Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010 Dansk julegudstjeneste holdes i Domkirken fredag, den 24. december kl. 15.00 ved pastor Þórhallur Heimisson. Kgl. Dansk Ambassade, Reykjavík. Slökkvilið höfuborgasvæðisins Munið að slökkva á kertunum Eldtefjandi efni er sprautað er á kertaskreytingar koma aldrei í veg fyrir bruna www.gisting.dk/gisting.html sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer) Ódýr gisting í Kaupmannahöfn Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200 Undanfarið, í kjölfar útgáfu bókar Guðna Th. Jóhannessonar sagn- fræðings um ævi Gunn- ars Thoroddsen, hafa enn á ný komið fram umræður um störf stjórnmálaflokkanna og hvernig þeir hafa í ára- tugi valtað yfir sam- félagið, bæði ein- staklinga og heilu félagasamtökin eins og nú er rætt sérstaklega hvernig stjórn- málaflokkarnir hafa beitt allskonar úrræðum til að halda „sínum“ hlut í samfélaginu með njósnum. Það var einmitt þannig að þó að stjórnmálaflokkarnir hafi í reynd ver- ið kynntir til sögunnar sem stjórn- málaafl þá voru þeir í reynd harðar undirheimaklíkur og hagsmunamask- ínur, misnotaðir herfilega af þröngum flokksklíkum til að hygla þeim sem voru í flokkunum og þá oftar en ekki hygla og þjóna best þeim sem ann- aðhvort voru fremstir í goggunarröð- inni eða þeim sem voru í einhverskon- ar aðstöðu til að geta bætt stöðu flokksins eða valdakjarna hans til að komast til valda. Þetta voru til dæmis tilfelli þar sem lítil framboð, stundum nánast ein- staklingsframboð, gátu komið stórum og öflugum stjórnmálaflokki að rík- isjötunni með sínum stuðningi gegn þóknun sem kölluð er helmingaskipti þannig að flokksbrotið fékk jafn mikil völd og stóri flokkurinn. Oft voru Alþýðuflokkur eða Fram- sóknarflokkur í þessari aðstöðu en stundum alls konar flokksbrot og sér- framboð. Í umræddri bók Guðna er að finna viðamiklar lýsingar á klækjum stjórn- málaflokkanna um hvernig þeir komu upp eins konar fulltrúaneti eða njósnakeðju sem var plantað inn í fyr- irtæki og samtök. Engin leið er að halda að það hafi bara verið einn flokkur umfram annan sem hafi stundað ólöglega starfssemi af þess- um toga en þó er hugsanlegt að hver flokkur fyrir sig hafi haft sitt „kerfi“. Flokkarnir hafa svo oft verið alger- lega samstiga í alls konar málum sem hafa snúið að hagsmunum þeirra sjálfra svo sem eftirlaunafrumvarpið sem var samþykkt bæði af vinstri- mönnum jafnt sem hægrimönnum að oftar en ekki eru stjórnmálaflokk- arnir eins og einn flokkur. Í svona litlu samfélagi er meinið það að hér þekkja allir alla og nær ekkert vandamál að vita allt um alla – ef fólk bara vill. Upplýsingar liggja um allt svo sem læknaskýrslur, upp- lýsingar um tekjur, skatta, húsnæði, bíla og margt fleira sem flæðir um samfélagið að maður tali nú ekki um alla delluna með ættfræðiskráning- arnar sem eru arfleifð frá bænda- samfélaginu að vita hvort fólk var undan hinum eða þessum bóndanum eða prestinum eða var húsgangar eða jarðlaust utangarðsfólk. Á þeim tíma skipti slíkt miklu máli en dellan hefur haldist og ofan á allar aðrar upplýsingar sem liggja á glám- bekk í samfélaginu þá bætist þetta við. Öfgahópar stjórnmálaflokkanna þurfa því ekki að hafa mikið fyrir hlut- unum til að safna veglegum skrám um nær alla sem þeim dettur í hug og ekki hefur hriplekt tölvupóstkerfi lands- manna bætt úr skák. Skoðið bara jólabæk- urnar. Það sem er alvarleg- ast í þessari umræðu er hvernig stjórn- málaflokkarnir komu fram við fólkið í landinu, almenning sem ekki var hluti af þessari hags- munamaskínu sem stjórnmálaflokkarnir voru og eru og hafa í fjölda mála snúið bökum saman um sín sér hagsmunamál með eftirlaunafrumvarpið í broddi fylk- ingar. Pólitískir andstæðingar eru skip- aðir í stöður erlendra sendiráða eða í önnur gæluverkefni til að þakka fyrir að hafa verið „andstæðingar“ í ára- tugi. Það er öll andstaðan sem þessir flokkar eru í þegar upp er staðið. Pólitískar mannaráðningar í haug- um og áratugum saman þar sem nánir samstarfsmenn æðstu stjórnmála- manna eða náinna samverkamanna, jafnvel nánir ættingjar (sbr. fjölmiðla þessa dagana) fá nær endalaust og miskunnarlaust gaukað að sér tæki- færum, verkefnum og vinnuráðn- ingum fyrir allra augum og ekki verið neitt að fela það. Þetta tekur engan enda. Einkavæðing ríkisfyrirtækja sem sumir kölluðu einkavinavæðinguna, bæði bankar og fjöldi annarra væn- legra fyrirtækja sem flæddu frá rík- inu á spottprís eða jafnvel nánast fyrir ekki neitt – fært frá ríkinu yfir á einkavini stjórnmálamanna – eða menn settu upp nýtt einkafyrirtæki með samningi við ríkið – að einkafyr- irtæki þeirra væri rekið með pen- ingum frá ríkinu. Sumt af þessu er núna að koma í andlitið á þjóðinni í formi algers hruns og virðist sem fólkið í landinu ætli að taka því þegjandi að nær allar fast- eignir og peningar landsmanna (nema nokkurra útvalinna eins og venjulega) eru þurrkuð út og það nánast ein- göngu vegna einkavinavæðingar nokkurra stjórnmálamanna. Af- skriftir bankanna núna á milljörðum til útvalinna hrunverja hafa síðan kór- ónað allt saman. Er þetta hægt? Nei, þetta er ekki hægt. Heildstæðustu samantektir á or- sökum hrunsins eru þó líklega í bók Rogers Boyes „Meltdown Iceland“ sem rekur vel spillingarplott stjórn- málanna á Íslandi en einnig í viðauka- skýrslu dr. Huldu Þórisdóttur sem unnin var fyrir vinnuhóp um siðferði á vegum rannsóknarnefndar Alþingis og lýsir hvernig þetta glæpsamlega stjórnkerfi er siðferðislega. Það verður gaman að sjá hvernig nýja stjórnlagaþingið ætlar að leið- rétta glæpakerfi íslenskra stjórnmála. Jólakveðja stjórnmálanna til landsmanna Eftir Sigurð Sigurðsson »Enn á ný hafa komið fram umræður um störf stjórnmálaflokk- anna og hvernig þeir hafa í áratugi valtað yfir samfélagið Sigurður Sigurðsson Höfundur er cand. phil. byggingaverkfræðingur. Undanfarna ára- tugi hafa uppeldis- fræðingar og barna- sálfræðingar haldið því fram að hrós bæti sjálfstraust barna. En eftir að efasemdir komu fram um ágæti hróss hafa sálfræð- ingar í auknum mæli rannsakað hvort það að hrósa börnum fyr- ir meðfædda hæfileika eins og t.d. greind geti jafnvel skaðað þau. Í einni rannsókn var hópi 128 barna á aldrinum 10-11 ára skipt í tvo hópa og látin taka einföld vits- munagreindarpróf. Börnunum í hópi 1 var sagt að þau hefðu stað- ið sig mjög vel og hlytu því að vera mjög greind. Börnunum í hópi 2 var sagt að þau hefðu stað- ið sig mjög vel og hlytu að hafa lagt sig mikið fram. Annar hóp- urinn fékk s.s. hrós fyrir greind, hinn fyrir viðleitni. Aðspurð hvort þau væru til í aðeins erfiðara próf voru börnin sem höfðu fengið hrós fyrir greind treg og völdu frekar að taka aftur einfalt próf. Af þeim sem höfðu fengið hrós fyrir viðleitni voru 90% á hinn bóginn óð- fús að taka meira krefjandi próf. Í loka- prófinu sýndi þessi hópur marktækt betri árangur en hópurinn sem hafði fengið hrós fyrir greind. Margir þeirra sem höfðu fengið þau skilaboð að vera mjög greind- ir voru með lakasta árangurinn. Svo virðist sem þau hafi haldið að þau gætu náð góðum árangri án þess að leggja mikið á sig af því að þau væru mjög greind, á með- an hin börnin höfðu fengið þau skilaboð að þau gætu bætt sig með því að leggja meira á sig. Þróunarsálfræðingurinn Carol Dweck og teymi hennar við Col- umbia-háskólann gerðu rannsókn þar sem börn á aldrinum 10-11 ára tóku þrjú próf. Annað prófið hafði viljandi verið gert það erfitt að þau féllu öll. Það sem rannsak- endur komust að var að börn sem höfðu fengið hrós fyrir viðleitni sína náðu sér á strik eftir að hafa fallið með því að ná 30% betri ein- kunnum í þriðja prófinu en því fyrsta á meðan þau börn sem höfðu fengið hrós fyrir það hversu klár eða greind þau voru fengu 20% lakari niðurstöðu en í fyrsta prófinu. Öfugt við það sem hefur áður verið haldið fram gefur hrós fyrir greind eða gáfur börnum ekki sjálfstraust og hvetur þau ekki til að ná betri námsárangri, að mati Carol Dweck sem starfar í dag við Stanford-háskólann. Dweck, sem er höfundur bókarinnar Mindset: The New Psychology of Success, segir að við ættum að hrósa börn- um fyrir atriði sem þau geta haft áhrif eða stjórn á, eins og við- leitni. Hrósaðu börnunum fyrir viðleitni frekar en greind Eftir Ingrid Kuhlman Ingrid Kuhlman » Þau börn sem fá hrós fyrir meðfæddar gáfur sínar eru oft ofur- viðkvæm fyrir því að mistakast og líklegri til að gefast upp þegar á móti blæs. Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.