 6 3
1 6 2 7 3 4 9 8 5
9 7 5 2 8 1 3 4 6
4 3 8 9 5 6 2 1 7
6 8 7 1 9 3 5 2 4
5 2 9 4 6 8 7 3 1
3 4 1 5 2 7 6 9 8
8 1 6 3 7 2 4 5 9
7 5 3 8 4 9 1 6 2
2 9 4 6 1 5 8 7 3
1 2 5 8 6 3 4 7 9
7 9 8 5 1 4 6 3 2
6 3 4 2 7 9 1 8 5
2 6 9 3 8 5 7 4 1
3 4 7 9 2 1 5 6 8
5 8 1 6 4 7 9 2 3
8 1 2 4 5 6 3 9 7
4 5 3 7 9 2 8 1 6
9 7 6 1 3 8 2 5 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Sigurður
Bjarnason fyrr-
verandi alþing-
ismaður, rit-
stjóri Morgun-
blaðsins og
sendiherra, er
níutíu og fimm
ára í dag, 18.
desember. Sigurður heldur upp á
afmælisdaginn með fjölskyldu
sinni. Eiginkona Sigurðar er Ólöf
Pálsdóttir myndhöggvari og eiga
þau tvö börn.
95 ára
Anna Hall-
dórsdóttir,
Furuhlíð 7,
Sauðárkróki, er
sextug í dag, 18.
desember. Hún
verður að heim-
an.
60 ára
Guðmundur
Guðjónsson veit-
ingamaður á
Jómfrúnni er
fimmtugur í
dag, 18. desem-
ber. Hann tekur
á móti gestum á
heimili sínu, Sól-
eyjargötu 13, frá kl. 16.
50 ára
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er hætt við að samskipti þín við
fólk gangi ekki nógu vel í dag. Frestunar-
árátta getur dregið dilk á eftir sér. Ekki
fresta til morguns því sem þú getur gert í
dag.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú kannt að hefja nýtt ástarsamband
fljótlega. Hættu að ganga stöðugt fram af
öðrum, það verður þreytandi til lengdar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur verið á fullri fart undan-
farin misseri. Til hvers? Hvað hefur þú grætt
á því? Einhver segir þér til syndanna.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Notaðu daginn til þess að leita svara.
Leitaðu samt ekki langt yfir skammt því
svörin finnurðu hið innra með þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er eitt og annað heima við, sem þú
hefur látið sitja á hakanum. Nú er tími til
þess að láta sér líða vel í eigin skinni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er kraftur í þér í dag og þú vilt
skipuleggja þig betur. Kannski gerir þú þér
grein fyrir því að vinna þín uppfyllir vissar
þarfir sem sambandið nær ekki að gera.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Sparsemi er dyggð en níska ekki. Af
hverju að gera eitthvað sem veldur fjaðrafoki
heima? Þú færð leyfi til að vera erfið/ur í
nokkra daga en síðan ekki meir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Líttu til þeirra sem leita eftir að-
stoð þinni. Ef þú ert búin/n að fá nóg er
heiðarlegra að gefa hlutinn bara frá sér og
láta þá sem vilja taka við.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Farðu þér hægt þegar við
ókunnan er að eiga, sérstaklega ef ekki er á
hreinu, hvað fyrir honum vakir. Notaðu tím-
ann á kvöldin til að skrifa jólakortin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Mundu að þú hefur sjálf/ur mikið
um það að segja, hvernig mynd aðrir fá af
þér. Flýttu þér að losa þig við vankantana áð-
ur en þeir hafa áhrif á framann.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ræður, það er enginn efi.
Brettu upp ermarnar og vertu þinn eigin
gleðibanki. Þú færð heimboð sem þú ættir
að hafna.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú munt líklega heyra frá gömlum
séns eða fyrrverandi maka á næstunni. Vertu
með opinn huga – þá færðu betri hugmyndir.
Stjörnuspá
Flóðogfjara
18. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.13 3,4 10.32 1,2 16.33 3,2 22.40 1,0 11.20 15.30
Ísafjörður 6.07 1,9 12.29 0,7 18.22 1,8 12.07 14.53
Siglufjörður 1.53 0,4 8.11 1,2 14.36 0,4 20.49 1,1 11.52 14.34
Djúpivogur 1.14 1,9 7.37 0,8 13.33 1,6 19.35 0,6 10.59 14.50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Árnaðheilla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, sellóleikari, er 35
ára í dag. Hann kveðst ekki ætla að halda neitt
sérstaklega upp á afmælið því eins og svo margir
tónlistarmenn stendur hann í ströngu í desember.
„Afmælisdagurinn hefur nú oft farið forgörðum
vegna vinnunnar en maður reynir svona að fela
biturleikann,“ segir Sigurður og hlær. „Ég efast
um að ég geri eitthvað sérstakt, ætli þetta týnist
ekki bara í hátíðardögunum. En ég hef engar
áhyggjur af því að ég geri mér ekki glaðan dag.“
Sigurður Bjarki leikur á selló með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavík-
ur. Sinfóníuhljómsveitin heldur þrenna jólatónleikla nú um helgina.
Þar verða meðal annars leiknir þættir úr Hnotubrjótnum eftir Pjotr
Tsjajkovskíj auk sígildra jólalaga. Heilmiklu verður tjaldað til en þess
má geta að nemendur úr listdansskóla Íslands munu taka spor við
undirleik sinfóníuhljómsveitarinnar. Sigurður Bjarki lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 undir hand-
leiðslu Gunnars Kvaran. Hann lauk Bachelors-prófi frá Manhattan
School of Music árið 1998 og Masters-prófi frá Juilliard-skólanum í
New York árið 2000. hjaltigeir@mbl.is
Sigurður Bjarki Gunnarsson er 35 ára í dag
Reynir að fela biturleikann
18. desember 1958
Spámaðurinn, lífsspeki í ljóð-
um eftir Kahlil Gibran, kom út
í íslenskri þýðingu Gunnars
Dal. Bókin hefur síðan verið
gefin út fimmtán sinnum og er
heildarupplag hennar meira
en fjörutíu þúsund eintök.
18. desember 1982
Kvikmyndin Með allt á hreinu
var frumsýnd. Ágúst Guð-
mundsson og Stuðmenn stóðu
að myndinni sem sló öll að-
sóknarmet, um 115 þúsund
manns sáu hana.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Freistingar andskotans. V-Enginn
Norður
♠Á10
♥DG9
♦ÁD96
♣ÁK96
Vestur Austur
♠65 ♠KG2
♥ÁK10865 ♥73
♦72 ♦10854
♣G52 ♣10843
Suður
♠D98743
♥42
♦KG3
♣D7
Suður spilar 4♠.
Það er ljótt að segja það, en hæfi-
leikinn til að blekkja og afvegaleiða er
mikilvægur í vörn. Þetta á einkum við
þegar sagnhafi er kominn á sigurbraut,
án þess þó að vita það fyrir víst. Þá
kemur andskotinn og freistar með
gylliboðum, sem leiða beint til glöt-
unar. Ekki beinlínis kristilegt hug-
arfar, en svona er lífið við spilaborðið.
Vestur vekur á veikum 2♥, norður
doblar, suður stekkur í 3♠ og norður
lyftir í fjóra. Vestur tekur ♥Á-K. Spil-
ar síðan hjarta í þriðja sinn.
Austur sér hvað verða vill. Ef hann
hendir í slaginn mun sagnhafi spila ♠Á
og spaða að drottningunni, en þá fær
vörnin á ♠K og búið spil. Austur
trompar því þriðja hjartað með kóng!
Hver veit – ef sagnhafi staðsetur nú
♠G í vestur gæti hann svínað tíunni
síðar.
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. f4 d5 2. Rf3 c5 3. e3 a6 4. a4
Bg4 5. Be2 Bxf3 6. Bxf3 Rc6 7. 0-0
e5 8. fxe5 Rxe5 9. d4 Rxf3+ 10.
Dxf3 Rf6 11. Rc3 cxd4 12. exd4
Be7 13. Bg5 0-0 14. Hae1 He8 15.
Kh1 h6
Staðan kom upp í C-flokki
Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur
sem lauk í október sl. en sigurveg-
ari mótsins, Páll Sigurðsson
(1.884), hafði hvítt gegn syni sín-
um, Svanbergi Pálssyni (1.781).
16. Hxe7! Dxe7? svartur hefði
fremur getað haldið taflinu gang-
andi lengur með því að leika 16. …
hxg5 þótt staðan væri erfið eftir
17. Hxe8 Dxe8 18. Rxd5. 17. Rxd5
De4 18. Bxf6 og svartur gafst upp
enda fátt um fína drætti í stöðu
hans.
Hvítur á leik.
Krossgáta
Lárétt | 1 kaldhæðni, 8
munnbiti, 9 gösla í vatni,
10 lengdareining, 11
þunnt stykki, 13 bleyt-
unnar, 15 lóu, 18 kærleika,
21 auð, 22 þolna, 23 vilj-
ugu, 24 sköpulag.
Lóðrétt | 2 bölva, 3 jarða,
4 hæsta, 5 álíta, 6 stubb, 7
sægur, 12 hróp, 14 gála,
15 viljugt, 16 hrekk, 17
vínglas, 18 svipað, 19
fugls, 20 þvaður.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 storm, 4 horsk, 7 lerki, 8 skjár, 9 sót, 11 garn, 13
snar, 14 Ólína, 15 flot, 17 ljót, 20 ata, 22 lifir, 23 urtan, 24
riðla, 25 auðna.
Lóðrétt: 1 sálug, 2 orrar, 3 meis, 4 hest, 5 rýjan, 6 kærar, 10
ótítt, 12 nót, 13 sal, 15 fölur, 16 orfið, 18 játað, 19 tunna, 20
arga, 21 auga.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji er mikið jólabarn. Allt fráæsku sinni hefur Víkverji vapp-
að um miðborg Reykjavíkur til að
sjúga í sig jólaskapið en þar má alltaf
sjá bústna kaupmenn glaða með
gróðann, brosandi börn full tilhlökk-
unar og líflegar skreytingar. Þetta er
aðventan í hnotskurn fyrir Víkverja
og mikið ofboðslega er hann feginn að
eitthvert kreppuhjal hafi lítil sem
engin áhrif á stemninguna í borginni.
x x x
Eitt af helstu kennimerkjumjólanna í miðborg Reykjavíkur
er jólatréð á Austurvelli, Óslóartréð.
Í huga flestra borgarbúa er tréð
punkturinn yfir i-ið í jólastemning-
unni. Það er eitthvað ótrúlega jóla-
lega rómantískt við daufan bjarma
ljósa trésins sem blíðlega lýsa vegfar-
endum leið um Alþingishúsið og
Dómkirkjuna. Oftar en ekki sáldrar
svo almættið smásnjó yfir svæðið til
að kóróna stemninguna.
x x x
Norðmenn hafa gefið okkurjólatré í u.þ.b. 60 ár. Víkverji er
ekki ýkja sagnfróður og auglýsir því
eftir tildrögum þess að þeir afhentu
okkur fyrsta tréð. Eitt er þó víst,
Norðmenn eru miklir vinir okkar og
frændur og Víkverji telur þessa jóla-
gjöf þeirra til marks um hlýju ná-
grannaþjóðar í okkar garð. Hvað sem
því líður er tréð í ár hins vegar ótta-
lega slappt. Langt á milli greina,
þurrt, líflaust og langt frá því að vera
jafn veglegt og trén á Austurvelli
hafa verið í gegnum árin.
x x x
Kannski er það bara nokkuð eðli-legt að tréð sé frekar ljótt í ár.
Þessi gjöf og birtingarmynd vin-
skapar og nágrannahlýju Norð-
manna var felld og brennd í mótmæl-
unum fyrir framan Alþingi. Þvílíkt
vanþakklæti. Þvílíkur hroki og tillits-
leysi. Víkverji fordæmir harðlega alla
þá mótmælendur sem tóku þátt í að
rífa niður tréð. Það er marklaust að
mótmæla siðferðisbresti með því að
rífa niður eitt helsta tákn jólaandans,
nágrannahlýju og gjafmildi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Í dag er laugardagur 18. desember,
352. dagur ársins 2010 Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is