Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010 ✝ Sigrún Skírn-isdóttir fæddist á Akureyri 16. ágúst ár- ið 1968. Hún andaðist á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 11. desember síðastliðinn. Foreldrar Sigrúnar eru Hjördís Sig- urbjörnsdóttir, f. 26. júlí 1936 og Skírnir Jónsson, f. 10. mars 1928, d. 23. júlí 2007, bændur á Skarði í Dalsmynni. Systkini Sigrúnar: 1) Sig- urbjörn Ingi, f. 14. maí 1956, maki Kristín Tryggvadóttir og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn. 2) Jón Bragi, f. 13. maí 1957, maki Sig- urbjörg Helga Pétursdóttir og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn. 3) Jóhann, f. 29. júní 1959, maki Frey- dís Ágústa Halldórsdóttir og eiga þau tvær dætur. 4) Bessi, f. 30. októ- ber 1960, maki Eiríksína Þorsteins- dóttir og eiga þau tvö börn. 5) Hann- es Trausti, f. 8. maí 1964, maki Katrín Eymundsdóttir og eiga þau þrjú börn. 6) Skafti, f. 3. nóvember 1965, maki Kristbjörg Lilja Jóhann- esdóttir og eiga þau tvö börn. 7) Sigurlaug, f. 11. október 1970, maki Víðir Ársælsson og eiga þau tvö börn. 8) Guðrún Elfa, f. 3. febrúar 1972, maki Kjartan Guðmundsson og eiga þau þrjú börn. 9) Hjördís Sunna, f. 23. apríl 1977, maki Magn- ús Þór Helgason og eiga þau tvö börn. Uppeldisbróðir Sig- rúnar er Brynjólfur Gunnarsson, f. 24. des- ember 1970, maki Anna Birna Sæ- mundsdóttir og eiga þau fjögur börn. Sigrún, eða Sísa eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp á Skarði í Dals- mynni þar sem foreldrar hennar stunduðu búskap um árabil. Eftir að hefðbundnu grunnskólanámi á Grenivík og á Stórutjörnum lauk flutti Sísa til Akureyrar. Þar starfaði hún um árabil hjá Pósti og síma eða allt þar til hún lét af störfum vegna veikinda. Útför Sigrúnar verður gerð frá Laufáskirkju í dag, 18. desember 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Mig langar langar að kveðja góða konu, systur mína, hana Sísu. Eitt- hvað er þetta svo óraunverulegt, fyrir nokkrum vikum varstu svo frísk og flott að engan grunaði að handan við hornið biði eitthvað sem mannlegur kraftur réði ekki við. Við áttum margar góðar stundir saman og umfram allt vorum ávallt sáttar hvor við aðra. Ég bauð nánast aldrei til veislu án þess að bjóða þér með eða fór á rúntinn með fjölskyldunni án þess að heyra í þér, enda sagðist þú vera stóra barnið mitt. Þú varst mér einstök stoð þegar ég var í námi, komst hvern morgun í strætó í vetrarkuldanum og passaðir fyrir mig frumburðinn minn hana Ing- unni Emblu. Þið Ingunn Embla bundust vinaböndum þennan vetur sem aldrei rofnuðu. Einnig varstu einstök að stökkva til er ég hringdi í þig með skömmum fyrirvara og bað þig um aðstoð með börnin mín. Það mætti eflaust telja á fingrum ann- arrar handar þau skipti sem þú gast ekki komið. Því má segja að við höf- um verið góðar hvor við aðra. Ávallt kvaddir þú okkur með þessum orð- um: „En hvað það er yndislegt að koma til ykkar, manni líður alltaf svo vel hjá ykkur.“ Þú krafðist ekki mikils af þínum nánustu en ef beiðni kom þá vorum við öll sannarlega tilbúin að rétta þér hjálparhönd. Við munum sakna þín við borðið á Þorláksmessu, jól- um, áramótunum, afmælum, matar- boðum og í öll hin skiptin sem við hefðum hist Sísa mín. Ég kveð þig með sorg í hjarta stóra systir og ef ég mætti einhverju ráða myndi ég óska þess að þú hefðir ekki verið kölluð svo fljótt til annarra verka. Mikið er ég glöð í hjarta að ég gat gefið þér hluta af lífi mínu því þar fannstu svo sannarlega að þú varst einstök. Hvíl í friði elsku systir og minning þín mun lifa með okkur að eilífu. Þú verður að reikna með því að lifa hvern dag á þann hátt sem þú telur að þér muni hugnast að lifa lífinu – þannig að ef því lyki á morgun gætirðu glaðst yfir unnu verki. (Jane Seymour) Guðrún Elfa Skírnisdóttir (Gunnella). Elsku Sísa mín. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur. En nú er þjáningunum lokið og þú þarft ekki lengur að leika hetjuna. Einhvern veginn hafði maður gert ráð fyrir því, eins og svo mörgu öðru, að við ættum eftir að eiga ótal góðar stundir saman. En lífið getur verið óútreiknanlegt og ósanngjarnt. Þetta kennir manni að lifa lífinu fyrir hvern dag og njóta hverrar stundar. Ég er svo þakklát fyrir vikuna sem við áttum saman eftir að þú fékkst þessar hræðilegu fréttir og ekki síður fyrir þessa síðustu viku. Ég átti dýrmætan tíma með þér og náði að kveðja þig og það mun hjálpa mér í sorginni. Það var ynd- islegt að sjá hvað þér leið vel þegar við vorum sem flest hjá þér, því þannig höfum við alltaf viljað hafa það Sísa, því fleiri því betra. Og best þegar allir tala hátt og hlæja mikið. Við erum svo rík að eiga þessa ynd- islegu samhentu fjölskyldu og eigum að þakka svo mikið fyrir hana. Ef ég hefði bara átt eina ósk hefði ég þó óskað þess að jólin ættum við sam- an, mikið verða þau skrítin án þín. Ég var búin að hlakka til að koma heim með krílin mín sem hafa stækkað svo mikið frá því þú sást þau síðast. En við munum reyna að njóta jólanna eins og þú hefðir gert og horfa fram á veginn. Við höfum öll lært mikið af þér, þér sem heillaðir alla sem kynntust þér með æðruleysi þínu og þroska. Það var ótrúlegt hversu mikinn styrk þú sýndir, ekki bara núna heldur alla tíð í þínum miklu veik- indum. Ég held að ég muni aldrei eftir að hafa heyrt þig kvarta, sama hversu mikið var á þig lagt. Og nú þegar þú kvaddir kveiðstu engu því þú vissir að þú hafðir aldrei gert neinum illt og áttir ekkert nema vini og ástvini í kringum þig. Ég mun varðveita allar góðu minningarnar og segja börnunum mínum frá þér, því það er það sem mér þykir sárast, að þau fái ekki að kynnast þér. Elsku besta Sísa mín, ég vona að nú dansir þú á Skarði, sem prinsessa eins og þú sagðist ætla að gera og að pabbi standi þér við hlið. Ég óska þess að þið gætið okkar hinna og veitið okkur styrk. Hvíldu í friði elsku systir mín. Saknaðarkveðja. Þín systir, Hjördís Sunna (Bella). Klukkan er að verða sex, Sísa hlýtur að fara að koma. Þannig minnist ég Sísu mágkonu minnar, þegar hún var að koma suður í sínar hefðbundnu læknisferðir. Hún var vön að koma alltaf á sama tíma til okkar til að gista, hún vildi hafa rút- ínu og reglu á hlutunum. Ég er ein- staklega þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem við fjölskyldan átt- um með Sísu þegar hún var hjá okk- ur. Hún var svo dugleg að fylgjast með heimsmálunum og gaman að heyra hana segja frá. Þakklát fyrir gleðistundirnar á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn fyrir rúmum tíu ár- um þegar við fórum út og Skafti gaf henni nýrað og allt gekk svo vel, þessar stundir eru ógleymanlegar. Þakklát fyrir hvað Sísa reyndist Rúnari Steini og Lilju vel og var góð við þau, það er mjög dýrmæt minn- ing fyrir þau. Elsku Dísa, stórt skarð er höggvið í hópinn þinn en þú átt yndislega fjölskyldu sem stendur þétt við bakið á þér, sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar allra. Elsku Sísa, ég kveð þig með sorg í hjarta, takk fyrir allt. Kristbjörg Lilja. Elsku Sísa mín, þú varst æðisleg og sterk mannseskja. Ég man þær stundir þegar þú komst til okkar í Vallengi og gistir í herberginu mínu. Það var alltaf gott að fá þig til okkar og er ég mjög þakklát fyrir að fá að lifa þær stundir með þér. Alltaf þekkti maður þig þegar þú varst að keyra í bænum á flotta bláa bílnum með stóru teningana hangandi í speglinum. Þakka þær góðu stundir sem við höfðum, hvíldu í friði. Þín frænka, Lilja. Sísa var mjög góð frænka og hún var alltaf svo gjafmild. Á hverju ári gaf hún okkur jóladagatal, páska- egg, Þorláksmessugjafir og stund- um líka nýársgjafir. Hún gaf mér skemmtilegar gjafir sem gaman er að eiga og skoða. Hún passaði okkur Sigrún Skírnisdóttir✝ Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, GUÐNI STEFÁN VALSSON, Garðbraut 84, Garði, lést á heimili sínu aðfaranótt mánudagsins 6. desember. Útförin fór fram í kyrrþey miðvikudaginn 15. desember. Einlægar þakkir sendum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug á erfiðum tíma. Sérstakar þakkir fær Björgunarsveitin Ægir. Með Guðs blessun og jólakveðjum, Valur Kristinsson, Jóhanna Andrea Markúsdóttir, Þórunn Ólöf Valsdóttir, Kristinn Ingi Valsson, Markús Karl Valsson, Guðrún Sonja Hreinsdóttir, Daníel Þór Valsson, Jóhanna Andrea Markúsdóttir, Guðmundur Hreinn Markússon, Valur Ingi Markússon, Þorvaldur Markússon. ✝ Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN SMÁRI FRIÐRIKSSON, Grundargerði 5e, Akureyri, lést á heimili sínu miðvikudaginn 15. desember. María Daníelsdóttir, Dýrleif Jónsdóttir, Dýrleif Jónsdóttir, Ármann Guðmundsson, Kolbrún Jónsdóttir, Kristinn Hreinsson, Guðrún Jónsdóttir, Sölvi Ingólfsson, Rúnar Jónsson, Brynja Rut Brynjarsdóttir og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR ÞÓRÐARSON, Dvalarheimilinu Garðvangi, Garði, áður Smáratúni 44, Keflavík, lést þriðjudaginn 14. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 22. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið. Erlendur Ragnarsson, Þórdís Pálsdóttir, Kristín Hrönn Ragnarsdóttir, John R. Brantley, María Hafdís Ragnarsdóttir, Sveinbjörn Þórisson, Þórður Ragnarsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Ómar Ragnarsson, Rut Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, HAUKUR KARLSSON Brúasmiður, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 20. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bent á Umhyggju (félag til stuðnings langveikum börnum). Hafdís Hauksdóttir Kjærgaard, Mikkel C. Kjærgaard, Eva Kjærgaard, Marinó Bóas Karlsson, Sigfríð Elín Sigfúsdóttir, Íris Karlsdóttir, Guðmundur Haraldsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR R. B. JÓHANNSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðjudaginn 7. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Birgir Hilmarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.