Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010  Söngkonan Anna Mjöll Ólafs- dóttir heldur tónleika á morgun, 19. desember, á Kaffi Rósenberg og hefjast þeir kl. 21. Á tónleikunum mun Anna flytja lög af nýrri jóla- plötu sinni, Christmas JaZZmaZ, en á henni má finna sígild jólalög í djössuðum útsetningum. Djössuð jól hjá Önnu Mjöll á Rósenberg Fólk The South River Band eða bandið Suður- ársveitin gefur út disk um jólin sem nefnist Um jólin. Hljómsveitarmeðlimirnir eru sveitungar og frændur frá Ólafsfirði. Á Kleifum í Ólafs- firði er bær sem þeir eiga ættir að rekja til og nefnist Syðri á. Þar er mikil söngmenning og eftir Kleifamótið árið 2000 ákváðu þeir að stofna hljómsveit. Þeir hafa hist vikulega síðan þá og æft og samið lög. „Þetta er einsog hálfgerður saumaklúbbur,“ segir Helgi Þór Ingason, einn meðlimur sveit- arinnar úr sveitinni. „Þetta er jóladiskur sem við höfum gengið með í maganum mjög lengi. Við ákváðum núna í ár að setja mikinn kraft í þetta og vorum í sumar að semja jólalög. Ég var mikið úti á verönd í sumar í steikjandi hita, ber að ofan, berjandi frá mér flugurnar og samdi jólalög um snjókorn og nístandi snjó- bylji. Í mestu hitabylgjunni samdi ég mjög kuldalegan texta um jól á Hvanndölum þarsem ég er að velta fyrir mér hvernig jólin hafa ver- ið á þeim afskekkta stað. Það eru tólf lög á plötunni og um það bil helmingur þeirra er frumsaminn. Þetta er þjóðlagatónlist þar sem við erum með lifandi hljóðfæri; fiðlu, gítar, mandólín, harmonikku og kontrabassa,“ segir Helgi. Ekkert tónleikahald verður hjá hljómsveit- inni þar sem einn meðlimanna, Ólafur Þórð- arson, liggur þungt haldinn á spítala í Reykja- vík og segir Helgi að hugur þeirra sé hjá honum um þessi jól. borkur@mbl.is Suðurársveitin kemur suður með jólaplötu Suðurársveitin Ólafur, Helgi, Matthías, Ólafur Baldvin og Jón Kjartan í South River Band.  Einhver skærasta poppstjarna Íslands, Páll Óskar, ætlar að vera algjörlega gordjöss á Nasa í kvöld. Páll mun þeyta skífum fram á morgun og spila ýmis góð og vinsæl partílög auk þess að taka eigin smelli eins og honum einum er lag- ið. Sérstakir gestir Páls Óskars verða bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson. 20 ára aldurstakmark er í partíið sem hefst kl. 23.30. Gestir eru hvattir til þess á miða- söluvefnum midi.is að taka með sér myndavélar þar sem Páll hafi gam- an af því að pósa, enda gordjöss eins og fram hefur komið. Gordjöss Palli, Friðrik Dór og Jón Jónsson  Kvikmyndin Rokland, byggð á samnefndri bók Hallgríms Helga- sonar, verður frumsýnd 14. janúar 2011 í Sambíóunum. Frá því segir á fésbókarsíðu myndarinnar. Með að- alhlutverkið í myndinni, Bödda Steingríms, fer leikarinn viðkunn- anlegi Ólafur Darri Ólafsson en leikstjóri er Marteinn Þórsson. Rokland frumsýnt 14. janúar í Sambíóum Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Árið 2010 hefur verið annasamt hjá hljómsveitinni Seabear, sem hefur haldið nærfellt 100 tónleika á árinu um veröld víða. Seabear er ein af þessum skilgetnu afkvæmum nýj- ustu tækni og vísinda í tónlistariðn- aðinum; tölvupóstur, stafræn tón- listartækni og annað slíkt gerir Seabear kleift að hafa bækistöðvar á Fróni en atvinnuna utan þess (og dásamleg tónlistin gerir auðvitað sitt gagn líka!). Hún er lítt þekkt hérlendis en á harðfylgna aðdá- endur erlendis og fer sá hópur stækkandi. Sveitin hefur enda verið á ferð og flugi í fjögur ár, eða allt síðan að kynning á fyrstu breiðskíf- unni, The Ghost That Carried Us Away, hófst. Önnur platan, We Built A Fire, sem út kom í mars, er svo ástæða alls þessa flandurs í ár. Það var það „Jú jú, það var það,“ segir Sindri Már Sigfússon, söngvari, gítarleik- ari og lagahöfundur Seabear, að- spurður hvort árið hafi ekki verið annasamt. „Við fórum út strax í janúar og höfum svo verið að fara út í hverjum mánuði. Nokkrum sinnum til Evr- ópu og tvisvar til Ameríku. Við átt- um frí í júlí og júní en annars hefur þetta verið svo gott sem stanslaust.“ Tónleikarnir eru tæplega hundr- að, og af alls kyns toga segir Sindri, uppátroðslur í útvarpsþáttum, sjón- varpsþáttum og vefþáttum t.d. „Það er t.d. í tísku að láta sveitir spila á einhverjum skrítnum stöð- um; við spiluðum í kókosbolluverk- smiðju í Noregi, í einhverjum garði í New York, úti á svölum í Póllandi og í tómu skrifstofuhúsnæði í Þýska- landi.“ Seabear lék líka í Berlín í janúar í frostgaddi miklum. Sindri hlær við. „Já, það var víst kuldamet í borg- inni. Þetta er mesta sturlun sem ég hef tekið þátt í, við gátum spilað í ca. 30 sekúndur en svo þurftum við að stilla hljóðfærin aftur þar sem þau voru öll orðin fölsk. Ég er búinn að komast að því að Ísland er heitasta land Evrópu á veturna, það er eins og að koma til hitabeltiseyju að koma hingað aftur, eftir að hafa ver- ið í þessum Mið-Evrópulöndum að vetri til.“ Náið Sindri og sveitin eiga í góðu sam- starfi við Morr Music í Berlín og vinna náið með umboðsmanni, bók- ara og útgáfu. „Þetta er nýja viðskiptamódelið í indíbransanum,“ segir Sindri. „Seabear og svo Sin Fang (sóló- verkefni Sindra) eru með þýskan umboðsmann á sínum snærum og hann stendur sig feikivel. Þjóðverjarnir eru bara svo pott- þéttir, það stenst allt sem þeir segja og það er aldrei neitt „þetta reddast“ í gangi. Þeir eru gríð- arlega skipulagðir og það er t.d. búið að skipuleggja allt næsta ár hvað Seabear viðkemur.“ Hann segir að næsta ár hjá Sea- bear fari líklega í að semja og taka upp plötu sem kæmi svo út 2012. Ný Sin Fang-plata kemur út í mars, Sóley hljómborðsleikari gefur út breiðskífu og aðrir meðlimir hafa líka nóg að gera við önnur verkefni, tónlistartengd og ekki. „Það eru kostir og gallar við að vera á svona löngum ferðalögum. Annars vegar er þetta draumur hvers starfandi tónlistarmanns en það er erfitt að þurfa að horfa á barnið sitt byrja að ganga í gegnum Skype. Ég vinn þó eingöngu við þetta þannig að ég get varið miklum tíma með fjölskyldunni á milli túra. Ég geri líka dálítið af því að semja stef fyrir auglýsingar og kvikmynd- ir. Það er fáránlega mikið af pen- ingum í þeim bransa en það þarf að selja skrilljón plötur til að fá eitt- hvað út úr því. En svo teikna ég líka og mála og sel það í gegnum netið þannig að það tikkar alltaf eitthvað inn. Þannig að ég lifi af listinni, sem mér finnst eiginlega hálfótrúlegt.“ Kókosbollu- verksmiðja í Noregi  Seabear hefur verið á linnulausu tónleikaferðalagi allt þetta ár Sveitin Seabear í öllu sínu veldi með Sindra eiturslakan á kantinum. Seabear heldur lokatónleika sína á þessu ári í nýuppgerðu Tjarnarbíói á morgun, sunnu- dag. Sindri segist hlakka mikið til að spila á staðnum en þess ber að geta að ekki eru nema 200 miðar í boði. Um upphitum sér hljómsveitin Hudson Wayne en miðaverð er 2.000 kr. Húsið verð- ur opnað klukkan 20 og tónleikar hefjast stundvíslega klukkan 21. Forsala aðgöngu- miða er í anddyri Tjarnarbíós á virk- um dögum frá 13-15 og á midi.is. Árið kvatt KVEÐJUTÓNLEIKARNIR Seabear Byrjaði sem sólóverkefni. sögubók. Meðal þeirra má nefna sönginn um hann Vilhjálm níunda greifa af Poitou. Aðrir textar segja sögur sem kitla ímyndunarafl hlustanda eins og lögin „Matinée“ og „Við Ari“. Textarnir á plötunni eru sérstaklega skemmtilegir og athygl- isvert hvernig textahöfundurinn Bene- dikt H. Hermannsson leikur sér að ís- lenskri tungu í bland við einhvers konar útlensku. Kannski Benna Hemm Hemmsku? Við fyrstu hlustun svipar plötunni Áplötunni Skot leiða samanhesta sína Benni HemmiHemm og hljómsveitinRetro Stefson sem sér um undirleik. Platan er óvenjulegt sam- bland gleðipopps með söngtextum sem sumir hverjir eru dálítið eins og sungnir beint upp úr mannkyns- nokkuð til tónlistarstíls Belle and Seb- astian í bland við Badly Drawn Boy. Segja má að Benni Hemmi sé eins kon- ar tónlistar-hjarðmaður sem smalar til sín ýmiskonar tónlistarmönnum til að ramma inn rödd sína og gítarspil. Á þessari plötu smalar hann saman heilli hljómsveit og hefur hópnum tekist að búa til plötu fulla af forvitnilegum og heillandi hljómum með töfrandi söng- textum. Þeir flytja hlustanda í ferðalag þar sem áfangastaðurinn skiptir ekki öllu máli heldur miklu frekar ferðin sjálf. Það er þannig sem tónlist Benna Hemm Hemm lætur hlustanda líða áfram í þægilegum nið sem lætur vel í eyra og huga hans. Samkennd Benni Hemm Hemm fékk liðsmenn Retro Stefson í lið með sér á nýjustu plötu sinni. Þessa skemmtilegu mynd má finna í umslagsbæklingi. Benni Hemmi Hemm – Skot bbbmn MARÍA ÓLAFSDÓTTIR TÓNLIST Heillandi hljómur, töfrandi textar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.